Dagur - 14.01.1985, Qupperneq 7
14. janúar 1985 - DAGUR - 7
ótið innanhúss
b-riðill: Hafnir, Sindri, Efling,
Mýrdælingur
c-riðill: Hvöt, Víkverji, Hvera-
gerði, Ösp
d-riðill: HSS, Þór Þ, Leiknir R,
Vaskur
Hinrik Þórhallsson.
Hinrik
þjálfar
Vask
Hinrik Þórhallsson, hinn
gamalreyndi knattspyrnu-
kappi úr KA hefur verið ráð-
inn þjálfari Vasks í 4. deiid í
sumar.
„Hinrik ætlar að skipta um
félag og þess vegna getur svo
farið að hann leiki með okk-
ur ef á þarf að halda,“ sagði
Sveinn Björnsson formaður
Vasks í samtali við Dag.
„Annars erum við fyrst og
fremst að tryggja okkur
þjálfara með þessari ráðn-
ingu, og við erum ákveðnir í
að sigra í. 4. deildinni í
sumar. Æfingar hefjast úti
mjög fljótlega og það verður
æft þrisvar í viku.“
Þess má að lokum geta að
aðalfundur Vasks verður
haldinn í fundarsal ÍBA við
Laugargötu föstudaginn 25.
febrúar.
Riðlaskiptingin fór þannig fram
að fyrst var sterkustu liðunum
frá fyrra ári raðað í riðlana, en
hin síðan dregin inn.
Ef við lítum á 1. deildina þá
virðist sem bæði KA og Þór eigi
að hafa nokkra sigurmöguleika í
sínum riðlum. Annars er innan-
hússboltinn oft tilviljanakenndur
svo vandasamt er að vera með
nokkra spádóma í sambandi við
þetta mót.
í kvennaflokki hafa 16 félög
tilkynnt þátttöku, en þegar við
höfðum samband við skrifstofu
KSÍ um heigina hafði ekki verið
raðað í riðla. Sú keppni fer fram
um miðjan febrúar.
Koma „Júkkarnir“?
Enn mun óvíst hvort einn
landsleikjanna þriggja sem
Júgóslavar leika hér á landi í
næsta mánuði verður háður á
Akureyri.
Eins og Dagur skýrði frá í síð-
ustu viku, stendur til að einn
leikjanna verði á Akureyri, og
hefur HSf verið gert ákveðið til-
boð þar að lútandi, ferð landslið-
anna hingað norður HSÍ að
kostnaðarlausu og að auki fær
HSÍ 100 þúsund krónur.
Álíka tilboð mun hafa borist
frá Vestmannaeyjum og standa
málin þannig í dag að leikurinn
verður annað hvort háður þar
eða á Akureyri. Jón Hjaltalín
Magnússon formaður HSÍ var á
Akureyri fyrir helgina og ræddi
þá þessi mál við forsvarsmenn
handboltans í bænum, en nú bíða
menn bara eftir endanlegri
ákvörðun stjórnar HSÍ í málinu.
500. leikurinn
Þorleifur Ananíasson hand-
knattleiksmaður í KA mun á
næstunni leika sinn 500. leik í
meistaraflokki fyrir félagið.
Til þessa hefur aðeins einn ís-
lendingur náð þeim merka
áfanga að leika svona marga leiki
fyrir sama félag í meistaraflokki.
en það er Birgir Björnsson FH og
fyrrum þjálfari KA. Síðar náði
svo Karl Jóhannsson þessu tak-
marki, en það var með tveimur
félögum, KR og HK.
Heyrst hefur að eitthvert til-
stand verði í kringum þennan
merkisáfanga Þorleifs, en 500.
leikurinn mun verða í febrúar.
Hefur verið rætt um að setja upp
sérstakan leik að þessu tilefni en
ekki mun hafa verið ákveðið
hverjir stíga þá fram á fjalir
íþróttahallarinnar.
Feðgarnir Björn Þór og Ólafur Björnsson hafa lítið getað verið á skíðum í
vetur.
