Dagur - 09.03.1984, Síða 12
12 - DAGUR - 9. mars 1984
9. mars
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Á döfinni.
20.55 Skonrokk.
21.25 Kastljós.
22.25 26 dagar í lífi Dosto-
jevskis.
23.45 Fréttir i dagskrárlok.
10. mars.
16.15 Fólk á förnum vegi.
17. Á veitingahúsi.
16.30 íþróttir.
18.30 Háspennugengið.
Fimmti þáttur.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Feðginin.
Fjórði þáttur.
21.00 Flughetjur fyrri tíma.
(Those Magnificent Men in
Their Flying Machines)
Bresk gamanmynd frá 1965.
Leikstjóri: Ken Annakin.
Aðalhlutverk: Sarah Miles,
Stuart Whitman, Robert
Morley, Eric Sykes og Terry-
Thomas.
Árið 1910 gerir breskur
blaðakóngur það fyrir orð
dóttur sinnar að boða til
kappflugs frá Lundúnum til
Parísar. Til þessarar sögu-
legu keppni koma flugkapp-
ar hvaðanæva úr heiminum
enda er til mikils að vinna.
23.10 Shaft.
Bandarísk bíómynd frá 1971.
Leikstjóri: Gordon Parks.
Aðalhlutverk: Richard
Roundtree og Moses Gunn.
Mafían seilist til áhrifa í
blökkumannahverfinu Harl-
em í New York og lætur
ræna dóttur helsta glæpafor-
ingja þar. John Shaft einka-
spæjari er ráðinn til að hafa
upp á stúlkunni og bjarga
henni.
Myndin er ekki við hæfi
bama.
00.50 Dagskrárlok.
11. mars.
16.00 Sunnudagshugvekja.
16.10 Húsið á sléttunni.
Skuggaleg heimsókn.
17.00 Gleðin að uppgötva.
Þáttur frá breska sjónvarp-
inu um bandarískan vísinda-
mann, Richard Feynman,
prófessor við Raunvísinda-
háskólann í Pasadena.
Feynman hlaut Nóbelsverð-
laun í eðlisfræði árið 1965 og
starfar nú að rannsóknum í
kjarneðlisfræði.
18.00 Stundin okkar.
18.55 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Sjónvarp næstu viku.
20.50 Saga valsins.
Þýskur sjónvarpsþáttur um
valsinn í ljósi sögunnar, allt
frá þjóðdönsum til gulialdar
Straussvalsa og fram til
vorra daga.
21.35 Bænabeiðan.
(Praying Mantis) - Fyrri
hluti.
Bresk sakamálamynd í
tveimur hlutum sem gerð er
eftir samnefndri bók eftir
franmska rithöfuninn Hu-
bert Monteilhet.
Leikstjóri: Jack Gold.
Aðaihlutverk: Cherie
Lunghi, Jonathan Pryce,
Carmen Du Sautoy og Pink-
as Braun.
Fjórar nátengdar mann-
eskjur sitja á svikráðum hver
við aðra og svífast sumar
þeirra einskis til að fullnægja
peningagræðgi sinni.
Síðari hluti er á dagskrá
mánudaginn 12. mars.
22.55 Dagskrárlok.
12. mars
19.35 Tommi og Jenni.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 íþróttir.
21.15 Dave Allen.
22.00 Bænabeiðan.
Síðari hluti. Bresk sakamála-
mynd.
23.15 Fréttir í dagskrárlok.
Þrídjudagur
13. mars
19.35 Hnáturnar.
Nýr breskur teiknimynda-
flokkur.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Rétt tannhirða.
Þáttur frá fræðslunefnd
tannlæknafélags íslands.
20.55 Skarpsýn skötuhjú.
6. þáttur. Svínað fyrir
kónginn.
21.50 Skiptar skoðanir.
Umræðuþáttur í umsjón
Guðjóns Einarssonar frétta-
manns um hundabann og
bjórbann.
22.40 Fréttir í dagskrárlok.
14. mars
18.00 Söguhornið
18.10 Maddý.
Annar þáttur.
18.35 Hvernig verður gler til?
Dönsk fræðslumynd.
18.55 Fólk á fömum vegi.
19.10 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Nýjasta tækni og vís-
indi.
21.15 Dallas.
22.00 Auschwitz og afstaða
bandamanna.
Síðari hluti. Tvíþætt bresk
heimildarmynd frá breska
sjonvarpinu um útrýmingar-
herferð Hitlers á hendur
Gyðingum.
23.00 Fréttir í dagskrárlok.
Bænabeiðan nefnist bresk sakamálamynd, sem verður á
dagskrá sjónvarpsins á sunnudagskvöldið. Þá verður fyrri
Idutinn sýndur, en síðari hlutinn verður á dagskrá mánu
daginn 12. mars. Myndin fjallar um fjórar nátengdar mann-
eskjur, sem sitja á svikráðum hver við aðra og sumar þeirra
svífast einskis til að fullnægja peningagræðgi sinni. Meðal
leikenda er Cherie Lunghi.
