Dagur - 14.01.1985, Síða 12
RAFGEYMAR
í BlLINN. BÁTINN, VINNUVÉUNA
VIÐHALDSFRÍIR
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Verður Lágheiðin
opnuð í janúar?
Á Siglufírði mun vera nokkur
urgur í mönnum vegna þess að
talið er þar að ekki þurfí mikið
til þess að opna Lágheiði yfír í
Ólafsfjörð. Siglfírðingar sem
eiga leið inn í Eyjafjörð geta ef
heiðin er opin sparað sér um
60 km akstur.
„Það hefur ekki verið athugað
með að opna heiðina," sagði Páll
Þorsteinsson fulltrúi hjá Vega-
gerð ríkisins á Sauðárkróki er við
ræddum þetta mál við hann, en
það er í verkahring manna þaðan
að sjá um Lágheiðina.
„Þetta kom upp einnig í byrjun
desember og þá var talað um að
á heiðinni væri einn skafl, en þeg-
ar við fórum að skoða það reynd-
ist meiriháttar mál að opna heið-
ina. Ástandið þarna hefur eflaust
batnað talsvert síðan og við ætl-
um að kíkja á þetta og opna ef
fært þykir,“ sagði Páll. gk-.
ungsþingi sem haldið var á
Reykjum í Hrútafirði í ágúst á sl.
ári var samþykkt að Fjórðungs-
sambandið stæði að því að halda
svona mót fyrir æskuna á Norð-
urlandi, og það hefur verið talað
um aldursflokkinn 9-14 ára í
þessu sambandi. Nefnd hefur síð-
an unnið að þessu máli sem
ég er í ásamt Hermanni Sig-
tryggssyni Akureyri og Arnaldi
Bjarnasyni.
Á fundi í nefndinni 4. janúar
kaupir
væri með hæðina þar fyrir ofan.
Pær sögusagnir að Ferðaskrif-
stofa Akureyrar væri aðili að
þessum kaupum eiga ekki við rök
að styðjast. gk-.
var fjallað um það hvernig ætti að
standa að þessu móti. Það hefur
verið rætt um að þarna yrði keppt
í frjálsíþróttum, sundi, knatt-
spyrnu og skák svo eitthvað sé
nefnt, einnig yrðu þarna kvöld-
vökur sem krakkarnir sjálfir
myndu annast að verulegu leyti.
Það er stefnt að því að halda
fund á Akureyri 26. janúar um
þetta mál og bjóða þangað for-
ustumönnum íþrótta- og ung-
mennasambanda á Norðurlandi
og fleirum og þar yrði þetta mál
kynnt og leitað eftir samstarfi við
þessa aðila.
Við erum að „skjóta“ á að
þátttakendur í þessu móti gætu
orðið 600-800 talsins. Aðstaðan
á Sauðárkróki til að halda svona
mót er mjög góð, öll mannvirki
á sama stað ef svo má segja og ég
vona bara að framhald þessa
máls leiði til þess að leikarnir
verði að veruleika," sagði Björn.
gk'-
„Er orðinn hund-
leiður á þessu“
- segir Gunnar Haraldsson
sem hefur selt Bílasalann sf.
„Það er stefnt að þessu móti
æskunnar hér á Sauðárkróki
síðustu helgina í júní í sumar,“
sagði Björn Sigurbjörnsson
skólastjóri á Sauðárkróki, en
hann er formaður undirbún-
ingsnefndar fyrir „Norður-
landsmót æskunnar“, íþrótta-
mót sem fyrirhugað er að
halda í sumar.
Beðið eftir heilsuverndarstöð, gæti þessi mynd heitið. Samkvæmt lögum
hefur verið stofnuð heilsuverndarstöð með aðsetri á Akureyri. Sjá nánar bls.
9. Mynd: mþþ
Sjóvá
Sjóvátryggingarfélag íslands
hefur keypt tvær neðstu hæð-
irnar að Ráðhústorgi 5, hús-
næðið þar sem Alþýðubankinn
rekur sitt útibú og hæðina þar
fyrir ofan.
Að sögn Þórarins B. Jónssonar
eiganda Sjóvá-umboðsins á Ak-
ureyri er fyrirtækið að tryggja sér
framtíðarhúsnæði með þessum
kaupum, á besta stað í bænum
eins og hann orðaði það. Þórar-
inn sagði að Sjóvá yrði opnað í
hinu nýja húsnæði í haust, en Al-
þýðubankinn hefur húsnæðið á
ieigu frá fyrri eiganda til 1.
ágúst.
