Dagur - 26.08.1985, Page 3
26. ágúst 1985 - DAGUR - 3
Þarf ekki leyfi
lögreglustjóra
- til að rífa niður augiýsingaskilti meðfram vegum
Undanfarið hafa starfsmenn
Vegagerðar ríkisins staðið að
því að rífa niður ýmis auglýs-
ingaskilti meðfram vegum á
Norðurlandi. Nokkrar efa-
semdir hafa komið upp um rétt
Vegagerðarinnar til þessa og
hafði einn vegfarandi samband
við Dag vegna þess máls og
sagði að hann sæi ekki að nein
lög heimiluðu Vegagerðinni að
rífa þessi skilti niður nema að
fenginni skipun frá lögreglu-
stjóra.
í 66. grein umferðarlaga segir
m.a.: „Lögreglustjóri getur
bannað auglýsingaspjöld, ljósa-
auglýsingar, glitaugu og annað,
sem valdið getur hættu eða
óþægindum fyrir umferð.“ Um-
ræddur vegfarandi sagðist ekki
vita til að lögreglustjórar á Norð-
urlandi hefðu bannað uppsetn-
ingu auglýsingaskilta við þjóð-
vegi og að sér þætti vænt um að
vita með hvaða rétti vegamála-
stjóri léti rífa þessi skilti niður.
Guðmundur Svafarsson um-
dæmisverkfræðingur Vegagerðar
ríkisins á Akureyri segist telja að
ekki þurfi að koma til skipun frá
lögreglustjóra um að rífa eigi
þessi skilti niður þar sem í vega-
lögum sé kveðið á um það að
ekki megi setja upp nein mann-
virki, hvorki föst né laus, á svæði
sem nær 20 metra út frá miðlínu
þjóðbrauta og 30 metra frá mið-
línu stofnbrauta, nema að fengnu
Veitingastofa Veitingahús
ES 0
Gististaður Sundstaður
leyfi vegamálastjóra. Þegar slíkt
leyfi liggi ekki fyrir sé Vegagerð-
in því í fullum rétti með að rífa
skiltin niður, ef eigendur gera
það ekki sjálfir.
í reglugerð nr. 414 frá árinu
1978 er kveðið á um það hvernig
umferðarmerki skuli líta út og
þar eru í flokki leiðbeiningar-
merkja, merki sem menn geta
sótt um til vegamálastjóra að fá
að setja upp ef þeir vilja benda á
einhverja þjónustu sem þeir hafa
upp á að bjóða. Þar eru t.d.
merki sem tákna veitingahús,
sundstað, gististað og ýmislegt
fleira. Guðmundur benti á að
menn gætu notað þessi merki í
stað auglýsingaskiltanna. En þá
kviknar spurning um það hver
eigi að greiða fyrir uppsetningu
og viðhald þessara merkja. Eins
og málum er nú háttað er regian
sú að þeir sem óska eftir því að
fá að setja þessi merki upp,
greiða jafnframt fyrir þau og sjá
um viðhald þeirra, en skv. 66.
grein umferðarlaga ætti Vega-
gerðin að sjá um það. Þar segir:
„Kostnað vegna umferðarmerkja
skal sá greiða, sem kostar viðhald
vegar.“ Samkvæmt reglugerð
flokkast þessi stöðluðu, leyfilegu
merki sem umferðarmerki og
þvf er það spurning hvort þeir
sem hafa auglýst sína þjónustu
fyrir yegfarendur með ólöglegum
auglýsingaskiltum, geta ekki
krafist þess að fá sett upp leið-
beiningarmerki á kostnað Vega-
gerðarinnar. -yk.
Skjaldatvík:
Aöstæöur langt í
frá nógu góðar
- þjónustuhópur aldraðra með tillögur um
endurbætur og úttekt verður gerð á staðnum
„Eins og margoft hefur komið
fram þá er ýmsu ábótavant í
Skjaldarvík og aðstæður langt
frá því að vera nógu góðar,“
sagði Valgerður Bjarnadóttir,
formaður heilsugæslustöðvar.
Valgerður lagði fram bréf frá
þjónustuhópi aldraðra á fundi
dvalarheimilastjórnar í sl.
mánuði.
