Dagur - 19.11.1984, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 19. nóvember 1984
19. nóvember 1984 - DAGUR - 7
Inga Huld Pálsdóttir skorar úr víti fyrir Þór.
Mynd: gk.
Slakt hjá
stelpunum
Stelpurnar í Þór mega taka sig á ef þær ætla
sér að stoppa eitthvað í 1. deildinni í hand-
bolta. Þær komu upp úr 2. deild sl. vor en
enn hafa þær ekki unnið sigur í 1. deildinni
og um helgina töpuðu þær fyrir KR sem er
með eitt af slakari liðunum í deildinni.
Þórsstelpurnar voru afar slakar f þessum
leik. Talandi dæmi um það er að staðan í
hálfleik var 4:11 KR í vil og voru þá þrjú
marka Þórs úr vítum. Gat ekki heitið að
Þórsstelpurnar reyndu markskot allan fyrri
hálfleikinn.
Með þessa stöðu í hálfleik gat slakt KR-lið
slakað á í síðari hálfleiknum, sigurinn var
aldrei í hættu og lokatölurnar urðu 21:16 fyr-
ir KR.
MÖRK ÞÓRS: Inga Huld Pálsdóttir 8(5),
Þórunn Sigurðardóttir 4, Valdís Hallgríms-
dóttir 2, Margrét Björnsdóttir 1 og Borghild-
ur Freysdóttir 1.
Flest mörk KR skoraði Karólína Jónsdótt-
ir, 6 talsins.
Þórsarar
klaufar
í lokín
Hrikalegur klaufaskapur Þórs-
ara varð til þess að þeir töpuðu
öðru stiginu er þeir léku við
Gróttu í 2. deildinni í gær. Þór
var tvö mörk yfir þegar 50 sek.
voru til leiksloka 27:25. Grótta
minnkaði muninn í 27:26 þegar
25 sek. voru eftir og það hefði
átt að vera hægðarleikur fyrir
Þórsara að halda boltanum
þann tíma. En bráðlætið í
sókninni varð til þess að liðið
missti boltann og Grótta jafn-
aði þegar 12 sek. voru eftir, og
það þótt útileikmenn þeirra
væru aðeins 4 inná gegn 6
Þórsurum. Furðuleg mistök og
Þórsarar verða að reyna að
læra af þessum mistökum
sínum.
Það var öðrum fremur Árni
Stefánsson sem hélt Þór á floti í
þessum leik, og var tvímælalaust
besti maður vallarins. Ákaflega
grimmur í vörn, sífellt laus á lín-
unni í sókninni og af henni skor-
aði hann 8 mörk. Þá skoraði
hann einnig 9 mörk úr víta-
köstum. 17 mörk alls og hann
fiskaði 3 af þessum vítum sjálfur.
Stórleikur hjá Árna og slæmt að
hann nægði ekki til sigurs.
Grótta hafði yfirhöndina all-
an fyrri hálfleikinn og leiddi hann
að lokum 15:10. Sá munur hélst
og er staðan var 16:12 fyrir
Gróttu brugðu Þórsarar á það
ráð að taka tvo úr umferð. Eins
og í leiknum gegn HK gekk það
dæmi upp og Þór jafnaði 17:17.
Hins vegar tókst aldrei að setja
fyrir leka í horninu vinstra megin
og sá Gróttumaður sem þar var
skoraði grimmt undir lokin.
Leikurinn var í járnum allan tím-
ann sem eftir var eða þar til Þórs-
arar náðu að komast í 27:25. En
því miður mannskapurinn gat
ekki fylgt því eftir.
Þórsarar hljóta nú að sjá að
þeir geta unnið leik í 2. deild, en
það þýðir þá ekki fyrir þá að
berjast í 20 mínútur en láta reka
á reiðanum í 40 mínútur. Lið sem
þannig leikur vinnur ekki leik.
Sem fyrr sagði var Árni Stef-
ánsson yfirburðamaður að þessu
sinni. Erfitt er að nefna annan
Þórsara sem var hinum fremri að
öðru leyti, en ljóst er að liðið þarf
að taka sér tak, þótt það hefði átt
að vinna þennan leik.
MÖRK ÞÓRS: Árni 17(9),
Sigurður Pálsson 3, Rúnar
Steingrímsson 2, Guðjón Magn-
ússon 2, Oddur Sigurðsson,
Kristinn Hreinsson og Hörður
Harðarson 1 hver. Markhæstur
Gróttumanna var Jóhannes
Benjamínsson með 13(7).
