Dagur - 26.08.1985, Síða 4
i <"* a fy
4 - DAGUR - 26. ágúst 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 250 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 30 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON, YNGVI
KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, MARGRÉT Þ.
ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
_____________PRENTUN: DAGSPRENT HF._____
Hagsmunagæsla
utanríkisráðherra
Deila sjálfstæðisráðherranna tveggja um kjöt-
málið, Geirs Hallgrímssonar utanríkisráð-
herra og Alberts Guðmundssonar fjármála-
ráðherra, komst á býsna skoplegt plan í síð-
ustu viku. Ágreiningurinn varð ekki leystur á
ríkisstjórnarfundi sem haldinn var um málið.
Þess í stað var þess farið á leit við bænda-
samtökin að þau stefndu utanríkisráðherra
fyrir dómstóla svo unnt væri að fá úr því skor-
ið hvor hefði nú rétt fyrir sér, Albert eða Geir.
Albert sætti sig illa við þessa niðurstöðu
málsins, rýndi betur í varnarsáttmálann, og
komst að þeirri niðurstöðu, að ekki aðeins
væri varnarliðinu bannað að flytja hrátt kjöt
til landsins, heldur skyldi það einnig fara að
gjaldeyrislögum og nota íslenska peninga í
viðskiptum á Vellinum og almennt hér á
landi.
Það er miður að ríkisstjórnin skyldi ekki
hafa treyst sér til að leysa þetta mál í sam-
ræmi við ótvíræðar íslenskar lagareglur. Lög-
in um bann við innflutningi á kjöti til varnar
alidýrasjúkdómum hafa verið framkvæmd allt
frá því að þau voru sett, nema gagnvart varn-
arliðinu á Keflavíkurflugvelli. Lögin eru ekki
úr gildi fallin vegna notkunarleysis af þessum
sökum. Ef menn ætla að bera því við að venju-
réttur hafi skapast í þessu máli gagnvart
varnarliðinu, þá eru menn einfaldlega að
segja að tvenn lög séu í landinu. Eða með
öðrum orðum að bandaríska vamarliðið sé sett
ofar íslenskum lögum, sem landsmenn verða
hins vegar að hlíta. Þessi lagaskýring utanrík-
isráðherra er gjörsamlega út í hött.
Þórarinn Þórarinsson, fyrrum alþingismað-
ur og formaður utanríkismálanefndar, hefur
bent á það að hér sé svo stórt mál á ferðinni,
að ekki sé rétt að eiga það undir dómstólum
hvort hér gildi lög gegn alidýrasjúkdómum,
frekar en hægt var að láta útfærslu fiskveiði-
lögsögunnar undir úrskurð Alþjóðadómstóls-
ins á sínum tíma. Dómarar eru oft ósammála
og þá ekki síst þegar svokallaður venjuréttur
er til umfjöllunar. Þórarinn bendir á að undir
þessum kringumstæðum sé Alþingi eini aðil-
inn til að fjalla um þetta mál með réttum
hætti og skera ótvírætt úr því, hvort það vill
hafa í gildi lög af þessu tagi.
Þórarinn Þórarinsson bendir einnig á það,
að Geir Hallgrímsson hafi haldið fram ís-
lenskum málstað í deilunni um flutninga á
vörum til varnarliðsins frá Bandaríkjunum.
Þá hafi hins vegar stórfyrirtækin Eimskip og
Hafskip verið annars vegar. Hér séu það bara
bændurnir. Svo vildi til að hagsmunagæsla
utanríkisráðherra fyrir skipafélögin fór saman
með íslenskum hagsmunum. Hagsmuna-
gæsla hans fyrir varnarliðið er hins vegar
andvíg íslenskum hagsmunum.
^svs-Uííí,
ÆíímíiímIí
WPf » » »< » »•
„Einn þorskurinn var
alveg ódrepandi"
i
Spjallað við systkinin Guðjón og Auði Báru Ólafsbörn
„Við veiddum fjóra físka í
morgun og einn eftir hádegi,“
sögðu systkinin Guðjón og
Auður Bára Ólafsbörn, sem
blaðamenn hittu á bryggjunni
á Árskógssandi.
