Dagur - 14.01.1985, Síða 1
TÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
MARGAR GERÐIR
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
Litmynda-
framköllun
FILMUhúsio
AKUREYRI
Akureyri, mánudagur 14. janúar 1985
68. árgangur
5. tölublað
Þessar föngulegu menntaskólastúlkur sökktu sér niður í tölvufræðin uppi í
Menntaskóla, en þar nýtur tölvukennslan nú mikilla vinsælda og allir nem-
endur skólans fá einhverja innsýn í þessa nýju tækni, mismikla eftir deildum.
Mynd: HS
Staðbundið út-
varp á Akureyrí
Líkur eru á að staðbundinn út-
varpsrekstur hefjist 1. mars á
vegum RÚVAK. Fyrst í stað
verður aðeins útvarpað í
klukkutíma á dag, hálftíma
fyrir hádegi og hálftíma síð-
degis.
Jónasi Jónassyni hefur verið
falið að annast undirbúning máls-
ins og á föstudag var m.a. fundur
með starfsmönnum RÚVAK
vegna þessa máls. Um svipað
leyti má búast við að Rás 2 verði
komin norður þannig að um þrjár
rásir verður þá að velja fyrir Ey-
firðinga.
Nú í vikunni eru væntanlegir
menn frá Pósti og síma til mæl-
inga vegna sendistöðvarinnar
sem komið verður upp. HS
„Vantar fé til flug-
valla um allt land“
- segir Pétur Einarsson, flugmálastjóra, sem
spáir „heljarstökki" í fjárveitingum næsta ár
„Flugráð setti fram tillögur um
172 milljónir dl framkvæmda
við flugvelli landsins á þessu
ári en fékk 57,5 milljónir, á
sama tíma og Vegagerðin er
með á milli 900 og 1.000 millj-
ónir,“ sagði Pétur Einarsson
flugmálastjóri er við ræddum
við hann. Tilefnið var að engu
fé er varið í malbikun og lagn-
ingu hitalagna í flugvöllinn á
Sauðárkróki á þessu ári, en
farið hafði verið fram á 22
milljónir til þess verks.
„Þótt farið hafi verið fram á
172 milljónir þá segir sú tala lítið
í sjálfu sér, hún hefði allt eins
getað verið 1.720 milljónir miðað
við þörfina," sagði Pétur. „Pað er
jú rétt að ekkert fé er sett í völl-
inn á Sauðárkróki á þessu ári og
er það miður að sjálfsögðu þegar
tekið er tillit til að um varaflug-
völl er að ræða.
Hins vegar má benda á að það
vantar fé í flugvelli um allt
landið. Við erum með 32-34 flug-
velli þar sem áætlunarflug fer
fram allt árið og á mörgum þess-
um stöðum er ekki lágmarksút-
búnaður, það vantar brautir í
rétta lengd og rétta breidd og
girða þær af svo dæmi sé nefnt.
57,5 milljónir segja lítið ef við
horfum á þetta.
Hins vegar er ég alveg viss um
að það verður heljarstökk í fjár-
veitingum til flugmála á næsta
ári. Langtímanefnd er starfandi
sem er að vinna úttekt varðandi
þessi mál og hún skilar væntan-
lega af sér síðari hluta þessa árs
og vonandi kemur lagasetning í
kjölfarið, álíka og vegaáætlunin.
Ef það gerist er ég sannfærður
um að það verður mikið framfara-
stökk í flugmálum strax á næsta
ári,“ sagði Pétur. gk-.
Langt í líf-
efnaiðnaðinn?
Lífefnaiðnaður var til umræðu
á fundi atvinnumálanefndar,
starfshóps um lífefnaiðnað og
fulltrúa nokkurra fyrirtækja,
sem haldinn var á Akureyri á
þriðjudag. 17 manns voru á
fundinum og var þar rætt vítt
og breitt um þessi mál.
Að sögn Páls Hlöðvessonar,
sem sæti á í atvinnumálanefnd
bæjarins, verður fljótlega haldinn
fundur aftur um málið. Hann
sagði að menn hefðu verið mjög
jákvæðir en hugmyndir hins veg-
ar nokkuð reikandi. Menn væru
mjög leitandi í þessum efnum,
enda um fjölbreytt svið að ræða.
Komið hefur til tals að efna til
einhvers konar tilraunastofu, þar
sem tilraunir yrðu gerðar með líf-
tækni og í sambandi við notkun
hennar í fullvinnslu matvæla.
