Dagur - 19.08.1985, Síða 3
19. ágúst 1985 - DAGUR - 3
Gróskumiklir garðar eru í Hrísey
Græn bylting
hjá Hríseyingum
Á síðastliðnu ári og á þessu ári
hefur mikið veriö unnið að
umhverfísmálum í Hrísey. SI.
sumar voru opnu svæðin innan
þorpsins jöfnuð og ræktuð upp
og gróðursettar 2200 trjá-
plöntur. í sumar er búið að
planta 2500 plöntum, sam-
kvæmt upplýsingum Guðjóns
Björnssonar, sveitarstjóra.
Sl. sumar var gróðursetningin
skipulögð, en í sumar gat fólk
komið, tekið sér plöntur og
gróðursett þar sem það vildi.
Sagði Guðjón að það hefði skilað
ágætis árangri, fólk hefði valið
svipaða staði þannig að plönturn-
ar mynda heildir að mestu.
Hríseyjarhreppur á allt land á
suðurhluta eyjarinnar og er það
alfriðað fyrir öllum ágangi búfjár
og hefur verið svo í 10 ár. Þó er
bannið ekki virt að fullu, því eitt-
hvað er af hundum og köttum í
eynni. Sagði Guðjón að á þessum
10 árum sem gróðurinn hefur
verið friðaður væri kominn mikill
víðir, fjalldrapi og fundist hafa
villtar birkiplöntur. Með friðun-
inni og með því að planta mörg
þúsund plöntum á ári er hægt að
gera Hrísey að gróðurparadís á
nokkrum árum.
Vildi Guðjón koma því á fram-
færi að fugl á suðurhluta eyjar-
innar virtist því miður ekki hafa
nógan frið um varptímann. Ef
hann hefði jafn góðan frið og fugl
á norðurhlutanum, gæti orðið
skemmtilegt samspil í náttúrunni
í Hrísey. - HJS
Bændur athugið
Vikuna 17.-23. ágúst mun ég sýna og kynna
INT dráttarvélar.
Haukur Guðmundsson,
Draupnisgötu 7.
Sími 25773.
óskar eftir að ráða fólk til að skrifa fasta þætti í blaðið.
Tilskilin er góð íslenskukunnátta, vélritun og góð almenn
menntun. Um eftirtalda efnisþætti er að ræða, auk þess
sem ábendingar um fleiri eru vel þegnar:
Unglingar
Heimilið
Tómstundir
Menning
Ennfremur óskar blaðið eftir fólki til að skrifa fasta þætti
um sjálfvalið efni.
Umsóknir berist ritstjóra, helst skriflega.
Strandgötu 31, Akureyri.
Sími 24222.
Topptilboð
Nýkomnar smekk-
flauelsbuxur barna
Stærðir 1-4. Margir litir.
Verð aðeins kr. 295,-
Póstsendum.
Eyfjörð S
Hjalteyrargötu 4 ■ simi 22275
Til sölu
er þessi bifreið sem er Benz 0-309 lengri gerð árg.
1980. Uppl. í síma 95-6482 og 95-6474 (Jón).
Útsalan
er í fullum gangi.
Kápur, jakkar, vefnaðarvara.
Miídl yerðlækkon.
Glæsilegt úrval af
/ •
nyjuin
efiium komið.
Góð efni í skólafötin, gott verð.
Verið velkomin.
Opið laugardaga
^ og í hádeginu
alla daga.
Bp
Ecltpse
Skipagötu 14
Framúrakstur á vegum úti krefst kunnáttu og skynsemi. Sá sem ætlar
framúr þarf að gefa ótvírætt merki um vilja sinn, og hinn sem á undan
ekur þarf að hægja ferö. Stefnuljósin er sjálfsagt að nota. Minnumst
þess að mikil inngjöf leiðir til þess að steinar takast á loft, og ef hratt
er farið ökum við á þá í loftinu.