Dagur - 11.04.1984, Side 4
4 - DAGUR — 11. apríl 1984
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 130 Á MÁNUÐI -
LAUSASÖLUVERÐ 18 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRÍKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Aukin samvinna
er til góðs
Á síðasta ári tóku fyrirtækin Brúnás hf. á Eg-
ilsstöðum, Húsa- og strengjasteypan hf.
Kópavogi, Húsiðn hf. Húsavík, Loftorka sf.
Borgarnesi og Strengjasteypan hf. á Akureyri
sig til og stofnuðu „móðurfyrirtæki“ sem ber
nafnið Nýhús hf. Þetta nýja fyrirtæki var
stofnað með það fyrir augum að hrinda af
stað hugmyndasamkeppni um íbúðarhús úr
steinsteyptum einingum, hafa sameiginleg
innkaup til að ná fram aukinni hagkvæmni,
kaupa inn í stærri einingum og ná verðinu
þannig niður. Einnig á hið nýja fyrirtæki að
sjá um auglýsinga- og sölustarfsemi.
Nú þegar er búið að halda hugmyndsam-
keppnina og þar komu fram 18 tillögur, en úr
sex þeirra verður unnið og sú útkoma verður
síðan notuð til að framleiða eftir. Með því að
framleiða eftir sömu teikningunum og nota
staðlaðar einingar og glugga í stórum stíl er
hægt að ná fram mikilli hagkvæmni í verði
eins og sést best á því að framkvæmdastjóri
Strengjasteypunnar hf. á Akureyri telur að
það að byggja með þessari aðferð sé um 15%
ódýrara en að byggja á hefðbundinn hátt.
Annað er í þessu sambandi sem skiptir
húsbyggjendur verulegu máli en það er að af-
greiðsla húsnæðismálastjórnarlána gengur
mun fljótar fyrir sig þegar keypt eru eininga-
hús en þegar byggt er á gamla mátann.
Þessi samvinna fyrirtækjanna 5 er án efa til
góðs og sýnir það og sannar að lítil fyrirtæki
geta með samstarfi og aukinni hagræðingu
orðið samkeppnisfær í baráttunni við stærri
fyrirtæki bæði innlend og erlend. Einnig er
mikils um vert að þessi aukna hagræðing
kemur til með að skila sér í lægra vöruverði og
kemur því neytendum til góða.
Fyrirtæki á fleiri sviðum hafa tekið höndum
saman og stofnað samtök sem fær eru um að
starfa að fjölbreyttum verkefnum og nægir
þar að benda á stofnun Eyfirskra verktaka hf.
sem eru stofnaðir af fyrirtækjum úr mismun-
andi atvinnugreinum á Akureyri.
Það er ljóst að fyrirtæki á íslandi verða að
halda vöku sinni og auka þátt sinn og sam-
keppnisaðstöðu á íslenskum og erlendum
mörkuðum. Þegar er farinn að sjást árangur
en betur má ef duga skal. Á.M.
„Það vantar
fleiri klukku-
stundir í
sólarhringinn“
- Þegar við lögöum leið okkar
að Hamarsstíg 25 á Akureyri
einn morguninn í síðustu viku
barst á móti okkur vélarhijóð
úr kjallara hússins. Það kom
okkur ekkert á óvart, enda var
tilgangurinn með ferð okkar
að heimsækja fyrirtækið HS-
vörumiðar s.f. sem einmitt er
rekið í kjallara hússins.
„Hér er allt á fullri ferð frá
morgni til kvölds, enda verkefnin
yfirfljótandisagði HS sjálfur,
eða Hörður Svanbergsson, en
hann rekur þetta fyrirtæki ásamt
eiginkonu sinni Hildu Árnadótt-
ur og syni þeirra hjóna Árna
Harðarsyni.
Segja má að upphaf fyrirtækis-
ins hafi verið árið 1959 er Hörður
byrjaði með eina prentvél í kjall-
aranum hjá sér á Hamarsstígnum
sem „aukabúgrein“ eins og hann
orðar það. Síðan kom önnur vél
fimm árum síðar og á síðasta ári
kom sú fullkomnasta og sú sem
fyrirtækið snýst að mestu um í
dag.
Það er vél sem getur prentað
fimm iiti í einu og er prentað í
henni á límmiða sem notaðir eru
á alls kyns framleiðsluvörur fyrir-
tækja. Og eftir að sú vél var tekin
í gagnið má segja að ljós hafi log-
að í kjallaranum á Hamarsstígn-
um 14-16 klukkutíma á sólar-
hring.
„Já, ef eitthvað er þá vantar
okkur fleiri klukkustundir í sólar-
hringinn," segir Hörður er við
höfum komið okkur fyrir í eld-
húsinu á efri hæð hússins, en það
þjónar jafnhliða sem kaffistofa
fyrir fyrirtækið og þá er eiga
þangað erindi. Vinnudagurinn er
langur þannig verður það að vera
ef dæmið á að ganga upp.“ Við
spurðum Hörð að því hvar þá
þjónustu hefði verið að fá áður
sem hann veitir núna.
„Það var ekki um neitt annað
að ræða fyrir þá sem þurftu að fá
svona þjónustu en að sækja hana
til Reykjavíkur, og það sýnir að
þörfin fyrir að fá svona fyrirtæki
hingað var mikil. Viðskiptavinir
okkar í dag eru í öllum lands-
hornum og stór iðnaðarfyrirtæki
í Reykjavík og á svæðinu þar í
kring versla mikið við okkur og
vilja helst fá fyrirtækið suður.
Þeir telja að svona fullkomin tæki
eigi að vera stasett í Reykjavík."
Þegar Hörður sýndi blaða-
manni vélarnar í kjallaranum var
stóra vélin sem prentar á límmið-
ana í fullum gangi og þannig
„mallar“ hún alla daga. Sem fyrr
sagði er hér um mjög fullkomna
vél að ræða og er hún eina vélin
sinnar tegundar hér á landi.
„Hún er fullkomin enda var
hún mjög dýr fjárfesting," sagði
Hörður. „Því fylgir að afborganir
af henni eru miklar og það bitnar
á því að rekstrarfé vantar.
Hörður sýndi okkur auglýs-
ingabækling sem hann prentaði
og hugðist senda fyrirtækjum
víða um land til þess að auglýsa
þjónustu sína.' „Það var meining-
in að auglýsa fyrirtækið upp á
þennan hátt eftir að við vorum
búin að fá nýju vélina en bækl-
ingarnir eru hér ennþá. Það hefur
hreinlega verið það mikið að gera
að ég hef ekki þorað að fara út í
það að auglýsa.
Þau Hörður, Hilda og Árni eru
að störfum í kjallaranum frá því
snemma á morgnana og oft er
kominn nýr dagur þegar gengið
er til náða. „Við höfum ekki haft
mikinn tíma til þess að sinna
öðru eða taka okkur löng frí og
ekki fyrirsjáanlegt að það verði
á næstunni. Það bendir allt til
þess að við bætum við vél eða
vélum þegar kemur fram á
sumarið og það er ljóst að hér
verður einnig fjölgun á starfs-
fólki.“
Og lengur var ekki hægt að
tefja fjölskylduna frá störfum
sínum. Við röltum út í blíðuna
en inni héldu prentvélarnar
áfram að framleiða límmiða í öll-
um regnbogans litum.