„Með
rassinn
á hælunum"
„Það sem okkur vantar fyrst
og fremst er að menn trúi því
að þeir geti unnið leik. Þegar
það verður fyrir hendi verða
menn sjálfsagt tilbúnir til þess
að skila því sem þarf til þess að
sigra,“ sagði Guðjón Magnús-
son þjálfari Þórs eftir leikinn
við Gróttu.
„Við vorum með rassinn á hæl-
unum allan fyrri hálfleikinn og
eins var þetta gegn HK. Svo fara
menn að taka á þegar við erum
orðnir 6-7 mörkum undir en þá
er það bara of seint. Hins vegar
áttum við að vinna Gróttu, þetta
var í húsi en á óskiljanlegan
klaufahátt tókst að tapa öðru
stiginu,“ sagði Guðjón.
Þorsarar hárs-
breidd frá öðru stiginu
Litlu munaði - eftir afar köfl-
óttan leik - að Þór tækist að
stela stigi af HK í 2. deildinni
um helgina. Lengi Ieit þó ekki
út fyrir annað en stórsigur HK,
en undir lokin tóku Þórsarar
að saxa verulega á forskot
þeirra. Þeir minnkuðu muninn
í eitt mark og voru svo með
boltann síðustu sek. leiksins en
tókst ekki að jafna metin og
hirða annað stigið.
HK-menn án þriggja fasta-
manna - þjálfari þeirra setti þá út
úr liðinu fyrir agabrot - voru afar
grimmir í upphafi leiksins, greini-
lega ákveðnir í að kafsigla Þórs-
arana sem fyrst. Þeir tóku forust-
una, komust í 2:0 og síðan
breikkaði bilið þannig að í
leikhléi var staðan 17:19 HK í vii.
Það virtist því ekki vera annað
en formsatriði að ljúka þessari
viðureign og það hafði ekkert
breyst um miðjan síðari hálfleik,
staðan þá 22:14. En þá um leið
og „aðalmennirnir" Guðjón
Magnússon, Árni Stefánsson og
Sigurður Pálsson fóru af velli og
þeir reynsluminni komu inn á var
vörninni tvískipt. Tveir leik-
Erlingur Kristjánsson í kröppum dansi gegn Gróttu.
Mynd: gk.
Vendipunkturinn er
Þorvaldur varði víti
Liðin tvö í 2. deild handbolt-
ans sem ekki höfðu tapað stigi
eða stigum, KA og HK, mætt-
ust í Iþróttahöllinni á föstu-
dagskvöld. Er skemmst frá því
að segja að KA vann þar góð-
TOPPUÐIN 0LL A SIGURBRAUT
Lítið var um undur og stórmerki í
enska boltanum um helgina. Efstu
liðin unnu sína leiki og staðan er því
óbreytt á toppi deildarinnar. Topplið-
ið Everton fékk botnliðið Stoke í
heimsókn og Everton hreinlega rúll-
aði Stoke upp. Peter Reid var að
vanda í frábæru formi og lagði upp
tvö fyrstu mörkin. Adrian Heath
skoraði á 28. mínútu og 6 mínútum
síðar kom fyrrum Stokari Paul Brace-
well Everton í 2:0. Þannig stóð í hálf-
leik og nánast formsatriði að ljúka
leiknum. Á 70. mínútu skoraði Heath
á ný og Trevor Steven innsiglaði
sigurinn endanlega.
Þeir eru skæðir strákarnir hjá Tott-
enham þessa dagana. Á laugardag
heimsóttu þeir Ipswich og hurfu á
braut með öll stigin þrjú. Fyrri hálf-
leikur var markalaus mest vegna hins
makalausa Clemence í marki Totten-
ham. En á 20 mínútna kafla í síðari
hálfleik náðu framsóknarmenn Tott-
enham að gata vörn heimamanna
þrívegis. Fyrst skoraði Garu Mubutt
eftir undurgóðan einleik John Chiet-
ozen en Mubutt þessi hefur átt erfitt
með að vinna sér sæti í liði Totten-
ham. Annað markið fylgdi fljótlega
á eftir og var þar að verki Glen
Hoddle sem nú komst í liðið í fjar-
veru Tony Galvin. Þrátt fyrir snjallan
leik þeirra Eric Gates og Romeo
Zondervan á miðjunni náði Ipswich
ekki að finna glufu í vörn Tottenham.
