Dagur - 24.02.1984, Qupperneq 7
24. febrúar .1984 —ÐAG.UR - 7
„Eg nennti
ekki að vera
í saumaklúbb
u
- Edda Þorsteinsdóttir „málfreyja“ á símalínunni
- Hver er á línunni?
- Edda Þorsteinsdóttir heitir
hún.
- Málfreyja?
- Já, ég er íslensk málfreyja.
- Málfreyjur, er það félags-
skapur málgefinna kvenna?!
- Ha, ha, sá er góður, en það
hafa svo sem fleiri spurt svipaðra
spuminga. Sannleikurinn er hins
vegar sá, að þetta er alþjóðlegur
félagsskapur kvenna, sem býður
félögum sínum aukinn þroska.
Hins vegar fundu íslensku-
fræðingar ekkert betra orð yfir
félagsskapinn en „málfreyjur",
sem við erum mjög óhressar með.
Ekki síst vegna þess, að félags-
skapurinn er ekki eingöngu ætlað-
ur konum, þó enn sem komið er
séu eingöngu konur innan vé-
banda félagsskaparins hérlendis,
ef til vill vegna nafnsins. Erlendis
eru hvoru tveggja karlar og konur
í félagsskapnum.
- Hvernig aukið þið eigin
þroska?
- Við vinnum að lausn ákveð-
inna verkefna, sem gefa okkur
aukið sjálfstraust. Stór hluti af
þjálfuninni er við ræðumennsku
og fundarsköp, sem kemur sér vel
fyrir margar konur, sem varla
þora að segja nafnið sitt í upphafi.
Og við höfum náð árangri. Eg get
nefnt þér dæmi. Fyrsta ráðs mál-
freyja á íslandi er Kristjana Milla
Thorsteinsson, sem var að taka
sæti á Alþingi nú um daginn.
Fleiri hafa farið í framboð eftir að
hafa brotið ísinn hjá okkur, án
þess að ég sé að segja að það sé
takmark okkar allra, langt því frá.
- / hvaða deild ert þú og eru
margar deildir starfandi?
- Mín deild heitir Málfreyju-
deildin Kvistur, sem er ein af 12
deildum hérlendis. Fessar deildir
starfa ekki ósvipað og JC, en á
öðrum grundvelli. Við getum ver-
ið í þessu eins lengi og við viljum
og það er enginn sem stendur yfir
okkur og segir: Þú verður að klára
þennan áfanga fyrir ákveðinn
tíma. Við ráðum því sjálfar hvað
við viljum fara hratt og hvað við
viljum gera mikið.
- Hvenær byrjaðir þú í þessu?
- Ég er búin að vera í þessu á
fimmta ár.
- Hefur starfið gefið þér eitt-
hvað?
- Geysilega mikið, skal ég
segja þér. Ég starfa sem sölumað-
ur, sem byggist á samskiptum við
fólk. Sá skóli sem ég hef gengið í
gegnum með málfreyjunum hefur
hjálpað mér mikið á því sviði, gef-
ið mér meira sjálfstraust og meiri
þroska til að taka rétt á hlutunum.
Og þegar maður finnur til þess að
maður er orðinn hæfari til starfans
verður vinnan skemmtilegri.
- Petta er sem sé skóli en ekki
saumaklúbbur?
- Já, ha, ha, þú ert enn að
hugsa um málglöðu konurnar, en
málfreyjur er ekki saumaklúbbur
þar sem konur sitja og blaðra.
Þetta er andstætt, því hjá okkur
er talað samkvæmt fundar-
sköpum. Ég valdi þennan félags-
skap vegna þess að ég nennti ekki
að vera í saumaklúbb og ég nennti
ekki að fara í kvenfélag.
- Er starfið skemmtilegt?
- Já, það finnst mér. Við erum
allar að læra, en við erum ekki
með harða krítik. Við krítiserum
hver aðra, en gerum það ekki til
að brjóta niður, heldur til að
byggja upp.
- Pið eruð að hugsa um að
stofna deild á Akureyri.
- Já, ég er Akureyringur og
verð aldrei annað en Akureyring-
ur. Þess vegna hvatti ég eindregið
til þess að deild verði stofnuð á
Akureyri og er formaður nefndar
sem hefur unnið að undirbúningi
stofnunarinnar. Við komum 18
málfreyjur norður á laugardaginn
og höldum kynningarfund í Sjall-
anum í Mánasal. Fyrri hluti fund-
arins fer í kynningu á starfsemi
okkar, en síðan gefum við fund-
argestum smásýnishorn af okkar
fundum. Þar bjóðum við m.a. upp
á tvær stuttar verðlaunaræður.
