Dagur - 31.05.1985, Qupperneq 13
31. maí 1985 - DAGUR - 13
tfdu cr gcm au koiiuisi a grænann
ar aðstoðar Ara Ólafssonar og Júl-
íusar Gestssonar, beinasérfræðinga
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri,
Ármanns Gunnarssonar, dýralæknis,
Össurar Kristinssonar, gervilima-
smiðs og fleiri góðra manna við
hjúkrunina. Og brotið er að gróa,
hægt og sígandi.
1 gær mætti Snældu-Blesi í röntg-
enmyndatöku hjá Sigurði Ólasyni og
hans fólki á Röntgendeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Myndirnar staðfestu það sem lækn-
arnir höfðu álitið; brotið var mjög
slæmt, leggurinn hefur kurlast í
sundur og er ekki enn fullgróinn
saman. Allar líkur benda hins vegar
til þess, að Snældu-Blesi verði heill,
þannig að hann geti orðið merum að
gagni. Og að sögn Ara og Júlíusar er
í lagi að halda undir hann nú þegar,
þar sem Blesi er í traustri göngu-
spelku sem Össur Kristinsson smíð-
aði. En það er því miður næsta
víst, að reiðhestur verður hann ekki,
þó ekki sé nerna vegna þess, að fót-
urinn hefur styst um fimm senti-
metra.
Það er ekki á hverjum degi sem
hross koma í myndatöku á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu, þannig að koma
Blesa þangað vakti talsverða athygli.
En Blesi lét allt umstangið ekkert á
sig fá frekar en fyrri daginn. Hann
stóð hinn rólegasti hjá Magna á með-
an á myndatökunni stóð og var hinn
ljúfasti, rétt eins og þetta væri dag-
legt brauð. Hann á að koma aftur í
myndatöku í september og læknarnir
gera sér vonir um að brotið geti verið
gróið þegar líður að næstu jólum.
- GS
Júlíus Gestsson, Ármann Gunnarsson, Magni Kjartansson og Ari Ólafsson
virða fyrir sér árangurinn.
Það þarf víst ekki að kynna hann
Snældu-Blesa, stóðhestinn hans
Magna Kjartanssonar í Árgerði, fyrir
lesendum. Það vita líka allir lesendur
Dags, að hann fótbrotnaði í haust,
nánar tiltekið mánudaginn 1. októ-
ber. Síðan hefur hann fengið frábæra
umönnun hjá Magna og hans fólki í
Árgerði, sem hafa notið ómetanlegr-
Hún er örlitið hreyfð, við verðum að taka
aðra; Ármann Gunnarsson, Ari Ólafsson,
Sigurður Ólason og Margrét Björgvins-
dóttir.
Allt tilbúið - mynda.
Við fáum betri mynd ef við tökum af hon-
um spelkuna.
Jæja Ari minn, þá erum við félagarnir
mættir í myndatökuna.