Vart er við því að búast að
nokkuð afgerandi gerist í þessum
málum á næstunni, þ.e. að líf-
efnaiðnaður verði atvinnugrein
sem verulega kveði að. Til þess
að svo geti orðið þarf langan
undirbúningstíma og mikið rann-
sóknastarf. HS
Mun minni kostnaður
við snjómokstur
Allt bendir til þess að veturinn
ætli að verða mjög hagstæður
bæjaryfírvöldum á Norður-
Stærstu fyrirtæki norðanlands:
Kaupfélög í efstu sætum
150 þúsund
til könnunar
áhagkvæmni
útgerðar
Bæjarráð hefur samþykkt
að verja 150 þúsund krónum
úr framkvæmdasjóði til
könnunar á hagkvæmni út-
gerðar skipa frá Akureyri til
rækjuveiða o.fl.
Um er að ræða athugun þá
sem greint hefur verið frá í
Degi um að stofna útgerðar-
félag almennings og fyrirtækja
á Akureyri um rekstur rað-
smíðaskipanna tveggja sem
eru í smíðum í Slippstöðinni.
HS
upp
Kaupfélag Eyfírðinga er 8.
stærsta fyrirtæki landsins ef
miðað er við veltu ársins 1983,
samkvæmt lista tímaritsins
Frjálsrar verslunar yfír stærstu
fyrirtækin það ár. Síðast þegar
þessi úttekt var gerð var KEA
7. á listanum en nú hefur ís-
lenska álfélagið skotist
fyrir.
Ef hins vegar er miðað
við fjölda slysatryggðra vinnu-
vikna fer KEA upp í annað sæti
á eftir Sambandinu og ef mið-
að er við beinar launagreiðslur
gerist það sama. Samkvæmt
veltu er Landsbanki íslands
hins vegar í öðru sæti yfír
stærstu fyrirtækin.
Önnur norðlensk fyrirtæki sem
komast inn á listann eru (fyrri
röð þeirra í sviga): Kaupfélag
Skagfirðinga í 28. sæti (var i 27.),
Kaupfélag Þingeyinga í 33. (33.),
Útgerðarfélag Akureyringa í 35.
(34.), Kaupfél. Húnv. og Söluf. A,-
Hún. í 52. (48.), Slippstöðin hf. i
55. (54.), Kaupfélag V.-Húnv.
Hvammstanga 80. (65.), Þor-
móður rammi hf. 86. (104.),
Fiskiðjusamlag Húsavíkur 88.
(69.) Kaupfélag Svalbarðseyrar í
90. (86.) og K. Jónsson og Co. í
99. (112.).
Þau norðlensku fyrirtæki sem
næst koma eru Kísiliðjan, Kaup-
félag N.-Þingeyinga, Kópaskeri,
Rafveita Akureyrar, John Man-
ville hf. á Húsavík, Kaupfélag
Langnesinga á Þórshöfn og
Magnús Gamalíelsson hf. í
Ólafsfirði. HS
landi hvað varðar snjómokst-
ur.
Samkvæmt upplýsingum Guð-
mundar Guðlaugssonar hjá Ak-
ureyrarbæ kostaði snjómokstur
bæjarins árið 1983 um 3,2 millj-
ónir og talan fyrir árið 1984 var
svo til alveg sú sama. Sé Iitið nán-
ar á skiptinguna þá kostaði
moksturinn á tímabilinu janúar-
apríl 1983 um 2 milljónir og
moksturinn um haustið 1,2 millj-
ónir. Sömu tölur 1984 eru 2,3
milljónir fyrri hluta ársins og um
900 þúsund síðari hlutann.
Þess má geta að taxtar vinnu-
véla hækkuðu verulega á þessu
tímabili. Frá janúar 1983 til
janúar 1984 nam þessi hækkun
um 65%. ek-.
Menn veigra sér við
að skera alll niður“
í huust voru keypt líflömb á 5
bæi í Svarfaöardal þar sem
riöuveiki hefur verið meira og
minna í gangi undanfarna ára-
tugi. Voru keypt hátt í 200
lömb frá Ströndum og úr Þist-
ilfírði, og lætur nærri að bænd-
urnir hafí greitt um hálfa millj-
ón króna fyrir lömbin.
Það að kaupa líflömb frá svæð-
um þar sem riöu hefur ekki orðið
vart og farga þess í stað öllunt
lömbum á bæjunum í Svarfað-
ardal þar sem riðan hefur vcrið,
er sú leið sem fara á til þess að
sporna við þessum vágesti,
a.m.k. verður þetta gert í 2-3 ár
í tilraunaskyni.
Aö sögn Gunnars Jónssonar
bónda á Brekku t' Svarfaðardal
hefur riða verið meira og minna
viðloðandi í dalnum frá 1930-
1940 og er ekkert lát á. „Ég held
að það geti allt eins endað með
því að það þurfi að farga öllu fé
hérna til þess að komast fyrir
þetta en menn veigra sér viö að
skera allt niður," sagði Gunnar.
Sjá nánar bls. 3.