Dagur - 03.09.1984, Blaðsíða 11
3. september 1984 - DAGUR - 11
„Ég er bara frí-
stundaráðskona“
- segir Alda Jónsdóttir í veiðihúsinu
í Svartárdal
1 Svartárdal í Húna-
vatnssýslu er veiðihús
og er búið að vera þar
í um 15 ár. Á ferð okk-
ar blaðamanna um
sýsluna var Svartárdal-
ur síðastur á dag-
skránni og meiningin
var að heimsœkja þar
veiðimenn og ráðs-
konu í veiðihúsinu og
kannski að gera eitt-
hvað fleira, en mót-
tökurnar voru það
góðar í veiðihúsinu að
fleira var ekki gert í
dalnum þeim. Að vísu
neituðu veiðimenn al-
farið viðtölum, en
ráðskonan, Alda Jóns-
dóttir, var öllu sam-
vinnuþýðari og sam-
þykkti smá spjall.
- Ert þú ráöskona hér allt
sumarið?
„Nei, nei, ég er bara þessa
viku. Þeir sem eru að veiða hérna
núna eru með húsið á leigu frá
mánudegi og fram á föstudag og
ég er bara fyrir þá. Þeir hringdu í
mig kl. 11.30 á sunnudagskvöldið
og þar sem ég var búin að heyja
sló ég til. Þetta var stuttur fyrir-
vari, ég var auðvitað ekkert búin
að versla, en þetta blessaðist allt
saman.“
- Er þá ekki föst ráðskona
hérna?
„Nei, hér er ekki föst ráðs-
kona. Hver hópur sér um matinn
fyrir sig. Það var einu sinni föst
ráðskona hérna, en þessir sem ég
elda ofan í nenntu ekki að elda
sjálfir svo þeir báðu mig.“
- Ræður þú hvað þeir fá að
borða?
Alda við ráðskonustörfin.
„Já, ég legg til matinn og ræð
að mestu hvað er að borða. Þeir
eru ekki með neitt múður, ég
hafði það stuttan fyrirvara."
- Er gott kaup fyrir ráðskonu-
starfið?
„Ég veit ekki ennþá hvað ég
fæ, en þeir sögðust borga vel.“
- Hvar býrðu annars?
„Ég bý í Húnaveri, ég og kær-
astinn minn erum húsverðir þar.
Við erum líka með nokkrar kind-
ur og heyjum nokkuð mikið. Við
ætlum að selja heyið, ef það er
hægt núna.“
- Eru það bændurnir í dalnum
sem leigja út ána?
„Nei, Stangveiðifélag Reykja-
víkur er með ána á leigu í sumar
og þeir leigja síðan út dagana.“
- Hefur veiðst mikið hérna í
sumar?
„Það eru búnir að veiðast rúm-
lega 100 laxar í sumar, það er fyr-
ir ofan gildruna, hún er fyrir neð-
an Svartárbrúna. Það er lítil
veiði. Þeir sem eru hérna núna
eru ekkert búnir að veiða nema
nokkra litla sjóbirtinga."
- Hefur þú eitthvað veitt sjálf?
„Ég fór aðeins í morgun en
fékk ekki neitt, það er svo lítil
veiði.“
- Ertu að hugsa um að leggja
ráðskonustarfið fyrir þig?
„Ékki hef ég nú hugsað mér
það. Þetta er í fyrsta skipti sem
ég geri svona, ég er bara svona
frístundaráðskona.“ - HJS
Kardemommubærinn
eftir Thorbjörn Egner
28. sýning laugardag 8. sept. ki. 17.00.
29. sýning sunnudag 9. sept. kl. 17.00.
Miðasala hefst í Samkomuhúsinu þríðjudag 4. sept.
opin aiia daga ki. 15-19. sími 24073 Leikféiag Akureyrar.
Súkkulaðiverksmiðjan Linda
Vantar stúikur
í vinnu nú þegar. Æskilegur aldur 18-35 ára.
Góð heilsa skilyrði.
Eyþór H. Tómasson.
Oskum eftir að
ráða starfsfólk
Upplýsingar veitir verksmiðjustjóri.
féMiol
Efnaverksmiðjan
Sjöfn.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 23., 25. og 27. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Aðalstræti 63, Akureyri, þingl. eign Kristjáns
Jóhannssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingarstofnunar ríkis-
ins á eigninni sjálfri föstudaginn 7. september 1984 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 30., 33. og 35. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Brekkugötu 41, efri hæð, Akureyri, þingl. eign
Ingólfs Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Ragnars Stein-
bergssonar hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 7. september
1984 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 2., 5. og 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á
fasteigninni Akurgerði 1d, Akureyri, þingl. eign Guðmundar
Ólafssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl. á eigninni
sjálfri föstudaginn 7. september 1984 kl. 13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins
1983 á fasteigninni Sunnuhlíð 1, Akureyri, þingl. eign Svein-
björns Herbertssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl.
á eigninni sjálfri föstudaginn 7. september 1984 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 23., 25. og 27. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Eiðsvallagötu 9 n.h., Akureyri, þingl. eign Sig-
fúsar Hansen, fer fram eftir kröfu Veðdeildar Landsbanka Is-
lands og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 7.
september 1984 kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 60., 62. og 65. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981
á fasteigninni Ásabyggð 18, kjallara, Akureyri, þingl. eign Frí-
manns Hallgrímsssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes
hrl. og Ragnars Steinbergssonar hrl. á eiginni sjálfri föstudag-
inn 7. september 1984 kl. 16.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.