Dagur - 12.12.1984, Blaðsíða 8

Dagur - 12.12.1984, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 12. desember 1984 12. desember 1984 - DAGUR - 9 „Lykkjufair Ný skáldsaga eftir Agnesjónu Maitsland Iðunn hefur sent frá sér nýja skáldsögu eftir ungan íslenskan höfund. Sagan heitir Lykkjufall og höfundur er Angesjóna Maits- land. Er þetta fyrsta skáldsaga höfundar. Frásögnin er lögð í munn ungri sjómannskonu og lýsir viðburðum í lífi hennar á tíu dögum sem mjög reynast henni örlagaríkir. Maður hennar hefur dvalist langdvölum burtu „og Kata leitar huggunar í félagsskap nærtækari karlmanna - sem og Bakkusar," segir í forlagskynn- ingu. Ennfremur segir þar: „Þótt höfundur fjalli af raunsæi um persónur sínar og hlífi þeim í engu, þá er umhyggja hans áber- andi og væntumþykja. Kata getur ekki útskýrt allar sínar gjörðir og eflaust kannast margur lesandinn við drauma hennar, vonir og freistingar sem auðvelt er að falla fyrir.“ Tröllabókin Ný sögu- og myndabók fyrir yngstu börnin Út er komin hjá bókaforlaginu Iðunni ný bók fyrir yngstu börnin Tröllabókin. Sagan er eftir Jan Lööf en myndlistarmaðurinn Rolf Lidberg hefur myndskreytt bókina stórum litmyndum sem prýða hverja opnu hennar. Þor- steinn skáld frá Hamri þýddi textann. Saga tröllanna er öðrum þræði sagan um hina eilífu hringrás náttúrunnar, sögð á þann hátt sem yngstu börnin skilja og nema. Náttúran öðlast líf í máli og myndum og inn í sögu árstíð- anna fléttast ótal kostuleg og kímileg atvik úr lífi litlu trölla- barnanna. Langafi prakkari Ný sögu- og myndabók eftir Sigrúnu Eldjárn Iðunn hefur gefið út nýja bók eft- ir Sigrúnu Eldjárn. Nefnist hún Langafi prakkari og segir frá Önnu litlu, fjögurra ára telpu, sem líka er söguhetjan í bókinni Langafi drullumallar sem kom út í fyrra. - Langafi og Anna eru óaðskiljanlegir vinir og bralla margt saman. Verst þykir Önnu að eiga enga langömmu. Grefur hún nú gildru og þau langafi verða sér úti um ýmislegt góðgæti til að lokka langömmuna í gildr- una. En eins og í öllum ævintýr- um fer margt öðruvísu en ætlað er . . . Nýbók um Elías Komin er út hjá Iðunni ný bók um Elías, fyrirmynd annarra barna í góðum siðum (eða hitt þó heldur!) eftir Auði Haralds. Nefnist hún Elías í Kanada. Eins og allir muna, kom Elías fram í barnatíma sjónvarpsins (leikinn af Sigurði Sigurjónssyni) og vann hylli áhorfenda með kostulegum uppátækjum sínum. Fyrri bókin um Elías hlaut miklar vinsældir barna á öllum aldri og það er óhætt að fullyrða að Elías í Kanada gefur hinni fyrri ekkert eftir. Bókin er prýdd mörgum myndum eftir Brian Pilk- ington sem einnig hannaði kápu. Laufið grænt Viðburðarík saga Vesturbæjardrengs Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út fyrstu skáldsögu Erlends Jónssonar. Nefnist hún Laufið grænt. Áður hafa komið út eftir Erlend fjórar Ijóðabækur, útvarpsleikrit, bókmenntasaga og fleira. Skáldsagan Laufið grænt segir frá ellefu ára gömlum dreng sem býr með fráskilinni móður sinni í litlu húsi í Vesturbænum. Frið- helgi heimilisins er rofin með heimsóknum mikils metins borg- ara. Drengurinn lítur þennan kunningsskap óhýru auga, en móðirin sendir drenginn í sveit og fer sjálf í sólarlandaferð. Dvölin í sveitinni reynist drengn- um viðburðarík. Minnisstæðasti atburður sumarsins verður