Dagur - 19.12.1983, Síða 12
12 - DAGUR - 19. desember 1983
Par sem jólin eru á næsta leiti og
auglýsingar gerast djarftækar á
síðum blaðanna, verðum við lík-
lega að hafa þetta í styttra máli
og kjarnyrtara en oft áður. Það
er skemmtileg tilviljun að nú
leiða saman hesta sína í þessum
þætti, tvær bestu hljómsveitir ís-
lands í augnablikinu (að sinfón-
íunni undanskilinni - að sjálf-
sögðu). Petta eru hinir allt að
því heimsfrægu Mezzoforte og
svo okkar eiginn BARA-
Flokkur. Með slæðast svo liprar
jólaplötur.
GerUsneyðing
Það þarf ekki að fara mörgum
orðum um það að Mezzoforte er
besta hljómsveitin í dag. Þetta
skilja allir hvort svo sem þeir
hafa gaman af tónlistinni eða
ekki. Mezzoforte er orðinn slíp-
aður demantur, af dýrustu gerð.
Hin nýja plata Mezzoforte,
Yfirsýn er þeirra besta fram að
þessu, að hljómleikaplötunni
undanskilinni að mínu viti. Hvert
einasta lag er fullkomið fram í
fingurgóma og þau renna létt og
átakalaust í gegn eins og lækjar-
spræna á sumardegi. Satt best að
segja þá finnst mér Mezzoforte
vera orðnir betri en góðu hófi
gegnir. Hvergi er slegin feilnóta
og maður hefur á tilfinningunni
að gerilsneyðing sé að verða rétta
orðið yfir hljómsveitina. Þetta
háði Mezzoforte ekki á hljóm-
leikaplötunni. Þar skapaði áhorf-
endaskarinn skemmtilegan bak-
grunn en á Yfirsýn er hins vegar
allt dauðhreinsað.
Það eru líklega hámörk enda-
leysunnar þegar gagnrýnendur
Mezzoforte
- Yfirsýn
BARA
-Flokkurinn - Gas
eru farnir að finna hljómsveit það
til foráttu að vera of góð, en það
verður bara að hafa það. í dag er
djúpt á þeirri lífsgleði sem
Mezzoforte urðu frægir fyrir með
„Garden party“ og ég held satt
best að segja að strákarnir ættu
að fara að gera eitthvað í þessu.
E.t.v. er Hollendingurinn „fljúg-
andi“ sem gekk til liðs við hljóm-
sveitina nýlega, liður í andlits-
upplyftingunni - og það er víst að
þegar Mezzoforte verða orðnir
meira spennandi á sviði, þá
standa þeim allar dyr opnar -
Bandaríkin og allt heila klabbið.
Vel á minnst „Miðnætursól“ Ey-
þórs Gunnarssonar er með
traustari lögum sem ég hef heyrt
iengi. - ESE.
BARA - GAS
Hægt og bítandi hefur BARA-
Flokkurinn unnið sig upp í það
að verða besta rokkhljómsveit
landsins. Með elju, hógværð og
kunnáttu sinni hefur BARA-
Flokkurinn brotið blað í íslenskri
tónlistarsögu og hin nýja hljóm-
plata þeirra „GAS“ á vafalaust
eftir að gera það gasalega gott á
næstunni.
Það sem fyrst vekur athygli
þegar hlýtt er á BARA-
Flokkinn, er hve hrikalega sam-
hent hljómsveitin er. Samspilið
situr í fyrirrúmi og það virðist
ekki pláss fyrir sólara eða þvæl-
ara eins og Akureyringar kalla
það víst á fótboltamáli. Samspil
bassa og tromma er frábært og
sömuleiðis fylla gítar og hljóm-
borð upp í myndina á frábæran
hátt. Þegar við bætist að Ásgeir
Jónsson, söngvari flokksins hefur
skipað sér í allra fremstu röð sem
söngvari og lagasmiður, þá er
björninn unninn.