Þetta voru áhugasamir krakk-
ar og sólin skein. Bráðum kæmi
Hríseyjarferjan. Á bryggjunni
maður að keyra lyftara.
„Einn þorskurinn sem ég
veiddi í morgun var alveg
ódrepandi," sagði Guðjón. „Ég
var búinn að margstinga hann,
hér og hér og þarna,“ og Guð-
jón sýnir blaðamönnum alla
staðina sem hann hafði stungið
þorskinn. „Svo var ég búinn að
blóðga hann, en samt var hann
lifandi. Það endaði með því að
ég steig ofan á hann og þá loks-
ins drapst hann,“ sagði hinn
glaðbeitti Guðjón.
- Eruð þið að veiða í soðið?
„Já, við erum að veiða fyrir
ömmu. Við erum frá Reykjavík
en erum í sumarfríi hjá ömmu
okkar hér á Árskógssandi,"
sagði Auður Bára.
„Við komum hingað á hverju
sumri," bætir Guðjón við.
- Er gaman hérna?
„Já, það er stundum gaman
og stundum ekki,“ svarar
Guðjón.
- Hvenær er ekki gaman?
„Hvenær? Ég man það ekki.
Kannski bara aldrei.“
- Hafið þið nokkuð dottið í
'sjóinn?
„Nei, aldrei,“ segja þau.
„En ég hef synt í sjónurn,"
sagði Guðjón. „Það var strákur
á bát þarna úti og ég synti frá
fjörunni og til hans. Mér var
ískalt. “
- Fékkstu kvef?
„Nei, ég fékk ekkert kvef. Ég
verð aldrei kvefaður.“
Smá þögn á bryggjunni, ferj-
an nálgast.
„Hey, ég er með hann,“
hrópaði Guðjón. Einbeittur fór
hann að draga línuna inn. „Það
var bara fast í botni, enginn
fiskur."
En systir hans dró einn mar-
hnút að landi. Honum var um-
svifalaust hent út í sjó aftur.
Ekkert með hann að gera.
- Er gaman að veiða,
krakkar?
„Alveg svakalega garnan."
- Ætlið þið að verða hrefnu-
veiðisjómenn þegar þið eruð
orðin stór?
„Nei.“
Og þá var ferjan komin og
við fengum ekki að vita hvað
þau ætla að gera þegar þau eru
orðin stór. - mþþ
Menningarstofnun Bandaríkjanna:
Yfirlitssýning á
heilsugæslutækjum
Menningarstofnun Bandaríkj-
anna stendur fyrir yfirlitssýningu
á tækjum og öðru er varðar
heilsugæslu almennt, í samkomu-
sal Domus Medica v/Egilsgötu.
Sýningin verður formlega opn-
uð mánudaginn 26. ágúst og opin
daglega dagana 27/8 til 10/9 frá
kl. 14-22.
Sýningin er einkennandi fyrir
þjóðfélag þar sem einstaklingur-
inn getur valið hjúkrunarleið án
mikilla ríkisafskipta.
Sýningin lýsir jieim stofnunum
og tæknifyrirtækjum sem standa
á bak við heilsugæsluna í Banda-
ríkjunum, þróun sérfræðinga í
heilsugæslunni og auknar rann-
sóknir vegna aukinna krafna.
Sýningin lýsir og hvernig heil-
brigðiskerfið er aðlagað vænt-
ingum Bandaríkjamanna, lífi
þeirra á tækniöld og þeim breyt-
ingum sem því fylgir. Sýnt er
hvernig tæknin hefur innreið sína
einnig í læknavísindin.
Sérstök áhersla er lögð á þá
staðreynd að flest öll heilsugæsla
og tryggingarstofnanir eru rekin
af einkafyrirtækjum. Hið opin-
bera í Bandaríkjunum styður
grunnrannsóknir á flestum svið-
um læknisfræðinnar en það eru
einkafyrirtækin sem koma þess-
um rannsóknum öllum til hag-
nýtra nota í víðri veröld.
Sýning þessi er jafnt sýning eða
frásögn um hið frjálsa markaðs-
kerfi sem og frásögn um heilsu-
gæslu og læknisfræði.