Dagur - 26.08.1985, Page 9
rt ca fr ♦ - <\ .> «\ ao r? D»A f í .. o
26. ágúst 1985 - DAGUR - 9
1000 manns
fóm með
Hríseyjarfeijunni
yfir eina helgi
Mikið hefur verið um ferða-
menn í Hrísey í sumar. í júlí
fóru 5300 manns með Hríseyj-
arferjunni, sem er mesti fjöldi
á einum mánuði hingað til.
Um verslunarmannahelgina
fóru 1000 manns á miUi lands
og eyjar og 13 fyrstu dagana í
ágúst voru farþegar með ferj-
unni orðnir 3150. Til gamans
má geta þess að allan ágúst-
mánuð á sl. ári voru farþegar
4360.
Guðjón Björnsson, sveitar-
stjóri í Hrísey segir aukinn ferða-
mannastraum vera í eyna. í eynni
er tjaldstæði og svefnpokapláss í
gamla skólanum. En betur má ef
duga skal og fleira vantar fyrir
ferðamenn sem koma í eyna.
T.d. vantar merktar gönguleiðir,
en að sögn Guðjóns er verið að
reyna að bæta úr því.
Sagðist Guðjón láta sig dreyma
um að útbúa svæði neðan við
kaupfélagið með trjágróðri og
sætum, þar sem fólk gæti tyllt sér
niður eftir skoðunarferð um
eyna. - HJS
Vel heppnaðir tónleikar á Akureyri og Húsavík og þeir þriðju fyrirhugaðir á Sauðárkróki
Tónleikar undir yfirskriftinni
„Norðlenskir tónar“ voru
haldnir í Samkomuhúsinu á
Akureyri á fyrri hundadaga-
hátíð, en þeir fóru framhjá
mörgum. Þrátt fyrir það voru
þeir þokkalega sóttir og tókust
vel. Þessir tónleikar voru síðan
endurteknir í Húsavíkurkirkju
um fyrri helgi og þar var þétt
setinn bekkurinn og lista-
mönnunum frábærlega vel
tekið.
Samvinnuferðir:
Hópferð á alþjóð-
lega sjávarútvegs-
sýningu í Frans
Flytjendur „Norðlenskra tóna“
eru Hólmfríður Benediktsdóttir,
sópran, Jóhann Már Jóhannsson,
tenor, Michael J. Clarke, bari-
ton, Þuríður Baldursdóttir, alt,
og pfanóleikararnir Kristinn Örn
Kristinsson og Soffía Guðmunds-
dóttir.
Á efnisskránni eru eingöngu
lög eftir norðlenska höfunda.
Jóhann syngur lög eftir Skagfirð-
ingana Pétur Sigurðsson, Eyþór
Stefánsson og Jón Björnsson.
Michael og Þuríður syngja lög
eftir Eyfirðingana Björgvin Guð-
mundsson, Stefán Ágúst Krist-
jánsson, Jóhann Ó. Haraldsson,
Birgi Helgason, Ragnar Helga-
son og Áskel Jónsson. Hólm-
fríður syngur svo lög sinna
heimamanna, þeirra Steingríms
Birgissonar, Páls H. Jónssonar
og Sigurðar Sigurjónssonar.
Saman syngja þær Hólmfríður og
Þuríður lag eftir Elísabetu Jóns-
dóttur og Jóhann Már og Michael
syngja saman lög eftir Eyþór
Stefánsson, Áskel Jónsson og
Sólsetursljóð Bjarna Þorsteins-
sonar. Það eru sem sé norðlensk-
ir listamenn, sem kynna sönglög
eftir norðlenska höfunda.
Michael Clarke átti hugmynd-
ina að þessum tónleikum. Hann
heyrði auglýst eftir hugmyndum
um dagskráratriði á hundadaga-
hátíð. Það varð til þess að hann
hóaði í Jóhann, Þuríði, Hólm-
fríði, Kristin og Soffíu og allir
voru tilbúnir í slaginn. Tón-
leikarnir voru síðan haldnir með
pomp og prakt í Samkomuhúsinu
og síðar var ákveðið að endur-
taka þá á Húsavík. Nú hefur ver-
ið ákveðið að halda þriðju tón-
leikana á Sauðárkróki og verða
þeir að líkindum haldnir í Bifröst
sunnudaginn 1. september.
Samvinnuferðir-Landsýn efna til
hópferðar á alþjóðlegu sjávarút-
vegssýninguna í Nantes í Frakk-
landi dagana 12.-16. september
næstkomandi. Hér er kjörið tæki-
færi fyrir þá sem starfa að sjávar-
útvegi að kynnast nýjum mörk-
uðum og viðhorfum.
í ár mun verða lögð rík áhersla
á fiskirækt ýmiss konar svo sem
ræktun á ostrum, kræklingum,
rækjum og ýmsum öðrum sjávar-
dýrum. Hér er því tækifæri fyrir
þá sem starfa að sjávarútvegi,
markaðsöflun og fiskirækt að
kynnast nýjungum í þessari at-
vinnugrein.
240 fyrirtæki frá 18 löndum
tóku þátt í síðustu sýningu sem
haldin var 1983. Sýningin er hald-
in á 10.000 mJ sýningarsvæði rétt
fyrir utan hina fögru borg Nantes
á vesturströnd Frakklands.
Hér gefst einstakt tækifæri til
að kynnast nýjum og athygl-
isverðum mörkuðum, mörkuðum
sem íslendingar hafa ekki haft
náin tengsl við fyrr. Á sýningunni
eru til sýnis tæki í fiskiskip og
fiskiðjuver svo og tæki til flutn-
inga og geymslu sjávarafurða.
Þá taka þátt í sýningunni ýmsar
stofnanir tengdar sjávarútvegi.
Eins og áður hefur komið fram
verður lögð mikil áhersla á fiski-
rækt ýmiss konar. Á meðan á
sýningunni stendur verða nokkr-
ar fiski- og skelfiskræktarstöðvar
skoðaðar.
Frakkar eru miklir fiskneyt-
endur og því er franski markað-
urinn mjög athyglisverður fyrir
íslenska framleiðendur.
Hér er um að ræða' 7 daga ferð -
og verður dvalist nokkra daga í
París. Á meðan dvalist verður í
Nantes verða skipulagðar skoð-
unarferðir um hina fornu og
fögru borg Nantes og Leirudal-
inn, sem talinn hefur verið ein
fallegasta sýsla Frakklands - og
liefur veri kölluð „Kastalasýslan"
vegna þess fjölda kastala sem eru
í sveitum sýslunnar.
Nánari upplýsingar urn þessa
ferð verða veittar á skrifstofu
Samvinnuferða-Landsýnar,
Austurstræti 12, símar 91-27077
og 28899.
Eigendur Kotsins, Bjarni og Hildur, ásamt starfsfólkinu, Stefáni Höskuldssyni og Sif Georgsdóttur.
Kot - ný verslun
Á föstudaginn var.opnuð ný Hildur Stefánsdóttir og Bjarni versk bómullarföt, ýmiss konar
verslun að Hafnarstræti 88, og Tómasson. gjafavörur og snyrtivörur unnar
heitir Kotið. Eigendur eru í Kotinu er verslað með ind- úr náttúrlegum hráefnum.
Þuríður Baldursdóttir, Jóhann Már Jóhannsson, Hólmfríður Benediktsdóttir, Krístinn Örn Kristinsson, Soffía Guðmundsdóttir og Michael Clarke.
„Norðlenskir tónar“ gera lukku