Það væri kjánalegt að reyna að
pikka einn einstakan hljóðfæra-
leikara og hrósa honum sérstak-
lega. Allir piltarnir standa sig vel
og standa saman sem ein heild á
þessari plötu.
Líkt og hljómsveitin myndar
eina heild, þá er „GAS“ ákaflega
heilsteypt plata. BARA-Flokk-
urinn hefur að undanförnu verið
sagður undir áhrifum frá hinum
og þessum og þá einkum og sér í
lagi frá Bowie og það má vel vera
að eitthvað sé hæft í þessu. Því
verður hins vegar ekki á móti
mælt að BARA-Flokkurinn hef-
ur skapað sinn eigin stíl og það er
svo sannarlega ekkert kuldarokk.
Þau lög sem ég er hrifnastur af
á plötunni eru „Facts“, „Watch
that cat“ og „A matter of time“
en þar með er ekki sagt að hin
lögin standi þeim neitt að baki.
Plata BARA-Flokksins hefur
ýmsar duldar merkingar sem
gaman er fyrir fólk að spekúlera
í og eins og Ásgeir Jónsson sagði
á dögunum: „GAS“ er jólagjöf
sem hægt er að gefa öllum ung-
lingum og börnum. Það er
sumsé ekki til efakorn í mínum
huga um það að BARA-Flokk-
urinn getur átt fyrir höndum stór-
1
Ji s
Jólagleði (bama
plata) - Ýmsir
kostlega framtíð á erlendri rokk-
grundu. Það eina sem vantar í
augnablikinu er kynning og það
að örlaganornirnar brosi við
þeim. Við þær segi ég hér og nú,
BARA-Flokkurinn er tilbúinn.
Gefíð honum tækifæri. - ESE.
Jóla hvað?
Þessi jólaplata frá Steinum hf.
hefur flest það til að bera sem
prýða á góðar barnaplötur. Hún
er fjölbreytt og skemmtileg og
það sem mestu skiptir, fullorðnir
geta líka haft gaman af henni.
Meðal flytjenda eru Glámur og
Skrámur sem taka jólasveininn á
taugum, Ómar Ragnarsson,
Hattur og Fattur, Hurðarskellir
og Stúfur, Ríó tríóið, Halli og
Laddi, Bryndís Schram, Þórður
Jólagleði
(fullorðinsplata) -
Ýmsir
húsvörður og Haukur Morthens
með hljómsveitinni Mezzoforte.
Ein af þessum klassísku barna-
plötum fyrir börn á öllum aldri.
Það var nú það?
Þess má geta að í kaupbæti við
barnaplötuna þá fá menn þessa
fullorðinsplötu. Báðar plöturnar
á verði einnar.
Þessi þykir mér ekki eins traust
og sú fyrri en það má hafa ýmis-
legt gaman af henni þrátt fyrir
það. Þetta er svona létt jóla-
stemmning í anda Þú.og ég og
Bjögga, með Morthensívafi,
kryddað með strengjum og fíner-
íi frá Gunna Þórðar. Góð jóla-
plata en stendur hinni fyrrnendu
nokkuð að baki.
Perum
„Við eram búin að reyna aUt
sem við getum gert, m.a. tala
við krakkana en það virðist lít-
ið duga,“ sagði Vilberg Alex-
andersson skólastjóri í Glerár-
skóla, en eins og vegfarendur
hafa sjálfsagt tekið eftir hefúr
verið sett upp á vegum bæjar-
ins lítið jólatré vestan við
skólann.
Það leið ekki á löngu eftir að
tréð hafði verið sett upp að búið
var að mölva eða hirða af því nær
allar perurnar, og sagði Vilberg
að krakkar og unglingar ættu
þarna ekki einir hlut að máli.