skemmtun sem haldin er um verslunarmannahelgina þar í grenndinni. Par birtist mannlífið drengnum í allri sinni ólgu og fjölbreytni. Foreldra- handbókin Hvernig er skynsamlegast að bregðast við geðofsaköstum litla barnsins? Hvernig á að koma reglu á svefninn þegar barnið vakir fram eftir öllum kvöldum? Þetta eru nokkrar af þeim spurn- ingum sem ætla má að nýbakaðir foreldrar spyrji. í Foreldrahand- bókinni sem er nýkomin út hjá Iðunni gefur Miriam Stoppard svör við flestum þeim spurning- um sem ætla má að foreldrar spyrji á fyrstu þremur æviárum barna sinna. Hér er fjallað um öll hugsanleg efni sem varða börn, hvort sem það eru bleiur eða barnastólar, martraðir eða mat- arvenjur, kerrur eða koppar, leikir eða leiðindi. Fjallað er sér- staklega um hvert atriði og ná- kvæm atriðisorðaskrá gerir bók- ina auðvelda í notkun. Gestur Iðunn hefur sent frá sér bókina Gestur, fyrsta bindi safnrits sem flytja skal þjóðlegan fróðleik, gamlan og nýjan. Gils Guð- mundsson tekur efnið saman, en hann er flestum kunnugri efni af þessu tagi. Áður hefur hann valið í endurminningasafnið Mánasilf- ur sem Iðunn gaf út í fimm bind- um og hlaut ágætar viðtökur. Gestur er hugsaður sem nokk- urs konar framhald þjóðfræðirits- ins Heimdraga sem út kom á ár- unum 1964-72 og naut mikilla vinsælda lesenda. Er ekki að efa að þetta nýja safn verður vel þeg- ið og rætast muni sú ósk umsjón- armanns í eftirmála að ritið verði „kærkominn gestur á íslenskum heimilum þar sem þjóðlegur fróðleikur er nokkurs metinn". Gestur hefur að geyma efni af ýmsu tagi. Sumt er áður óprentað svo sem bernskuminningar frá Skildinganesi, minningaþáttur úr stldinni og frásagnir af „einkenni- legum mönnum“ á Suðurnesjum. Annað hefur að vísu verið prent- að í blöðum og tímaritum hér og þar, en er þorra manna með öllu ókunnugt og óaðgengilegt. Hér eru svipmyndir úr daglegu lífi í sveit og við sjó, frá starfi leikra sem lærðra, námi í Bessastaða- skóla og tónlistarlífi í Reykjavík í aldarbyrjun, þættir af hetjum hversdagslífsins sem litlum sögum hefur farið af, og einnig þjóðskáldum eins og Gröndal og Þorsteini Erlingssyni, - svo að fátt sé talið. Allt er þetta hug- tækur aldarspegill, veitir lesand- anum minnilega innsýn í líf fyrri kynslóða í landinu. Þrautgóðir á raunastund 16. bindi björgunar- og sjóslysasögu íslands Bókaútgáfan Örn og Örlygur hefur gefið út bókina Þrautgóðir á raunastund eftir Steinar J. Lúð- víksson. Bókin er sextánda bind- ið í hinum mikla bókaflokki um björgunar- og sjóslysasögu ís- lands og fjallar hún um atburði áranna 1964-1966 að báðum ár- unum meðtöldum, en í fyrri bókunum hefur verið fjallað um atburði frá aldamótunum 1900 fram til 1963, auk þess sem ein bókanna var helguð brautryðj- endum á sviði slysavarna á ís- landi. í bókinni er getið margra sögu- legra atburða er urðu á árunum sem bókin fjallar um. Meðal stærri atburða má nefna: Strand pólska togarans Wislok - Fræki- lega björgun áhafnarinnar af m.b. Strák - Þorbjarnarsiysið við Reykjanes - Björgunar áhafnar- innar af Wyre Conquerer og strand breska togarans Boston Wellvae við Arnarnes við ísa- fjarðardjúp. Allmargar myndir eru í bókinni m.a. af skipum, bátum og mönnum sem koma við sögu. Bókaflokkurinn Þrautgóðir á raunastund er þegar orðinn einn viðamesti