Dagur - 23.01.1984, Side 11
23. janúar 1984 - DAGUR -11
Bægisárkirkja 125 ára
Á nýliðnu ári varð Bægisárkirkja
125 ára. Afmælisins var minnst á
aðventukvöldi þann 18. desem-
ber sl. Við það tækifæri færði frú
Elísabet Haraldsdóttir á Öxnhóli
kirkjunni 16 nýjar sálmabækur
að gjöf til minningar um látna
ættingja og vini.
Á Ytri-Bægisá hefur staðið
kirkja allt frá kristnitöku, og í 13.
kafla Ljósvetningasögu er getið
um byggingu kirkju á staðnum í
kringum árið 1007.
Bægisárkirkja er helguð með
Guði hinum heilaga Jóni babt-
ista. Kirkja sú sem nú stendur á
Bægisá var reist á árunum 1857-
1858. Aðalhvatamaður að bygg-
ingu kirkjunnar var þáverandi
prestur á Bægisá sr. Árngrímur
Halldórsson.
Kirkjan fullgerð kostaði 1279
ríkisdali 2 spesíur og 6 skildinga.
Þótti mönnum þetta dýr bygging
og getur sr. Daníel Halldórsson
prófastur þess í vísitasíugjörð
sinni að kirkjan sé dýr en vönduð
og sterkleg.
En þegar hlutir eldast láta þéir
á sjá, og mikið og gott viðhald er
nauðsynlegt. En allar viðgerðir
eru kostnaðarsamar og því verð-
ur oft að geyma viðgerðir lengur
en gott þykir.
Kirkjan á Bægisá hefur hlotið
allgott viðhald í gegnum árin og
margar eru hendurnar sem lagt
hafa lið við lagfæringar og við-
hald kirkjunnar.
Og á sl. sumri var mikið gert
við Bægisárkirkju. Var kirkjan
öll klædd að utan auk þess sem
fúinn viður í neðri hluta kirkj-
unnar var fjarlægður og nýtt sett
í staðinn. Sökkull undir forkirkju
var steyptur upp og tröppur við
inngöngudyr endurnýjaðar.
Ásdís ívarsdóttir, starfsmaður Dags, dregur lausn vinningshafans úr bréfa
Einnig var stigi upp á söngloftið
endursmíðaður svo og útihurð.
Við þessa viðjerð hefur kirkju-
húsið breyst mikið til batnaðar og
er nú gott hús bæði að utan sem
innan.
Söfnuðurinn í Bægisársókn er
ekki fjölmennur, og því mikið
áræði og djörfung að ráðast í jafn
stóra framkvæmd og raun varð á.
Og kostnaður við viðgerðina
varð mikill, en safnaðarfólkið
hefur tekið höndum saman og
lagt fram miklar upphæðir úr eig-
inn vasa svo minnka mætti að mun
skuld kirkjunnar.
Alian þann góða hug og gjafir
er kirkjunni hafa borist ber að
þakka og biðja gefendum bless-
unar Guðs.
Sóknarnefnd Bægisársóknar.
Hótel Varðborg
Veitingasala
Árshátíðir
Þorrablót
Einkasamkvæmi
Köld borö
Heítur veislumatur
Þorramatur
Smurt brauð
Snittur
Coktailsnittur
Getum lánað diska
og hnífapör
Útvegum þjónustufólk
Sími 22600
Júníus heima 24599
Hestamenn! u
Látum ekki aka á okkur
í skammdeginu - notum
ENDURSKINSMERKI
HESTAMANNAFÉLAGIÐ LÉTTIR
Stotnað S nóv 1928 P O Bo« 348 - 602 Akuroyn
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 26. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Tryggvabraut 10, Akureyri, þingl. eign Skipa
þjónustunnar hf. fer fram eftir kröfu Iðnþróunarsjóðs, Verslun-
arbanka íslands, Þorsteins Eggertssonar hdl. og Sigurðar Sig-
urjónssonar hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 27. janúar 1984
kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 93., 95. og 97. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Óseyri 18 s.e., Akureyri, þingl. eign Sigurðar
Einarssonar, fer fram eftir kröfu Iðnaðarbanka Islands hf. á
eigninni sjálfri föstudaginn 27. janúar 1984 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 93., 95. og 97. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Hvammshlíð 6, Akureyri, þingl. eign Sigmars
Bjarnasonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl., inn-
heimtumanns ríkissjóðs, Hreins Pálssonar hdl. og veðdeildar
Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 27. janúar
1984 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 93., 95. og 97. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982
á fasteigninni Gránufélagsgötu 19 e.h., Akureyri, þingl. eign
Stefáns Hermannssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes
hrl. og veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstu-
daginn 27. janúar 1984 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri
bunkanum.
Vinningshafinn
í jólakrossgátunni
„Hvað ert þú að segja, ert þú
að segja satt?“ sagði Sigrún
Rósa Vilhjálmsdóttir Kálfa-
gerði I í Saurbæjarhreppi er
við höfðum samband við hana
og tilkynntum henni að hún
hefði hlotið 1. verðlaun í jóla-
krossgátu Dags.
Verðlaunin sem Sigrún Rósa
hlýtur eru útvarps- og segul-
bandstæki af Teleton-gerð, vand-
að og traust tæki.
Mjög mikil þátttaka var í jóla-
krossgátunni og bárust alls 759
lausnir víðs vegar af landinu.
Senda átti inn vísu sem var niður-
staðan í gátunni og hljóðaði hún
þannig:
Að þorskurinn á þrolum sé
þykir núna sannað,
vonandi er fundið fé
að fiska eitthvað annað.
Á þurru landi alltafþó
þykir mér afhonum nóg.
Fern önnur verðlaun voru veitt
og voru þau hljómplata að eigin
vali frá Kaupfélagi Eyfirðinga.
Þeir sem hlutu þau verðlaun
voru: Jón Jónsson Kirkjustræti 2
Reykjavík, Inga Þorláksdóttir
Góuholti 3 ísafirði, Valgerður
Benediktsdóttir Borgarhlíð 2
Akureyri og Gígja Harðardóttir
Skarðshlíð 9 Akureyri. Verður
þeim send tilkynning þess efnis
að þau geti tekið umræddan vinn-
ing út hjá Hljómdeild KEA.
Enn bjóðum við sérlega
hagstæð matarkaup
Saltað hrossakjöt
í misstórum plastfötum.
Leiðrétting
Þau mistök urðu við vinnslu á
helgarblaðinu, að nafn Ársæls
Ellertssonar, höfundar pistilsins
„Mín meining" féll niður. Ársæll
er prentari og sér um að koma
Degi á þrykk. Hann og lesendur
eru beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.