Dagur - 18.07.1984, Qupperneq 8
8-DAGUR-18. júlí 1984
Toshiba
örbylgjuofnar
5 stærðir. Verð frá kr. 10.580,-
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
0
NÝLAGNIR
VIOGEROIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
AUs
konar
líkams-
ræktartæki.
Firmaloss,
protein o.fl.
Sporthú^id
UIMMUHLÍÐ
Sími 23250.
Frá kjörbúð KEA
Byggðavegi 98
I helgarmatinn:
Nautakjöt af nyslatruðu
Filet og lundir kr. 488,25 kg.
Buff kr. 425,70 kg.
Snitsel kr. 435,70 kg.
Gullash kr. 327,40 kg.
Einnig bjóðum við
grillaða kjuklinga
Kjörbúð KEA
Byggðavegi 98
4$m Wí§m "ÍP
Ustt". i 1 , ir «. il i* ii IW
Utbreítt irettablaö
Frjálsum villiminkum fækkar á meðan aliminkum í búrum fjölgar.
Villiminkurinn
á undanhaldi
„Eg hef þá trú, að ef veiðar
væru skipulagðar um land allt,
eins og gert er á Laxár- og
Mývatnssveitarsvæðinu, þá
væri hægt að útrýma minki al-
gerlega á nokkrum árum,“
sagði Vilhjálmur Jónasson á
Sílalæk í Aðaldal er Dagur
innti hann frétta af minkaveið-
um. Sagðist hann vera með
svæði frá Ljósavatnsskarði og
norður á Tjömes, auk þess sem
hann færi um Presthólahrepp.
Hefur hann stundað minka-
veiðar í 9 ár og sagði að minki
hefði verið haldið í skefjum á
umræddu svæði. í sumar hefur
Vilhjálmur náð í u.þ.b. 70
minka.
„Ég hef undanfarin 4 ár farið
á Melrakkasléttuna og þar hefur
orðið gífurleg fækkun. Fyrsta
árið sem ég fór vann ég á um 180
minkum, en í fyrra voru þeir ekki
nema 30.“ Taldi Vilhjálmur að
fækkunin væri fyrst og fremst
skipulagðri leit að þakka, sem og
góðum veiðihundum. Hefur
hann 4 hunda á sínum snærum
sem allir eru vel þjálfaðir og
miklir veiðihundar. Það tekur um
3 ár að þjálfa hunda þar til góður
árangur næst, þannig að nokkur
vinna liggur að baki.
Vilhjálmur sagðist hafa farið í
Svarfaðardal nú um daginn og
verið þar viku og drap þá 53
minka. Hefur hann farið í Svarf-
aðardalinn undanfarin 4-5 ár,
nema hvað ekkert varð úr ferð í
fyrra og sagði hann að sæi til
muna á fuglalífi þar í sveit nú í
ár. Þá sagði Vilhjálmur að mink-
ur gæti fjölgað sér geigvænlega á
stuttum tíma, því yfirleitt koma
um tvö til þrjú kvendýr úr hverju
greni og ættu þær hvolpa strax á
fyrsta ári.
Þorgeir Þórarinsson á Grásíðu
í Kelduhverfi hefur haft minka-
veiðar með höndum þar í sveit og
sagði hann í spjalli við Dag að
minkur hefði verið með minnsta
móti nú í vor. Hefði hann fundið
tvö greni og unnið á 12 minkum.
Sagði hann að farin væri ein
skipuleg ferð á ári, en auk þess
færi hann öðru hvoru ef vart yrði
við minka. „Það er mjög misjafnt
milli ára hversu mikið er um
mink og erfitt að geta sér til um
hvað veldur. Ég vona bara að
vænta megi betri tíðar og við
losnum alveg við þessa skað-
ræðisskepnu," sagði Þorgeir.
Ingi Yngvason í Mývatnssveit
sagði að minkaveiðar hefðu
gengið nokkuð sæmilega þar í
sveit, þó sagði hann að lítið væri
um mink og færi fækkandi.
„Honum er haldið niðri, við
erum á veiðum allt árið og það er
það eina sem dugir.“ Sagðist
hann hafa farið allt suður í Herðu-
Hólsfjöllin í leit að minki og unn-
Hólsfjöllin í leit að mink og unn-
ið á um 30 dýrum. Sagði hann
það með minnsta móti. Þegar
mest var fyrir nokkrum árum
hefði verið algengt að drepa um
100 dýr. Ingi taldi samt fremur
ótrúlegt að hægt yrði að útrýma
minki algerlega, þó honum hefði
fækkað sem raun ber vitni. mþþ
Corsa
Opel Corsa og Opel Ascona á hagstæðu
Sýningarbílar á staðnum.
KEA
BíLVANGURsf.
Óseyri 2 Akureyri • Símar 21400 og 22997. HÖFÐABAKKA 9 sími 687300