bókaflokkur hérlendis. Efnisskipan er með þeim hætti að hvert ár er út af fyrir sig, en at- burðum gerð misjafnlega mikil skil eftir eðli þeirra og atvikum. Hverju ári fylgir nákvæm at- burðaskrá í tímaröð. Mörgum atburðanna lýsa menn, sem hlut áttu að máli, ým- ist sem björgunarmenn, eða þeir sem bjargað var. Óhætt er að segja að hér sé á ferðinni áhrifa- mikil og oft hrikaleg samtíðar- saga, einn af veigameiri þáttum íslandssögunnar. Framandi land Dagbókarkorn úr íslandsferð árið 1863 eftir Sir Charles H.J. Anderson Árið 1981 eignaðist Böðvar á bókamaikaði Kvaran handrit ferðabókar sem borist hafði til fornbókaverslunar í Bretlandi það ár. Við athugun kom í ljós að hér var um að ræða dagbók Sir Charles H.J. Ander- son úr íslandsferð hans og sonar hans árið 1863. Sir Charles kom ásamt syni sínum hingað til lands til þess að kanna nýjar, óþekktar slóðir, leita á fund hinnar lítt snortnu íslensku náttúru og hríf- ast af mikilleik hennar og furðum. Ýmsir athyglisverðir staðir eru nefndir svo og bæir, sem staldrað er við á, og þá að sjálfsögðu rætt við heimamenn. Þýðandi bókarinnar, Böðvar Kvaran, lætur víða fylgja skýringar á atriðum sem höf- undurinn hefur punktað niður og minnst á án þess að gera þeim ít- arleg skil. Hér er á ferðinni bók sem lýsir vel þeim áhrifum sem erlendir ferðamenn urðu fyrir er þeir sóttu ísland heim á öldinni sem leið. ísland var þeim svo sannar- lega framandi land. Útgefandi er Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. Dagurí lífi drengs Iðunn hefur sent frá sér barna- bókina Dagur í lífi drengs eftir Jóhönnu Álfheiði Steingríms- dóttur í Árnesi. „Dagur í lífi drengs er ævintýri handa börnum, sagt af næmi og hlýju og með hugarflugi sem öllum sönnum ævintýrum er nauðsyn. Sagan er í senn ævin- týraleg og trúverðug og aðalpers- ónan, Dúlli litli, lifir áfram í huga lesendanna að lestri loknum,“ segir í forlagskynningu. Bókin fjallar um einn dag í lífi Dúlla litla. Hann á heima í fal- legu húsi utan við þorpið sem kallað er Draumheimar. Hann er sex ára og foreldrar hans starfa inni í þorpinu. Dúlli verður því oft að una sér einn meðan þau eru í burtu við vinnu eða skemmtanir. Þegar Dúlli litli er einn gerast margir spennandi hlutir. Hann þarf naumast annað en loka augunum þá er hann flog- inn af stað á vit spennandi ævin- týra, hittir fyrir ernina í fjallinu, flugmenn í loftinu, sjómenn á hafinu og undarlegt fólk hinum megin við hafið. Jóhanna Álfheiður Steingríms- dóttir í Árnesi kann að segja börnum sögu - og reyndar full- orðnum líka, því að Dagur í lífi drengs höfðar til barnsins í okkur öllum og kennir okkur á nærfær- inn hátt að gefa gaum að um- hverfinu. Vertu þú sjálfur Ný bók eftir Wayne W. Dyer Bókaútgáfan Iðunn hefur sent frá sér bókina, Verfu þú sjálfur, eftir bandaríska sálfræðinginn Wayne W. Dyer. Álfheiður Kjartansdóttir þýddi. Dr. Wayne W. Dyer er víð- kunnur bandarískur sálfræðingur og hafa bækur hans orðið miklar metsölubækur í Bandaríkjunum og víðar. í fyrra kom út á ís- lensku bók hans Elskaðu sjálfan þig sem hlaut mjög góðar við- tökur íslenskra lesenda. Með Vertu þú sjálfur kemur Dr. Dyer enn til liðs við þá lesendur sem vilja stunda sjálfskönnun, efla sjálfstraust sitt og auðvelda sér listina að lifa og njóta þess. Á bókarkápu