Dagur - 26.11.1984, Blaðsíða 12

Dagur - 26.11.1984, Blaðsíða 12
Síðuskóli: Vistun yngstu barnanna? „Það er rennt örlítið blint í sjóinn með þörfína fyrir þetta en þetta hefur verið í gangi í nokkrum kaupstöðum og þar hefur það sýnt sig að þörf er fyrir þessa þjónustu,“ sagði Ingólfur Armannsson skóla- stjóri í Síðuskóla er við rædd- um við hann. Skólanefnd Ak- ureyrar hefur mælt með því að hafin verði tilraun með vistun barna í skólanum til reynsiu, ef vilji foreldra verður fyrir hendi. „Það er hugmyndin að gera þessa tiiraun eftir áramótin og þá kemur betur í ljós hver við- brögð foreldra verða. Við kynnt- um þetta lítillega á foreldrafundi í haust og þá virtist nokkur áhugi vera fyrir hendi. Síðan þá hefur málið legið niðri, bæði var að verkfallið kom þarna inn í og svo hefur bæjarstjórn ekki afgreitt þetta endanlega." - Krakkar á aldrinum 6-8 ára eru 2-3 klukkustundir í skólan- um á degi hverjum. Hugmyndin er að eftir að skóla lýkur gætu krakkarnir verið áfram í skólan- um og þar yrði haft ofan af fyrir þeim á einn og annan hátt. Ætl- unin er að þessi tilraun verði eftir hádegi, þannig að krakkarnir sem eru í skólanum kl. 13 og væru annars lausir kl. 15-16 gætu verið í skólanum fram yfir kl. 17. Reiknað er með að mánaðarlegt gjald fyrir hvert barn í þessari vistun yrði 700 krónur. gk-. Himnasending. Mynd: ESE Flutningskostnaðurinn afnuminn: „Ákaflega mikið hagsmunamál" - segir Ólafur Friðriksson á Sauðárkróki - Það er Ijóst að þetta kemur til með að bæta okkar sam- keppnisaðstöðu verulega ef við miðum til dæmis við Akureyr- arsvæðið, sagði Ólafur Friðr- iksson, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki er við spurðum hann um áhrif þess að ákveðið hefur verið að afnema flutn- ingsgjald af vörum til kaupfé- laganna. Þessi ákvörðun var til umræðu á fundi kaupfélagsstjóra víðs veg- ar af landinu í Reykjavík um síð- ustu helgi og vakti þá mikla at- hygli. Það eru ekki síst hin minni kaupfélög og neytendur á minni stöðum sem hafa hag af þessu fyrirkomulagi sem boðað hefur verið. - Við höfum verið með flutn- ingskostnaðinn inni í vöruverð- inu en okkar helstu samkeppnis- aðilar t.d. á Akureyri hafa áður afnumið þennan flutningskostn- að. KEA fyrst í Hrísalundi m.a. með beinum innkaupum og síðan Hagkaup eftir að ákveðið var að selja vörurnar á sama verði og í Reykjavík. Það er því ljóst að þarna er um ákaflega stórt mái að ræða fyrir okkur og önnur kaup- félög á minni stöðum víðs vegar um landið, sagði Ólafur Friðriks- son, kaupfélagsstjóri. - ESE Hugvitsmaður á Blönduósi: Smíðar mottur fyr- ir skelfiskplóga - á 10-15% lægra verði en gert er erlendis íslenskum smáíönaði vex sí- fellt ásmegin. Nýjasta dæmið er frá Blönduósi en þar hefur fyrrverandi skipstjóri og vél- stjóri hafið framleiðslu á járn- mottum sem notaðar eru á skelfiskplóga. Hugvitsmaðurinn heitir Einar Jóhannesson og í samtali við Dag Spumingin er um ofnotkun - segir Valdimar Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi um sólbaðsstofurnar „Ég tel að það sé ekki málið varðandi húðkrabbann sem rætt hefur verið um, hvort hreinlæti sé ábótavant eða ekki, það er fremur spurningin um hvort um ofnotkun sé að ræða,“ sagði Valdimar Brynj- ólfsson heilbrigðisfulltrúi á Akureyri er við spurðum hann hvort hans embætti hefði haft afskipti af sólbaðsstofum í bænum. „Það er varasamt að gera þetta að einhverri múgæsingu, að þetta sé hættulegt, því það er jafnvel erfitt að segja til um hvað er of- notkun í þessu sambandi. Ég tel það ofnotkun ef farið er oftar en einu sinni á dag í einhvern tíma. En að fara t.d. í 10 skipti, taka þá hvíld og fara síðan aftur í 10 skipti, það tel ég ekki ofnotkun. Það er hreinlætið sem við höfum fyrst og fremst fylgst með og að hér sé um að ræða viður- kennd tæki sem notuð eru og Geislavarnir hafa samþykkt." - Hafið þið fundið eitthvað at- hugavert hvað varðar hreinlæti? „Ekki hefur það verið. Það hefur verið orðrómur um að smit hafi orðið af flatlús en við höfum ekki sannanir fyrir því og ég hef litla trú á því. Við ráðleggjum að fólk fari ekki nakið í þessa lampa, sé í stuttbuxum. Einnig viljum við að starfsfólkið á stof- unum sjái sjálft um að þrífa bekkina eftir hvern viðskiptavin en það er ekki alls staðar gert. Það er ekki kvöð á því, enda er reyndin sú sums staðar að við- skiptavinirnir þrífa sjálfir eftir sig og geta þá þrifið áður en þeir leggjast undir lampann.