Sú fyrri er flutt af Halidóru Arn-
þórsdóttur og ræða hennar náði 2.
sæti í keppni innan alþjóðasam-
takanna, sem er stórkostlegur ár-
angur, ekki síst vegna þess að hún
þurfti að flytja ræðuna á ensku í
keppninni, en ekki á móðurmál-
inu. Hina ræðuna flytur Lísbet
' Bergsveinsdóttir og hennar ræða
vann íslensku ræðukeppnina okk-
ar í fyrra.
- Ætlið þið svo að stofna Ak-
ureyrardeild í fundarlok?
- Ef áhugi verður fyrir því þá
verður það gert. Við höfum heyrt
í mörgum konum fyrir norðan,
sem hafa áhuga á að kynnast fé-
lagsskapnum. Nú fá þær tækifæri
til þess og vonandi tekst okkur að
gera starfsemina áhugavekjandi.
Takist okkur það verður ein okk-
ar eftir fyrir norðan til að ganga
frá stofnun deildar. Ég vil ein-
dregið hvetja konur til að koma
og kynnast þessum félagsskap. Ég
hefði alls ekki viljað missa af því
sem hann hefur gefið mér, þó
stundum hafi ég verið að sökkva í
verkefnum upp fyrir haus.
- Pess vegna er svona erfitt að
ná þér í síma, þú ert náttúrlega
aldrei heima?!
- Ekki segi ég það nú, en það
er í mörg horn að líta, bæði hvað
varðar starf og áhugamál.
- Hvað segir þá Steini vinur
minn, (Steinn Karlsson frá Litla-
Garði) ef grauturinn er ekki til-
búinn þegar hann kemur heim?
- Ha, ha, Gísli minn, ég er svo
oft búinn að bíða eftir honum
með grautinn, að það gerir ekkert
til. En núna má ég ekki vera að
því að bíða lengur, nú verður
hann að sjá sjálfur um grautinn.
- Jamm, það er nebblega það.
Gangi þér allt í haginn, Edda
mín, og ég bið að heilsa í bæinn.
Blessuð.
- Sömuleiðis, þakka þér inni-
lega. Bless. -GS.
Frá fundi meö málfreyjum.
jÉKP
Fjölskyldunámskeið
5. mars til 28. mars nk. verður haldið fjölskyldu-
námskeið um áfengisvandamál, einkum miðað
við aðstandendur alkoholista. Námskeiðið stend-
ur 12 kvöld kl. 20-23 og verður haldið í Brekku-
götu 8. Gjald kr. 500,-
Nánari upplýsingar gefur Félagsmálastofnun s.
25880 að deginum og Albert Valdimarsson, s.
25880 kl. 16-18. Þátttaka skal og tilkynnt í þenn-
an síma.
Samstarfshopurinn.
Akureyringar - Norðlendingar
ERUM FLUTTIR
að Oraupnisgötu 7 p (við hliðina á Pan)
Rafvélaverkstæði Sigurðar P. Högnasonar
sími 24970.
Aðalfundur
Bílaklubbs Akureyrar
verður haldinn laugardaginn 25. febrúar kl.
14.00 að Hótel Varðborg.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
Freyvangur - Freyvangur
Tobacco Road
Sýning fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20.30.
Sýning föstudaginn 24. febrúar kl. 20.30.
Sýning laugardaginn 25. febrúar kl. 20.30.
Síðustu sýningar
L.Ö. UMF Arroðinn.
Húsgagnabanki
Mæðrastyrksnefnd og Félagsmálastofnun Akur-
eyrar erú að hefja samstarf um fyrirgreiðslu við
fjölskyldur sem eru á hrakhólum með húsgögn. Ef
þér, lesandi góður, eigið heil húsgögn, sem þér
þurfið ekki á að halda, þá er hér upplagt tækifæri
til að leggja góðu máli lið. Vinsamlega hringið í
síma 25880, Félagsmálastofnun Akureyrar og
húsgögnin verða sótt til yðar.
Med fyrirfram þökk
Félagsmálastofnun Akureyrar.
Mæðrastyrksnefnd.
Utvegsmenn
Norðurlandi
Útvegsmannafélag Norðurlands boðar til
fundar fimmtudaginn 1. mars nk. í Sjallanum
(Mánasal) kl. 13.30.
Fundarefni:
1. Aflakvóti.
2. Rekstrarvandi útgerðar.
3. Önnur mál.
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ kemur á
fundinn.
Stjórnin.