Þórarinn sagði einnig að Sjóvá-
umboðið myndi nýta 1. hæð húss-
ins fyrir sína starfsemi en óráðið
Höldur sf. og Hekla hf. hafa
keypt fyrirtækið Bflasalann sf.
við Hvannavelli og munu yfír-
taka reksturinn um næstu
ntánaðamót.
vÉg er orðinn hundleiður á
þessu og kominn tími til að
hætta," sagði Gunnar Haraldsson
í samtali við Dag en hann er eig-
andi Bílasalans ásamt Haraldi
Gunnarssyni. „Ég er búinn að
standa í þessu braski síðan 1948
og vera með rekstur og nú er
kominn tími til að hætta,“ sagði
Gunnar.
„Hvað ég ætla að fara að gera?
Það er sko nóg að gera fyrir þá
sem nenna að vinna og ég hef
aldrei verið atvinnulaus um dag-
ana,“ sagði Gunnar er við spurð-
um hann hvað nú tæki við hjá
honum.
Höldur og Hekla ætla að reka
„Eins og alþjóð veit þá er Ár
æskunnar á þessu ári og á Fjórð-
bílasölu á staðnum eins og verið
hefur, en að auki verður boðið
upp á nýja bíla frá Mitsubishi og
British Leyland. gk-.
Gunnar Haraldsson: „Aldrei veríð
atvinnulaus."
- haldiö á
Sauðárkróki
í sumar
Menn þurfa ekki að hafa
áhyggjur af veðrabreyt-
ingum næstu sólarhring-
ana a.m.k. Samkvæmt
upplýsingum Veðurstof-
unnar í morgun verður
veðrið á Norðurlandi
næstu dagana gott, suð-
lægar áttir ríkjandi en
ekki hvasst og ágætis vor-
veður.
# Kostir
hitaveitunnar
Hitaveita Akureyrar hefur á
undanförnum árum mátt þola
ýmiss konar gagnrýni bæði
réttláta og ómaklega eins og
gengur og gerist. Það er eink-
um sölufyrirkomulag veit-
unnar sem farið hefur fyrir
brjóstið á fólki en núverandi
kerfi er þrátt fyrir allt ekki svo
bölvað.
# Rúgbrauðs-
gerð...
Kona í Þorpinu sem ekki vill
láta nafns síns getið bendir
á að á hennar heimili hafi það
lengi tíðkast að seyða rúg-
brauð með hjálp heita
neysluvatnsins sem hitaveit-
an skenkir ókeypis. Aðferðin
er sú að setja rúgbrauðið í
vatnsþétta dós eða ílát og
sökkva síðan í fötu með
rennandi heitu vatni. Seyð-
ingin tekur tvo sólarhringa.
Ekki getur Smátt og stórt
hvatt fólk til þess að taka sér
þetta til fyrirmyndar, vegna
þess að fara verður sparlega
með heita vatnið, en hvernig
er það, lumar enginn á góðri
rúgbrauðsuppskrift?
# .. og heimilis-
iðnaður
Karl á Brekkunni hafði nýlega
samband við blaðið og
spurði hvort menn hefðu
heyrt um nýju eimingartækin
sem nú eru að ryðja sér til
rúms. Þetta eru tæki sem
byggja á lofttæmi en við það
lækkar suðumark þess sem
soðið er þannig að hægt er
að nota ókeypis hitaveituvatn
við suðuna. Eru þessi tæki
sögð þyngdar sinnar virði í
gulli en að sama skapi illa
séð hjá forráðamönnum raf-
veitunnar og hitaveitunnar.
• Ódýrt
gufubað
Piltur ( Innbænum lýkur
þessum hitaveituþætti með
ábendingu um tæki í gufu-
baðið sem svo sannarlega
geta sparað fólki aurana.
Eins og ( dæminu hér á
undan, er það hitaveitan sem
er sparnaðarhvatinn en raf-
veitan missir spón úr aski
sínum. Sem kunnugt er hefur
það færst (vöxt að fólk kaupi
sér saunaofna og gufubaðs-
klefa til notkunar (heimahús-
um. Saunaofnunum fylgir sá
ókostur að þeir eru talsvert
dýrir og það tekur langan
tíma og mikið rafmagn að
kynda þá upp. Nýju gufu-
baðstækin eru svokölluð
spíssatæki, þar sem heitu
vatni er dælt undir þrýstingi
út um örsmá göt. Við þetta
myndast gufa sem jafnast
fyllilega á við hitann af
saunaofnunum. Stofnkostn-
aður fyrir utan klefann er
rúmar fimm þúsund krónur.