Dagur - 23.01.1985, Side 2

Dagur - 23.01.1985, Side 2
2 - DAGUR - 23. janúar 1985 „Þetta var mjög ánægjuleg tilbreyting, það var gott að fá frí frá störfum og breyta um umhverfi og gaman að kynnast viðhorfum Dana til lífsins,“ segir Freyr Ófeigsson hér- aðsdómari og bæjar- fulltrúi, en hann tók sér ársleyfí frá störfum (fékk svokallað starfs- leyfi) og brá sér til Danmerkur og dvaldi þar. Hvað var Freyr að gera í Danmörku? „Eg var innritaður í lagadeild Kaupmanna- hafnarháskóla og sótti þar tíma í fagi sem heitir alþjóðlegur einkamálaréttur, auk þess sem ég reyndi að bera mig eftir að bæta dönskukunnáttuna. “ Freyr Ófeigsson. mönnum bætur? „Ég veit það ekki. Það er alltaf erfitt að segja til um hvað er of mikið. En ég held að mér sé óhætt að segja að það er mjög misnotað. f>á ekki síst í ljósi þess að útlendingar ganga beint inn í þetta tryggingakerfi. Danir eru í EBE og íbúar allra EBE land- anna eiga því sama rétt og Danir flytjist þeir til landsins. Það geta nánast allir valsað inn í Dan- mörku og hafa þar fullan rétt og ég held að það sé töluvert um að fólk flytjist til landsins og gangi beint inn í tryggingakerfið og geri ekki neitt. Danir eru ekki alveg sammála um þetta atriði.“ - Burtséð frá vandamálum frænda okkar, hvernig líkaði þér vistin? „Ég kunni mjög vel við mig þarna, en fannst bara árið ansi fljótt að líða. Ég hefði gjarnan viljað vera eitt ár í viðbót, því fyrsta árið manns fer oft bara í að læra á hlutina. En ég hafði því miður ekki tök á að vera lengur, ég var bara í ársleyfi.“ - Þú kemur þá heim. Hvernig var það? „Það var ágætt, tíðarfar mjög gott. Jú, það fer ekki hjá því, maður sér hlutina í öðru ljósi eft- ir að hafa dvalið erlendis um tíma. Maður hefur mjög gott af því að búa erlendis og sjá hlutina með skattlagningu.“ - Hvernig er með tengsl bæjarbúa við bæjarstjórnina? „Bein tengsl á milli hins al- menna bæjarbúa og bæjarstjórn- arinnar eru ekki mikil. En þeir sem taka virkan þátt í starfi pólit- ísku flokkanna eru í töluverðum tengslum við bæjarstjórnina. Bæjarbúar eiga rétt á að sitja bæjarstjórnarfundi, en þeir gefa bara ekki rétta mynd af störfum bæjarstjórnarinnar, því vinna fer nánast öll fram í nefndum sem bæjarbúar eiga ekki aðgang að og fundir bæjarstjórnar eru bara samþykktir. Bæjarfulltrúar hafa viðtalstíma og þangað er öllum frjálst að koma, en þessir tímar hafa ekki verið vel sóttir af bæjarbúum. Þeir gera þó sitt gagn, því það fólk sem á annað borð kemur, kemur skoðunum sínum á fram- færi. En það virðist vera að bæjarbúar hafi ekki almennan áhuga á störfum bæjarstjórnar- innar, nema þá helst þegar sér- hagsmunamál þeirra eru á dagskrá." - Er kannski við bæjarstjórn- ina sjálfa að sakast, getur hún ekki upplýst bæjarbúa meira um það sem fram fer og hvað hún er að gera á hverjum tíma? „Vissulega gæti bæjarstjórnin gert meira til að upplýsa íbúana „Vandamál Akureyrar er of fábreytt atvinnulíf“ - Um hvað fjallar alþjóðlegur einkamálaréttur? „Hann fjallar um það, hvaða reglur gilda um viðskipti manna sem ekki búa í sama landi, t.d. ef eitt land kaupir vörur af öðru landi og eitthvað kemur fyrir, eft- ir hvaða lögum á að dæma. Þetta er mjög ópraktískt fag fyrir ís- lendinga og það var meira til gamans gert að ég fór í þetta fag, ég hef líklega valið það vegna þess hversu ópraktískt það er fyr- ir mig og mitt starf.