Dagur - 03.02.1984, Side 3
3. febrúar 1984 - DAGUR - 3
Kvóti og
aftur kvóti
Kvótamálið svonefnda hefur
mikið verið rætt til sjávar og
sveita og sýnist sitt hverjum.
Nú hefur það heyrst, að Út-
gerðarfélag Akureyringa
komi ekki til með að fá
kvóta nema fyrir fjóra tog-
ara, þó fimmti togarinn, Sól-
bakur, sé til staðar, að vísu
bundinn við bryggju, en
vonir standa til að nýtt skip
komi í hans stað fyrr en
seinna. Þetta gæti haft áhrif
á atvinnu í frystihúsi Útgerð-
arfélagsins, já og jafnvel
víðar, þannig að ýmsir af
framámönnum bæjarins fóru
brúnaþungir til Reykjavíkur
til viðræðna við æðstu
stjórnvöld. Þar var rætt við
forsætisráðherra, sjávarút-
vegsráðherra og þingmenn
kjördæmisins að sjálfsögðu.
Allir voru þeir hjartanlega
sammála um það, að þetta
væri „mjög alvarlegt mál“!!
Lengra náði það nú ekki.
Ekki ál,
segja
konurnar
Hugsanlegt álver við Eyja-
fjörð hefur verið mikið til
umræðu undanfarna daga og
vikur. Eitt er þó á hieinu;
Kvennaframboðið er á móti
stóriðju við Eyjafjörð hvað
sem hún svo heitir. Þetta er
einarðleg og heiðarleg af-
staða, en fyrir vikið hafa
samtök kvennanna fengið
nýtt nafn, sem sé „Álverj-
ur“. - GS.
Hann erharður
af sérhann
„Axla-Stefán“
Pað getur ýmislegt óvænt
komið upp á í leiksýningum,
sérstaklega á frumsýningum
þegar allir eru örlítið meira
stressaðir heldur en á venju-
legum sýningum. Petta fékk
Stefán Guðlaugsson, sem
leikur Lou Bensey í sýningu
Öngulsstaðahreppsbúa á
„Tóbaksbrautinni“, að
reyna heldur hressilega á
dögunum. í fyrsta þætti
leikritsins lendir hann í
„lostafullum krækjum“ við
Ellie May, sem leikin er af
Sigríði Kristjánsdóttur.
Þessar bakkrækjur urðu svo
kröftugar á frumsýningunni,
að Stefán fór úr axlarliðn-
um. Skjögraði hann náfölur
og stífur út af sviðinu, en gat
þó leynt áhorfendur þessum
hrakförum. En meðleikur-
um Stefáns leist ekki á blik-
una, því þeir áttu allt eins
von á að sýningin væri búin
að vera. En bændur deyja
ekki ráðalausir og Birgir
bóndi Jónsson í Grýtu kunni
tökin á tækninni, því hann er
alvanur því að fara úr axlar-
lið og ekki er hann síður
leikinn í að koma sjálfum sér
í hann aftur. Hann hafði því
snör handtök og setti öxl
Stefáns í liðinn
Litli og
Stóri sungu
saman
Skömmu fyrir jól héldu
„stóru-K-in“ í söngnum,
Kristján Jóhannsson og
Kristinn Sigmundsson, kons-
ert í Austurbæjarbíói, þó
ekki hafi það farið hátt í
sunnanblöðunum. Hvað sem
því líður þá voru þetta eftir-
minnilegir tónleikar og
söngvararnir léku á alls oddi
í söng sem tali. Eins og sam-
borgarar Kristjáns vita er
hann ekki hæsti maður norð-
an fjalla, þó hann sé „stór-
söngvari“ og komist söngv-
ara hæst í tónstiganum.
Kristinn er hins vegar nær 2
metrar á hæð og mikill á velli
og „stór-söngvari“ í ofaná-
lag. Kristján bað hann því
blessaðan að krjúpa á hnján-
um þegar þeir ætluðu að fara
að syngja fyrsta dúettinn.
Ekki leist Kristni á það, en
hann sagði Kristjáni guð-
velkomið að setjast upp á
flygilinn!!
„ Cover“
fyrir Pavarotti?
- Frumsýning hjá Kristjáni 9. febrúar
Fyrst við erum að minnast á
Kristján, þá má geta þess, að
hann syngur í frumsýningu
Ensku óperunni á Toscu í
Manchester 9. febrúar. Þar
í borg verða sýningar fram
til mánaðamóta, en þá verð-
ur farið til Leeds og þar
verðasýningar9., 14., 17. og
22. mars. Síðan taka við sýn-
ingar í Notthingham og fleiri
borgum fram til vors. Krist-
ján sagði í stuttu spjalli við
blaðið, að hann væri óðum
að ná sér á strik andlega sem
líkamlega og röddin væri í
góðu lagi.
Hann sagðist
mjög ánægður með þá samn-
inga sem hann er nýbúinn að
gera við óperuhús í Banda-
ríkjunum og þar er mögu-
leiki á fleiri hliðstæðum
samningum. Nýjasta tilboð-
ið sem Kristján hefur fengið
kom frá Parísaróperunni,
þar sem honum er boðið að
taka þátt í sýningum á Tosca
næsta haust. Þar á Kristján
að vera „cover“ fyrir Pava-
rotti. Sýningarnar verða 6,
Pavarotti á að syngja 4 þær
fyrstu, en síðan á Kristján að
taka við ef úr verður.
„Það væri mjög gaman að
taka þátt í þessu, en þetta er
svo nýtilkomið, að ég veit
ekki hvort úr getur orðið,“
sagði Kristján um þetta
tilboð.
Jóhanna
Bogadóttir
sýnir í
Iðnskólanum
Jóhanna Bogadóttir heldur
sýningu á 25 grafíkmyndum og
málverkum í Iðnskólanum á
laugardag og sunnudag. Sýn-
ingin verður opin þessa tvo
daga, frá kl. 14-22 báða dag-
ana. Jóhanna hefur haldið
margar sýningar og tekið þátt
í samsýningum hér heima og
erlendis. Hún hefur tvisvar
áður haldið sýningu á Akur-
eyri og fengið mjög góðar
móttökur í bæði skiptin.
Reykj avíkurkvöld
í Sjallanum %%£*"*■***
Kl. 19.30 Húsióopnaó.
Lystauki
Lystauki í Mánasal.
Veislustjóri Hermann Ragnar Stefáns-
son býöur gesti velkomna.
Matur
Ógleymanleg rjómaspergilsúpa
meö ofnbrauöi.
Sinnepsristað lambalæri
meö bökuðum kartöflum,
gratineruðu blómkáli
og púrtvínssósu.
Borgarís.
Gestur kvöldsins
Ávarp Davíö Oddsson borgarstjóri.
Dinnertónlist
Ingimar Eydal leikur viö boröhald.
Skemmtiatriði
Tískusýning.
Atriði úr íslensku óperunni.
Atriði frá Leikfélagi Reykjavíkur
Danssýning frá Dansstúdíói
Sóleyjar______________
Ferðabingó
Ein utanlandsferð og
tvær helgarferóir til
Reykjavíkur frá Flugleiöum.
Hljómsveit
Stiginn dans til kl. 01.00.
Hljómsveit Ingimars Eydal.
VERÐ AÐGÖNGUMIÐA
KR. 550.00
HÚSIÐ OPNAR KL. 19.30
Forsala á aðgöngumiðum er í Sjallanum hjá
yfirþjóni - fimmtud. - föstud. og laugardag frá kl. 17 - 19.
£**> SAMSTARFSNEFND
■ IIM FERÐAMÁL í REYKJAVÍK