„Það hefur sést til fullorðins fólks
á vappi þarna við tréð,“ sagði
Vilberg.
stolið
Það er óneitanlega furðulegt
að fólk skuli ekki geta séð jóla-
tré eins og þetta í friði og væri vel
þess virði ef fólk stæði sökudólg-
ana að verki að vísa á þá. Margir
sem búa í Glerárþorpi hafa haft
samband við Dag og borið sig
aumlega vegna þess að tréð hefur
ekki fengið að vera í friði. „Við
eium „Þorparar“ vegna þess að
við búum í Þorpinu, en við vilj-
um ekki vera þorparar í orðsins
fyllstu merkingu," sagði einn
þeirra.
Þess má geta að tré sem sett
var upp við Lundarskóla hefur
fengið að vera í friði og ættu
Þorparar að sjá til þess að ástand-
ið verði eins fyrir utan á.
Athugasemd
Hr. ritstjóri.
Að gefnu tilefni biður Áfengis-
varnaráð fyrir eftirfarandi:
í dálknum Smátt og stórt er
birt örlítið brot af alllöngu máli
sem Áfengisvarnaráð sendi um
öimálið. - Þar er látið að því
liggja að Áfengisvarnaráði hafi
borið að geta um á hvern hátt
dreifingu milliöls í Svíþjóð var
háttað á sínum tíma. - Hvergi í
þessum minnisgreinum er minnst
á með hverjum hætti þessu efni
er dreift í þeim löndum sem þar
er um ritað og' því vandséð
hvernig menn þykjast lesa eitt-
hvað út úr þessu um dreifingar-
mál Svía. í Svíþjóð var sala milli-
öls háð leyfum sem vissar mat-
vöruverslanir fengu. Hins vegar
var reynslan af því slík að þingið
ákvað ekki að flytja dreifingu
þess til vínverslana og áfengis-
söluhúsa heldur bannaði alger-
lega bæði gerð þess og sölu.
Mergurinn málsins er sá að
nýjar tegundir áfengis bætast að
jafnaði við neyslu þeirra sem
fyrir eru og stuðla gjarnan að
aukningu hennar. Hvergi hefur
Áfengisráði tekist að finna land
þar sem öldrykkja hefur bætt
ástand í áfengismálum.
Áfengisvarnaráð er ríkisstofn-
un sem ber að leiðbeina og skýra
frá því sem best er vitað um
áfengismál hverju sinni. Það hef-
ur hvorki ábata af bjórsölu né
bjórbanni og ekkert fé til að bera
á fjölmiðlafólk, ekki einu sinni í
fríðu. Það stendur ekki í „áróð-
ursstríði“ heldur veitir upplýsing-
ar. Hins vegar er ástæðulaust að
þegja yfir því að svo mikið er nú
vitað um afleiðingar ýmissa
ákvarðana stjórnvalda í áfengis-
málum að óþarfi er að byggja á
brjóstvitinu einu og gömlu yfir-
lýsingunum um að menn álíti
eitthvað eða séu á þessari eða
hinni skoðuninni.
Hið ágæta blað, Dagur, stuðl-
aði því að miðlun staðreynda og
sannleika ef það birti það sem
Áfengisvarnaráð hefur sent því
óstytt.
Okkur þætti líka mjög við hæfi
að áróður fyrir drykkju yrði ekki
jafn augljós hjá ykkur og þeim
„aumustu allra“ hér syðra. Við
hefðum tæpast svarað jafn tilefn-
islausum útúrsnúningum ef önn-
ur blöð en Dagur hefðu átt hlut
að máli. Erlingur Davíðsson
gnæfði nefnilega yfir flesta rit-
stjóra á síðasta áratug, ekki ein-
ungis hvað varðaði fagurt málfar
á blaði ykkar heldur og siðferð-
isþrek þegar drykkjutíska og
áfengisgróði knúðu dyra. - Það
er því úr háum söðli að detta.
Áfengisvarnaráð.