Vandræöaástand
hjá skíðamönnum
„Þetta er alveg afleitt því að okkar fyrir keppnistímabilið,“
þetta er sá tími sem við höfum sagði Björn Þór Olafsson
tekið í það að undirbúa lið skíðamaður og þjálfari í Ólafs-
firði er við ræddum við hann
um snjóleysið þar sem annars
staðar á landinu.
bson á sjúkralistann!
gervigrasvelli QPR sem sannaði
þarna ágæti sitt. Tottenham varð
fyrra til að skora er Garth Crooks
laumaði inn sínu 7. marki í jafn-
mörgum leikjum. Gary Bannist-
er jafnaði fyrir hlé og í upphafi
síðari hálfleiks var hann aftur á
ferðinni. Tottenham var hins
vegar ekki á þeim brókunum að
gefast upp og stuttu síðar náði
hinn öflugi leikmaður Mark
Falco að jafna metin. Urslitin
gerðu það að verkum að Totten-
ham er tveimur stigum á eftir
Everton en þessi lið mætast í
stórleiknum á laugardaginn kem-
ur og vinni Everton þá nær liðið 5
stiga forskoti.
Á hinum feiknastóra leikvangi
Old Trafford í Manchester voru
mættir leikmenn Coventry sem
sitja aftarlega á 1. deildar mer-
inni. Reiknað var með öruggum
sigri United þar sem Coventry-
liðið hefur ekki leikið árangurs-
ríka knattspyrnu. En aumingja
leikmenn United höfðu ekki
heppnina með sér að þessu sinni.
Eftir að þeir höfðu hreinlega átt
leikinn náði Coventry sókn og
hinn smávaxni Terry Gibson
plataði hina þunglamalegu varn-
armenn United upp úr skónum
og skoraði eina mark leiksins. Til
að auka á niðurlægingu United
meiddist besti leikmaður liðsins
Brian Robson og varð að flytja
kappanna á sjúkrahús en hann
fór úr axlarlið í leiknum. Aukast
nú vandræði United til muna því
Robson hcfur verið yfirburða-
maður liðsins. Er reiknað með
því að hann verði a.m.k. mánuð
á sjúkralista.
Meiðsli Robson munu án efa
setja enska landsliðseinvaldinn í
klípu, því enska landsliðið hefur
að miklu leyti verið byggt upp í
kringum Robson. Annar maður
í enska landsliðshópnum, Dave
Watson varð einnig að fara á
sjúkrahús á laugardag. Watson er
einn af leikmönnum Norwich
sem á laugardag vann sigur á
Southampton. John Dehan skor-
aði eina markið.
Sheffield Wednesday er nú
komið í 4. sæti eftir góðan sigur
á WBA. Chapman skoraði fyrsta
mark Wednesday eftir sendingu
Mel Sterland. I síðari hálfleik
bætti Imre Varady öðru marki
við.
Heldur hefur þetta verið brös-
ótt vika hjá Leicester. Liðinu
hefur verið gert að leika bikarleik
sinn gegn Burton Albion að nýju
en leikinn vann Leicester 6:1. Þar
varð markvörður Burton fyrir
þeirri óskemmtilegu reynslu að
rotast eftir að hafa fengið pund í
hausinn og kappinn hafði ekki
hugmynd um hvernig leiknum
lyktaði eða hversu mörg mörk
hann hafði fengið á sig. Á laugar-
daginn gerði Leicester síðan jafn-
tefli við botnlið Stoke 0:0.
í 2. deild heldur Blackburn
forustunni eftir 1:1 jafntefli við
Grimsby. Chris Thompson kom
Blackburn yfir, Gary Lund jafn-
aði. Man.City er á hraðferð upp
stigatöfluna og á laugardag vann
liðið góðan sigur á Huddersfield.
A.B.
„Við höfum afskaplega lítið
gert, höfum aðeins reynt að finna
okkur smábletti til þess að geta
farið á gönguskíði en alpagrein-
arnar hefur ekkert verið hægt að
stunda og lyftur hafa ekkert verið
settar í gang hérna ennþá. Svo
skellur keppnistímabilið yfir ef
þá það verður nokkur snjór og á
þeim tíma er keppt svo stíft að
það er ekkert hægt að byggja upp
þá.
Ég man ekki eftir svona tíð.
Reyndar var snjóléttur vetur
1964-1965 en venjan hefur verið
sú hér í Ólafsfirði að við höfum
getað farið á skíði í nóvember,
þá hefur verið kominn snjór og
hann hefur haldist.“
Ólafsfirðingar hafa ráðið Mar-
gréti Baldvinsdóttur til að sjá um
þjálfun alpagreinaliðs þar í bæn-
um og þeir Haukur Sigurðsson og
Björn Þór ætla að sjá um nor-
rænu greinarnar. Þeirra vegna
vonum við að úr rætist með snjó-
inn þótt eflaust séu þeir margir
sem fagna snjóleysinu.