Dagur - 19.12.1983, Síða 8
8 - DAGUR - 19. desember 1983
Janúar:
„KA með 6 titla - Þórsarar með 3“
sagði í fyrstu fyrirsögn á fyrstu
íþróttasíðu ársins og fjallaði um Ak-
ureyrarmótið í innanhússknatt-
spyrnu sem haldið var í lok ársins
1982. Eins og fram kemur í fyrir-
sögninni vegnaði KA vel þar í bar-
áttu við erkifjandann.
„Það er frágengið að hann leikur
með okkur næsta sumar,“ sagði hins
vegar Guðmundur Sigurbjörnsson
formaður knattspyrnudeildar Þórs
glaður í bragði er það var gert opin-
skátt að Þorsteinn Ólafsson myndi
leika í markinu hjá Þór á komandi
keppnistímabili.
KA-menn svöruðu með því að
efna til fagnaðar þar sem þeir minnt-
ust 55 ára afmælis félagsins og buðu
þeir bæði upp á afmælishátíð í
íþróttahöllinni og f Sjallanum um
kvöldið þar sem þeir iðkuðu fót-
mennt sfna af krafti.
Jóhann Sigurðsson körfuknatt-
leikskappi úr Þór var ekki eins
glaður og hafði upp á lítið að halda.
Hann sleit nefnilega liðbönd á fæti
á síðustu æfingu fyrir áramótin og
var úr leik það sem eftir lifði
keppnistímabilsins.
Júdómenn á Akureyri slitu hins
vegar ekki neitt er þeir héldu sitt
Ylismót. Þeir hnoðuðu hverjum
öðrum í gólfið af krafti og þegar upp
var staðið reyndist Benedikt Ing-
ólfsson KA hafa sigrað í léttasta
flokki, Broddi Magnússon Þór í 75
kg flokki og Þorsteinn Hjaltason í
flokki þeirra þyngstu.
Á sama tíma og Þórsarar voru að
fá til sín markvörð í knattspyrnunni
spurðist það út að Aðalsteinn Jó-
hannsson markvörður KA væri á
förum til Eyja. Fór um marga KA-
menn við fregnir þessar enda fór svo
að Aðalsteinn gekk til liðs við ÍBV
þegar kom fram á vorið.
Rúnar Þór Björnsson var kjörinn
„íþróttamaður ársins 1982“ hjá fé-
lagi fatlaðra á Akureyri og Gunnar
nokkur Níelsson baðvörður í
íþróttahöllinni sem öllu íþróttafólki
er að góðu kunnur fékk mokkajakka
einn mikinn á afmælishátíð KA.
Þórsarar með hinn svarta Robert
McField urðu fyrstir til að sigra
Hauka í 1. deiidinni í körfuknattleik
og „stóðu áhorfendur lengi vel og
fögnuðu sigrinum" eins og sagði í
frásögn Dags. Úrslitin 91:100 eftir
framlengdan leik og skoraði sá
svarti alls 61 af stigum Þórsara eða
nákvæmlega 61% af stigum þeirra
að sögn reiknivélarinnar.
„Tvöfaldur sigur Nönnu“ sagði í
fyrirsögn eftir fyrstu skíðamót
vetrarins sem voru Svigmót Þórs og
Stórsvigmót KA og Nanna átti eftir
að bæta við ýmsum skrautfjöðrum í
skíðahúfuna sín áður en keppnis-
tímabilið var úti.
Akureyringar og Húsvíkingar
kepptu í badminton og sigruðu þeir
fyrmefndu með 33 vinningum gegn
6 en Húsvíkingar hótuðu hefndum
að ári.
KA hafði yfirburði í Akureyrar-
mótinu í handknattleik karla er liðið
tók Þór í kennslustund og sigraði
25:15. „KA er með miklu sterkara
lið og eru styrkleikaflokki fyrir ofan
okkur,“ sagði Guðjón Magnússon
þjálfári Þórs og tók ósigrinum af
karlmennsku eins og hans var von
og vísa.
Febrúar:
Akureyringar gerðu það gott á
„Hermannsmótinu" á skíðum í
Hlíðarfjalli og hlutu 10 af 12 verð-
launum sem keppt var um. Nanna
Leifsdóttir sigraði að sjálfsögðu
tvöfalt.
KA hafði örugga forustu í 2.
deildinni í handboltanum þegar
þrjár umferðir voru eftir fyrir auka-
keppni 4 efstu liðanna.
„Bautamótið" í innanhússknatt-
spyrnu var haldið í íþróttahöllinni
og kepptu þar 14 lið. Til úrslita léku
Þór og Reynir Árskógsströnd og
sigraði Þór með 11 mörkum gegn
tveimur.