Það gerði hins vegar Clive Allen fyrir
Spurs 2 mín. fyrir leikslok. Totten-
ham því komið á skrið á ný og verð-
ur eflaust í toppbaráttunni.
Chelsea vann góðan sigur á heima-
velli gegn WBA. Dave Speedie gerði
tvö markanna og bakvörðurinn Doug
Roughvie brá sér í sóknina og skoraði
þriðja markið. Allir sparkunnendur
sáu auðvitað beinu útsendinguna frá
leik Watford og Sheffield Wednesday
og aldrei þessu vant skoraði Wat-
ford aðeins eitt mark. George Reilley
átti snjallan leik og hann lagði upp
markið fyrir útherjann snjalla John
Barnes.
Það var ekki fyrr en í síðari hálfleik
að Manchester United náði að skora
gegn Luton. Mörkin urðu tvö og sá
írski landsliðsmaðurinn Norman
Whotedide um að koma boltanum
yfir marklínuna.
Arsenal hafði betur í viðureigninni
við QPR. Eftir slæmt gengi að undan-
förnu hristu leikmenn Arsenal af sér
slenið og unnu með marki Tony
Woodcock á 70. mínútu. Við ósigur-
inn er QPR komið á hættusvæðið í
deildinni.
Annað lið sem gengur illa að safna
stigum er Coventry. Nottingham For-
est lumbraði duglega á þeim og var
þetta fyrsti sigur Forest í langan tíma.
Mike Adams byrjaði á því að skora
sjálfsmark og Colin Walsh bætti síðan
öðru marki við fyrir Forest og sigur-
inn var aldrei í hættu.
A-Villa glataði niður tveggja
marka forskoti gegn Southampton
þegar Peter With hafði komið þeim á
bragðið. West Ham vann Sunderland
með marki Tony Cottie og hefur
Sunderland því tapað tveimur
leikjum í röð. Leichester náði að
vinna sigur þrátt fyrir að hafa selt
fyrirliða sinn Kevin McDonald til
Liverpool um helgina fyrir 400 þús-
und pund. Og lítum þá á úrslitin:
Arsenal - QPR 1:0 1
Aston V. - Southampton 2:2 x
Chelsea - WBA 3:1 1
Coventry - N. Forest 1:3 2
Ipswich - Tottenham 0:3 2
Leicester - Norwich 2:0 1
Watford - Sheff. Wed 1:0 1
West Ham - Sunderland 1:0 1
Everton - Stoke 4:0 1
Man. Utd. - Luton 2:0 1
Charlton - Birmingham 2:1 1
Middlesb. - Blackburn 1:2 2
Oldham - Oxford 0:0 X
Sheff. Utd. - Man. City 0:0 X
Newcastle - Liverpool 0:2 2
Og þá er það staðan í 1. deild:
Staðan í 1. deild ensku knattspyrn-
unnar er nú þessi eftir leiki helgarinn-
ar:
Everton 15 10 2 3 32:18 32
Man. Utd. 15 8 5 2 32:16 29
Arsenal 15 9 2 4 30:21 29
Tottenham 15 9 1 5 32:15 28
West Ham 15 7 4 4 21:20 25
Chelsea 15 6 4 5 25:16 22
Sheff. Wed. 15 6 4 5 25:18 22
Southampton 15 5 7 3 19:17 22
N. Forest 15 6 3 6 24:21 21
Liverpool 15 5 6 4 18:15 21
Newcastle 15 5 6 4 28:29 21
Sunderland 15 5 5 5 22:19 20
Norwich 15 5 5 5 21:21 20
WBA 15 5 4 6 23:21 19
A. Villa 15 4 5 6 20:30 17
Ipswich 15 3 7 5 17:21 16
Watford 15 3 6 6 30:33 15
QPR 14 3 6 5 19:25 15
Coventry 15 4 3 8 13:23 15
Leicester 15 4 3 8 22:33 15
Luton 15 3 4 8 17:31 13
Stoke 14 1 4 9 11:33 7
an sigur og ætla KA-menn að
standa undir þeim vonum sem
áhangendur þeirra binda við
liðið. Lokatölur í leik KA og
HK 23:20 KA í vil eftir 12:10 í
hálfleik.