“ Valdimar sagði að á Akureyri væru starfræktar 11 sólbaðsstofur og í þeim væru 28-30 sólarlamp- ar. Þá væri eitthvað af þessum lömpum í heimahúsum. gk-. sagði hann að hugmyndin að mottunum hefði vaknað er hann aðstoðaði við að smíða umrædda skelfiskplóga, en plógar þessir plægja skelina upp af hafsbotni. Allt frá upphafi hafa útgerðar- menn þurft að kaupa járnmott- urnar á plógana frá Bretlandi en nú stefnir allt í að Einar geti séð fyrir þörfum innanlands á mun hagstæðara verði en er á innfluttu framleiðslunni. - Þetta er allt á tilraunastigi hjá mér ennþá en ég er þó búinn að selja fjórar mottur á um 10-15% lægra verði en bresku framleiðendurnir bjóða. Þá er ekki allt upp talið því ég smíða motturnar eftir máli en bresku mottunum hefur alltaf þurft að breyta þannig að þær pössuðu á plógana, segir Einar og bætir því við að það eina sem standi fyrir- tækinu fyrir þrifum sé fjármagns- skortur. Iðnráðgjafi Fjórðungs- sambands Norðlendinga hefur stutt við bakið á Einari allt frá því að þessi hugmynd kom upp á yfirborðið og í samtali við Dag sagði Einar að það gæti verið gaman ef hægt væri að smíða meira hér heima. - ESE „í dag verður suðaustanátt á Norðurlandi, slydda og jafnvel rigning,“ sagði veðurfræðing- ur í spjalli við Dag í morgun. Við fengum einnig þær upp- lýsingar að gert er ráð fyrir hvassri norðanátt á morgun og éljagangi. Úr því veðri dregur annað kvöld og á miðvikudag er gert ráð fyrir norðvestan átt og éljum. # Gullmolar frá liðinni tíð Eflaust hafa margir lands- menn setið við útvarpstækin sín og hlustað á þátt Svavars Gests í gær, um leið og þeir sötruðu sunnudagskaffið sitt. í þessum þáttum rifjar Svavar upp eitt og annað, sem fram kom í ýmsum skemmtiþáttum Ríkisút- varpsins fyrir tuttugu árum eða svo. Þar eru hans eigin þættir fyrirferðarmestir en einnig koma fyrir gullkorn úr þáttum Sveins Ásgeirssonar og Magnúsar Ingimarssonar, svo dæmi séu tekin. í stuttu máli sagt, þá er hægt að skemmta sér konunglega með því að hiusta á þátt Svavars, hvort heldur sem menn muna þessa skemmti- þætti eður ei. Um leið verður sú spurning áleitin; hvernig stendur á því að slíkir þættir heyra til undantekninga í ríkisfjölmiðtunum nú? # Sundlaug undir sjávar- máli Góðkunningi blaðsins sendi okkur nýja sögu af Húsvík- ingi, sem við höfum aldrei heyrt áður. Hún var á þá leið, að ónefndur Akureyringur fékk sér far með Eddunni, sem sigidi seglum þöndum í skuldasjó sællar minningar. Hann byrjaði á því að skoða skipið hátt og lágt og kom loks að sundlaug, sem var undir sjávarmáli í skipinu. Þá var Akureyringurinn orð- inn slompaður, enda hafði hann komið við á flestum börum skípsins, ef ekki öllum, og bragðað það sem þar var að fá. - Hvernig, hik, stendur á þvf að sundlaugin er höfð undir sjávarmáli, sagði Akureyringurinn undr- andi. - Skilurðu það ekki maður, það er til þess að sjórinn renni beint í laugina ef leki kemur að skipinu, svaraði nærstaddur Húsvík- ingur um hæl. # Takmarkaður áhugi Áhugamenn um knattspyrnu hafa ekki komist hjá þvi á undanförnum árum að veita þvf eftirtekt að áhugi Ásgeirs Sigurvinssonar á að leika með landsliðinu er mjög tak- markaður. Ásgeir er Ifka eini atvinnumaðurlnn sem ekki hefur það f samningi sfnum að félagsliðið verði að láta hann lausan í landsleiki. Það er því tfmabær spurning, hvort ekki sé tímabært að hætta að ónáða snillinginn með kvabbl um landsleiki fyr- ir gamla landið og láta hann í friði með þann fótbolta sem hann fær borgað fyrir að leika.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.