Dagur - 14.01.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 14. janúar 1985
Þóroddur F. Þóroddsson skrifar:
Er mengun frá
álverum Alcan?
Fýlan er
ekki úr
Glerá
Nokkuð hefur borið á lykt frá
Sambandsverksmiðjunum í
stillunum að undanförnu. Hef-
ur fólk talið að lyktin, sem er
svipuð brennisteinslykt, kæmi
úr Gleránni en svo mun þó
ekki vera samkvæmt þeim
upplýsingum sem blaðið aflaði
sér hjá heilbrigðisfulltrúa Ak-
ureyrarbæjar.
- Það hefur verið við okkur
rætt vegna þessarar lyktar en hún
stafar af því að tvisvar til þrisvar
í viku er lúturinn hjá sútuninni
skolaður út. Þessu er veitt til
sjávar í skolplögninni en á henni
eru loftgöt og þaðan kemur fnyk-
urinn, sagði Valdimar Brynjólfs-
son, heilbrigðisfulltrúi.
Valdimar sagði að vissulega
væri þessi lykt hvimleið en hún
fyndist skamman tíma í einu.
Allt færi þetta þó fram í samræmi
við gildandi reglugerðir. - ESE
Allt með
osti og
smjöri
Tilraunaeldhús Osta- og
smjörsölunnar sendi frá sér
bækling skömmu fyrir jól með
mörgum úrvals uppskriftum.
Bæklingnum er skipt í 5 kafla,
en þeir eru: Blandað góðgæti, -
Forréttir, - Aðalréttir, - Eftir-
réttir, - Kökur og tertur og Smá-
réttir. Samtals eru 35 uppskriftir
í bæklingnum á mismunandi rétt-
um og kökum.
Bæklingurinn, sem heitir „Allt
með osti og smjöri" er seldur á
kr. 20 og á að vera hægt að fá
hann í flestum matvöruverslun-
um landsins.
1 viðtali við Jón Arnþórsson í
Degi 4. janúar er meðal annars
vikið nokkrum orðum til þeirra
er fóru og skoðuðu álver í Kan-
ada, síðsumars á liðnu ári. Sem
einn þátttakenda í þeirri ferð ætti
ég að vera búinn fyrir löngu að
setja nokkur orð á prent, um það
sem þar bar fyrir augu og eyru.
Mikið hefur skort á að sumir
þeirra er sátu heima, en hafa séð
sig knúna til þess að skrifa um
„niðurstöður" vesturfararinnar,
hafi aflað sér upplýsinga hjá þátt-
takendum í ferðinni.
Öllum þátttakendum í Kan-
adaferðinni varð Ijóst að áhrif
þeirra álvera er við skoðuðum á
umhverfið eru umtalsverð og
voru þó miklu meiri til skamms
tíma. Bændur áttu í áratuga
stríði við Alcan vegna röskunar
á búskap sem mengun frá álver-
um olli. í dag segja bændur að
ástandið sé viðunandi, það er
búið að greiða þeim skaðabætur,
bæta mengunarvarnir og er enn
unnið að úrbótum.
{ fréttatilkynningu sem vestur-
fararnir sendu frá sér við heim-
komu sagði meðal annars, að það
væri samdóma álit fulltrúa bænda
og sérfræðinga Alcan í mengun-
armálum að mengun frá álverum
væri ekki vandamál í dag. Þessi
orð Kanadamanna hafa margir
talið vera samdóma álit okkar
vesturfara, en svo er ekki, og sagt
að við teldum mengun ekki
vandamál hér í Eyjafirði úr því
Kanadamenn telja sig ráða við
vandamálið.
Magn mengunarefna frá nýj-
asta álveri Alcan er hið sama og
við höfðum upplýsingar um fyrir
ferðina, að búast mætti við frá
nýtísku álveri. Það vakti athygli
að þeir hreinsa þó ekki enn
brennistein úr útblæstrinum,
telja hann svo lítið magn í viðbót
við það sem berst til svæðisins
frá iðnaðarhéruðum í nyrsta
hluta Bandaríkjanna. Bændur
bentu á að súrt regn er mikið
vandamál á þessum slóðum en
brennisteinn í útblæstri iðju- og
orkuvera (kol) er meginorsök
súra regnsins.
Alcan kaupir land!
Nýjasta álver Alcan heitir Grand
Baie og framleiðir um 170.000
tonn á ári, það er fyrsta álver sem
Alcan byggir í Quebec eftir
seinni heimsstyrjöld. Áður en
því var valinn staður voru gerðar
ýtarlegar athuganir á náttúrufari,
félagslegum aðstæðum og fleiru.
Einn liður umhverfisrannsókna
var gerð dreifingarspár fyrir
mengunarefni frá verksmiðjunni.
