Dagur - 14.01.1985, Page 10
10 - DAGUR - 14. janúar 1985
Tapast hefur 5 vetra dökkjarpur
hestur frá Dalvík. Mark: Biti fram-
an vinstra og sprett í nös, gæti
verið meö biátt límband í faxi. Þeir
sem hafa orðið hestsins varir láti
vita í síma 96-61408.
Til sölu tvær kelfdar kvígur. Uppl.
í síma 96-43607.
Teppahreinsun - Teppahreins-
un. Hreinsið teppin sjálf. Leigjum
út nýjar hreinsivélar til hreinsunar
á teppum, stigagöngum, bíla-
áklæðum og húsgögnum.
Teppaland Tryggvabraut 22,
sími 25055.
Bíll á góðum kjörum. Lada Safir
'81 ekinn 49 þús. km. Uppl. I síma
25603.
Lúðrasveit Akureyrar auglýsir
eftir hljóðfæraleikurum, allir sem
geta lesið nótur koma til greina,
veitt verður aðstoð við upprifjun og
tilsögn á blásturshljóðfæri, tilvalið
tækifæri fyrir þá er einhvern tíma
byrjuðu að læra en hættu. Þeir
sem vilja sinna þessu geta komið
í hús Lúðrasveitarinnar Laxagötu
5 öll þriðjudagskvöld frá kl. 20-22,
eða haft samband við Einar G.
Jónsson formann sveitarinnar í
síma 96-22616.
(búð til leigu. Góð 3ja herb. íbúð
til leigu í Skarðshlíð. Laus strax.
Uppl. í síma 25010 eftir kl. 17.
Ungt par með tvö börn óska eftir
2-3ja herb. íbúð, helst á Brekk-
unni. Uppl. í síma 26615.
Vil taka á ieigu einstaklingsíbúð
eða tvö herbergi með eldunarað-
stöðu. Til sölu á sama stað 4ra
manna gúmmíbjörgunarbátur,
dýptarmælir og nýr rafgeymir fyrir
trillu. Uppl. í síma 26683.
Herbergi til leigu á Eyrinni ná-
lægt Miðbænum með aðgangi að
eldhúsi og baði. Uppl. í síma
23797.
Til leigu stór íbúð á góðum stað
á Akureyri gegn sanngjarnri leigu
og góðri umgengni. Þeir sem vildu
kannað þetta nánar leggi nafn,
símanúmer og heimilisfang inn á
afgreiðslu Dags merkt: „Hlíð“.
Vil kaupa 150-200 lítra raf-
magnshitadunk í góðu lagi. Uppl.
í síma 24348 milli kl. 7 og 8 á
kvöldin.
Ungur maður óskar eftir að kom-
ast á samning í offsetprentun,
setningu eða offsetljósmyndun.
Hef lokið við bóklegu fögin I Iðn-
skólanum í Reykjavík með prófi í
bókbandi. Uppl. í síma 61139.
Hreingerningar - Teppahreins-
un. Tökum að okkur teppahreins-
un, hreingerningar og húsgagna-
'hreinsun með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
9. sýning föstudag
18. janúar kl. 20.30.
10. sýning laugardag
19. janúar kl. 20.30.
Miöasala I Turninum í göngugötu
alla virka daga kl. 14-18.
Miðasala I leikhúsinu laugardaga
frá kl. 14 og alla sýningardaga
frá kl. 18.30 og fram aö sýningu.
Sími 24073.
Leikfélag
Akureyrar
„Eg er gull
og gersemi“
Bílasala
Bílakjör
I Frostagötu 3c.
Sími 25356.
Vantar
allar gerðir
I bifreiða
| á skrá.
Til sölu hásingar undir Willys árg.
’66, fjórar Bronco felgur, tvö sóluð
dekk 700x15. Á sama stað óskast
keypt gömul dráttarvél 50-70
hestafla. Uppl. í síma 96-61778 á
kvöldin.
Til sölu Fis (svifdreki + mótor).
Uppl. í síma 62303.
Til sölu Suzuki RM 125 moto-
crosshjól árg. ’81. Mjög gott hjól
fyrir byrjendur. Skipti möguleg á
öðrum hjólum. Uppl. í síma
22947.
Til sölu hjónarúm, fimm mánaða
gamalt úr Ijósri furu. Einnig er til
sölu á sama stað lítið notaður
svefnbekkur. Uppl. í síma 22319
eftir kl. 19.