Föstudagur
9. mars
17.10 Síðdegisvakan.
18.00 Tónleikar • Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir • Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir • Tilkynn-
ingar.
19.50 Við stokkinn.
Stjórnandi: Heiðdís
Norðfjörð.
20.00 Lög unga fólksins.
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Kvöldvaka.
a) Kaupmannahafnarþank-
ar.
b) Sótt á brattann.
21.10 Hljómskálamúskík.
Guðmundur Gilsson kynnir.
21.40 Fósturlandsins Freyja.
Umsjón: Höskuldur
Skagfjörð. Lesari með
honum: Lóa Guðjónsdóttir.
22.15 Veðurfregnir ■ Fréttir •
Dagskrá morgundagsins •
Orð kvöldsins • Lestur Pass-
iusálma (17).
22.40 Traðir.
Umsjónarmaður: Gunn-
laugur Yngvi Sigfússon.
23.20 Kvöldgestir - þáttur
Jónasar Jónassonar.
00.50 Fréttir ■ Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2
hefst með veðurfregnum
kl. 01.00 og lýkur kl. 03.00.
10. mars
7.00 Veðurfregnir • Fréttir •
Bæn • Tónleikar - Þulur vel-
ur og kynnir • 7.25 Leikfimi
■ Tónleikar.
8.00 Fréttir • Dagskrá • 8.15
Veðurfregnir • Morgunorð.
8.30 Forustugr. dagbl. ■ Tón-
leikar.
9.00 Fréttir • Tilkynningar •
Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynnir.
(10.00 Fréttir ■ 10.10 Veður-
fregnir)
Óskalög sjúklinga frh.
11.20 Hrímgrund.
Stjómandi: Sólveig Halldórs-
dóttir.
12.00 Dagskrá • Tilkynningar.
12.20 Fróttir • 12.45 Veður-
fregnir • Tilkynningar •
Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur.
Umsjóri: Hermann Gunnars-
son.
14.00 Listalíf.
Umsjón: Sigmar B. Hauks-
son.
15.10 Listapopp.
- Gunnar Salvarsson. (Þátt-
urinn endurtekinn kl. 24.00).
16.00 Fréttir • Dagskrá ■ 16.15
Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál.
Ásgeir Blöndal Magnússon
sér um þáttinn.
16.30 Nýjustu fréttir af Njálu.
Umsjón: Einar Karl Haralds-
son.
17.00 Síðdegistónleikar.
18.00 Ungir pennar.
Stjórnandi: Dómhildur Sig-
urðardóttir.
18.10 Tónleikar ■ Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir • Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir • Tilkynn-
ingar.
19.35 „Hvítar smámýs",
smásaga eftir Sólveigu von
Schoults.
Herdís Þorvaldsdóttir les
þýðingu Sigurjóns Guðjóns-
sonar.
20.00 „Porgy og Bess“.
Hljómsveitarsvíta eftir
George Gershwin. Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leikur.
André Previn stjórnar.
20.20 Útvarpssaga barnanna:
„Benni og ég“ eftir Robert
Lawson.
Bryndís Víglundsdóttir les
þýðingu sína (6).
20.40 Fyrir minnihlutann.
Umsjón: Árni Bjömsson.
21.15 Á sveitalínunni í Ólafs-
firði.
Þáttur Hildu Torfadóttur,
Laugum í Reykjadal.
22.00 „Grænt rúmmál", Ijóð
eftir Sohrab Sepehri.
Álfheiður Lámsdóttir les
þýðingu sína.
22.15 Veðurfregnir • Fréttir •
Dagskrá morgundagsins •
Lestur Passiusálma (18).
22.40 Harmonikuþáttur.
Umsjón: Sigurður Alfons-
son.
23.10 Létt sígild tónlist.
23.50 Fréttir • Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2
til kl. 03.00.
11. mars
8.00 Morgunandakt.
Séra Fjalarr Sigurjónsson á
Kálfafellsstað flytur ritning-
arorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir • Forustu-
gr. dagbl.
8.35 Létt morgunlög.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar.
10.00 Fréttir • 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Út og suður.
Þáttur Friðriks Páls Jónsson-
ar.
11.00 Messa í Egilsstaða-
kirkju.
(hljóðrituð 29. jan. sl.)
Prestur: Séra Vigfús Ingvar
Ingvarsson.
Organleikari: David
Knowles.
Hádegistónleikar
12.10 Dagskrá • Tónleikar.
12.20 Fréttir • 12.45 Veður-
fregnir ■ Tilkynningar ■
Tónleikar.
13.30 Vikan sem var.
Umsjón: Rafn Jónsson.
14.15 Kynduldir í grískum
bókmenntum.
Þáttur tekinn saman af
Ævari R. Kvaran. Lesarar
ásamt honum: Gunnar Eyj-
ólfsson og Valur Gíslason.
15.15 í dægurlandi.