Jón Þór Gunnarsson hefur verið
einn skæðasti golfari á Norðurlandi
undanfarin ár og hann var sigursæll
á árinu. Nú dvelur hann við nám í
Bandaríkjunum, en golfkylfurnar
fóru með og hann æfir ytra við
fyrsta flokks aðstæður. Það má því
vænta þess að hann eigi enn eftir að
bæta við sig.
Kristján Olgeirsson þjálfaði lið
Völsungs í 2. deildinni sl. sumar.
Þessi gamalreyndi landsliðasmaður
þótti standa sig vel utan vallar sem
innan og andstæðingar hans voru
ekki öfundsverðir.
„Tígriskötturinn“ Kári Elíson hafði
í mörg hom að líta á árínu. Það lá
við að rekja mætti slóð hans því
hvar sem hann keppti fuku íslands-
metin um koll og hefur Kári nú sett
vel yfir 150 met á ferli sínum.
Eiríkur Eiríksson markvörður
Þórs í knattspyrnu tilkynnti að hann
myndi leika með Reyni Árskógs-
strönd á komandi keppnistímabili
og þjálfa liðið einnig.
Alfreð og Gunnar aftur með
KA?, spurði íþróttafréttamaður
Dags spenntur 17. febrúar. Málin
áttu eftir að skýrast, og á þann veg
eins og allir vita að hvorugur leikur
með KA í handboltanum í vetur og
eru þeir bræður reyndar báðir í
Þýskalandi við keppni eins og kunn-
ugt er.
Margir fengu ómjúkar byltur á
Júdómóti Júdóráðs Akureyrar en
þar mættu 40 keppendur til leiks.
Magnús Hauksson, Margrét Þráins-
dóttir, Runólfur Gunnlaugsson,
Sævar Kristjánsson, Halldór Guð-
björnsson, Ómar Sigurðsson og
Bjarni Friðriksson unnu í hinum
ýmsu flokkum sem keppt var í á
mótinu.
KA vann góðan sigur 20:19 gegn
einu af toppliðunum í 2. deildinni í
handbolta, sigraði Gróttu á heima-
velli en Þórsarar töpuðu tvívegis í
körfuboltanum, fyrir Haukum og
ÍS.
Blakmenn sátu heldur ekki að-
gerðarlausir, Bjarmi úr Fnjóskadal
sigraði Vfking 3:2 og UMSE tók
Víkinga í karphúsið daginn eftir og
kramdi þá 3:0.
Mars:
Körfuknattleiksmenn Þórs fengu
loksins að keppa í íþróttahöllinni
því þar höfðu verið settar upp körf-
ur þeim til undrunar. Þeir héldu upp
á daginn með 87:86 sigri gegn ÍS í
æsispennandi leik.
Norðlenskir keppendur voru sig-
ursælir á Bikarmóti SSÍ í Skálafelli
við Reykjavík. Gottlieb Konráðs-
son Ólafsfirði, Finnur V. Gunnars-
son Ólafsfirði og Baldvin Kárason
frá Siglufirði héldu heim á leið með
öll gullverðlaunin sem keppt var
um.
KA komst áfram í Bikarkeppni
HSÍ með sigri á Fylki en útséð var
með að Þórsarar kæmust í 2. deild-
ina í handknattleiknum eftir ósigur
gegn Reyni Sandgerði.
Körfuknattleikskappinn Robert
McField sem leikið hafði með Þór
stakk af öllum að óvörum og hélt til
Bandaríkjanna án þess að tala við
nokkurn mann, og skildu Þórsarar
ekkert í því hvað hafði hlaupið í
manninn . . .
Kári „Tígrisköttur" Elíson vann
besta afrekið á Akureyrarmótinu í
kraftlyftingum, lyfti samtals 542,5 kg.
Þór vann tvo auðvelda sigra gegn
Borgnesingum í 1. deildinni í körfu-
knattleik og Gottlieb Konráðsson
sigraði í karlaflokki á fyrsta minn-
ingarmótinu um bræður hans Frí-
mann og Nývarð sem létust í bílslysi
í Ólafsfjarðarmúla sumarið 1982. Á
sama tíma voru Akureyringar og
Siglfirðingar að leika bæjakeppni í
badminton og sigraði Akureyri létt
með 16:8.
Lyftingakappar frá Akureyri
sóttu fimm gullverðlaun á íslands-
mótið í kraftlyftingum í Reykjavík.
Nú voru knattspyrnumenn komnir
á stjá og Þór og KA léku æfingaleik
á alhvítum Sanavellinum og lauk
honum með sigri Þórs 3:1. Að því
loknu héldu Þórsarar f æfinga- og
keppnisferð til Danmerkur.
Apríl:
Landsmót skíðamanna var haldið á
ísafirði um páskana og Nanna Leifs-
dóttir hélt þar uppteknum hætti.
„Nanna Leifsdóttir skíðadrottning
íslands" sagði í frétt Dags af mót-
inu. Þá voru keppendur frá Ólafs-
firði mjög sigursælir í norrænu
greinunum að venju.
