Dagur - 13.02.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 13. febrúar 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREVRI
SIM1: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRÍKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Nýsköpun atvinnu
í sveitum
Á ráðunautafundi Stéttasambands bænda sem
haldinn var nýlega flutti Guðmundur Stefáns-
son, landbúnaðarhagfræðingur hjá Stéttasam-
bandinu, erindi sem mikið hefur verið vitnað í.
Kom þar fram bein og óbein gagnrýni á ýmislegt
er varðar landbúnaðinn og tillögur um úrbætur.
Það er hins vegar ekkert nýtt að bændur og
starfsmenn samtaka þeirra bendi á að ýmislegt
þurfi að breytast. Hins vegar talaði Guðmundur
tæpitungulaust og því hafa ummæli hans vakið
athygli.
Hann bendir á að við núverandi aðstæður séu
ekki möguleikar á að greiða öllum þeim sem
hefðbundna búvöruframleiðslu stunda þau laun
né veita þeim þau kjör sem viðunandi geti talist.
Annað hvort fækki bændum við þessa fram-
leiðslu verulega eða að þeir fari í auknum mæli
að stunda aðra atvinnu með búskapnum. Spurn-
ingin sé bara sú hvort þeir eigi almennt kost á
annarri vinnu og hvort þeir muni ekki þurfa að
ganga frá eignum og atvinnu og setjast að á
mölinni.
„Ef koma á í veg fyrir þá þróun er nauðsynlegt
að hefja markvissari nýsköpun atvinnutækifæra
í sveitum og efla þá kosti sem vænlegir eru til
vaxtar. Fjármagni þarf að beina í auknum mæli
til nýrra búgreina en gæta þess þó jafnframt að
eðlileg endurnýjun geti átt sér stað í hinum
hefðbundnu. Styrkir og framlög sem beinlínis
ganga i berhögg við tilgang framleiðslustjórnun-
ar ber að afnema og beina því fjármagni til ný-
sköpunar," segir Guðmundur Stefánsson.
Hann gagnrýnir að framlög hins opinbera hafi
í reynd aðeins stutt hinn hefðbundna búskap,
en nýbúgreinar verið látnar afskiptalausar.
Ræddi hann sérstaklega um styrki til nýræktar á
meðan barist væri við offramleiðslu. Það væri
hins vegar áhyggjuefni að ekki væri meira fjár-
magni veitt til lána í nýbúgreinar og þannig
stuðlað að þeirri uppbyggingu sem er nauðsyn-
leg eigi sveitirnar að haldast í byggð og eigi fólk
þar að geta búið og lifað af eignum sínum. Guð-
mundur sagði ennfremur:
„Ríkissjóður þarf að standa að fullu við skuld-
bindingar sínar. Stofnlánadeildina og aðra fjár-
festingasjóði landbúnaðarins þarf að efla svo að
þeir geti sinnt þeim verkefnum sem þeim eru
ætluð á viðunandi hátt. Þá held ég að það séu
hæpin vinnubrögð hjá Stofnlánadeild að neita
nýbúgreinum um lán á þeim grundvelli að þær
hafi ekki greitt til deildarinnar. “
Guðmundur Stefánsson, landbúnaðarhag-
fræðingur, nefndi loðdýrarækt og ennfremur
fiskeldi og ferðaþjónustu, sem njóta þyrftu fyrir-
greiðslu Stofnlánadeildar. Hann gat þess að sum
hinna minni mjólkursamlaga mætti og ætti að
leggja niður og svipaða sögu mætti segja um
sláturhúsin. Núverandi afurðamagn bæri ekki
allar þær vinnslustöðvar sem nú væru starfandi
og þörf endurskipulagningar væri mjög brýn.
Því fyrr, því betra, sagði Guðmundur Stefáns-
son, og bætti því við að landbúnaðurinn hvorki
mætti né gæti lifað í fortíðinni.
Skákþing Akureyrar:
Áskell með pálm-
ann í höndunum
Pegar aðeins er tveim umferðum
ólokið á Skákþingi Akureyrar,
heldur Áskell Kárason öruggri
forystu í A-flokki. Hefur 1,5
vinnings forskot á næsta mann. í
sjöttu umferð vann Áskell Kára
Elíson, gerði jafntefli við Arnar
í þeirri sjöundu og eftir sigurinn
gegn Pálma í áttundu umferð,
má segja að Áskell standi með
pálmann í höndunum. Staðan í
A-flokki er nú þessi:
1. Áskell Kárason 6,5 v.
2. Pálmi R. Péturss. 5,0 v.
3. Kári Elíson 4,5 v.
4. Gylfi Þórhallsson 3,0 v.
5.-6. Arnar Porsteinsson 2,5 v.
5. -6. Jón Garðar Viðarss. 2,5 v.
Keppni í B-flokki er nú lokið.
Sigurvegari varð Sigurjón Sigur-
björnsson. Sigurbjörn vann alla
andstæðinga sína með fádæma
yfirburðum. Lokastaðan varð
þessi:
1. Sigurj. Sigurbj.son 7,0 v.
2. Sveinbj. Sigurðsson 5,5 v.
3. Skafti Ingimarsson 4,0 v.
4. Tómas Hermannss. 3,5 v.
5. Óli Gunnarsson 3,0 v.