Svavar Gests kynnir tónlist
fyrri ára. í þessum þætti:
Calypsó-tónlistin.
16.00 Fréttir • Dagskrá • 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Um vísindi og fræði •
Framtíð iðnaðarþjóðfélags-
ins.
Stefán Ólafsson lektor flytur
sunnudagserindi.
17.00 Síðdegistónleikar:
Finnsk 19. aldar tónlist.
18.00 Þankar á hverfisknæp-
unni.
- Stefán Jón Hafstein.
18.15 Tónleikar ■ Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir ■ Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir ■ Tilkynn-
ingar.
19.35 Bókvit.
Umsjón að þessu sinni: Jón-
ína Leósdóttir.
19.50 „Einvera alheimsins"
Baldvin Halldórsson les ljóð
eftir Paul Elnard og Pierre-
Jean Jouve í þýðingu Sigfús-
ar Daðasonar.
20.00 Útvarp unga fólksins.
Stjórnandi: Margrét Blöndal.
21.00 Hljómplöturabb
Þorsteins Hannessonar.
21.40 Útvarpssagan: „Könn-
uður i fimm heimsálfum"
eftir Marie Hammer. (19)
22.15 Veðurfregnir • Fréttir •
Dagskrá morgundagsins ■
Orð kvöldsins.
22.35 Kotra.
Stjómandi: Signý Pálsdóttir.
23.05 Djassþáttur.
- Jón Múli Árnason.
23.50 Fréttir • Dagskrárlok.
Keisarínn og ég
í greinarkorni fyrir viku ger-
ir Gísli Sigurgeirsson ævin-
týrið um nýju fötin keisar-
ans að umtalsefni, vegna
þess að ég hafði yfirfært það
upp á eyfirskan nútíma. Ég
hafði mér til ánægju, en lík-
lega Gísla til ama, fundið
viðeigandi leikendur í hvert
hlutverk. Gísli reynir að
notfæra sér ævintýrið öðru-
vísi, sjá á því aðrar hliðar,
og kann ég vel að meta þann
frumleika. Gott hjá Gísla!
Gallinn er hins vegar sá að
hann finnur aðeins eina
persónu í eitt hlutverk í
ævintýrinu. Ég á að vera
svikahrappurinn af því ég
hef verið heldur andvígur
byggingu álvers við Eyja-
fjörð. Ætli mín túlkun á
ævintýrinu teljist ekki raun-
sannari og hitti betur í
mark.
Þrennt vil ég leiðrétta,
sem Gísli virðist hafa mis-
skilið. Það er misskilningur
að ég hafi verið að berja mér
á brjóst og þóst vera gáfað-
ur. Ég var alls ekki með sem
aðalpersóna í ævintýrinu.
Ég taldi mig einn af hinum '
almennu þegnum. Barnið,
sem í einfeldni sinni bendir
á nekt keisarans, verður
ekki talið gáfað af skoðana-
bræðrum Gísla, né heldur
konurnar, sem gegna þessu
hlutverki í dag og við þegn-
arnir sem sjáum nekt stór-
iðjunnar og viðurkennum
það. Það eru aðrir sem telja
sig víðsýna og gáfaða í þessu
máli.
í öðru lagi er það mis-
skilningur hjá Gísla að ég
sé andstæðingur álvers við
Eyjafjörð af því að ég er
náttúruverndarmaður. Eg er
andvígur því sem maður,
sem þegn, sem íslendingur.
Það þarf ekki neinn náttúru-
verndarmann, til þess að
vera lítt uppnæmur fyrir
iðju, sem getur valdið var-
anlegum náttúruspjöllum á
fegursta og besta landbún-
aðarhéraði landsins, veldur
byggðaröskun, getur haft
óæskileg samkeppnisáhrif á
núverandi atvinnulíf, borgar
ekki framleiðslukostnaðar-
verð fyrir raforku, veitir til-
tölulega fáum atvinnu og er
svo dýr í fjárfestingu að við
íslendingar getum aldrei
byggt það og verðum því að
kalla til útlendinga sem
e.t.v. bera tapið í upphafi,
en mundu síðan hirða hugs-
anlegan gróða. Klæðin fínu,
sem álverið má ekki
óhreinka, svo notuð séu orð
Gísla, eru enginn svikavefur
heldur eyfirskt land, eyfirskt
fólk, eyfirskt mannlíf.
í þriðja lagi er það mis-
skilningur að álver eigi meiri
rétt á sér nú en áður vegna
þess að nú er atvinnuleysi
meira. Ef við ætlum að bæta
úr atvinnuleysi þá eigum við
margra fljótvirkari, mann-
eskjulegri og betri kosta völ,
einkum ef fjármagnið væri
sambærilegt. Það er ekkert
annað en gjaldeyrisöflun,
sem réttlætir byggingu
álvers. Er það þess virði að
leggja Eyjafjörð og Eyfirð-
inga að óþörfu að veði fyrir
dollara og sterlingspund?
Bjarni E. Guðleifsson.