eru bókinni gefin einkunnarorðin: „Bók handa öllum þeim sem fylgja vilja eigin sannfæringu og stjórna lífi sínu sjálfir." Þar segir ennfremur: „Frjáls- astir allra í heiminum eru þeir sem hafa öðlast innri frið. Þeir stjórna eigin lífi í kyrrþey en hlaupa ekki eftir dyntum ann- arra. Þessi bók fjallar um að velja sjálfur. Hún byggir á þeirri meg- inforsendu að þú hafir rétt til að ákveða hvernig þú viljir lifa lífinu svo framarlega sem þú gengur ekki á rétt annarra. Þú getur ver- ið ábyrgur og frjáls. Þú getur staðið á þínu án yfirgangs eða sektarkenndar. Þetta er þitt líf og þú einn getur lifað þínu lífi.“ Jákvæður lífskraftur Sjöunda bókin eftir Norman Vincent Peale sem gefin er út á íslensku Á undanförnum árum hafa kom- ið út í íslenskri þýðingu Baldvins Þ. Kristjánssonar sex bækur eftir hinn heimskunna predikara og NORMAN VINCENT mannvin, Norman Vincent Peale. Má m.a. nefna bækurnar Vörðuð leið til lífshamingju og Lifðu lífinu lifandi. Allar hafa bækur Peales fengið hinar bestu viðtökur og eru flestar uppseldar. Nú bætist sjöunda bókin í þenn- an flokk, einnig í þýðingu Baldvins. Hún nefnist Jákvæður lífskraftur. í þessari bók segir Norman Vincent Peale frá því er hann mætti Jesú Kristi í æsku og frá því hversu andi hans auðgað- ist er hann hóf að boða hina já- kvæðu lífskenningu og byrjaði smám saman þá starfsemi er síð- ar varð heimsþekkt. í hverjum kafla er fjöldi sannra spennandi frásagna fólks sem sjálft hefur reynt hinn jákvæða lífskraft Jesú Krists. Verkmenntaskólinn á Akureyri Kennsla á vorönn hefst mánudaginn 21. janúar 1985. Innritun nýrra nemenda lýkur 21. desember nk. Skólameistari. Léttisfélagar Hestaeigendur eru beðnir að koma út að Hrafnsstöðum og Kífsá kl. kl. 2 e.h. nk. laugardag 15. desember og sækja hross sín. Tapast hefur úr högum félagsins brún hryssa á 5. vetri. Mark vaglskorið hægra, fjöður aftan vinstra. Klippt er nr. 71 í síðu. Nánari upplýsingar gefur Guðmundur í síma 26524. Hárgreiðslu- og snyrtistofan Eva Ráðhústorgi 1, sími 21948 og 25544. AUt á sama stað Stendhal PARIS Heiðar Jónsson og Rósa Matthíasdóttir snyrtifræðingar halda kynningu á Stendahl og Sothys snyrtivörum föstudaginn 14. desember frá kl. 11-18. Fyrirhugað er námskeið í andlitsförðun og umhirðu húðarinnar 14.-15. desember. Leiðbeinandi verður Heiðar Jónsson. Nýkmið Kuldaskór, ökklaháir. Stærðir 4(1-46, lítil númer. Verð 1.175 kr. Kuldaskór háir. Stærðir 40-45, lítii númer. Verð 1.035 kr. Opið á laugardag til kl. 18.00. Hjá okkur eru bílastæðin við búðardyrnar. Sendum í póstkröfu. Föstudaginn 14. des. kl. 16.30 syngur Páll Jóhannesson tenor nokkur lög af nýútkominni plötu og áritar hana í Tónabúðinni. Undirleikari: Kristinn Örn Kristinsson. ☆ Laugardaginn 15. des. kl. 15 koma þeir í heimsókn jólasveinninn og Þórður húsvörður. Ingimar Eydal verður við orgelið á laugardag. Barnagæsla verður á föstudag kl. 15-19. Laugardag kl. 10-18. Verið velkomin Vörukynningar föstudaginn 14. desember KSÞ: Allt svínakjöt á 10% afslætti Kjörís: Vanilluístertur 112,90 Mokkaístertur 118,30 Emmess skafís 73,30 Tilboð ★ Tilboð ★ Tilboð Sokkar 100% bómull kr. 39,90 Samfestingar telpna kr. 889,00 Telpnadress kr. 989,00 Jólaskraut í miklu úrvali HAGKAUP Akureyri

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.