KA-menn mættu geysi grimmir
til leiksins, vörnin var þétt fyrir,
boltinn vannst trekk í trekk og
síðan var brunað upp og bang!, í
markinu hafnaði boltinn. KA
komst í 5:1 og liðið hafði ávallt
yfir. Mestur var munurinn í hálf-
leiknum 5 mörk en sem fyrr sagði
þá var staðan í hálfleik 12:10.
Lengst af í síðari hálfleik leiddi
KA með 3-4 mörkum en þegar
langt var liðið á hálfleikinn náði
HK að saxa verulega á forskotið.
Staðan breyttist úr 18:14 í 19:17
og svo jafnaði HK 19:19. KA
komst yfir með marki Jóns úr víti
og svo kom vendipunkturinn að
margra mati er Þorvaldur í marki
KA varði víti. KA brunaði upp
og skoraði. Staðan því 21:19 í
stað 20:20 ef HK hefði skorað úr
vítinu og sigurinn í höfn.
KA-liðið var nokkuð mistækt
í leik sínum þrátt fyrir sigurinn.
Byrjunin var mjög góð sem fyrr
sagði og kaflar í síðari hálfleik
einnig. Það er aðall liðsins hversu
jafnt það er.
Línuspil er ekki mikið en
treyst á skot og gegnumbrot
þeirra sem leika fyrir utan og á
hornamennina. Með meiri ógn-
un á línunni sem að sjálfsögðu
kemur skyttunum einnig til góða
á ekkert að standa fyrir þessu liði
í 2. deildinni.
Bestu menn liðsins að þessu
sinni voru Friðjón Jónsson sem
var geysi öflugur í sókninni og
þeir Erlingur Kristjánsson, Jón
Kristjánsson og Erlendur Her-
mannsson voru einnig sterkir.
Þorvaldur var lengi í gang að
þessu sinni en reyndist betri en
enginn þegar líða tók á leikinn.
MÖRK KA: Friðjón 10, Jón 5,
Erlingur 4, Erlendur 3 og Þor-
leifur 1.
Markhæstu menn HK voru
Björn Björnsson og Stefán Hall-
dórsson með 6 hvor, Rúnar Ein-
arsson með 4.
Kaflaskipti
í hálfleik
Helgi Ragnarsson sagði eftir leik
KA og Gróttu að það hefðu verið
tvö ólík KA-Iið sem léku leikinn.
Mikill munur hefði verið á leik KA
í fyrri og síðari hálfleik. í þeim fyrri
hefði ekki verið spilaður sá hand-
bolti sem æfður væri á æfingum, en
dæmið hefði hins vegar snúist við í
hálfleik og þá hefði líka árangurinn
ekki látið á sér standa.
Þá sagði Helgi að leikurinn við
HK hefði verið erfiður, en þeir
hefðu búist við HK sem sterkasta
liði deildarinnar og undirbúið sig
fyrir þann leik með því hugarfari.
Liðið hefði hins vegar ekki reynst
eins sterkt eins og hann hefði búist
við og þess vegna unnist nokkuð
auðveldur sigur. Helgi sagði að nú
væru búnir fjórir heimaleikir sem
allir hefðu unnist, en heimavöllur-
inn ætti líka að vera mikils virði.
Eftir væru margir leikir á útivelli,
sem allir yrðu erfiðir. Þá vildi hann
koma því á framfæri við hina dyggu
áhorfendur á KA leikjunum, að
meira mætti í áhorfendum heyrast
því þá væri leikurinn auðveldari fyr-
ir liðið. Ó.Á.
Bjorn Ingl
Varði
2 víti
manna HK voru teknir úr umferð
og hlutirnir fóru að ganga fyrir
sig. Þór skoraði hvert markið á
eftir öðru, staðan breyttist í 21:25
og næstu þrjú mörk voru Þórs-
ara.
Staðan því 24:25 fyrir HK og
rúm mínúta eftir af leiknum.
HK-menn fóru sér hægt en
misstu bóltann er um 10 sek.
voru eftir og sá tími nægði Þór
ekki til að jafna.
