Dagur - 23.01.1985, Síða 12
ÞJÓNUSTA
FYRIR
r r
HAÞRYSTISLONGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
s
a
s
i
(A
„Það þarf að
hamra á málinu“
- Sendinefnd Akureyrarbæjar ítrekar
samþykkt sína um þróunarfélag á Akureyri
hjá ráðamönnum syðra
„Mér flnnst sjálfsagt að nota
aliar leiðir til að hamra á þessu
máli og viðtökur ráðamanna
syðra voru ekki neikvæðar, en
án loforða,“ sagði Sigurður
Jóhann Sigurðsson, bæjarfull-
trúi í samtali við Dag. í síðustu
viku fór sendinefnd á vegum
Akureyrarbæjar til Reykjavík-
ur, til að „hamra“ á þeirri sam-
þykkt sem bæjarstjórn Akur-
Hlíðarfjall:
Opnað í
vikunni
„Við stefnum að því að opna
seinni hluta vikunnar eða um
næstu helgi,“ sagði ívar Sig-
mundsson, forstöðumaður í
Hlíðarfjalli í samtali við Dag,
og var nú ólíkt betri tónninn í
honum en verið hafði um lang-
an tíma.
Við ræddum við ívar á mánu-
dag og þá sagði hann að þeir
þyrftu að fá nokkuð meiri snjó en
þá var kominn. „Ef við fáum
snjókomu í 2-3 daga í viðbót þá
er okkur ekkert að vanbúnaði að
opna hérna, allt er til reiðu nema
það að okkur vantar aðeins meiri
snjó,“ sagði ívar. gk-.
eyrar gerði samkvæmt tillögu
Sigurðar, um að væntanlegu
þróunarfélagi verði valinn
staður á Akureyri.
í sendinefndinni voru auk Sig-
urðar, þau Sigurður Jóhannes-
son, Sigríður Stefánsdóttir og
Helgi M. Bergs. Þau áttu við-
ræður við Steingrím Hermanns-
son og Þorstein Pálsson.
„Árangur úr þessari ferð liggur
náttúrlega alls ekki fyrir,“ sagði
Sigurður Jóhannesson, „en
undirtektir formannanna voru vil
ég segja jákvæðar, en við fengum
engin Ioforð út úr þeim, það var
langt frá því. Það er starfandi
nefnd um þessi efni og hún mun
gera sínar tillögur, sem ríkis-
stjórnin síðan tekur afstöðu til.
En ég tel að það hafi verið mjög
jákvætt að ræða við Steingrím og
Þorstein; við gátum betur komið
okkar sjónarmiðum á framfæri
og ég fann ekki annað en þeir
hefðu skilning á þeim.
Það virðist hins vegar vera af-
skaplega harðsótt að ná nokkru
út af Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Slíkt virðist ekki vera til í þanka-
gangi stórra hluta þeirra manna
sem þarna búa, að þeir þurfi að
sækja eitthvað út fyrir sín bæjar-
mörk. Það virðist allt þurfa að
vera við kjötkatlana fyrir
sunnan," sagði Sigurður Jóhann-
esson. - GS
Þessar brosmildu stúlkur á Kjötiðnaðarstöð KEA voru að vinna við þennan stóra „skammtara", nánar tiltekið við
að setja kindakæfu í plastdósir. Verkfærið mun einnig vera notað við pylsu- og bjúgnagerð. Mynd: áþ
Koma fjöldauppsagnir til
framkvæmda 1. mars?
- Við stflum upp á að ná
samningum en hvort það tekst
skýríst væntanlega ekki fyrr en
á elleftu stundu, sagði Ómar
r íþróttabandalag Akureyrar 40 ára:
Íþróttahátíð í Höllinni
íþróttabandalag Akureyrar
varð 40 ára þann 20. desember
sl. og í tilefni af því er stefnt að
íþróttahátíð sem fram fari í lok
mars í tengslum við ársþing
bandalagsins. Ársþingið verð-
ur 24. mars á laugardegi og
íþróttahátíðin yrði þá í íþrótta-
höllinni daginn eftir.
„Það er varla tímabært að fara
að ræða um framkvæmd þessarar
hátíðar," sagði Knútur Otter-
stedt formaður ÍBA er við rædd-
um við hann. „Það sem við stefn-
um að er að halda þessa hátíð í
íþróttahöllinni og þar verði sýnd-
ar allar þær innanhússíþróttir
sem stundaðar eru innan ÍBA og
þarna yrði opið hús fyrir almenn-
ing.
Hugmyndin er einnig að inn-
rétta salarkynnin í anddyri Hall-
arinnar og gefa hverju einstöku
félagi kost á því að hafa þar sér-
stakan sýningarbás til þess að
kynna sína starfsemi. Einnig
kemur til greina að þeir aðilar
sem selja íþróttavarning verði
þarna með sýningaraðstöðu.
Þetta er í grófum dráttum það
sem við erum að hugsa um í dag
varðandi 40 ára afmælið,“ sagði
Knútur. gk-.
Árnason, framkvæmdastjóri
Hins íslenska kennarafélags en
boðaðar fjöldauppsagnir fé-
lagsins taka gildi 1. mars nk.
Samningaviðræður eru enn
ekki hafnar en samningar HÍK
eru lausir 28. febrúar nk.
