Dagur - 12.12.1984, Blaðsíða 1
Tíí\ /*\ /?\l TFTíTd^ H-Lúx
MIKIÐ ÚRVAL J U ]/cA 157 U| n\ i Litmynda- framköllun
GULLSMIÐIR m iuiii
Lm SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREVRI Æ\ V Æ1 H bILIVIUhusið
AKUREYRI
67. árgangur Akureyri, miðvikudagur 12. desember 1984 125. tölublað
Bruninn í fiystihúsinu á Raufarhöfn:
Verður byggt nýtt
frystihús á staðnum?
- Tjónið upp á tug milljóna og um 50 manns missa vinnuna
„Ætli þetta sé ekki tjón upp á
tug milljóna, eða svo, auk þess
sem um 50 manns missa atvinn-
una um óákveðinn tíma,“ sagði
Gunnar Hilmarsson, sveitar-
stjóri á Raufarhöfn í viðtali við
Dag, en um klukkan hálf fímm
á mánudag kom upp eldur í
frystihúsi Jökuls á staðnum. Illa
gekk að ráða niðurlögum hans
og lauk slökkvistarfí ekki fyrr en
um klukkan hálf níu um
kvöldið. Var þakið á stórum
hluta hússins þá ónýtt.
Eldurinn hefur líklega komið
upp út frá rafmagnsofni í kompu
í vélasal, en starfsmenn voru í
kaffi. Reykur komst í frysti-
geymslur og er líklegast að þær
birgðir sem þar voru séu ónýtar,
um 4 þúsund kassar. Átta þúsund
kössum var skipað út tveimur
dögum fyrir brunann. Frystihúsið
hafði aðeins verið í gangi í um
viku tíma, eftir tveggja mánaða
stopp sökum hráefnisleysis.
Keyptur var kvóti til að bæta
ástandið, en það varð skamm-
vinnur vermir. Rauðinúpur mun
landa á Þórshöfn.
Tveir menn féliu ofan af þaki
Það
verður
byggt
upp
Framkvæmdastofnun hefur
ákveðið að taka þátt í upp-
byggingunni á Raufarhöfn eftir
brunann í frystihúsi Jökuls hf.
Þetta var ákveðið á stjórnar-
fundi í Framkvæmdastofnun í
gær. Ekki liggur fyrir hvort gamla
frystihúsið verður byggt upp eða
hvort nýtt frystihús verður byggt.
Forráðamenn Jökuls hf. höfðu
áður lagt fram hugmyndir um
byggingu nýs frystihúss.
Endanlegar tölur um tjónið í
brunanum liggja ekki fyrir en
skotið hefur verið á töluna 10
milljónir króna. - ESE
hússins meðan á slökkvistörfum
stóð. Rifbeinsbrotnaði annar, en
hinn meiddist minna.
„Nú þarf að vega og meta hvað
á að gera. Það tekur 4—5 mánuði
„Á Gljúfrasteini“, samtalsbók
Auðar Laxness og Eddu
Andrésdóttur, er langsölu-
hæsta bókin á Norðurlandi það
sem af er „jólabókavertíð-
inni“, samkvæmt könnun sem
Dagur gerði á mánudaginn.
Útgefandi er bókaútgáfan
Vaka. Önnur söluhæsta bókin
er „Guðmundur skipherra
Kjærnested“ skráð af Sveini
Sæmundssyni. Útgefandi er
Örn og Örlygur. í þriðja sæti er
„Fimmtán ára á föstu“ eftir Eð-
varð Ingólfsson og það er Æsk-
an sem gefur bókina út.
í fjórða sæti kemur síðan
spennusagan „Við dyr dauðans"
eftir Alistair MacLean í útgáfu
Iðunnar og fast á eftir fylgir „Jón
G. Sólnes“, skrásett af Halldóri
Halldórssyni í útgáfu Vöku. í
sjötta sæti er „Bróðir minn
að koma þessu húsi í vinnsluhæft
ástand, en hugmyndir voru uppi
um að hefja byggingu nýs frysti-
húss næsta vor, sem getur tekið
upp undir eitt og hálft ár. Það er
Ljónshjarta", sem Mál og menn-
ing gefur út, en síðan koma
Skjaldborgarbækurnar „Á varin-
hellunni" eftir Kristján frá
þó alla vega ljóst að tjónið er
geysimikið og fjöldi manns hefur
misst atvinnuna vegna þessa
óhapps,“ sagði Gunnar Hilmars-
son. HS
Djúpalæk og „Aldnir hafa orðið“
skrásett af Erlingi Davíðssyni. í
níunda sæti er „Ekkert mál“ eftir
þá feðga Njörð P. Njarðvík og
Frey Njarðarson í útgáfu Set-
bergs og í 10. sæti er „Veistu
svarið“ spurningabók eftir Axel
Ammendrup í útgáfu Vöku.
Könnunin var gerð í bóka-
verslunum á Akureyri, Húsavík
og Sauðárkróki og það var sam-
dóma álit bóksalanna, að bækurn-
ar væru seinna á ferðinni í ár en
venjulega, vegna verkfallsins, og
salan færi seinna af stað. Þar að
auki vantaði enn bækur, sem ör-
ugglega ættu eftir að rjúka upp
sölulistann, eins og t.d. „Landið
þitt“.
Verð á bókum er nokkuð
misjafnt. Þýddar skáldsögur
kosta frá 550-600 krónur, en ævi-
sögur slaga hátt upp í þúsundið.
- GS
Frystiklefinn var fullur af vatni, því þangað hafði borist mikill hiti og reykur. Sem betur fer voru ekki miklar birgðir
í geymslunum. Mynd: HS
Jólabókavertíðin er að komast í fullan gang:
Gljúfrasteinsfrúin
efst á sölulistanum
Nauöungaruppboö
^^Ólafsfirði^^
Fleiri
beiðnir
og hærri
upphæðir
- Það er alveg áberandi hve
skilin frá útgerðarfyrirtækjun-
um eru miklu verri í ár en
áður. Innheimta opinberra
gjalda hefur líka gengið áber-
andi verr í ár miðað við árið í
fyrra þegar á heildina er litið,
sagði Barði Þórhallsson,
bæjarfógeti á Ólafsfirði í sam-
tali við Dag.
Að sögn Barða bárust embætt-
inu 60 uppboðsbeiðnir allt árið í
fyrra en engin þeirra fór alla leið,
eins og sagt er. í ár eru uppboðs-
beiðnirnar hins vegar orðnar 70
talsins og þar af hefur fyrri sala
farið fram í einu tilviki.
- Upphæðirnar eru greinilega
mun hærri í ár og staða útgerðar-
innar er slæm. Það er þetta sem
við tökum helst eftir, sagði Barði
Þórhallsson. - ESE
Þrír sóttu
um stöðu
yfirlæknis
í Kristnesi
Þrjár umsóknir bárust um
stöðu yfirlæknis á Kristnes-
spítala; frá Gottskálki Björris-
syni, lungriasérfræðingi við
V ífilsstaðaspítala; Magnúsi
Ólat'ssyni. sem er við fram-
haldsnám í lyflækningum í
Gautaborg; og Halldóri Hall-
dórssyni. lyflækni á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Hæfni umsækjenda verður
mctin hjá stöðuveitinganefnd
ríkisins, en síðan mun stjórn-
arnefnd ríkisspítalanna raða
þcim í forgangsröð. Síðan er
það heilbrigðismálaráðhcrra
sem hefur lokaorðið og veitir
stöðuna. Reiknað er með að
það verði ekki fyrr en eftir
áramót. - GS