Dagur - 16.08.1985, Síða 7
16. ágúst 1985 - DAGUR - 7
- Valdís
Hallgrímsdóttir?
- Jú, það er hún.
Sæl vertu, Valdís.
Hvað segirðu gott?
- Allt fínt. Var
að koma úr góða
veðrinu fyrir sunnan.
- Svo ertu að
koma að utan líka?
- Já, ég fór til Lahti í Finn-
landi, að keppa á vinabæjamóti.
Við vorum 22 frjálsíþrótta-
menn, 24 manna hópur í allt.
Fórum út þann 28. júlí og kom-
um heim 2. ágúst.
- Hvernig gekk?
- Það gekk mjög vel. Mikið
betur en ég bjóst við. Við
höfðum lítinn tíma til æfinga,
byrjuðum að æfa um mánaða-
mót maí-júní. En flestir sem fóru
bættu sig verulega.
- Pannig að þetta hefur bara
verið gaman?
- Já, þetta var mjög
skemmtilegt.
- Þú hefur lengi verið í
íþróttum. Segðu mér af byrjun-
inni.
- Ég byrjaði í fimleikum hjá
Fresti Guðjóns og Önnu
Hermanns, þá var ég bara smá-
polli.
- Lengi í fimleikum?
- Ég tók aldrei þátt í neinni
keppni. Fór einu sinni suður og
var með skólasýningu. Ég hætti
eftir þá sýningu.
- Af hverju?
- Pað var hlegið að mér.
- Af hverju var hlegið?
- Það var einn þjálfarinn sem
mest hló. Honum fannst ég
stirð, ekki of fimleikaleg. Svo ég
lagði fimleikana á hilluna.
- Hvað tók þá við?
- Ég stundaði handbolta á
veturna, en frjálsar íþróttir á
sumrin. Ég keppti fyrir Þór, en
það var engin frjálsíþróttadeild
hjá Þór, þannig að ég gekk til
liðs við KA. Þar lognaðist deild-
in út af og við sem héldum
áfram fórum yfir til UMSE.
- Hvernig stendur á því að
ekki eru frjálsíþróttadeildir inn-
an Akureyrarfélaganna?
- Ég held það sé fyrst og
fremst vegna þess að það vantar
einhverja menn til að standa á
bak við þetta og stjórna. Áhug-
ann vantar ekki. Ég hef verið að
þjálfa á vegum ÍBA í sumar og
það hafa komið um 60 krakkar
á æfingar. ÍB A hefur staðið fyrir
þessu í sumar, m.a. vegna árs
æskunnar og þessa íþróttamóts
í Lahti. En um framhaldið veit
ég ekki. Ég vil samt endilega
reyna að halda þessu áfram og
svo er einnig um Jón Stefánsson
sem hefur verið með mér í
þessu. Mjög áhugasamur. Það
er skrýtið að í 13 þúsund manna
bæ skuli ekki geta þrifist ein
frjálsíþróttadeild. Fólkið sér
ekkert nema boltann.
- Talandi um bolta. Einhvern
tíma varstu í kvennalandsliðinu
í handbolta.
- Já, ég var fyrir sunnan einn
vetur og æfði handbolta með
KR og var þá valin til að æfa
með landsliðinu. Ég spilaði með
í tveimur leikjum við bandarísk-
ar stelpur. Það var mjög
skemmtilegt. En svo fór ég
norður í apríl og datt þá sjálf-
krafa út úr liðinu, því ég gat
ekki stundað æfingar.
- Þú hefur ekki viljað vera
lengur fyrir sunnan ?
- Nei, ég á kærasta hér fyrir
norðan, sem sér ekkert annað
en fótboltann. Hann spilar með
Þór og það þýðir ekkert að fá
hann með sér suður. Enda var
það allt í lagi. Það er svo margt
annað sem ég hef áhuga á hér.
