Dagur - 31.05.1985, Síða 16
Munið að panta borð tímanlega í Smiðju,
því flestar helgar fullbókast.
Ragnar Jónsson spilar fyrir matargesti um helgar.
Grænt Ijós
á Hótel
Goðafoss
„Pessi umsókn hefði þurft að
vera komin þremur árum fyrr,“
var haft eftir einum nefndar-
manna í Ferðamálaráði, er það
hafði samþykkt lánsumsókn
Guðmundar Sigurðssonar og
fleiri varðandi byggingu Hótels
Goðafoss á Akrueyri.
Að sögn Guðmundar kemur
þessi umsókn til afgreiðslu á
fjárlögum næsta árs. Er því
fullvíst að byrjað verður á bygg-
ingu nýja hótelsins í mars á
næsta ári. gej
Verkmenntaskólinn:
Stúdentar
brautskráðir
„Þeir sem eru að ljúka al-
mennu verslunarprófi verða
útskrifaðir á fimmtudag og
föstudag, en þeir sem Ijúka
prófum frá skólanum, sem
veita réttindi til áframhaldandi
náms, eða til starfa, verða út-
skrifaðir við hátíðlega athöfn í
Akureyrarkirkju á laugardag-
inn klukkan hálf tvö,“ sagði
Bernharð Haraldsson, skóla-
meistari Vcrkmenntaskólans,
í samtali við Dag.
Meðal þeirra sem útskrifast
frá skólanum eru fyrstu stúdent-
arnir sem þaðan koma, en auk
þeirra útskrifast nemendur úr
raungreinadeild tækniskóla,
sjúkraliðar, iðnnemar, tækni-
teiknarar, vélstjórar og þeir sem
lokið hafa grunnnámi matvæla-
tæknibrautar. Alls er hér um að
ræða liðlega eitt hundrað manns.
„Námsárangur er margvís-
legur; hér er fólk sem hefur ekki
staðið sig nógu vel, margir hafa
staðið sig vel og nokkrir hafa
staðið sig mjög vel, þannig að
námsárangur gerist ekki betri.
Við erum með allar tegundir af
fólki. Ég sé líka, að sú ólga sem
hefur verið í skólastarfi í vetur
hefur ekki orðið til að bæta ár-
angur nemenda, þótt reynt hafi
verið að bæta úr því með auka-
kennslu á laugardögum. Það er
ljóst að kennaraverkfallið hefur
komið illa við marga nemendur,"
sagði Bernharð. - GS
BMB——a—
Nýkomið
í búsáhaldadeild:
„Það verður líklega hægviðris-
skítur hjá ykkur á morgun laug-
ardag. Vindur nánast enginn
fyrr en líður á daginn, þá snýst
hann í austnorðaustanátt.
Sunnudagurinn verður fuliur af
hægviðri, nánast áttleysu og
hiti verður um 6-7 stig. Við
fáum ekki meiri hita vegna þess
að við erum búin að nota svo
mikið af honum það sem af er
ársins, erum búin með
kvótann,“ sagði morgunhress
vcðurfræðingurinn.
Akureyri, föstudagur 31. maí 1985
Fötur LOL
Balar 45, 55, 65, 80 cm
Körfur 35; 50, 60, 70 cm
Taukörfur
Ruslakörfur, margar gerðir
Vaskaföt 3ja, 5, 7,11 íítra
Uppþvottagrindur
Saumakassar
Áhaldakassar
Ostabakkar
Diskasett
Drykkjarkönnur,
margar gerðir
Barnakoppar o.m.m.fl.
Póstsendum
Lengingaraðgerð
framkvæmd á FSA
ar. Félagið mun á næstu mánuð-
um hefja umboðssölu á fóðri og
tækjum til fiskiræktar frá T.
Skretting a.s. jafnframt því að
veita aðstoð og ráðgjöf við skipu-
lagningu og uppbyggingu fiskeld-
isstöðva á lslandi.
Við laxafóðurframleiðsluna
verður notuð ný tækni sem hefur
verið þróuð á síðustu árum af T.
Skretting í samvinnu viðð Trouw
International í Hollandi sem eru
stærstu fiskfóðurframleiðendur í
Evrópu. Þessi nýja tækni gerir
kleift að framleiða laxafóður sem
er betra að gæðum og hagkvæm-
ara í notkun fyrir laxeldisstöðv-
arnar en það fóður sem mest hef-
ur verið notað til þessa.