“ - Þú minntist áðan á að gaman hefði verið að kynnast viðhorfum - segir Freyr Ófeigsson, bæjarfulltrúi og héraðsdómari Dana til lífsins, eru þeirra við- horf frábrugðin okkar? „Að sumu leyti lík, en að öðru eru þau gerólík. Mér virtist sem meira frelsi væri ríkjandi í Dan- mörku en hér á flestum sviðum, en að öðru leyti var sósíalinn ákaflega sterkur. Þeir eru með sterkt tryggingakerfi, alls kyns fjölskyldubætur, borga húsa- leigustyrki ef ákveðnum skilyrð- um er fullnægt um fjölskyldu- stærð, tekjur og leiguupphæð. Þessar bætur sem Danir borga LETTIH Arshátíð Hestamannafélagsins Léttis verður að Lóni við Hrísalund föstudaginn 8. febrúar. Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar leikur. Nánar auglýst síðar. Vorum að fá alls konar hestavörur á mjög góðu verði Vönduð hringamél 2 teg. Beisliskeðjur og krókar. Stallmúlar (nælon og leður). Nælongjarðir 115 cm. Hófhlífar opnar og lokaðar (sérlega ódýrar). Faxgreiður, gatatangir, naglbítar, málbönd. Leðurhreinsir, leðurolía, stígvélasprey o.m.fl. Ótrúlega ódýrir hnakkar á kr. 6.350,00. Póstsendum samdægurs. Brynjólfur Sveinsson hf. Sportvöruverslun Skipagötu 1 • Sími 23580. ná einnig til útlendinganna sem dvelja í landinu og ég fékk t.d. húsaleigustyrk.“ - Hafa þeir efni á að borga alla þessa styrki? „Það eru auðvitað skiptar skoðanir um það. Skattar í Dan- mörku eru hærri en hér á íslandi, en ég býst við að það sé eins og gengur pólitískur ágreiningur um stefnu stjórnvalda. Schluter- stjórnin hefur farið út í aðhalds- aðgerðir og dregið úr opinberri aðstoð. Ég man t.d. eftir því að í dönskum skólum fengu börn ókeypis mjólk, en Schluter minnk- aði peningaupphæð þá er rann til þeirra mála og þurftu börnin því að borga mjólkina í 2 mánuði. En þrátt fyrir aðhaldsaðgerðir þá er miklu meiri sósíal þar en hér. Danir gera mikið í því að enginn þurfi að líða neyð.“ - Nú er mikið atvinnuleysi í Danmörku? „Já, Danir eiga við stórt vandamál að stríða og það er at- vinnuleysið. Það hefur valdið miklum erfiðleikum og þeir borga geysilegar upphæðir í at- vinnuleysisbætur. Menn fá at- vinnuleysisbætur borgaðar í ákveðinn tíma og detta síðan út, ef þeir fá sér vinnu aftur, þó ekki sé nema í skamman tíma, þá komast þeir á bæturnar aftur.“ - Er þetta mikið hitamál í Danmörku? „Nei, þetta er ekkert sérstakt hitamál, þó eru öðru hvoru grein- ar í blöðum þar sem bólar á út- lendingahatri, útlendingum er kennt um að taka vinnu frá Dönum og svo framvegis. En tölur sýndu að útlendingar voru aðeins örlítið brot af þeim er gengu um atvinnulausir og þeir skiptu ekki sköpum.