Niðurstöður hennar bentu til
þess að innan ákveðinna fjar-
lægða frá verksmiðjunni mætti
búast við það miklu magni flúors
í andrúmsloftinu, að hann gæti
aukið flúorinnihald gróðurs svo
mjög að það gæti meðal annars
haft áhrif á landbúnað. í stað
þess að bíða nú eftir því að bænd-
ur í nágrenninu yrðu fyrir
skakkaföllum og færu að gera
kröfur um bætur, þá keypti Al-
can upp það land sem líklegt var
að gæti orðið fyrir verulegri
mengun. Þar með var komið í
veg fyrir slæm áhrif álversins á
landbúnaðinn í næsta nágrenni.
Þannig er ástandið viðunandi
hvað varðar afkomu bænda. Við
Grand Baie er þetta svæði um 6
km á lengd og 3 km á breidd
(samkvæmt dagbók minni).
Ósýnileg mengun!
Hinn 22.11. síðastliðinn sátu á
fundi í Reykjavík fulltrúar Stað-
arvalsnefndar, Hollustuverndar,
Náttúruverndarráðs, iðnaðar-
ráðuneytis og Margaret Kerr yfir-
maður umhverfismála Alcan.
Margaret greindi frá því að í
Grand Baie stæði til að setja upp
2. stigs (einkum brennisteins-
hreinsun) og 3. stigs (hreinsun á
kerskálalofti) hreinsun til viðbót-
ar þeim búnaði sem okkur var
sýndur. Þetta væri gert að kröfu
opinberra aðila í Quebecfylki.
Þetta bendir til þess að þrátt fyrir
að Alcan-menn og fulltrúar
bænda telji ástandið viðunandi
með þeim búnaði sem er í dag,
að þá eru ekki allir á sama máli.
Ástæða er talin til að bæta meng-
unarvarnir við nýjasta álver Alc-
an í Quebec, þó sáum við ekki
merki „mengunar" frá því nema
á breyttri landnýtingu í næsta
nágrenni.
Akureyri 6. jan. 1985.
Þóroddur F. Þóroddsson.
Þóroddur F. Þóroddsson ljósmyndar gróskumikla náttúru Kanada.
Bindindisdagur var sl. fímmtudag og þá um kvöldið var haldin samkoma í Borgarbíói þar sem Ómar Ragn-
arsson, hinn landskunni skemmtikraftur og bindindismaður hélt ræðu. Hann lét að sjálfsögðu nokkra fjúka
svona í leiðinni. Einn var um konuna sem var svo hrifin af honum Eið Guðnasyni, þingmanni, að hún nefndi
son sinn eftir honum. Hún var einnig veik fyrir andatrúnni og því nefndi hún son sinn einnig í höfuðið á hon-
um Ævari Kvaran.Ilann heitir sem sagt Ævareiður. Myndir: HS
APEX-fargjöld
í innanlandsflugi
Flugleiðir bjóða APEX far-
gjöid á innanlandsleiðum, frá
og með föstudeginum 12.
janúar. Afsláttur frá venjulegu
fargjaldi er 40%. APEX far-
gjald verður þó ekki í gildi
til og frá Akureyri, heldur
mun HOPP-fargjald verða
áfram í boði á flugleiðinni milli
Akureyrar og Reykjavíkur.
Reglur um APEX fargjöld eru
fáar og auðskildar. Sem fyrr segir
er afsláttur 40% af venjulegu
fram og til baka fargjaldi, en ekki
er hægt að kaupa APEX miða
aðra leið. Börn innan 12 ára fá
helmingsafslátt.
Bóka þarf far fram og til baka
og kaupa farseðil minnst sjö
dögum fyrir brottför. Gildistími
farseðils er 21 dagur frá upphafi
ferðar, en lágmarksdvöl er fimm
dagar. Hætti farþegi við flugferð
eða mætir ekki til flugs, er heim-
ilt að endurgreiða 50% af and-
virði farseðils. Ef veður hamlar
flugi þá ferð sem APEX farseðill
gildir í, má nota hann í næsta flug
eða fá hann endurgreiddan að
fullu. Hamli veður heimflugi,
má nota næsta flug eða fá 50% af
andvirði farseðils endurgreitt.
Sætafjöldi er takmarkaður.
APEX fargjöld frá Húsavík til
Reykjavíkur og til baka kosta
2.352 kr. og milli Sauðárkróks og
Reykjavíkur 1.866, svo dæmi séu
tekin.
||UJgH»An
Þegar bílar mætast er ekki nóg að annar víki vel út á vegarbrún og
hægi ferö. Sá sem á móti kemur veröur að gera slíkt hið sama en not-
færa sér ekki tillitssemi hins og grjótberja hann. Hæfilegur hraði
þegar mæst er telst u.þ.b. 50 km.