Dagur - 13.02.1985, Page 9
13. febrúar 1985 - DAGUR - 9
Róbert Agnarsson HSÞ-b og Halldór Áskelsson Þór í baráttu í úrslitaleik
Bautamótsins um síðustu helgi. Þeir verða báðir í sviðsljósinu í Laugardals-
höll um helgina.
Bikarmót SKI:
Guðrún vann
svigkeppnina
Fyrsta bikarmótið í alpagrein-
um fullorðinna var haldið í
Bláfjöllum um helgina, og var
keppt í svigi og stórsvigi karla
og kvenna.
í stórsvigi kvenna sigraði
Snædís Úlriksdóttir R. á 145,58
sek. önnur Tinna Traustadóttir
A. á 146,77 og þriðja Signe
Viðarsdóttir A. á 146,86. í svig-
inu sigraði Guðrún H. Kristjáns-
dóttir A. á 200,18 sek. önnur var
Bryndís Viggósdóttir R. á 200,49
og Signe Viðarsdóttir A. þriðja
á 202,43 sek.
í stórsvigi karla sigraði Guð-
mundur Jóhannsson I. á 136,99
sek. Árni Þór Árnason R. annar
á 137,37 og Ólafur Harðarson A.
þriðji á 139,93. Guðmundur sigr-
aði einnig í svigi, fékk tímann
1.47,38 mín. annar Helgi Geir-
harðsson R. á 1.53,01 og þriðji
Rúnar I. Kristjánsson Á. á
1.57,95 mín.
Biynjar bestur
Um helgina var haldið punkta-
mót unglinga 15-16 ára í Hlíð-
arfjalli, svokallað Pepsímót.
Þátttakendur voru víðs vegar
af landinu. Úrslit urðu sem hér
segir:
Stórsvig stúlkna: Sek.
Kristín Jóhannsdóttir A 140,51
KA-Þór
- í Akureyrarmótinu
á fimmtudag
Fyrri leikur Þórs og KA í Ak-
ureyrarmóti meistaraflokks
karla í handknattleik verður
háður ■ Höllinni nk. fímmtu-
dagskvöld, og hefst hann kl.
20.30.
Rólegt hefur verið hjá þessum
liðum að undanförnu og eiga þau
ekki að leika í 2. deildinni fyrr en
um aðra helgi,.en þá fara þau
bæði til Reykjavíkur. KA leikur
þá gegn HK og Fram, en Þór
gegn Haukum og Fylki.
Guðrún Þorsteinsdóttir D 141,08
Helga Sigurjónsdóttir A 141,85
Gréta Björnsdóttir A 141,86
Gúnda Vigfúsdóttir A 142,43
Svig stúlkna: Sek.
Kristín Ólafsdóttir R 95,02
Gréta Björnsdóttir A 95,95
Helga Sigurjónsdóttir A 96,30
Kristín Jóhannsdóttir A 96,46
Sigrún Sigurðardóttir í 98,69
Svig drengja: Sek.
Brynjar Bragason A 90,11
Valdemar Valdemarsson A 94,89
Eiríkur Haraldsson R 98,13
Kristinn Grétarsson í 99,15
Birkir Sveinsson ÚÍA 103,44
Stórsvig drengja: Sek.
Brynjar Bragason A 141,80
Valdemar Valdemarsson A 144,88
Einar Hjörleifsson D 149,75
Sveinn Rúnarsson R 149,95
Birkir Sveinsson ÚÍA 152,08
Brynjar Bragason sigraði því tvö-
falt í drengjaflokki og hafði
mikla yfirburði í báðum greinum.
Annars er óhætt að segja að
hlutur Akureyringa í heildina á
þessu móti hafi verið mjög
góður, 3 gull, 3 silfur og 2 brons.
3 lið að norðan
í 1. deildinni
íslandsmótinu í innanhúss-
knattspyrnu verður fram hald-
ið um næstu helgi, og þá verð-
ur leikið í 1. og 3. deild karla,
og meistaraflokki kvenna.
Leikið verður í Laugardalshöll
á föstudag, laugardag og
sunnudag.
Þrjú lið frá Norðurlandi leika í
1. deild karla, Þór, KA, og
HSÞ-b, en þar er riðlaskiptingin
þessi:
A-riðill: Valur, FH, Víkingur,
KA.
B-riðill: ÍBK, UBK, HSÞ-b,
Fylkir.
C-riðill: Þróttur, Víðir, Fram,
KR.
D-riðill: ÍBÍ, ÍA, Þór, UMFS.
Þau lið sem hafna í neðstu sæt-
um riðlanna falla í 2. deild, en
efstu liðin komast í úrslit og leika
öll innbyrðis.
Jóhann
í leikbann
Ungur piltur í 3. flokki Þórs í
handknattleik, Jóhann Sam-
úelsson, hefur verið dæmdur í
tveggja leikja bann í íslands-
mótinu.
Jóhanni lenti saman við einn
leikmann KA í 2. umferð riðla-
keppni íslandsmótsins, og fékk
rauða spjaldið fyrir að dangla í
leikmann KA. Dómarar leiksins
kærðu síðan og dómstóll HSÍ
kvað upp þennan harða dóm.