Frjálsíþróttirnar eru númer eitt
hjá mér, svo að mér er alveg
sama að fara aftur heim.
- Ertu búin að vera lengi í
frjálsum ?
- Ég hef æft að staðaldri í 5
ár, en frá 15 ára aldri hef ég ver-
ið að dútla við þær. Ég er aðal-
lega í sprett- og grindahlaupi.
- Er grindahlaupið ekki dá-
lítið erfitt?
- Jú, 400 m grindahlaup er
frekar erfitt. Þetta er mikil
tæknigrein. Maður verður að
vanda mjög skrefin á milli grind-
anna og fá þau til að passa.
- Hvernig er æfingaaðstaða,
t.d. á veturna? Getið þið eitt-
hvað æft ykkur?
- Síðasta vetur fengum við að
vera í 50 m löngum gangi uppi í
íþróttahöll. Þar gátum við
hlaupið yfir nokkrar grindur.
Það bjargaði miklu, en ég veit
ekki um framhaldið. Mér skilst
að þarna eigi að vera kaffitería.
En mér finnst bara skemmtilegt
að æfa við svona aðstæður og ég
held ég geti fullyrt að árangur
okkar er merkilega góður miðað
við þá aðstöðu sem við höfum til
æfinga.
- Eruð þið mörg að æfa?
- Nei, ég er mest ein. Annað
slagið fæ ég vinkonur mínar til
að hlaupa með mér og svo eru
það krakkamir hjá ÍBA.
- Þá eru það kraftlyftingarn-
ar. Þú vaktir mikla athygli í vet-
ur þegar þú tókst þátt í kraftlyft-
ingamóti.
- Það var þannig, að ég
stundaði handbolta á veturna og
frjálsar á sumrin. Til að halda
mér í formi greip ég í lóðin. Síð-
asta vetur var haldið bekk-
pressumót sem ég tók þátt í.
Kári Elíson og Élosi Jónsson
dæmdu og stuttu eftir mótið
hringdi Flosi í mig og spurði
hvort ég væri til í að vera með á
Dagsmótinu. Ég sló til.
- Og vannst?
- Við vorum bara tvær sem
kepptum, sín í hvorum þyngd-
arflokknum. Þannig að það kom
af sjálfu sér.
- Var gaman?
- Alveg ofsalega. Það var al-
veg frábært að keppa í kraftlyft-
ingum. Það er svo góður mórall
og strákarnir vildu allt fyrir okk-
ur gera. Þeir vildu að vel tækist
til svona í fyrstu skiptin og sjálf-
sagt hefur þetta líka verið til-
breyting fyrir þá.
- Ætlarðu að halda áfram?
- Nei, ég er hætt. Kraftlyft-
ingar eru ekki fyrir kvenfólk.
Þær fara svo illa með bakið og
hnén. Það verður víst að viöur-
kennast að við erum veikbyggð-
ari. En þetta er samt mjög
skemmtileg íþrótt.
- Áður en ég segi bless, á að
fara út að hlaupa í kvöld?
- Það er ekki spennandi í
þessari rigningu og vont að taka
spretti, en ætli ég skokki ekki
eitthvað smávegis. ,
- Gangi þér vel og vertu
blessuð.
- Þakka þér fyrir og vertu
sæl. - mþþ
,£trákamir
vildu óbrár
aUtfyrir
okkur gera“
- Valdís Hallgrímsdóttir,
frjálsíþróttamaður, á línunni
jjp
r
I Vín um helgina
Grænmetismarkaður alla helgina,
bæði seint og snemma.
Verðið í lágmarki en gæðin í hámarki.
Munið Vínarísinn, hvergi nema í Vín.
Verið velkomin.
HLH-flokkurinn,
Halli, Laddi
og Björgvin
skemmta
föstudaginn
16. ágúst
frá kl. 10-?
Miðaverð kr. 200
Ritstjórn
Auglýsingar
Afgreiðsla
Sími (96) 24222
DAGUR