Dagur - 13.02.1985, Síða 6
6 - DAGUR - 13. febrúar 1985
khtfí *
„Þetta námskeið var haldið
á vegum Björgunarhunda-
sveitar íslands og Björgunar-
skóla Landssambands hjálp-
arsveita skáta. Við fengum
góða fyrirgreiðslu hjá Lands-
virkjun sem lét okkur hafa
aðstöðu við Laxárvirkjun
Hundarnir voru geymdir í holum sem grafnar voru í snjóinn.
og Landhelgisgæslan sá um að
flytja þá hunda til Akureyrar
sem komu í þetta námskeið að
sunnan. Almannavarnir sáu
síðan um að koma hundun-
um norður í Laxárdal.“
- Þetta sagði Smári Sigurðsson
formaður Hjálparsveitar skáta á
Akureyri er við ræddum við hann
um þjálfunarnámskeið fyrir leit-
arhunda sem haldið var á dög-
unum. Um var að ræða leit í
snjóflóðum. Smári er eigandi
annars tveggja hunda frá Akur-
eyri sem voru á þessu námskeiði,
einn hundur var úr Aðaldal en 13
komu að sunnan. Við spurðum
Smára hvernig þessum námskeið-
um væri háttað.
„Hundarnir eru flokkaðir í
þrjá flokka eftir getu, a-, b- og c-
flokka. Hundar reyna fyrst við c-
flokkinn, og prófið sem þarf að
leysa í þeim flokki er að finna
mann sem er grafinn einn metra
niður í snjó, á svæði sem er 50x50
metrar að stærð. í þessu tilfelli
má ráða hvernig hundurinn leitar
svæðið, það má teyma hann um
eða láta hann lausan.
Það kemur í ljós í c-flokknum
hvort hundurinn á einhverja
möguleika á að ná árangri í
snjóflóðaleit, og ef hæfileikarnir
eru fyrir hendi er hægt að reyna
við b-próf en það felst í því að
finna tvo menn sem grafnir eru á
tveggja metra dýpi á svæði sem er
100x100 metrar og hundurinn
verður að fara kerfisbundið um
svæðið. A-prófið felst svo í því
að finna einn mann og einn hlut
á svæði sem er 150x150 metrar og
leita þarf kerfisbundið. Hundar
sem eru í a- og b-flokki eru á út-
kallsskrá hjá Almannavörnum.
Þess má geta að allir norðlensku
hundarnir á námskeiðinu náðu b-
prófinu og geta reynt við a-prófið
að ári, en 7 hundar náðu ein-
hverjum áfanga á námskeiðinu."
- Á námskeiðinu voru tveir
Norðmenn sem sáu um þjálfun-
ina, og við spurðum Smára
hvernig námskeiðið hefði gengið
fyrir sig.
„Þetta var ansi strembið. Nám-
skeiðið stóð yfir í 8 daga og það
var farið á fætur kl. 7 á morgnana
og tíminn til kl. 8 notaður til að
hreyfa hundana. Klukkan 9 var
fyrirlestur og kl. 10.30 var lagt af
stað frá Laxárvirkjun upp á Hóis-
sand þar sem verklega hlið nám-
skeiðsins fór fram. Síðan var ver-
ið við snjóflóðaleit og mokstur
fram eftir degi og komið til baka
rétt fyrir kvöldmat. Dagskránni
hvern dag lauk síðan með fyrir-
lestri.
Þegar við komum á svæðið þar
Hundamir
þjálfaðir í leit
í snjóflóðum
Hér hefur hundurinn fundið lykt af manni í snjónum og það er byrjað að grafa . . .
. . . maðurinn hefur verið grafinn upp og hundurinn fagnar honum.
I „kaffistofu“ á Hólssandi.