Dagur - 13.02.1985, Page 12
Akureyri, miðvikudagur 13. febrúar 1985
ÞJÓNUSTA
FYRIR
r
r
m m
HAÞRYSTISLONGUR
OLÍUSLÖNGUR og BARKA
PRESSUM
TENGIN Á
FULLKOMIN TÆKI
VÖNDUÐ VINNA
Eiríkur Bóasson á skrifstofu meindýraeyðis með hund sem þar var í vörslu,
en hann mun hafa verið sóttur skömmu eftir að myndin var tekin.
Mynd: gk-.
Hafa þurft að
svæfa hundana
„Það hefur komið fyrir að við
höfum ekki haft nein önnur úr-
ræði en að svæfa þá hunda sem
ekki hafa verið sóttir til okkar,
vegna þess að við höfum alls
enga aðstöðu til þess að hafa
þá hér,“ sagði Eiríkur Bóasson
hjá meindýraeyði á Akureyri í
samtali við Dag.
Þeir hundar sem finnast á
flækingi í bænum og eru ómerkt-
ir, eru fluttir til geymslu hjá
meindýraeyði í Gróðrarstöðinni.
Þar er reyndar engin aðstaða til
þess að hafa þessa hunda, en þó
hefur það verið gert.
„Við reynum að hafa hundana
hérna í 3-4 daga, en ef þeirra
hefur ekki verið vitjað að þeim
tíma liðnum eins og komið hefur
fyrir höfum við ekki haft nema
um eitt að velja. Við viljum
leggja áherslu á að fólk sem held-
ur hunda í bænum og hefur leyfi
fyrir þeim, hafi á þeim hálsól
með númeri hundsins, því þá
erum við ekki í neinum vand-
ræðum með að láta fólkið vita
þegar við fáum hundinn til
okkar,“ sagði Eiríkur. gk-.
„Rás 2“ norður um land
í næstu viku
„Það er svo til öruggt að út-
sending Rásar 2 mun heyrast
víða um Norðurland og austur
á firði á fimmtudag eða föstu-
dag í næstu viku,“ sagði
Þorgeir Ástvaldsson forstöðu-
maður Rásar 2 er Dagur ræddi
við hann í gær.
Þorgeir sagði að í næstu viku
væri áformað að taka í notkun
Síldveiði í Eyjafirði:
Veiði leyfð á
50 tonnum
Nýlega var veitt leyfi til þess að
veiða 50 tonn af síld á Eyja-
firði. Var leyfið veitt Niður-
suðuverksmiðju K. Jónssonar
& Co. hf. en trillukörlum við
Eyjafjörð falið að sjá um veið-
arnar.
Að sögn Kristjáns Jónssonar,
verksmiðjustjóra hefur lítið
veiðst af þessari síld enn sem
komið er. Leiðangursmenn á
rannsóknaskipinu Árna Friðriks-
syni fundu þessa síld á dögunum
við fjörur á svæðinu frá Skjaldar-
vík að Hauganesi og einnig var
talsvert um þessa síld, 19 cm og
stærri allt inn á Poll. Síldin virðist
því hafa fært sig úr stað á síðustu
dögum.
Samkvæmt upplýsingum
Kristjáns verður síldin soðin
niður ef hún veiðist og hún síðan
seld á innanlandsmarkað. - ESE
Útibú KS í Varmahlíð stækkað:
„Tvær
i einu
- Við sláum tvær flugur í einu
höggi með þessu. Bætum að-
stöðuna fyrir verslun með olíu-
vörur stórlega auk þess sem
önnur verslunaraðstaða og þá
einkum og sér í lagi fyrir ferða-
menn batnar mikið.
Þetta sagði Ólafur Friðriksson,
kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki er
hann var spurður um stækkun
útibús Kaupfélags Skagfirðinga í
Viðbótin sem er 125 fermetrar
verður tekin í notkun í þessum
mánuði. Helstu breytingarnar
eru þær að veitinga- og snyrti-
aðstaða er flutt í viðbótarrýmið í
suðurhluta útibúsins en síðan
verður opnuð olíu- og bensínaf-
greiðsla þar sem veitingarekstur-
inn var áður. Auk kaupfélagsins
hefur Olíufélagið tekið þátt í
þessum breytingum. - ESE
Útibú K.S. í Varmahlíð.
þrjá senda. Er einn þeirra á
Hnjúkum við Blönduós, einn á
Vaðlaheiði og sá þriðji á Gagn-
heiði. Með tilkomu þessara senda
bætast A.-Húnvetningar í hóp
hlustenda Rásar 2, einnig Akur-
eyringar og Eyfirðingar og send-
irinn á Vaðlaheiði mun einnig
þjóna sveitunum þar fyrir austan.
Þannig ætti að heyrast í Rás 2 í
Mývatnssveit og einnig austur til
Húsavíkur. Sendirinn á Gagn-
heiði mun þjóna Héraði, en
Þorgeir sagði óvíst yfir hversu
stórt svæði sá sendir myndi ná.
