Dagur - 31.05.1985, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 31. maí 1985
Hundadagahátíð á Akureyri:
Undirbúningur
í fullum gangi
„Það er ákveðið að halda
hundadagahátíð á Akureyri
frá 8.-14. júlí í sumar og við
höfum þegar skapað breiða
samstöðu milli þjónustuaðila,
einkaaðila og ferðamálaaðila.
Við ætlum okkur að vinna að
þessum málum á vandaðan
hátt og þá getur okkur ekki
mistekist,“ sagði Haraldur Ingi
Haraldsson framkvæmdastjóri
svokallaðrar hundadagahátíð-
ar í samtali við Dag.
í grófum dráttum verður form
hátíðarinnar þannig, að á virku
dögunum verða uppákomur á
menningar- og íþróttasviði auk
þess sem alls kyns uppákomur
verða í göngugötu, útimarkaðir
og annað slíkt. Helgin sjálf verð-
ur undirlögð af skemmtiefni,
dansleikir, söngur, grín og gleði
og aimenn kátína.
Geysimargar hugmyndir hafa
komið fram og margt á döfinni
sem ekki er vert að tíunda strax.
Þó má nefna að í tengslum við
hátíðina verður starfrækt út-
varpsstöð og hefjast útsendingar
þann 4. júlí. Þá á að endurtaka
bikarleikinn fræga frá ’69 á milli
ÍBA og ÍA. Fyrir þá sem velja
rólegheitin, er gráupplagt að
skreppa að tjörninni ofan við
Drottningarbraut og renna fyrir
lax og silung, en fyrirhugað er að
sleppa laxi og silungi í nefnda
tjörn. Pá er unnið að því meðal
ýmissa hópa í bænum að þeir taki
sig saman og efni til glæsilegrar
skrúðgöngu og er undirbúningur
að henni þegar hafinn. Bað Har-
aldur Ingi fyrir þau skilaboð til
þeirra sem áhuga hafa á að taka
þátt í göngunni að hafa samband
við sig í síma 23880.
Á bak við hátíðina stendur
harðsnúið lið manna og er undir-
búningur í fullum gangi eins og
áður sagði. Á næstu dögum verð-
ur opnuð skrifstofa og stjórnstöð
í gamla barnaskólahúsinu.
Sunnudagur 2. júní:
Sjómaimadagurmn
Sjómannahátíð í Sólarsal:
Sólarsaiur:
Opnað kl. 19.00.
Vandaður matur.
Ingimar Eydal leikur fyrir
matargesti.
perfe
tískusýning
á föstudagskvöld.
Hljómsveit
Ingimars
leikur fyrir
dansi,
ásamt
diskóteki
tOkl. 03.00.
Laugardagur 1. júní
Mánasalur:
Uppselt í mat.
Sólarsalur:
Örfá sæti laus á svölum
fyrir matargesti.
Hljómsveit Ingimars
leikur til kl. 03.00.
Hinir eldfjörugu
Gautar frá Siglufirði
leika fyrir dansi.
Mánasalur:
Uppselt
fyrir matargesti.
Tilboð:
Frönsk humarsúpa
m/safran.
Glóðaðir sniglar
m/hvítlauksbrauði.
Rjómasoðin ostgljáð
hörpuskel.
Gufusoðin
silungaflök
m/estragonsósu.
Salthjúpssteikt
lambalæri
m/vínberjasósu.
Kryddostfyllt
grísasneið
m/grænpiparsósu.
Sítrónupiparsteik
m/kryddsmjöri og
koníaksristuðum
sveppum.
Heimalagaður
hnetuís
m/súkkulaðisósu.
Föstudagur 31. maí
Mánasalur: Fuilbókað.
, Sjómenn-
Útgerðarmenn
Eigum fyrirliggjandi á lager úrvals
japönsk þorskanet.
Einnig höfum við handfærabúnað
og búnað til togveiða.
SANDFELL HF
Oddeyrarskála sími (96) 26120 Akureyri
Sími (96) 24654 eftir kl. 17.00.
Óskum eftir
röskum starfsmanni
við einangrunarframleiðslu.
Framtíðarstarf.
Plasteinangrun hf.
Starfsstúikur óskast
á kjúklingastað sem verður opnaður um
miðjan júní.
Umsóknir sem tilgreini nafn, aldur og fyrri störf
óskast lagaðar inn hjá auglýsingadeild Dags
merktar: „C.C.01“.
Vinnuskóli Akureyrar
Vinnuskóli Akureyrar óskar að ráða flokksstjóra til
starfa í sumar. Reynsla í verkstjórn æskileg.
Nánari upplýsingar gefnar á skrifstofu Garðyrkju-
deildar í síma 25601 frá kl. 9-12 daglega.
Skriflegar umsóknir sendist til Akureyrarbæjar,
Garðyrkjudeildar, P.O.Box 881, 602 Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 1. júní.
Garðyrkjustjóri.
SAMBANDISLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
lónaóardeild - Akureyri
Markaðsfulltrúi
Iðnaðardeild Sambandsins ullariðnaður óskar
i eftir að ráða markaðsfulltrúa við sölu og
markaðssetningu erlendis.
Viðkomandi þarf að hafa góða tungumálakunn-
áttu. Viðskiptafræði eða hliðstæð menntun æski-
leg svo og reynsla í sölumennsku.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra Glerárgötu
28, 600 Akureyri fyrir 10. júní nk. og gefur hann
nánari upplýsingar í síma 21900.
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900