Dagur - 26.08.1985, Qupperneq 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
, SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Litmynda-
framköllun
68. árgangur
Akureyri, mánudagur 26. ágúst 1985
93. tölublað
Jóhann
Pálsson
garðyrkjustjóri
Reykjavíkur
Jóhann Pálsson forstöðumaður
Lystigarðs Akureyrar hefur verið
ráðinn garðyrkjustjóri Reykja-
víkurborgar frá 1. okt. nk. Hann
tekur við af Hafliða Jónssyni sem
gegnt hefur starfinu um langt ára-
bil. Jóhann er grasafræðingur að
mennt. - gej
Innbæjarskipulagið:
Fundur með
íbúum
íkvöld
Skipulagsstjóri Akureyrarbæj-
ar, Finnur Birgisson, hefur
boðað til fundar alla þá er
gerðu athugasemdir við til-
lögur að skipulagi Innbæjarins
og verður fundurinn haldinn í
Dynheimum í kvöld klukkan
20.30.
Seglbrettasigling í Ólafsfirði.
Mynd: KGA.
Atvinnumálin í Ólafsfirði:
Engar „patentlausnir“
fundust á vandanum
Síðastliðinn miðvikudag var
haldinn fundur í Ólafsfirði þar
sem saman voru komnir þing-
menn kjördæmisins ásamt
bæjarráði og útgerðaraðilum
staðarins. Fundarefnið var
ástand atvinnumála í Ólafs-
firði, en þar er sem kunnugt er
mikið atvinnuleysi vegna hrá-
efnisskorts í fiskvinnslu.
Fundurinn var haldinn til að
kynna þingmönnum kjördæmis-
ins ástandið og leita leiða til að
bæta þar úr. Að sögn Ásgeirs Ás-
Blönduós:
Verður hótelinu
lokaö?
- Starfsfólkinu hefur verið sagt upp
Búið er að segja upp öllu
starfsfólki Hótels Blönduóss
frá 1. okt. næstkomandi.
Uppsagnirnar koma í kjölfar
aðalfundar Sölufélags Austur-
Húnvetninga, þar sem ákveðið
var að hætta rekstri hótelsins
frá sama tíma. Sú ákvörðun
var tekin eftir að í Ijós kom að
tap varð á rekstri hótelsins á
síðasta ári. Þó mun endanleg
ákvörðun verða tekin á fundi
sölufélagsins fljótlega.
Að sögn Bessa H. Þorsteins-
sonar hótelstjóra hefur rekstur-
inn verið í járnum undanfarin ár,
en á þessu ári hafi úr ræst og
rekstur gengið vel. Þegar Bessi
var spurður hvort hann teldi að
hótelinu yrði lokað, sagði hann
það sína skoðun að hótelið yrði
rekið áfram. „Það er spurningin
hver taki að sér reksturinn, sölu-
félagið áfram, hóteleigendafélagið
á staðnum eða einhverjir aðilar
sem hugsanlega kæmu inn í
myndina." - gej
geirssonar bæjargjaldkera fund-
ust engar „patentlausnir" á mál-
inu en ýmislegt bar á góma sem
hugsanlega gæti orðið til að
skapa einhverja atvinnu. Þar má
nefna kröfur um að síldarsöltun-
arleyfi verði gefin út fyrr en verið
hefur síðustu ár þannig að síldin
verði ekki komin austur fyrir
land þegar bátarnir fara að veiða
hana. Ef þetta næði fram að
ganga gæti skapast umtalsverð at-
vinna í einhvern tíma við síldar-
söltun. Einnig var ákveðið að
þingmenn og bæjarráð tali við
sjávarútvegsráðherra en hann
hefur þegar lýst því yfir í blaða-
’.-iðtölum að hann geti ekkert
hjálpað Ólafsfirðingum þannig
að við erum „hóflega bjartsýnir“,
sagði Ásgeir.
Fram kom að Magnús Gamal-
íelsson hf. hefur fengið að leita
fyrir sér með kaup á bát en slíkir
bátar liggja ekki á lausu og allra
síst þeir sem eiga einhvern kvóta
eftir. Fjölgun fiskiskipa kæmi
því tæplega að gagni fyrr en á
næsta ári. Einnig er verið að hug-
leiða að nýstofnað fyrirtæki, Sæ-
ver hf. fari út í rækjuvinnslu en
það kemur sömuleiðis varla til
með að veita neinum vinnu fyrr
en á næsta ári. Að öllu þessu
samanlögðu virðist því fátt benda
til að úr rætist að heitið geti í at-
vinnumálum Ólafsfirðinga það
sem eftir er af árinu. -yk.
Að sögn skipulagsstjóra er
þessi fundur haldinn til þess að
gefa íbúum hverfisins færi á að
útskýra sín sjónarmið og sömu-
leiðis til að útskýra fyrir þeim
skipulagstillöguna. Athugasemd-
ir bárust frá íbúum hverfisins í
formi tveggja undirskriftalista og
einnig gerðu einstakir íbúar at-
hugasemdir varðandi þær breyt-
ingar sem lagt er til að verði gerð-
ar í næsta nágrenni við þá. í texta
annars undirskriftalistans er mót-
mælt áformum um byggingu á
bakka Leirutjarnar að norðan-
verðu en hinum listanum fylgdu
almenn mótmæli við skipulagstil-
löguna og var jafnframt farið
fram á að fundur yrði haldinn
með íbúunum til að koma sjón-
armiðum þeirra á framfæri. -yk.
Heitavatnsréttindinn að Hrafnagili:
Samningaviðræður
hefjast á næstunni
- Hreppurinn samningsaðili við Akureyrarbæ
Þann 30. júlí síðastliðinn var
haldinn fundur þar sem bæjar-
ráð Akureyrar og hreppsnefnd
Hrafnagilshrepps komu saman
til að ræða niðurstöður dóms
Hæstaréttar í máli því sem
Hrafnagilshreppur höfðaði
gegn Akureyrarbæ og Hjalta
Jósepssyni til ógildingar á
samningi þessara aðila um
hitaréttindi í landi Hrafnagils.
Fundur þessi var fyrst og
fremst haldinn til að viðra
skoðanir og ræða tilhögun vænt-
anlegra samningaviðræðna
hreppsnefndarinnar og bæjar-
ráðs. Ákveðið var að taka upp
formlegar samningaviðræður um
miðjan næsta mánuð en tíminn
þangað til notaður til undirbún-
ings, eins og segir í fundargerð
bæjarráðs.
Það er yfirlýstur vilji hrepps-
nefndar Hrafnagilshrepps að
ganga inn í samning þann sem
bæjarsjóður gerði á sínum tíma
við Hjalta Jósepsson bónda á
Hrafnagili, að sögn Eiríks Hreið-
arssonar á Grísará sem sæti á í
hreppsnefndinni. Síðan yrði
væntanlega reynt að ná samning-
um við Akureyrarbæ um endur-
sölu Hrafnagilshrepps á réttind-
unum til Hitaveitu Akureyrar.
-yk.