Dagur - 18.07.1984, Blaðsíða 11
18. júlí 1984-DAGUR-11
Ferða-
vasabókin
komin út
Ferðavasabókin, uppsláttarrit
ætlað ferðamönnum, er komin
út. Bókin inniheldur margs konar
hagkvæmar upplýsingar fyrir
ferðafólk jafnt innanlands sem
utan. Þetta er fyrsta tilraun til að
gefa út slíkt rit hérlendis, en
vasabækur sem þessar hafa öðlast
miklar vinsældir erlendis.
Meðal efnis í bókinni eru 48
litprentuð kort, vegalengdatöfl-
ur, upplýsingar um gististaði og
aðra ferðamannaþjónustu, um
sendiráð og ræðismenn erlendis,
vegaþjónustu, veðurfar á ýmsum
stöðum og margt fleira.
Leiðrétting
í síðasta tölublaði Dags var sagt
frá fyrirhuguðum kaupum á
sjúkrabifreið til Akureyrar. Par
var sagt að Akureyrarbær ætlaði
að kaupa bifreiðina, en því fer
fjarri. Það er Akureyrardeild
Rauða krossins, sem íhugar kaup
á bifreiðinni, enda á deildin
þær bifreiðir sem fyrir eru og hef-
ur séð um rekstur þeirra með
sóma á undanförnum áratugum.
Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Fimmtán
vinningshafar
í getraun
Umferðarráðs
Umferðarráð efndi til getraunar
meðal almennings til þess að
vekja athygli á nokkrum mikil-
vægum atriðum er aukið geta
umferðaröryggi.
Spurningarnar voru um um-
ferðarmerki, ökuhraða, tillits-
semi, bílbelti og stefnuljós.
Dregið hefur verið úr réttum
lausnum og eru vinningshafar
eftirfarandi:
1. Hringmiðar með sérleyfis-
bifreiðum BSÍ: Ari Leó Sigurðs-
son, Hátúni 3, Keflavík.
2. Dvöl á Hótel Valhöll: Stur-
laugur Björnsson, Lyngholti 20,
Keflavík.
3. „Helsport“ svefnpoki frá
Útilífi hf.: Loftur Baldvinsson,
Efstasundi 21, Reykjavík.
4. „Britax" barnabílstóll frá
Skeljungi hf.: Elva B. Jónmunds-
dóttir, Hólum, Hjaltadal.
5. Dvöl á Edduhóteli: Sigrún
Guðjónsdóttir, Nesbakka 14,
Neskaupstað.
6. „Tudor“ rafgeymir frá
Skorra hf.: Haukur Jóhannsson,
Oddeyrargötu 8, Akureyri.
7. „Chloride" rafgeymir frá
Pólar hf.: Ragna Gestsdóttir,
Rauðarárstíg 5, Reykjavík.
8. Bílbelti í aftursæti frá Bíla-
nausti hf.: Helga Eðvaldsdóttir,
Aðalgötu 33, Ólafsfirði.
9. -15. Hljómplata eða kassetta
frá Steinum hf.: Erna Ruth
Konráðsdóttir, Þórunnarstræti
83, Akureyri, Herdís Ormars-
dóttir, Móatúni 11, Tálknafirði,
Ásta Óladóttir, Kvistalandi 7,
Reykjavík, Harpa Hauksdóttir,
Herjólfsgötu 34, Hafnarfirði,
Ágúst Guðmundsson, Heggs-
stöðum, Kolbeinsstaðahreppi,
Guðrún Sigurfinnsdóttir, Réttar-
holtsvegi 3, Reykjavík, Matthild-
ur B. Björnsdóttir, Lyngholti 20,
Keflavík.
Mitt besta þakklæti til þeirra sem mundu mig
á 80 ára afmælinu þann 3. júlí sl.
Lifið heil!
ÁGÚSTA MAGNÚSDÓTTIR
frá Kambhóli.
Öllum þeim mörgu ' ættingjum mínum og
vinum, Karlakór Akureyrar og Knattspyrnu-
félagi Akureyrar sem heiðruðu mig með
heimsóknum, skeytum, fögrum blómum og
góðum gjöfum 15. júlí sl. þakka ég af alhug.
Dagurinn í faðmi fjölskyldu og vina verður
mér ógleymanlegur. Góður Guð blessi ykkur
öll.
Lifið heil!
NÍELS HALLDÓRSSON.
Mikið
úrval
teabrietf
Höggdeyfar
Ný sending
Norðurljós
Furuvöllum 13,
sími 25400.
1" Reiðskóli
Hestamannafélagsins Léttis
og Æskulýðsráðs Akureyrar.
Síðustu námskeið sumarsins hefjast fimmtudaginn 19. júlí.
Nokkur pláss laus. Innritun og upplýsingar í síma 22722.
Hestamannafélagið Léttir,
Æskulýðsráð Akureyrar.
A
Frá Kjörmarkaði
KEA Hrísalundi
Úrvals bökunarkartöflur
frá Kanada
★ ☆ ★
Grillaðir kjúklingar
★ ☆ ★
Innbakaður fiskur (Barcelona)
★ ☆ ★
Lambarúllur
★ ☆ ★
Frikadeller
★ ☆ ★
Kjúklingar (Bermuda)
★ ★ ★
Svínagrillsneidar
og fleirí réttir á gríllið.
Kjörmarkaður KEA
Hrísalundi
með 15% afslætti
Það er vinningur
að versla á
kjörmarkaðsverði
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
Skrifstofustarf
Dalvík
Óskum að ráða skrifstofumann til starfa sem
fyrst. Framtíðarstarf.
Bílaverkstæði Dalvíkur,
sími 61122.
Óskum að ráða vana
plötusmiði og blikksmiði
Upplýsingar gefa verkstjórar.
©Vélsmiðjan Oddi,
sími 21244.
Skrifstofustarf
Fjórðungssamband Norðlendinga vill ráða skrif-
stofumann á skrifstofu sína eigi síðar en 1. sept-
ember nk. eða eftir samkomulagi, sem fyrst og
fremst gegnir störfum ritara. Æskilegt er að um-
sækjandi hafi aflað sér haldgóðrar menntunar,
sem komi að gagni í starfinu.
Jafnframt er nauðsynlegt að umsækjandi hafi
leikni í vélritun og reynslu í störfum á skrifstofu.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri eftir 22. júlí
nk. í skrifstofu sambandsins. Umsóknir um starfið
skulu vera skriflegar og hafa borist fyrir 29. júlí nk.
Fjórðungssamband Norðlendinga.