6. -7. Rúnar Sigurpálsson 2,0 v.
6.-7. Eymundur Eym.son 2,0 v.
8. Bogi Pálsson 1,0 v.
Verður eflaust gaman að sjá
sigurvegarann í keppni í A-flokki
á næsta ári. í eftirfarandi skák
sjáum við sigurvegarann í B-
flokki að verki. Skákin er dæmi-
gerð fyrir Sigurjón að því leyti að
nái hann í byrjun taki á andstæð-
ingi sínum, er hinum sama óhætt
að fara að blaða í Biblíunni sinni.
Hvítt: Sigurjón Sigurbjörnsson.
Svart: Óli Gunnarsson.
1. d4-Rf6
2. c4-e6
3. Rf3-g6
4. Rc3-Bg7
5. e4-d6
6. Bg5-0-0?
(Andþrengslisblær svífur þegar
yfir svörtum - mun betra var 6.
h6)
7. Dd2-Rc6
8. Be2-Re7
9. e5!-dxe5
10. dxe5-Rd7
(Svörtu hrossin hörfa niður á möl
því ekki var annars kostar völ,
því eftir 10. Dxd2+-ll. Kxd2
tapar sv. manni.)
11. Hdl! (Krossleppunin yfir
leiði svarts er fullkomnuð!)
11. -c6
12. Re4!
Gylfi Þórhallsson.
abcdfe*f gh
Eftir aðeins örfáa leiki býr svarta
hirðin t grátbroslegu pakkhúsi
sem er að hruni komið. Engin
vörn finnst við hótunum hvíts:
Rc5 og Rf6+)
12. -De8
13. Rd6-Dd8
14. Rxc8-Hxc8
15. Dxd7 (Par með vann hvítur
mann og skákina þar með, stuttu
síðar.)
Eftir geysimiklar sviptingar
miðtaflsins - kom eftirfarandi
staða upp í skák milli Kára Elí-
sonar Ákureyrarmeistara sem
ekki hefur náð sér á strik í þessu
móti og Áskels Kárasonar sem
hins vegar hefur teflt af skínandi
þrótti hingað til.
5
4
abcdefgh
Svart: Áskell Kárason.
Hvítt: Kári Elíson.
Riddaraendatöfl eru yfirleitt
flókin og vandtefld. Þótt hvítur
sé tveimur peðum yfir á hann í
erfiðleikum! Peð hans drottning-
armegin eru lasburða og svörtu
mennirnir standa betur. Svarti
riddarinn fer nú f víking:
42. . .-Re5
43. Rcl!? (Möguleiki var 43.
Kg2-Rxc4 - 44. f3-Rxa3 - 45.
fG4+ með tvísýnu peðakapp-
hlaupi)
43. -Rxc4
44. a4-Rb2
45. a5-Rdl!!
(Þessi snjalli leikur hafði hvítum
yfirsést - peðið á F2 fellur því
Arnar Þorstcinsson.
ekki má svartur fá tvö samstæð
frípeð.)
46. axb6-axb6
47. Re2-Rxf2
48. Kg2-Rd3
49. Kf3-Re5+
50. Ke3 (Hér fór skákin í bið og
svartur lék biðleik - sigurmögu-
leikar hans eru nokkrir því hann
getur myndað sér frípeð á drottn-
ingarvæng.)
50. -b5
51. Rcl-Rg4+
52. KD-b4
53. Cxb4-Cxb4
54. Rb3-Re5 +
55. Ke3 (Hvítur neyðist til að
gefa peðin á kóngsvæng, t.d.
dugði 55. Kf2 skammt því eftir
Kg4 stillir svartur riddaranum á
E4 eða h5 og peðin falla.)
55. -Kg4
56. Kd4-Rf3+
57. Kc4-Kxg3
58. h5! (Nauðsynlegt - hvítur
vinnur tíma til að koma riddara
sínum í leikinn.)
58. -Kg4
59. Rc5-Kxh5
60. Re4-Rg5
61. Rf6+-Kg6
62. Rd5 (Riddarinn kappkostar
að reyna að fórna sér fyrir h-peð-
ið nú gengur ekki 62. h5 vegna
63. Rf4+)
62. -Kf5?
(Þar fór síðasta vinningsvon
svarts. 62. Re6 var sennilega best
og hvítur verður að heyja hat-
ramma baráttu við h-peð svarts.)
63. Re7+-Kg4
Og nú nær hvítur jafntefli með
furðulegum riddaraleik:
64. Rg8!!
Jafntefli því hvítur svarar 64. h5
með:
65. Rf6+ og Rxh5.
Þetta var lærdómsríkt endatafl
með gloppum hér og þar eins og
gengur.
Skákþing Akureyrar lýkur
með umferðum á fimmtudag og
sunnudag. Teflt er í Barnaskóla
Akureyrar.
Jón Garðar Viðarsson.