Jóhann er einn af bestu leik-
mönnum 3. flokks Þórs sem hef-
ur tryggt sér rétt til að leika í úr-
slitakeppni íslandsmótsins og
leikina verður hann að taka út í
íslandsmótinu. Hann tekur út
leikbann í leik Þórs og KA um
næstu helgi, og verður síðan að
sitja hjá í 1. leik úrslitanna.
í 3. deild eru þrjú lið frá Norð-
urlandi, Tindastóll, Reynir Á. og
Magni. Þar er einnig leikið í 4
riðlum, neðstu liðin falla, en
efstu liðin leika úrslitakeppni
þannig að tvö og tvö leika fyrst
og sigurvegararnir úr þeim
leikjum hreinan úrslitaleik.
Sama fyrirkomulag verður í
meistaraflokki kvenna en þar er
leikið í fjórum riðlum. Þór Akur-
eyri er í riðli með Hveragerði,
KR, Selfossi og Víði, en KA
leikur í riðli með Fylki, ÍA og
ÍBÍ.
Öruggur
>igur hjá
sigu
Aku
reyri
Akureyringar unnu öruggan
sigur í bæjakeppni I íshokký
milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar sem haldin var á Melavelli í
Reykjavík um helgina, úrslit
3:1.
Eftir fyrstu lotuna var staðan
1:0 fyrir Akureyri eftir mark
Kristjáns Óskarssonar, og Garð-
ar Jónasson bætti öðru marki við
í næstu lotu. í síðustu lotunni
skoraði síðan hvort lið eitt mark,
Rúnar Arason fyrir Akureyri og
Hannes Sigurjónsson fyrir
Reykjavík.
Akureyringar höfðu nokkra
yfirburði í leiknum, en Sveinn
Kristdórsson (Sveinn bakari) sem
stóð í marki Reykjavíkur varði
mjög vel og kom í veg fyrir stærri
sigur Akureyringanna.
Að sögn Guðmundar Péturs-
sonar hjá Skautafélagi Akureyrar
er áformað að halda íslandsmót
í íshokký á Akureyri um aðra
helgi, og yrði þá um tvo leiki að
ræða á milli Akureyrar og
Reykjavíkur.
Úr bæjakeppni Akureyrar og Reykjavíkur á sl. vetri. Þá unnu Reykvikingar
en nú var sigur Akureyringa ekki í hættu.
Gísli áfram
hjá Tindastóli
Viö sögðum frá því í síöustu
viku að Gísli Björnsson mark-
vörður Tindastóls á Sauðár-
króki hygðist jafnvel skipta um
félag og leika með KS í 2.
deildinni í sumar.
Gísli mun nú hafa ákveðið sig,
og varð niðurstaða hans sú að
fara hvergi og leika áfram í marki
Tindastóls. Eru Tindastólsmenn
örugglega ánægðir með þá niður-
stöðu, því nóg hefur liðið misst af
mannskap samt. Eru margir leik-
menn farnir frá liðinu, og hefur
heyrst að Árni Stefánsson þjálf-
ari liðsins og fyrrum landsíiðs-
markvörður muni verða útileik-
maður í sumar.
1—X—2
Einar Pálmi Árnason.
„Ógeðs-
legur
seðiir
Einar Pálmi Árnason varð sig-
urvegari í getraunaleik Dags á
sl. ári. Hann fylgir West Ham
að málum, og við buðum hon-
um upp á „kokteilseðil“ þar
sem fínna má leiki úr 5. um-
ferð FA-bikarsins, 1. deild, 2.
deild og með fylgir einn leikur
úr 3. deild.
„Þetta er nú ógeðslegasti
seðillinn sem ég hef séð í lang-
an tíma,“ sagði Einar er við
lásum honum leiki seðilsins.
„Það eru þarna alls kyns lið
sem ómögulegt er að reikna út
en ætli maður láti sig ekki bara
hafa það.“
Fyrstu 5 leikirnir eru bikar-
leikir, en hér kemur spá Ein-
ars Pálma:
Ipswich-Sheff.Wed x
Luton-Watford 1
Southampton-Bamsley 1
York-Liverpool 2
A.Villa-Arsenal 2
Stoke-WBA x
Birmingh.-Man.City 1
Carlisle-Leeds x
Charlton-Sheff. Utd. 1
N.County-Portsmouth x
Wolves-Grimsby 1
Hull-Bradford 1
Guðjón með
3 rétta
Guðjón H. Sigurðsson spá-
tnaður síðustu viku var al-
veg steinhissa þegar hann fór
yfír úrsllt síðustu leikja. Hann
hefur verið með 11 rétta
undanfarnar vikur en í „spá-
mannsgalla“ Dags gekk allt á
móti honum og útkoman varð
ekki nema 3 réttir. Hann er
því úr leik og getur einbeitt sér
að öðrum hlutum.
Nú fer að styttast i þessu
hjá okkur. Eftir næstu helgi
eiga aðeins 5 eftir að spreyta
sig og að því loknu hefst úr-
slitakeppnin. Guðmundur
Frímannsson heldur efsta sæt-
inu með 10 rétta, Hinrik Þór-
hallsson er með 9 rétta, Sig-
urður Pálsson með 6 rétta c.g
síðan eru nokkrir snillingar
með 5 rétta.
1—X—2