Sagði Valgerður að með stofn-
un heilsugæslustöðvar í vor hefði
jafnframt verið komið á fót þjón-
ustuhópi aldraðra. „Þessi hópur
lét það verða eitt af sínum fyrstu
verkefnum að fara út í Skjaldar-
vík og skoða aðstæður þar. I
bréfi því sem hópurinn sendi
dvalarheimilastjórn kemur fram
að aðstæður eru langt því frá að
vera viðunandi og eins og lög
um málefni aldraðra frá 1982
mæla fyrir um. í bréfinu koma
einnig fram tillögur um hvernig
bæta megi úr, svona í fyrstu
a.m.k. Þar er m.a. lagt til að her-
bergi sem eru þarna uppi á 2.
hæð og upphaflega voru hugsuð
sem starfsmannaherbergi verði
tekin í notkun fyrir vistfólk. En
sá galli er á því, að fólk sem á erf-
itt með gang getur ekki komist
þangað, því stiginn er svo
brattur. Það þarf því að byrja á
að breyta stiganum á einhvern
hátt.“
Að sögn Valgerðar var bréfið
tekið fyrir á sameiginlegum fundi
dvalarheimilastjórnar og bæjar-
ráðs. Eftir fundinn fór bæjar-
ráð út í Skjaldarvík og varð
niðurstaðan sú að gerð yrði út-
tekt á þvf hvað hægt væri að gera
til að bæta aðstæðurnar. Út frá
því yrði síðan gerð einhvers kon-
ar framtíðaráætlun um heimilið.
„Það er búið að samþykkja á
bæjarstjórnarfundi að Gylfi Guð-
jónsson, arkitekt, geri þessa
úttekt. Hann hefur sérhæft sig í
húsnæði fyrir aldraða.“
Var Valgerður spurð hverju
væri helst ábótavant í Skjaldarvík
og sagði hún það vera ótal atriði.
„Húsnæðið er orðið gamalt og
miðað við allt aðrar kröfur en
gerðar eru í dag. Það sem mér
dettur fyrst í hug og ég get
ímyndað mér að þurfi skjótastrar
úrlausnar, er hversu fáar snyrt-
ingar eru á staðnum. Það þarf að
fjölga þeim til muna til að ástand-
ið verði viðunandi. Herbergin
eru flest lítil og því þröngt um
vistmenn. Að vísu er þarna eitt
einbýlishús sem var hugsað fyrir
bústjórann þarna. í því búa núna
nokkrir vistmenn og þar er mjög
heimilislegt og notalegt. En í
gamla húsinu eru flest herbergin
rnjög lítil og sum alveg hræðilega
lítil. Það er lágt til lofts þarna og
lítil birta í kjallaranum. Vist-
menn eru svo margir að borðstof-
an er orðin allt of lítil. Það kom-
ast ekki allir að til að borða,
þannig að sumir verða að borða
á herbergjum sínum eða annars
staðar. Það eru ótal hlutir sem
hægt er að tína til.“
Vistmenn í Skjaldarvík eru í
kringum 80. Akureyrarbæ var
gefið húsnæðið og hann hefur
formlega rekið dvalarheimilið,
en það er rekið á daggjöldum.
„Það hefur lítið verið lagt í við-
hald og endurbætur í Skjaldarvík
undanfarin ár. Það var eitthvað
gert til að byrja með og nú er
ekki um annað að ræða en að
gera eitthvað í málunum," sagði
Valgerður. - HJS
SIEMENS
heimilistæki stór og smá.
Heimsþekkt gæðavara.
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
NÝLAGNIR
VIOGERDIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrarveg. Simi 26400.
Verslið hjá fagmanni.
^mmmmmmmmmmmmnmmmmmmmmmmmmmmmmmmJ
Bændur athugið
Til sölu 3 stórar verkstæöishurðir klæddar áli
meö göngudyrum í stærð: 360 á breidd & 380 á hæð.
Hentugt sem rennihurðir fyrir skemmur og hlöður. Selst ódýrt.
Bílaleiga Akureyrar.
Tryggvabraut 12 • Sími 21715.
Bæsaveiðitíminn
erhafmn
Gæsaflautur, gæsaskot, byssublámi, púðureyðir.
Hreinsisett fyrir riffla og haglabyssur,
CBC haglabyssur 3“ magnum.
Verð aðeins kr. 6.450,-
Brno rifflar og haglabyssur
koma í vikunni.
Opið á iaugardögum kl. 10-12.
Póstsendum.
Eyfjörð
Hjalteyrargotu 4 - simi 22275
Auglýsing i Degi
BORGAR SIG
Hvað er góö auglýsing? Allir auglýs-
endur borga fyrir að fá auglýsingu
birta íblööum. Hvers vegna auglýsa
fyrirtæki þá vöru sína? Jú, til þess
að hún seljist. Þannig er hægt að
láta auglýsingu borga sig. En þaöer
ekki sama í hvaða blaði auglýst er,
því mórg hafa litla útbreiðslu og fáa
lesendur. Dagur hefur aftur á móti
mikla útbreiðslu og lesendur eru
fjölmargir.
Það borgar sigþví að auglýsa iDegi,
þar eru allar auglýsingar góðar
lýsingar.