Dagur - 13.02.1985, Síða 1
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
' AKUREYRI
TÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
MARGAR GERÐIR
68. árgangur
Akureyri, miðvikudagur 13. febrúar 1985
18. tölublað
■
m wms l|l
neytinu
- varðandi það hvers vegna rafmagn
til húshitunar er dýrara á Akureyri
„Ég skrifaði iðnaðarráðuneyt-
inu vegna þessa máls í október
og er margbúinn að rekast í
þessu síðan. Ég hef talað við
ráðuneytisstjóra og hann hefur
talað við ráðherra, en ég hef
engin svör fengið,“ segir Svan-
björn Sigurðsson rafveitustjóri
á Akureyri, en rafmagnsverð
til húshitunar á Akureyri er
talsvert hærra en á svæði
RARIK og nokkrum öðrum
stöðum.
í bréfi sínu til ráðuneytisins
sagði Svanbjörn m.a. að Rafveitu
Akureyrar hefðu borist ábend-
Vigdís í
leikhúsferð
til Akureyrar
Forsetinn okkar, Vigdís Finn-
bogadóttir, mun koma til Akur-
eyrar á laugardaginn til að sjá
sýningu Leikfélags Akureyrar á
„Ég er gull og gersemi“. Höfund-
ur verksins og leikstjóri, Sveinn
Einarsson, verður væntanlega
einnig með í ferðinni og sömu
sögu er að segja um Gísla Al-
freðsson, þjóðleikhússtjóra.
Einnig eru líkur til að bandarísku
sendiherrahjónin komi í leikhús-
ferð til Akureyrar, en á laugar-
daginn er síðasta sýning á „Ég er
gull og gersemi“. - GS
ingar og kvartanir frá viðskipta-
vinum sínum vegna þessa mis-
munar. Hann nefndi í bréfinu að
á Siglufirði, þar sem eins hagar til
og á Akureyri, að heitt vatn nægir
ekki til hitunar allra íbúðarhúsa,
sé rafmagnsverðið niðurgreitt af
ríkinu.
Peir sem kaupa rafmagn frá
RARIK til húshitunar, og íbúar
á Reyðarfirði, Vestmannaeyjum
og þeir á Siglufirði sem það gera,
fá rafmagnið niðurgreitt, og
greiða í dag 0,96 kr. á kwst. mið-
að við 32.800 kwst. ársnotkun, en
það er sú rafmagnsnotkun sem
talið er að vísitölufjölskylda noti
til húshitunar. Akureyringar sem
nota rafmagn til húshitunar
greiða hins vegar 1,21 kr. kwst.
miðað við sömu notkun, og á árs-
grundvelli munar þarna 8.200
krónum.
íbúar í Gerðahverfi II á Akur-
eyri, í Furulundi og á nokkrum
býlum í bæjarlandinu notast við
rafmagn til hitunar hýbýla sinna,
og eiga þess ekki kost að fá heitt
vatn vegna þess að ekki var lagt
fyrir því á sínum tíma. Þarf varla
mörg orð til þess að benda á það
misrétti sem þessir rafmagns-
kaupendur eru beittir. Ríkið
greiðir niður rafmagn til húshit-
unar til RARIK, Orkubús Vest-
fjarða, Reyðarfjarðar, Vest-
mannaeyja og íbúa á Siglufirði
sem eins er ástatt fyrir og á Akur-
eyri, þeirra sem ekki eiga þess
kost að fá hitaveitu í hús sín. Og
engin svör fást frá ráðuneytinu
hvers vegna Akureyringar sitja
ekki við sama borð. gk-.
Þegar sólar nýtur við er alveg upplagt að viðra sig og hestana - og ekki er verra að hafa svona fínan skeiðvöl! eins
og frosin Leirutjörnin er. Alynd: KGA.
Efnistaka úr Syðri-Flóa Mývatns:
Dómur veröi ekki
kveðinn upp fyrirfram
- segir í yfirlýsingu 202 Mývetninga
Náttúruverndarráði hefur ver-
ið send svohljóðandi yfirlýsing
frá 202 íbúum Mývatnssveitar:
„Við undirritaðir íbúar Mý-
vatnssveitar viljum ekki úti-
loka kísilgúrnám úr Syðri-Flóa
Mývatns. Við teljum að vís-
indalegar rannsóknir sem fram
munu fara hljóti að gefa til
kynna áhrif efnistöku þar.
