Dagur - 26.08.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 26. ágúst 1985
(Spurt í Ólafsfírði)
Hvað fínnst þér
skemmtilegast í sjón-
varpinu?
Hjörleifur Hjörleifsson:
Tommi og Jenni.
Pálmi Hjörleifsson:
Enska knattspyrnan.
Heiðar Gunnarsson:
He man (Sýnt í videó)
Heiðbjört Gunnarsdóttir:
Ég veit það ekki.
Frá Leipzig til
Fáskrúösfjaröar
- Spjallað við Maríu Kristjánsdóttur leikstjóra
Það verkefni sem Leikfélag
Akureyrar er að hefja æfingar
á nú með haustinu er verk eftir
Charles Dickens og kallast á ís-
lensku „Jólaævintýrið“. Eins
og leikstjóri verksins segir þá
er þetta 19. aldar útgáfa af
„Life Aid“ tónleikum sem ný-
lega voru haldnir beggja vegna
Atlantshafsins, og sýndir voru
að hluta til í íslenska sjónvarp-
inu. Það er að segja Dickens
skrifaði þessa sögu í sama til-
gangi og tónleikarnir voru
haldnir tæpum hundrað og
fimmtíu árum síðar, að styðja
þá sem unnu að því að seðja
hungur manna sem ekki gátu
gert það sjálfir.
Leikstjórinn sem um er rætt og
ætlar að vinna þetta verk er Mar-
ía Kristjánsdóttir og býr á Húsa-
vík. Hún er ekki ókunn leikhús-
inu á Akureyri því hún hefur
unnið tvívegis þar á „fjölunum".
Það tókst að fá Maríu í stutt
viðtal. Slíkt var ekki auðhlaupið
því hún hafði mikið að gera
ásamt tónlistarstjóra sýningar-
innar, Roar Kvam, við að prófa
unga leikara sem mættir voru til
að reyna sig á inntökuprófi ef
má kalla það því nafni.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt því það komu svo
margir krakkar í prufu,“ sagði
María. „Ætli það hafi ekki verið
rúmlega sextíu krakkar sem
komu, og af þeim verða valdir
fjórtán sem fara með söng- og
leikhlutverk í sýningunni."
- Hvað um fullorðna og
reynda leikara?
„Það eru um þrjátíu hlutverk í
leiknum fyrir fullorðna, en fjöld-
inn verður eitthvað minni því það
á að láta einhverja leika fleiri en
eitt hlutverk. Það koma gamlir,
góðir leikarar fram á sviðið að
nýju eftir töluverða fjarveru.
T.d. verður Björg Baidvinsdóttir
með að nýju, einnig Jóhann Ög-
mundsson. Árni Tryggvason
verður síðan í aðalhlutverkinu.
Ekki má gleyma þeim ungu leik-
urum sem eru að stíga sín fyrstu
spor á sviði um þessar mundir.
Það er fólk sem er nýlega útskrif-
að úr leiklistarskólanum. Að
sjálfsögðu verða leikarar félags-
ins í þessari sýningu."
- Fleira starfsfólk?
„Það verður átta eða níu
manna hljómsveit undir stjórn
Roar Kvam, einnig verða dansar
sem Helga Alice mun að öllum
líkindum sjá um. Ingvar Björns-
son nýráðinn ljósameistari hjá
L.A. sér um lýsingu, og Hlín
Gunnarsdóttir sem búsett er á
Ítalíu og hefur unnið þar við leik-
myndagerð sér um það verk fyrir
okkur hér. Eflaust hef ég gleymt
einhverjum, en á þessu sést að
það er mikill fjöldi sem stendur
að einni svona sýningu."
- Um hvað snýst leikurinn?
„Leikritið skrifaði Dickens rétt
fyrir jólin 1843. Eins og áður hef-
ur komið fram gerði hann það í
þeim tilgangi að styrkja þá sem
áttu um sárt að binda vegna fá-
tæktar. Dickens gaf söguna út og
allur ágóði af útgáfunni rann til
þessara góðgerðamála. En
söguþráðurinn er í stuttu máli á
þá leið að gamall auðkýfingur
neitar að taka á móti jólunum og
þeim boðskap sem jólunum
fylgir, og hafnar samskiptum við
annað fólk. Honum birtist draug-
ur sem síðan sendir á hann þrjá
anda sem sýna honum inn í fram-
tíðina, rifja upp fortíðina og á
þann hátt opnast augu gamla
auðkýfingsins fyrir fegurð og
boðskap jólanna. Það má segja
að það sé örlítil draugasaga í
þessu líka vegna draugsins og
andanna.“
Nú hefur María sagt lauslega
frá því hverjir vinni að sýning-
unni með henni, og um hvað
leikurinn snýst, þá er kominn
tími til að vita eitthvað um hana
sjálfa.