Það kom því ekki á óvart er
Nanna var kjörin „íþróttamaður
Akureyrar 1982“ enda hafði hún
sigrað í öllum mótum sem hún tók
þátt í. Nanna var því í góðu skapi
þessa dagana og það voru KA-menn
einnig þvf KA var komið í 1. deild
handboltans eftir harða úrslita-
keppni 4 liða.
Unglingameistaramót íslands á
skíðum var hatdið með pomp og
prakt í Hlíðarfjalli og að venju voru
norðlenskir keppendur framarlega
í flestum greinum og Akureyringar,
Húsvíkingar, Ólafsfirðingar og Sigl-
firðingar atkvæðamiklir við verð-
launasöfnun. Þá voru Andrésar-
andar leikarnir í Hlíðarfjalli og
mættu þar um 400 börn og unglingar
til leiks.
Maí:
Tími vetraríþrótta var að líða undir
lok. 40 unglingar kepptu í Akureyr-
armóti í badminton og fimleikafólk
hélt einnig sitt mót og boðuð voru
„vertíðarlok" í Hlíðarfjalli. Knatt-
spyrnumenn voru að taka völdin.
Fyrsti opinberi leikurinn var
viðureign Þórs og KS í Vormóti
KRA og sigraði Þór 3:0 en daginn
eftir er KS mætti KA var „steindautt
jafntefli“ eins og sagði í fyrirsögn
Dags.
Kári „Tígrisköttur" Elíson hélt
áfram að setja íslandsmet í kraft-
lyftingum, lyfti nú 161 kg í bekk-
pressu en síðan hefur hann marg-
bætt það met sitt.
Einn mesti „drulluleikur“ sem
sést hefur lengi var háður á Sana-
velli er KA og Þór léku til úrslita í
Vormóti KRA. Völlurinn var eitt
drullusvað og leikmenn svakalegir
útlits í leikslok, en þá hafði hvort lið
sögðu knattspymumenn á Siglufirði
18. maí. - „Ástandið á vellinum
okkar er alveg hryllilegt,“ sagði líka
Frímann Gunnlaugsson formaður
vallarnefndar Golfklúbbs Akureyr-
ar en á velli klúbbsins að Jaðri var
mikill snjór yfir öllu.
íslandsmótið í knattspyrnu hófst
og tapaði Þór í 1. deildinni fyrir
Skagamönnum 0:1. Gunnar Gísla-
son skoraði hins vegar „þrennu“
gegn Reyni í 2. deild og KÁ sigraði
4:1. Kristján Olgeirsson sendi
„þmmufleyg" í mark Víðis úr Garði
og Völsungur vann þar 2:0 sigur.
Þá gerði Þór jafntefli við KR í
Reykjavík 1:1 og boltinn var sem
sagt kominn á fulla ferð.
Tindastólsmenn byrjuðu vel í 3.
deildinni unnu Sindra frá Hornafirði
og Þrótt Neskaupstað í tveimur
fyrstu leikjum sínum og Voru vel að
sigrunum komnir. Gunnar Gíslason
meiddist hins vegar illa í landsleik
gegn Spánverjum á Laugardalsvelli
og var frá í nokkurn tíma.
Júní:
„Ölvaðir áhorfendur voru með
dólgshátt og það var varla friður til
að spila knattspyrnu," sagði KA-
maðurinn Jóhann Jakobsson eftir
leik KS og KA á Siglufirði. Úrslitin
2:2 og það voru „mörk á heimsmæli-
kvarða" eins og sagði í frásögn
Dags.
Þórsarar sátu einir á botni 1.
deildar eftir 4 umferðir. Höfðu að-
eins 2 stig en þeir áttu eftir að bæta
stöðu sína er kom fram á sumarið.
KA var hins vegar í efsta sæti 2.
deildar og Tindastóll efst í b-riðli 3.
deildarinnar.
Nú tryggði Guðjón Guð-
mundsson Þór annað stigið í leik
liðsins gegn ÍBV. „Þrumuskalli“
Nanna Leifsdóttir fagnaði oft sigri á árinu, og einnig þvi að
vera kjörin „íþróttamaður ársins á Akureyri“.
skorað eitt mark og það nægði Þór
til sigurs í mótinu. - Sfðan fóru
Þórsarar til Húsavíkur í æfingaleik
gegn Völsungum og fengu varmar
móttökur og unnu heimamenn með
3:0.
„Við erum að leita að vellinum,“
Guðjón jafnaði metin 1:1. - Gunnar
Gíslason var kominn í slaginn með
KA eftir meiðslin og fékk rauða
spjaldið í leik KA og Völsunga sem
Völsungarnir unnu 1:0.
Enn var Guðjón Guðmundsson
að útbýta „þrumufleygum" sínum.