“ - Heldur þú kannski að trygg- ingakerfið danska sé of sterkt, þeir geri of mikið af því að borga í öðru ljósi. Bæði vitandi og óaf- vitandi." - Er það eitthvað sérstakt sem þú sérð í nýju ljósi eftir heim- komuna? „Það er erfitt að nefna ákveðin dæmi, en það er margt af því sem hér hafa verið hitamál sem manni finnst vera lítilfjörlegir hlutir og alveg sjálfsagðir erlendis. Ég get nefnt þér sem dæmi deilur um leiktækjasali. Þessir salir eru á hverju götuhorni erlendis án þess að menn líti á þá sem einhver vandamál. Kannski vantar okkur vandamál!“ - Þú ert búinn að sitja lengi í bæjarstjórn? „Já nokkuð, þetta er 11. árið mitt, ég settist fyrst í bæjarstjórn- ina árið 1974.“ - Alltaf sömu vandamálin sem bæjarstjórnin er að takast á við? „í megindráttum eru það sömu vandamálin. Þó koma alltaf upp ný og ný mál. Undanfarinn áratug hefur verið um þenslu og fólks- fjölgun að ræða og það hefur sett svip sinn á störf bæjarstjórnar og við höfum verið að finna leiðir til að bregðast við því. Nú hefur dæmið snúist við og við berjumst við önnur vandamál. Ég verð að segja að mér þykir skemmtilegra að fást við að leysa vandamál sem leiða af fólksfjögun og þenslu, en fólksfækkun og samdrætti.“ - Nú liggur fyrir hjá bæjar- stjórninni gerð fjárhagsáætlunar, en er það stærsta verkefni hennar á hverju ári? Deila bæjarfulltrúar mjög um fjárhagsáætlunina? „Það er nú einu sinni svo að við höfum ákveðna upphæð til skiptanna og í stórum dráttum eru menn yfirleitt sammála um hvernig skipta eigi upphæðinni. Það er meiri skoðanamunur er ráðist er í framkvæmdir. Svo er töluverður ágreiningur um hversu mikilla tekna eigi að afla um hvað hún er að gera. Hún gæti haft einhvers konar upplýs- ingafulltrúa sem fólk gæti haft samband við og lagt inn fyrir- spurnir til. Þetta hefur aðeins verið orðað, en ekkert gert. Sem bæjarfulltrúa finnst mér frekar miður hversu lítil tengsl eru á milli okkar og bæjarbú- anna, að vísu hittir maður fólk á förnum vegi og fær ansi miklar upplýsingar um afstöðu þeirra til hlutanna þannig. En tengslin mættu vera meiri.“ - Hvernig líst þér á ástand mála á Akureyri í dag? „Hér á Akureyri eru öll skil- yrði fyrir blómlegri byggð og eftirsóknarverðri, það eru ekki allir staðir jafn vel í sveit settir og við með bestu landbúnaðarhéruð landsins í kringum okkur. En það þarf eitthvað nýtt að koma til, vandamál Akureyrar í dag er of fábreytt atvinnulíf. Það er ekki gott þegar unga fólkið þarf að flytja suður til að fá vinnu við hæfi. Það eru allir sammála um að efla beri iðnað, en ég held að ekki sé síður vert að efla þjón- ustugreinar ýmiss konar og ef það skapaðist pólitískur vilji fyrir því á Alþingi að flytja einhverjar ríkisstofnanir hingað yrði það bænum mikil lyftistöng. Því mið- ur blæs ekki byrlega í þeim efnum, en stjórnvöld eru þó að- eins farin að huga að þessum málum í meiri alvöru en áður. Dæmi um það eru umræður um háskóla á Akureyri og að setja hina nýju þróunarstofnun niður hér, það er spor í rétta átt að menn eru farnir að tala um þessa hluti sem raunhæfa." - Þú hefur engar patentlausn- ir? „Nei, ég er ekki maður patent- lausna. Menn eiga að vera opnir fyrir öllum möguleikum og vinna með opnum huga. Hafna engu fyrirfram, því það er hrein heimska að hafna hlutunum fyrir- fram að óathuguðu máli. - mþþ

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.