Dagur - 14.01.1985, Blaðsíða 6
6 - DAGUR -14. janúar 1985
verðlaunaafhending nj ____
Knattspyrnuráð Akureyrar hélt hóf í Félagsborg sl.
laugardag, og var aðaltilefnið að afhenda verðlaun
fyrir Akureyrarmótið í knattspyrnu innanhúss sem
fram fór á dögunum.
Mikið var um dýrðir í þessu hófi knattspyrnu-
manna. Videósýningar voru, veitingar og verðlauna-
afhendingin sem fyrr sagði og mátti sjá ánægjusvipinn
á mörgum pollanum er hann tók við verðlaunum
sínum.
Nú vita knattspyrnumenn hvað er framundan hjá
þeim, við blasir enn eitt keppnistímabilið og ætli það
sé fjarri lagi að ætla að fiðringur hafi farið um menn í
þeirri einmuna veðurblíðu sem verið hefur hér að
undanförnu.
Alls taka 64 félög þátt í ís-
landsmótinu í knattspyrnu
karla innanhúss en keppt er
í 4. deildum. Verður leikið i
2. og 4. deild í Laugardals-
höll um næstu helgi en
keppnin í 1. og 3. deild fer
fram á sama stað um miðjan
febrúar. Öllum liðunum hef-
ur verið raðað í riðla og er
riðlaskiptingin þessi:
1. deiid:
a-riðill: Valur, FH, Víkingur,
KA
b-riðill: ÍBK, UBK, HSÞ-b,
Fylkir
2. deild:
a-riðill: Léttir, UMFN, Grótta,
Austri
b-riðill: Leiftur, Týr, Boiungar-
vík, Selfoss
c-riðill: UMFG, Haukar, ÍR,
Afturelding
d-riðill: Þróttur N, KS, Ármann,
Árroðinn
3. deild:
a-riðill: HV, Vík. Ól, Súlan, Ár-
vakur
b-riðill: Pór V, Tindastóll, Neisti,
Leiknir F
c-riðill: Reynir S, Augnablik,
Reynir Á, Einherji
d-riðill: Magni, Stjarnan, ÍK,
Valur R
c-riðill: Þróttur R, Fram, Víðir,
KR
d-riðill: ÍBÍ, ÍA, Þór Ak, UMFS
4. deild:
a-riðill: Geisli, Eyfellingur,
Stokkseyri, Vorboðinn
Þorsteinn
með Magna
Við erum búnir að ráða Þor-
stein Ólafsson sem þjálfara
hjá okkur í sumar,“ sagði
Kristleifur Meldal hjá Magna
á Grenivík er við ræddum við
hann um þjálfaramál félagsins.
„Við erum mjög ánægðir með
að fá Þorstein til okkar. Við misst-
um góðan þjálfara sem var Ein-
ar Helgason en fáum annan góð-
an í hans stað og erum brattir.“
Kristleifur sagði að Þorsteinn
hyggðist tilkynna félagaskipti yfir
í Magna úr Pór, en ekki væri
ákveðið hvort hann myndi leika
með liðinu, það yrði bara að
koma í ljós í sumar.
Þorsteinn Ólafsson hóf þjálf-
araferil sinn með Þór í 1. deild-
inni í fyrra og iék einnig með lið-
inu að hiuta en hann hafði verið
fastur markvörður félagsins árið
áður. Er ekki að efa að hann mun
reynast Magnamönnum góður
Þorsteinn Ólafsson.
liðsauki, hvort sem hann tekur
fram markmannshanskana eða
ekki.
Brian Ro
Heldur var hann snautlegur
matseðilli sem enskir buðu upp
á á laugardaginn. Þar hafa
menn ekki farið varhluta af
kuldakastinu sem angrað hefur
Evrópubúa að undanförnu og
mörgum leikjum varð að fresta
vegna erfiðra vallarskilyrða.
Þá léku Sunderland og Liver-
pool t.d. aðeins fyrri hálfleik-
inn því eftir að dómarinn hafði
skoðað völlinn í hálfleik fannst
honum nóg komið og aflýsti
Ieiknum, staðan þá 0:0.
Everton lét erfið vallarskilyrði
engin áhrif hafa á leik sinn gegn
Newcastle og spilaði nú sinn
besta leik í langan tíma. Það var
aldrei spurning hvorum megin
sigurinn lenti, heldur hversu stór
hann yrði. í hálfleik var staðan
2:0. Fyrsta markið skoraði Gra-
eme Sharp með skalla á 17. mín-
útu. Annað markið kom á 32.
mínútu. Varnarmaðurinn Derick
Mountfield þrumaði boltanum
inn eftir hornspyrnu. Kevin
Sheedy skoraði síðan tvívegis í
síðari hálfleik og öruggur sigur
kom liðinu á toppinn á ný. Chris
Waddle sem hefur verið yfir-
burðamaður í liði Newcastle átti
dapran leik og það þolir New-
castle illa. Sem fyrr sagði spilaði
Everton afbragðsgóða knatt-
spyrnu en enginn þó eins vel og
Peter Reed sem átti stórleik á
miðjunni.
í London áttust nágrannarnir
QPR og Tottenham við í
skemmtilegum og góðum leik, en
leikið var á hinum umdeilda