/■■■ 1
Skíði-skór-skautar
Nýtt og notað
Kaup - sala - skipti
Viðgerðaþjónusta
Skíðaþjónustan
Fjölnisgötu 4b sími 21713
Smáauglýsmgaþjónusta Dags
Það skal tekið fram vegna hinna
fjölmörgu sem notfæra sér smá-
auglýsingar Dags að ef endur-
taka á auglýsinguna strax í
næsta blaði eða næstu viku bæt-
ast aðeins 50 kr við verð fyrir
eina birtingu. Verð smáauglýs-
ingar er nú 270 kr., miðað við
staðgreiðslu eða ef greiðslan er
send í pósti, en 340 kr. ef ekki er
staðgreitt. Ef þessi nýja þjónusta
er notuð þá kostar auglýsingin
nú 320 kr. birt tvisvar.
Tilboð þetta miðast eingöngu við staðgreiðslu.
Hreingerningar, teppahreinsun,
gluggaþvottur.
Tökum að okkur hreingerningar á
íbúðum, stigagöngum og stofnun-
um, einnig teppahreinsun með
nýrri djúphreinsivél sem hreinsar
með góðum árangri. Vanir og
vandvirkir menn. Símar 25603,
25650 og 21012. Árni, Aron,
Tómas.
Ahriiamikill.
auglýsingjiiiföill
Tölvunámskeid
BBC og Acorn Electron tölvueigendur.
Tölvunámskeið verður haldið í þessari viku.
Nánari upplýsingar hjá okkur.
SKRIFSTOFUVAL HF.
SUNNUHLÍÐ ■ SÍMI 96-25004
Legsteinar
granít — marmari
Opið alla daga, einnig kvöld ^0laníi ó.f.
Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi,
og helgar. símar 91-620809 og 91-72818.
I.O.O.F.-15-1660115-8Vi Atkv.
□ Huld 59851417-VI-2.
St.: St.: 59851177 VII 6.
Neyðarsími kvennaathvarfsins er
26910, og mun fyrst um sinn
verða opinn frá kl. 14-16 og 20-
22 alla daga, en á öðrum tímum
geta konur snúið sér til lögregl-
unnar á Akureyri og fengið upp-
lýsingar.
ÍORD OagSINS
Áheit á Munkaþverárklausturs-
kirkju.
Kr. 1.000 frá Ól. Th.
Kr. 1.250: Skriftin ólæsileg, sem
fylgdi.
Kr. 3.000: Sömuleiðis ólæsilegt!
Innilegar þakkir og bestu nýárs-
kveðjur.
Bjartmar Kristjánsson.
Vinarhöndin styrktarsjóður Sól-
borgar selur minningarspjöld til
stuðnings málefnum barnanna á
Sólborg. Minningarspjöldin fást
í Huld Hafnarstræti, Sunnuhlíð
og Kaupangi, Bókvali, Bókabúð
Jónasar, hjá Júditi í Oddeyrar-
götu lOogJudithi í Langholti 14.
Minningarspjöld Kvenféiagsins
Framtíðarinnar fást í Blómabúð-
inni Akri, Bókabúð Jónasar,
Versluninni Skemmunni og hjá
Margréti Kröyer Helgamagra-
stræti 9.
Minningarspjöld Kvenfélagsins
Hlífar fást í bókabúðinni Huld,
hjá Laufeyju Sigurðardóttur
Hlíðargötu 3, símaafgreiðslu
sjúkrahússins og Blómabúðinni
Akri. Allur ágóði rennur til
Barnadeildar FSA.
Minningarkort Akureyrarkirkju
fást í verslununum Bókval og
Huld.
Minningarkort Rauða krossins
eru til sölu í Bókvali.
Minningarspjöld NLFA fást í
Amaró, Blómabúðinni Akri
Kaupangi og Tónabúðinni
Sunnuhlíð.
Minningarkort Hjarta- og æða-
verndarfélagsins eru seld í Bók-
vali, Bókabúð Jónasar og Bóka-
búðinni Huld.
BORINIIIM
Börnin eiga auðvitaö aö vera í belt-
um eöa barnabílstólum í aftursæt-
inu og barnaöryggislæsingar á
||UMFEROAR
Borgarbíó
Mánudag kl. 9:
LONELY LADY
Rómantísk mynd.
Skíðabúnaður
Notað
og nýtt!
bporthuyd
L!
SUMIMUHIiO
Sími 232511.