María stundaði nám í leikhús-
fræðum í Leipzig og Berlín í
Þýskalandi í fimm ár. Að námi
loknu kemur hún heim sem leik-
húsfræðingur með leikstjórn sem
aukagrein. Fyrsta verkefni sem
María vann að var „Blýhólkur-
inn“ en það var um haustið 1970.
Síðan var hún hjá sjónvarpinu,
og kemur hingað til Akureyrar
1972 og setur upp tvær sýningar.
Aðra hjá Menntaskólanum, en
það var leikritið „Minkarnir" eft-
ir Erling E. Halldórsson, og
„Strompleikinn" eftir Halldór
Laxness hjá L.A. Eftir að María
lauk starfi sínu hjá Leikfélagi
Akureyrar fór hún til frekara
náms í Svíþjóð í eitt ár. Þaðan
fer María til Fáskrúðsfjarðar og
dvelur þar með manni sínum Jóni
Aðalsteinssyni lækni næstu þrjú
árin.“
- Vannstu með leikfélaginu á
staðnum?
„Ég vann eitt verk með þeim.
Það var „Vopn frú Carrar“. Það
var svo skemmtilegt að Guðbjörg
Þorbjarnardóttir kom austur til
okkar og lék aðalhlutverkið.“
María brosir og segir svo: „Ég
man að á þessum sama tíma kom
Leikfélag Akureyrar þarna aust-
ur á leikferð og sýndi „Kristni-
hald undir jökli“ alveg ágæta sýn-
ingu. Og þar hitti ég fólk sem ég
hafði unnið með í „Stromp-
leiknum". Það var svo árið 1977
sem við fluttum til Húsavíkur og
höfum verið þar síðan.“
- Nú hefur verið mikil gróska
í leiklistarlífi á Húsavík. Var það
ekki til þess að þú fórst að vinna
með því félagi?
„Það hefur lengi verið mikil
hefð fyrir leiklist á Húsavík. Þar
hafa verið sett upp tvö til þrjú
verkefni á ári, og aðsókn verið
mikil og góð. En það verður að
segjast eins og er að það hefur
dregið verulega úr aðsókninni.
Ég veit ekki hvers vegna svo er,
en það er ýmislegt annað sem
fólk hefur núna sér til afþreying-
ar. Það má nefna að videó tekur
mikinn tíma frá fólki, svo er mik-
ið álag vegna mikillar vinnu. Þar
af leiðandi minna félagslíf. En
þetta er ekki sérstakt fyrir Húsa-
vík, því svona er þetta um allt
land. En varðandi vinnu mína
með leikfélaginu á Húsavík þá
hef ég leikstýrt einu verki á ári
eða svo. Einnig hef ég verið í
vinnu í Reykjavík hjá leikhúsun-
um þar.“
- Geldurðu þess sem vel
menntaður leikhúsmaður að vera
á Húsavík?
„Eflaust geri ég það, því það er
mest að gera í Reykjavík, svo
það hlýtur að liggja í augum uppi
að svo sé. Hins vegar fer ég alltaf
annað slagið suður til að vinna,
eins og ég sagði áðan.
- Ein spurning í lokin sem
telst klassísk, - hvernig líst þér á
að fara að vinna hjá Leikfélagi
Akureyrar eftir öll þessi ár?
„Mér líst vel á það því þar hef-
ur orðið mikil og góð þróun í
leiklistinni, og góðir leikarar að
vinna hér.“
- María Kristjánsdóttir, takk
fyrir spjallið. - gej
Beðið um svefnfrið
Reiður Þorpari hringdi og vildi
koma eftirfarandi á framfæri:
Nú upp á síðkastið hefur það
ítrekað komið fyrir að ég hef
vaknað upp þegar komið hefur
verið fram á nótt, vegna hávaða
frá verslunarmiðstöðinni í
Sunnuhlíð.
Síðast gerðist þetta nú fyrir
nokkrum dögum og er ég gætti
hverju hávaðinn sætti sá ég ungl-
inga vera að fara þar inn í mynd-
bandaleigu sem í húsinu er. Ég
þykist vita að þeir hafi farið
þarna inn með heimild, enda var
ég áður vitni að því er þeir höfðu
vakið mig upp með hávaða eina
nóttina að lögreglan hafði af-
skipti af þeim en fór síðan í
burtu.
Nú er það ósk mín að eigandi
myndbandaleigunnar sjái til þess
að við sem búum þarna í ná-
grenninu getum haft svefnfrið
fyrir unglingum sem virðast eiga
erindi í leiguna á nóttunni. Það
er varla um mikið beðið og ef
unglingarnir eiga brýnt erindi
þangað á nóttunni þá er það lág-
markskrafa að þeir fari um hljóð-
lega en komi ekki á staðinn öskr-
andi og æpandi og stilli svo tónlist
í húsnæðinu á fullt.