Það var hinn 30. nóvember sl.
að stjórn HÍK skilaði inn upp-
sögnum 444 kennara á fram-
haldsskólastigi. Þetta eru um
70% félagsmanna. í reglugerð
um réttindi og skyldur opinberra
starfsmanna er kveðið á um að ef
þurrð skapast í stétt t.d. vegna
fjöldauppsagna sé stjórnvöldum
heimilt að fresta uppsögnum um
allt að þrjá mánuði. í umboði til
HÍK gat mikill meirihluti kennar-
anna þess að þeir myndu ekki
hlíta framlengingu.
Að sögn Ómars Árnasonar er
aðalkjarasamningur kennara í
HÍK kominn til kjaradóms en úr-
skurður þar á að liggja fyrir eigi
síðar en einni viku áður en samn-
ingurinn rennur út eða í síðasta
lagi 22. febrúar. Hvað varðar sér-
kjarasamninga á kjaradómur
ekki að kveða upp úrskurð í því
máli fyrr en í fyrsta lagi einum
mánuði eftir gildistöku aðal-
kjarasamnings, þ.e.a.s. ef samn-
ingar nást ekki fyrir þann tíma.
- Kröfur okkar eru ákaflega
einfaldar. Við förum fram á að
meðallaun fyrir dagvinnu nái
85% af meðaltali brúttólauna
hjá þrem efstu aðildarfélögum
innan BHM-R, sem eru ríkis-
starfsmenn innan BHM, sagði
Ómar Árnason.
Þess má geta að einungis tveir
skólar á Norðurlandi, Mennta-
skólinn á Akureyri og Fjöl-
brautaskólinn á Sauðárkróki eru
í hættu á að stöðvast ef fjölda-
uppsagnirnar koma til fram-
kvæmda. í öðrum skólum eru fé-
iagsmenn í HÍK í miklum
minnihluta. - ESE
Enn kólnar hann og í
morgun var tíu stiga frost á
Akureyri. Vonandi eru því
flestir búnir að finna föður-
lönd sín því svipuðu veðri
er spáð a.m.k. næstu tvo til
þrjá dagana.
Það verður norðan- og
norðaustanátt úti fyrir
ströndum en hægviðri inn
til landsins og talsvert
frost.
# Þjóðarveisla?
Miklar birgðir af frönskum
kartöflum hafa nú hlaðist upp
í landinu. Stafar þetta m.a. af
miklum innflutningi frá t.d.
Hollandi. Franskar kartöflur
eru að sjálfsögðu frystivara
og nú mun svo komið að
geymslurými er á þrotum og
ekki bætir það úr skák að
mikið „nautakjötsfjair hefur
hlaðist upp í sömu geymsl-
um eða öðrum sambæri-
legum víða um land. Nú í
frystihúsum hafa einnig hlað-
ist upp rækjubirgðir þannig
að vandamálið er talsvert.
Einhverjum kynni að detta í
hug að besta ráðið væri að
selja þessa framleiðslu ódýr-
ara verði tíl neytenda - halda
útsöiu, en svo einfalt mun
þetta mál ekki. En það væri
alltént ráð fyrir ríkisstjórn og
sölusamtök að halda eina
góða þjóðarveislu þegar
verðbólgan kemst aftur í al-
gleymi. Bjóða þá upp á
nautasteik með frönskum og
rækjur í forrétt.
# Umdeiit kjör
íþróttafréttaritarar í Reykja-
vík eiga ekki sjö dagana sæla
um þessar mundir. Val
íþróttamanns ársins hefur
svo sannarlega mælst illa fyr-
ir meðal almennings og hver
góðborgarinn af öðrum skrif-
ar nú grelnar í blöðin þar sem
meðferðinni á Bjarna Friðr-
ikssyni er mótmælt harðlega.
Búið er að skora opinberlega
á þann íþróttafréttamann
sem setti Bjarna í þriðja sæt-
ið á lista sínum, að gera grein
fyrir og rökstyðja þessa
ákvörðun sína. Verður það
vafalaust fróðleg lesning ef
viðkomandi fréttamaður gerir
grein fyrir atkvæði sínu.
# Ekki sama
hvað er
Kjörið á íþróttamanni ársins
var svo sannarlega umdeilt
hvað varðaði efsta sætið en
annað vekur einnig athygli.
íþróttamaður sem verður
Norðurlandameistari í grein
sinni, hreppir annað sætið á
Evrópumóti og fjórða sæti á
heimsmeistaramóti, nær 17.
sæti í þessu kjöri íþrótta-
manns ársins sem þýðir að
einn íþróttafréttamaður hefur
sett hann neðarlega á blað
hjá sér. Til marks um órétt-
lætið má nefna að knatt-
spyrnukona úr Breiðabliki
fær mörgum sinnum fleiri at-
kvæði þrátt fyrir að hvorki
hún né kvennalið Breiðabliks
hafi unnið til þess. iþrótta-
maðurinn sem (þróttafrétta-
ritarar settu þannig út í kuld-
ann er Kári EKson, kraftlyft-
ingamaður frá Akureyri en
sennilega hefði hann þurft,
líkt og Bjarni, að vlnna gull á
öllum mótum til þess að afrek
hans yrðu metin að verð-
leikum. Það er ekki sama
hver íþróttagreinin er.