Það er ljóst að Skagfirðingar
verða að bíða eitthvað eftir að
heyra í Rás 2, og einnig er hætt
við að sum svæði önnur á Norð-
urlandi verði útundan í fyrstu.
Þorgeir sagði að FM-sending
Rásar 2 væri þannig uppbyggð að
ekki væri hægt að komast hjá því
að einhver svæði yrðu útundan til
að byrja með, en þegar búið væri
að koma útsendingunni á fjöl-
mennustu staðina yrði farið að
stoppa í götin eins og hann orð-
aði það.
Sem fyrr sagði er stefnt að því
að hinir þrír nýju sendar Rásar 2
verði teknir í gagnið í næstu
viku, á fimmtudag eða föstudag,
en Rás 2 útvarpar nú 50 klukku-
stundir á viku og stefnt er að því
að auka útsendingartímann veru-
lega. gk-.
Harður
árekstur
-og kviknaöi í strætisvagni
Mjög harður árekstur varð í
gærmorgun á mótum Eyrar-
landsvegar og Hrafnagilsstræt-
is.
Tildrög voru þau að annarri
bifreiðinni var ekið norður Eyr-
arlandsveg en hinni austur
Hrafnagilsstrætii. Á gatnamót-
unum skullu þær saman af mikl-
um krafti og slasaðist kona sem
var í annarri bifreiðinni nokkuð.
Bifreiðarnar eru mikið
skemmdar.
í fyrradag kviknaði í strætis-
vagni sem var á ferð á Hörgár-
braut. Kallað var á slökkvilið, en
þegar til kom reyndist eldurinn
slokknaður og skemmdir urðu
litlar sem engar.
Það er best að segja það strax.
Það verður talsvert frost
áfram á Norðurlandi og
veðurfræðingar sjá þar litlar
breytingar á a.m.k. næstu
dagana. Þetta er auðvitað
þeim mun verra þar sem
janúar var t.d. 0,8 gráðum
kaldari á Ákureyri en í meðal-
ári og íbúar norðanlands
orðnir þreyttir á þessum kalda
vetri. Sem sagt: Suðaustan
kaldi næstu daga og talsvert
frost.
# Eiga andarnir
ísland?
Jón Baldvin Hannibalsson,
stórkrati örlítið vinstra megin
við miðju, og Árni Gunnars-
son, fyrrverandi alþingis-
maður í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, auglýstu með
dreifibréfum og götuauglýs-
ingum fund á Dalvík um helg-
ina, þar sem umræðuefnið
var að venju: Hver á ísland?
Fundurinn skyldi vera í Vík-
urröst og þangað mættu um
40 manns. Allt var tilbúið,
glös frummælendanna komin
á borðið svo þeir gætu vætt
kverkarnar. Dalvíkingar biðu
þolinmóðir þó nokkuð væri
liðið á fundartímann, enda
landlæg venja að byrja ekki
fundi fyrr en nokkru eftir aug-
lýstan tíma - auk þess sem
þarna voru höfðingjar á ferð.
Þetta varð með sérkennilegri
stjórnmálafundum sem
haldnir hafa verið á Dalvík.
Menn störðu spenntir á
vatnsglösin, eða voru það
andaglös? Frummælendurnir
komu nefnilega ekki til fund-
arins og enginn tilkynnti fyrir
þeirra hönd af fundarfallinu.
Eftir um 40 minútna bið fóru
Dalvíkingarnir að tínast
burtu. Andarnir í glösunum
búnlr að vera orðlausir allan
tímann. Nema boðskapurinn
hafi hreinlega farið fyrir ofan
garð og neðan - Dalvíkingar
hafi ekki skilið þetta nýja
fundarform og það sem fram
kom. Ekki verið nægilega í
skýjunum til að skilja nýju
stefnuna kratanna?
# Mývatns-
deilan
Mývetningarnir sem vilja láta
rannsaka áhrif kísilgúrnáms-
ins í vatninu áður en framtíð
þess er ákveðin reyndust öllu
fleiri en hinir, sem mótmæltu
leyfisveitingu til verksmiðj-
unnar, eða 202 á móti um 60.
Ýmsar skringilegar sögur eru
á kreiki um þetta mál, t.d. sú
að menn í öðrum sveitarfé-
lögum á Norðurlandi, sem
yndi hafa af hvers kyns mót-
mælum, standi á bak við mót-
mæli 60-menninganna, auk
skoðanabræðra við Mývatn.
Um sömu menn sé að ræða
sem mótmæltu Laxárvirkjun,
álveri við Eyjafjörð og nú kís-
ilgúrnámi í Mývatnssveit.
önnur saga segir að máiið
snúist ekki um náttúruvernd,
heldur sé hér um valdatafl að
ræða af hálfu þeirra sem
töldu spón tekinn úr aski sín-
um þegar hin mikla uppbygg-
ing hófst f Reykjahlíð - enda
sé besta náttúruverndln að
dýpka vatnið og hreinsa -
ekki sfst eftir hið mikla land-
ris sem varð þar. Hvað sem til
er f þessu verður vonandi
ekki barist á bökkum
Mývatns.