Þórsliðið má enn blæða fyrir
það hversu mistækt það er. Liðið
var baráttulaust lengi vel, leik-
menn staðir í vörninni og afar
seinir aftur. Sennilega hafa þeir
fengið á sig 10-12 mörk úr hraða-
upphlaupum f þessum leik. En
um leið og baráttan í vörninni
kom fóru hlutirnir að ganga fyrir
sig. Erfitt var að gera upp á milli
leikmanna Þórs í þessum leik
enda liðið mjög jafnt, en Árni
Stefánsson var þó bestur.
MÖRK ÞÓRS: Sigurður Pálsson
12(8), Árni Stefánsson 3, Oddur
Sigurðsson 3, Rúnar Steingríms-
son 2, Kristinn Hreinsson 1,
Gunnar E. Gunnarsson 1, Guð-
jón Magnússon 1, Kristján
Kristjánsson 1.
Markhæstur HK-manna var
Kristinn Ólafsson fyrirliði með 7
mörk.
Árni Stefánsson skorar með tilþrifum fyrir Þór gegn HK.
Mynd: gk
Öruggt hjá KA
- sem sigraði Gróttu 28:22
Björn Ingi Hilmarsson vara-
markvörður KA, hefur lítið
getað Ieikið með undanfarið
þar sem hann týndi augnlinsu
á æflngu fyrir nokkru og ekki
tekist að fá nýja ennþá.
Hann kom hins vegar tvisvar
inn á í leiknum við Gróttu til að
reyna að verja víti og tókst í bæði
skiptin að verja og það við mik-
inn fögnuð áhorfenda. Ó.Á.
KA bætti við sig tveimur
stigum þegar þeir sigruðu
Gróttu í 2. deildinni í hand-
bolta á laugardaginn. Þetta var
fjórði leikur KA og jafnframt
fjórði sigurinn. KA-menn
trjóna því einir efstir í deild-
inni en öll önnur lið hafa tapað
leikjum.
í þessum leik skoruðu KA-
menn 28 mörk gegn 22, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið
15-14 fyrir KA.
Það var Grótta sem skoraði í
sinni fyrstu sókn, en Erlendur
átti skot í stöng í fyrstu sókn KA.
Það var hins vegar sá síungi Þor-
leifur sem jafnaði síðan fyrir KA
úr vel útfærðu hraðaupphlaupi.
Það var Grótta sem hafði yfir-
höndina framan af leiknum og
voru einu til tveim mörkum yfir
á tímabili. Varnir liðanna voru
slakar og nánast skorað mark í
hverri sókn. Á 16. mín. jöfnuðu
KA-menn 9:9 og á sömu mínútu
gerði Pétur fallegt mark fyrir KA
og kom KA yfir í fyrsta sinn í
leiknum. Á fyrstu 17 mín. leiks-
ins voru því gerð 19 mörk. Það
sem eftir var af fyrri hálfleik tókst
Gróttu nokkrum sinnum að jafna
en KA-menn urðu ávallt fyrri að
skora aftur. Þegar blásið var til
leikhlés var staðan 15 gegn 14
fyrir KA.
Sennilega hefur Helgi þjálfari
hjá KA lesið yfir sínum mönnum
í hálfleik því það var óþekkjan-
legt lið sem kom inn á og fljót-
lega gjörbreyttu þeir stöðunni og
náðu fljótt fjögurra marka for-
skoti. Þegar leið á leikinn var það
aldrei spurning hver ynni leikinn,
aðeins með hve miklum mun KA
myndi vinna.
Þorvaldur var oft á tíðum í
miklum ham í markinu hjá KA,
sérstaklega þegar Gróttu-menn
voru í dauðafæri, en þá gerði
hann sér lítið fyrir og varði af ör-
yggi. Hann er mikill hasarmark-
vörður og ver mest þegar and-
stæðingarnir eru í dauðafæri og
mikið gengur á á línunni.
Þegar flautað var af hafði KA
gert 28 mörk en Grótta 22.
Erlingur var markahæstur hjá
KA með 9 mörk, Jón gerði 6,
Friðjón 5, Erlendur og Þorleifur
3 hvor, Pétur og Logi 1 hvor.
Dómarar voru þeir Aðalsteinn
Sigurgeirsson og Benedikt Guð-
mundsson og þegar upp var stað-
ið var dómgæsla þeirra ágæt en
oft á tíðum virtist leikurinn erfið-
ur fyrir dómarana, þ.e.a.s. mikið
af vafabrotum en þeir félagar
komust vel frá dómsgæslunni.