Um það bil helmingur af hrá-
efni í laxafóður er hágæðafisk-
mjöl, en í heild mun um 75% af
hráefninu verða af innlendum
uppruna. Talið er að verksmiðj-
an í Krossanesi sé best búna
verksmiðjan hér á landi til að
framleiða fiskmjöl af þeim gæð-
um sem þarf í laxafóður. Þess
má svo að lokum geta að Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðar hefur
unnið mikið starf varðandi undir-
búning að stofnun þessa félags.
gk--
Frágengið er að á miðju næsta
ári eða í síðasta lagi í ársbyrjun
1987 mun hefjast í Krossanesi
á Akureyri framleiðsla á fóðri
fyrir fiskeldi og loðdýrarækt.
Stofnað hefur verið hlutafélag-
ið ISTESS hf. og er tilgangur
þess framleiðsla og sala á fóðr-
inu og skyldur rekstur. Norska
fyrirtækið T. Skretting a.s. á
48% hlutafjár, Kaupfélag Ey-
firðinga 26% og Síldarverk-
smiðjan í Krossanesi 26%.
Stjórnarformaður er Pétur
Antonsson framkvæmdastjóri.
Jafnhliða stofnun félagsins var
gengið frá öllum samningum
varðandi rekstur félagsins með
fyrirvara um endanlegt samþykki
viðkomandi stjórna.
Auk fóðurframleiðslu mun IS-
TESS hf. hafa með höndum ráð-
gjöf og leiðbeiningarstarf á sviði
fiskeldis, en veruleg þörf er þegar
orðin á slíkri þjónustu hérlendis.
Reiknað er með að hátt í 10
manns muni starfa við framleiðsl-
una, og með margfeldisáhrifum
má því ætla að með tilkomu verk-
smiðjunnar muni skapast 20-30
ný störf. Markaðssvæði ISTESS
hf. mun verða ísland og Færeyj-
Halldór Baldursson, yfirlæknir
Bæklunardeildar Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri,
framkvæmdi í gær aðgerð sem
ekki á sér fordæmi hér á landi.
Um er að ræða lengingu á
beini, sem hefur styst við
áverka. Aðferðin er svipuð og
sú sem sovéskir læknar hafa
notað til lengingar á útlimum
og a.m.k. tvö ungmenni frá Is-
landi hafa farið í.
Halldór sagðist ekki neita því
að hér væri á ferðinni athyglisverð
nýjung sem gæti hjálpað ýmsum.
í þessu tilviki hafði fótur rúmlega
Halldór sýnir blaðamönnum teikningu af búnaðinum sem notaður var á FS A
í aðgerðinni í gær. Mynd: KGA
- sú fyrsta þessarar tegundar hér á landi
tvítugs manns styst verulega
vegna fótbrots fyrir nokkrum
árum. Fótleggur fyrir neðan hné
var tekinn í sundur, líkt og brot
hefði orðið, borað í sköflunginn
fyrir nokkrum stálpinnum sem
tengjast hringjum, ekki ósvipað
og teinar í reiðhjóli. Gjarðir
þessar eru síðan festar saman og
með því á að vera hægt að halda
brotinu mjög stöðugu. Smátt og
smátt fyllist síðan í brotið og eftir
því sem það gerist er búnaðurinn
notaður til að strekkja og lengja
beinið. Reiknað er með að beinið
lengist þannig um 5 millimetra á
viku, en meðferðin tekur nokkra
mánuði.
Þar sem þessi búnaður gefur
miklu meiri stöðugleika en t.d.
spelka má búast við að sjúkl-
ingurinn geti farið á fætur í dag
eða á morgun.
Halldór og tveir aðrir læknar
kynntu sér þessa meðferð í Síber-
íu árið 1983 og Halldór fór síðan
til Riga í Lettlandi í mars sl., þar
sem hann fékk tæki sem prófess-
or Kalnberz hefur hannað og
notað. Þessi búnaður er til í ýms-
um útgáfum og sá sem Halldór
notaði er hliðstæður en þó lítil-
lega frábrugðinn þeim sem próf.
Ilizarov hefur notað í Kurgan í
Síberíu. Hann og aðgerðir hans
voru kynntar í sjónvarpinu fyrir
stuttu. HS
Fóðurverksmiðja á Akureyri:
ISTESS í
Krossanesi