Dagur - 16.08.1985, Page 16
Eigum enn laus borð íSmiðju á
laugardag ogíseinni túna á föstudag
Fimm hundmð
Kiwanismenn
með þinghald
á Akureyri
um helgina
Nýta allt gistirými bæjarins
15. umdæmisþing Kiwanis-
hreyfíngarinnar á íslandi
verður sett í Akureyrarkirkju
í kvöld kl. 21.00. í dag munu
fræðslu- og umræðuhópar
starfa, en formlegt þinghald
hefst á morgun í Sjallanum og
lýkur þar með hófí annað
kvöld.
Um 500 manns hvaðanæva af
landinu sækja þingið og mun
þetta vera eitt fjölmennasta
þing sem haldið hefur verið á
Akureyri. Sem dæmi um það
pöntuðu Kiwanismenn upp allt
gistirými á Akureyri fyrir einu
og hálfu ári og að auki þurftu
þeir skólann á Pelamörk.
Meðal gesta á þinginu eru
umdæmisstjóri „Norden“-um-
dæmis, Hans Jakob Björnstad,
og verðandi heimsforseti Kiw-
anis, Frank J. Dinota frá Kalif-
orníu. Umdæmisstjóri íslenska
umdæmisins er Ævar Breið-
fjörð í Reykjavík.
Sigurinn innsiglaður! Sigurður Pálsson skorar annað mark Þórs í leiknum við Fram í gærkvöld ■ og þar með unnu
Þórsarar „sætasta sigur sumarsins“, eins og þjálfari þeirra orðaði það, tvö mörk gegn engu. Sjá nánar á íþróttasíðu.
________________________________________Mynd: KGA.
Ágreiningur í bæjarstjórn um útboð eða ekki útboð vegna Síðuskóla:
Samið við S.S. Byggi sf
I gær staðfesti meirihluti
bæjarstjórnar samning við
S.S. Byggi sf. um að gera 1.
hæð Síðuskóla fokhelda. Áður
hafði verið gerður samningur
við sama fyrirtæki um bygg-
ingu kjallarans samkvæmt til-
boði, en nýi samningurinn er
gerður á grundvelli einingar-
verðs þess. Auk þess var stuðst
við samninga við aðra verk-
taka um hliðstæð verk. Bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Það kom fram í máli bæjarfull-
trúa meirihlutans á fundinum, að
ástæðan fyrir því að rétt þótti að
hætta við útboð, en ganga þess í
stað til samninga við S.S. Byggi,
hafi verið sú, að hætt hefði verið
við tafir á framgangi verksins
með útboði og hugsanlegum
skiptum á verktaka. Verkið þyldi
ekki slíkar tafir. - Það vantar um
5 þúsund fermetra í skólahús-
næði til að fullnægja þörfinni hjá
grunnskólum bæjarins, þannig að
ástæða er til að hraða fram-
kvæmdum, sagði Tryggvi Gísla-
son. í sama streng tóku Sigríður
Stefánsdóttir og Freyr Ófeigsson.
Sigurður J. Sigurðsson átaldi,
að ekki skyldi hafa verið viðhaft
útboð, ekki síst með hliðsjón af
því, að þetta væri stærsta verk-
efnið sem Akureyrarbær færi út í
á árinu. Sigurður sagði útboðs-
skilmála hafa verið tilbúna,
þannig að útboð hefði ekki tafið
verkið. Einnig gagnrýndi Sigurð-
ur, að með þessum samningi væri
farið langt út fyrir þann ramma,
sem fjárhagsáætlun markaði.
Hann dró hins vegar ekki í efa,
þörfina fyrir bygginguna.
Það kom fram í máli Helga M.
Bergs, bæjarstjóra, að samning-
urinn við S.S. Byggi sf. fæli í sér
byggingarkostnað, sem svaraði til
rúmlega 80% af áætlun hönnuða.
Hann gat þess ennfremur, að
samkvæmt samningnum væri
reiknað með framkvæmdum fyrir
um 7,7 m. kr. á árinu, en einung-
is væru til um 1,7 m. kr. til verks-
ins á fjárhagsáætlun. Helgi taldi
líklegt, að verktakinn sæi um að
fjármagna mismuninn fram yfir
áramót. - GS
Olafsfjörður:
Mikið
atvinnuleysi
- Óvíst hvenær úr rætist
í Ólafsfírði eru nú um 150
manns á atvinnuleysisskrá þar
sem fískvinnslufyrirtæki hafa
sagt upp flestöllu starfsfólki
sínu vegna hráefnisskorts.
Frá Ólafsfirði eru gerðir út þrír
togarar, Sigurbjörg, Ólafur
bekkur og Sólberg. Sigurbjörg-
inni hefur verið breytt í frystiskip
og landar hún því ekki nema full-
unnum fiski og hinir togararnir
eru því sem næst búnir með sína
kvóta. Erfitt er að fá keyptan
kvóta og því fyrirsjáanlegt að at-
vinnuleysi verði viðvarandi í
Ólafsfirði nema eitthvað nýtt
komi til. Dagur var í Ólafsfirði í
vikunni og eru nánari fréttir það-
an á síðu 6. -yk.
Plasteignangrun hf.:
Ný gerð af
trollkúlum
væntanleg
Hjá Plasteinangrun hf. á Akur-
eyri er búið að gera teikningar
af nýrri gerð af trollkúlum. Mót
eru væntanleg til verksmiðj-
unnar frá Noregi í september
eða október, og þá er ætlunin
að hefja framleiðslu þegar í
stað. Plasteinangrun hefur
framleitt trollkúlur um margra
ára skeið, en þessi gerð verður
stærri og með meira flot en
eldri gerðir, og þarf því færri
kúlur en hingað til í hverju til-
viki.
Þá hefur verið mjög mikil sala
á fiskkössum hjá Plasteinangrun
nú undanfarið, og það svo að í
steypudeild hefur orðið að vinna
allan sólarhringinn alla sjö daga
vikunnar til að hafa undan. Er
fyrirsjáanlegt að því verður að
halda áfram um nokkurn tíma
enn. Þetta stafar að hluta til af
því að til Færeyja hefur nú
undanfarið verið selt mikið af
kössum, og raunar öðrum fram-
leiðsluvörum líka, svo sem troll-
kúlum og flothringjum.
„Það gengur illa að særa á
ykkur sunnanátt, því um
helgina, sennilega á sunnu-
daginn, má búast við norðan-
átt hjá ykkur aftur, öllu kald-
ari en síðast, og einhver væta
fylgir henni hka,“ sagði
Magnús Jónsson, veður-
fræðingur, í morgun. Þessi
væntanlega norðanátt stend-
ur a.m.k. fram í miðja næstu
viku.
Stómtsala Stórútsala
Vefiiaðarvöradeild, 50% afcl.
Dömudefld, 20-50% afsl.
Bamadefld, 50% afsl.
Herradefld, 25-50% afsl.
Búsáhaldadefld, 50%.
Opið á laugardag.