Dagur - 10.12.1984, Page 3
10. desember 1984 - DAGUR - 3
Umræðan um álver við Eyjafjörð:
„Óskandi að
menn legðu
öfgamar
til hliðar"
- segir Valur Amþórsson
„í sjálfu sér kom ckkert nýtt
fram eða á óvart í þessum við-
ræðum. Öllum er kunnugt um
þá lægð sem er í áliðnaðinum
núna, sem bæði kemur til af
hægari efnahagsstarfsemi í
Bandaríkjunum en menn
höfðu reiknað með og vaxandi
endurvinnslu á áli. Það er því
ekki við því að búast alveg á
næstunni að teknar verði
ákvarðanir um byggingu nýrra
álvera sem beint yrði að
Evrópumarkaði. Hins vegar
má búast við því að jafnvægi
milli framboðs og eftirspurnar
komist á áður en langt um líð-
ur og að eftirspurn eftir áli
aukist verulega í lok þessa ára-
tugar og byrjun þess næsta.
Það má því reikna með
ákvörðunum um byggingu
nýrra álvera áður en yfírstand-
andi áratug lýkur,“ sagði Val-
ur Arnþórsson, en hann ásamt
fleirum úr stóriðjunefnd og
stjórn Landsvirkjunar fór ný-
lega til Kanada til könnunar-
viðræðna við Alcan.
Valur var spurður að því hvort
einhver breyting hefði orðið á
hjá forsvarsmönnum Alcan varð-
andi hugmyndir um að reisa ál-
bræðslu á íslandi og varðandi
tímasetningu slíkra fram-
kvæmda.
„Það er ekki um að ræða um-
talsverða breytingu. Hins vegar
er lægðin í áliðnaði núna öllu
nteiri en menn bjuggust við og
það má reikna með að ákvarðan-
ir um ný álver verði teknar einu
til tveimur árum seinna en áður
var gert ráð fyrir. Að öðru leyti
er ekki um meiriháttar breytingu
að ræða og nýtt álver, sem beint
yrði að Evrópumarkaði, gæti tek-
ið til starfa 1992-1993 í staðinn
fyrir 1991-1992.“
„Er álver við Eyjafjörð, sem
rætt hefur verið um við Alcan,
þá raunhæfur kostur?"
„Ég tel of snemmt að taka af-
stöðu til þess hvort byggja eigi ál-
ver á Eyjafjarðarsvæðinu. Pað
þarf að ljúka yfirstandandi um-
hverfisrannsóknum og spá um
dreifingu hugsanlegra mengunar-
efna. Fyrst þegar þessar niður-
stöður liggja fyrir er hægt að taka
afstöðu til málsins og bygging ál-
vers hér kemur að sjálfsögðu
ekki til greina nema það sé í aðal-
atriðum skaðlaust fyrir umhverf-
ið. Ef þessar rannsóknir leiða til
þeirrar niðurstöðu og ef sam-
komulag næst um orkuverð,
skattamál, eignaraðild og þau
önnur atriði sem máli skipta fyrir
íslendinga, þá getur álver verið
raunhæfur möguleiki í atvinnu-
uppbyggingu á Eyjafjarðarsvæð-
inu áður en mörg ár líða. Ég vil
leggja áherslu á það að menn
mega ekki á grundvelli öfga-
kenndra trúaratriða hafna þessu
að óathuguðu máli. f>að yrði at-
vinnulegt áfall fyrir Eyjafjarðar-
svæðið ef nýjar orku- og stóriðju-
framkvæmdir yrðu á Suðurlandi
og Austurlandi, án þess að nokk-
uð meiriháttar kæmi til hér. í>á
má búast við verulcgum sam-
drætti.
Petta breytir hins vegar ekki
því, eins og ég hef jafnan lagt
áherslu á, að uppbygging at-
vinnulífs þarf að byggjast á mörg-
um þáttum. Það er höfuðatriði að
reyna fyrir sér á sem víðustu
sviði. Að þvt' vinnur m.a. Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar hf. og
fjölmörg fyrirtæki á svæðinu.“
„Telur þú að umræðan um ál-
ver hafi orkað lamandi á framtak
og sjálfsbjargarviðleitni Eyfirð-
inga, svo sem sumir hafa haldið
fram?“
„Ég tel það fráleitt og vil
benda á það að margs konar at-
huganir hafa verið í gangi og
raunhæfar aðgerðir í atvinnuupp-
byggingu svæðisins. Hins vegar
virðist mér að mjög harkaleg
andstaða gegn hugsanlegri stór-
iðju, þótt hún hafi ekki umhverf-
isskemmandi áhrif, geti dregið úr
trú manna á uppbyggingarvilja
Eyfirðinga. Að þessu leyti má
segja að þessi umræða hafi virkað
neikvætt fyrir Eyjafjarðarsvæðið
og væri óskandi að menn vildu
ræða þetta mál málefnalega og
leggja öfgarnar til hliðar,“ sagði
Valur Arnþórsson að lokum. HS
góðir tónleikar
Borgarbíói
Mjög
r
I
Páll Jóhannesson, tenor, hélt
söngskemmtun í Borgarbíói 1.
des. sl. kl. 5. Undirleikari er
Ólafur Vignir Albertsson.
Mjög ánægjulegt var að heyra
þá miklu framför, sem orðið hef-
ur á rödd hans, nú á síðustu mán-
uðum og þakkar hann það að
miklu leyti nýjum kennara
sínum, Pier Miranda Ferraro að
nafni, sem búsettur er í Milano.
Rödd Páls er stórglæsileg,
textaframburður með ágætum og
virtist söngvarinn eiga mjög auð-
velt með að syngja hinar erfiðu
óperuaríur, sem á söngskránni
voru.
Ætluðu áheyrendur ekki að
sleppa söngvaranum af sviðinu,
svo áköf voru fagnaðarlætin.
Varð hann að syngja mörg auka-
lög að lokum. Eftir nýárið mun
Páll halda á ný tii Ítalíu, til fram-
haldsnáms hjá hinum sama
kennara. Áreiðanlega má mikils
vænta af honum í framtíðinni.
s.s.
Eyfirskar ættír 1.-7. bindi
eftir Hólmgeir Þorsteinsson frá Hrafnagili
koma út í þessari viku.
Áskrifendur fá safnið fyrir 5.600 kr. og gildir það verð til 15. desember nk.
Umboðsmaður okkar á Norðurlandi er Árni Bjarnarson, Akureyri sími 23852.
Tekur hann á móti áskrifendum og gefur allar frekari upplýsingar.
SÖGUSTEINN - BÓKAFORLAG, Reykjavík.
Nýkomið
Baðmottusett, margar gerðir og litir,
mjög gott verð.
Mottur í baðkör.
Nýjar gerðir og litir á gólfteppum.
5% staðgreiðsluafsláttur
eða góðir greiðsluskilmálar.
Teppadeild.
Kynning á Metabo
verður í
Byggingavörudeild
miðvikudaginn
12. desember kl. 10-12
og 14-18.
Byggingavörudeild, Glerárgötu 36, Akureyri