Aður en nokkrar niðurstöður
Skákþing Akureyrar:
Áskell nær öruggur
með tltilinn
Askell Kárason hefur nú því
sem næst tryggt sér sigur á
Skákþingi Akureyrar 1985 og
titilinn Skákmeistari Akur-
eyrar. Þegar tveim umferðum
er ólokið hefur Áskell hlotið
6,5 vinninga eða 1,5 v. meira
en næsti keppandi sem er
Pálmi R. Pétursson.
Síðustu umferðir á skákþing-
inu hafa verið æsispennandi. Á
fimmtudag lauk öllum skákum
með jafntefli, Pálmi-Kári, Arn-
ar-Áskell og Jón Garðar-Gylfi.
Á föstudag vann svo Kári bið-
skákina gegn Jóni Garðari. f
áttundu umferðinni sem tefld
var á sunnudag, skákaði Áskell
helstu keppinautum sínum lag-
lega. Vann Pálma og á sama
tíma tapaði Kári fyrir Gylfa og
Jón Garðar vann Arnar. Staðan
er því sú að Áskell er með 6,5
v., Pálmi er með 5 v., Kári er
með 4,5 v., Gylfi með 3 v. og
þeir Jón Garðar og Arnar með
2,5 v. hvor.
f B-flokki vann Sigurjón Sig-
urbjörnsson öruggan sigur.
Vann alla andstæðinga sína
með yfirburðum. Sigurjón teflir
því t A-flokki að ári.
Sjá nánar skákskýringar Kára
Elísonar bls. 4. - - ESE
liggja fyrir teljum við ekki
tímabært að kveða upp úr með
hvort þaðan skuli numinn kís-
ilgúr eða ekki. Við teljum
ástæðu til að hvetja Náttúru-
verndarráð og aðra sem hafa
látið þetta mál til sín taka að
fella ekki dóm um efnistökuna
fyrirfram,“ segir í yfirlýsingu
Mývetninganna.
Að sögn Árna Pálssonar, eins
af aðstandendum undirskriftalist-
ans, var farið út í þessa söfnun
undirskrifta vegna þeirrar um-
ræðu sem verið hefur um þessi
mál undanfarið. Árni benti á að
undir þetta skrifuðu 202 af kosn-
ingabærum mönnum, sem síðast
þegar kosið var hafi verið um
350. Því væri ljóst að meirihluti
íbúanna væri þessarar skoðunar.
Mönnum fyndist ekki hægt að
segja af eða á fyrr en búið væri að
rannsaka þetta á vísindalegan
hátt. Áður hefur komið fram
undirskriftalisti með 60 nöfnum
þar sem efnistöku úr Syðri-Flóa
er alfarið mótmælt.
„Það ætti náttúrlega að vera
búið að rannsaka þetta fyrir
löngu, en verksmiðjan er búin að
starfa í um 18 ár. Við vitum það
að það eru ekki til upplýsingar
um það núna hvort eigi að fara í
Syðri-Flóa. Það eru heldur ekki
til upplýsingar sem segja að það
sé allt í lagi. Það verður að skoða
málið og taka síðan ákvarðanir á
grundvelli þess sem kemur í ljós.
Verksmiðjunnar vegna á ekki að
þurfa að fara í Syðri-Flóa á þeim
tíma sem tekur að rannsaka
þetta. Við viljum helst að um-
ræðunni eins og hún hefur verið
verði hætt þangað til niðurstöður
liggja fyrir og menn hætti að
dæma þetta svona fyrirfram,“
sagði Árni að lokum.
Eyjafjörður:
Síld - og
ekkeit
annað
Þegar fiskifræðingar á Árna
Friðrikssyni voru við athuganir
á Eyjafirði fyrir nokkru, rákust
þeir á mikið af eins árs sfld, en
Eyjafjörðurinn er mikilvæg
uppeldisstöð fyrir sumargots-
sfldina, þótt lítið veiðist af
henni í firðinum.
Það mun hins vegar hafa vakið
athygli fiskifræðinganna að lítið
sem ekkert fannst af öðrum fiski-
tegundum í firðinum. Kemur það
heim og saman við það sem fiski-
menn í Eyjafirði hafa orðið
áþreifanlega varir við. HS
Enqin svör
frá ráðu-