Dagur - 26.08.1985, Side 11
26. ágúst 1985 - DAGUR - 11
Viðskipta- og tölvublaðið:
Leó rit-
stjóri
Leó M. Jónsson hefur verið ráð-
inn ritstjóri tímaritsins Við-
skipta- og tölvublaðsins, og hefur
hann þegar hafið störf. Fyrsta
tölublaðið undir ritstjórn hans
kemur út í september næstkom-
andi.
Leó er fæddur í Reykjavík 7.
mars 1942. Hann stundaði nám í
Vélskóla íslands, Bergen Tekn-
iske Skole í Noregi og tók loka-
próf í véla- og rekstrartæknifræði
frá Stockholms Tekniska Institut
árið 1969 og lagði að auki stund
á framhaldsnám í framleiðslu-
stýritækni og sjálfvirkni. Starfaði
sem tæknifræðingur hjá ÍSAL hf.
1969-1971 og síðan við sjálfstæð
ráðgjafastörf til 1974. Deildar-
tæknifræðingur hjá Iðnþróunar-
stofnun íslands til 1978 og rit-
stjóri tímaritsins Iðnaðarmála
1975-1978. Stundaði stunda-
í vinnurannsóknum, skipulags-
tækni og verkáætlanagerð á veg-
um Iðnþróunarstofnunar, Verk-
stjórnarfræðslunnar, og Stjórn-
unarfélags íslands sl. 10 ár. Auk
ráðgjafastarfa hefur Leó svo
einnig haft umsjón með og ann-
ast þýðingar á efni um tækni og
vísindi fyrir blöð, tímarit og fyrir-
tæki auk sjálfstæðra ritstarfa.
Leó var framkvæmdastjóri Skrif-
stofutækni hf. 1981-1984.
Eiginkona hans er Sigrún D.
Jónsdóttir, ritari hjá íslenskum
aðalverktökum hf. og eiga þau
þrjú börn.
Viðskipta- og tölvublaðið
nefndist áður Tölvubíaðið, og
hefur það komið út síðan 1982.
Að undanförnu hefur verið unnið
að breytingum á ritinu í þá veru
að það flytji auk tölvufrétta og
greina margvíslegt efni úr við-
skipta- og atvinnulífi, og hefur
nafni ritsins því verið breytt.
Tímaritið
„Þroskahjálp“
komið út
Tímaritið Þroskahjálp 2. tölu-
blað 1985 er komið út. Útgef-
andi er Landssamtökin
Þroskahjálp.
í ritinu er að finna ýmsar grein-
ar, upplýsingar og fróðleik um
málefni fatlaðra. Sem dæmi um
efni má nefna: Viðtal við foreldra
sem eiga þroskaheftan son og
viðtal við ungan mann sem bjó á
Kópavogshæli frá unga aldri en
býr núna í sambýli. Hann segir
m.a. frá skólagöngu sinni í Rétt-
arholtsskólanum og áhuga sínum
á að verða rafvirki. Baldur
Guðnason, frjálsíþróttamaður,
sem er fatlaður eftir slys, skýrir
frá því hvað íþróttir eru mikilvæg-
ur þáttur í lífi fatlaðra.
Greint er frá ráðstefnu um
frístundir vangefinna sem haldin
var í maí sl., en þar voru van-
gefnir með framsögu. Sálfræð-
ingarnir Tryggvi Sigurðsson og
Evald Sæmundsson skrifa um
neyslu á risaskömmtum af víta-
mínum og steinefnum hjá börn-
um með Down syndrome. í
greininni sem þeir nefna „Ný von
eða blekking“ er m.a. skýrt frá
rannsókn sem unnin var í Banda-
ríkjunum nýlega.
Af öðru efni má nefna: Grein
um barnaeinhverfu í samantekt
Jónu Ingólfsdóttur, „Að lokinni
hjálpartækjasýningu“ eftir Unu
Steinþórsdóttur, „Opið bréf til
foreldra fatlaðra“ skrifað af Dóru
S. Bjarnason og „Oft er þörf en
nú er nauðsyn" - hugleiðingar
Halldóru Sigurgeirsdóttur af ný-
afstaðinni umfjöllun um frístund-
ir vangefinna.
Staða skólastjóra
við Þjálfunarskóla ríkisins á Akureyri er
laus til umsóknar.
Nánari upplýsingar hjá Gunnhildi Bragadóttur,
Akureyri (Sími 96-22054) eða hjá Magnúsi Magn-
ússyni, sérkennslufulltíúa, menntamálaráðuneyt-
inu, (Sími 91-25000).
Menntamálaráðuney tið.
Laus staða
Við embætti bæjarfógetans á Akureyri og Dalvík
og sýslumannsins í Eyjafjarðarsýslu er laus til
umsóknar staða aðalbókara.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins. Ráðið verður í stöðuna frá næstu ára-
mótum eða jafnvel fyrr.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 19.
september 1985.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
22. ágúst 1985.
Elías I. Elíasson.
Landsþing
framsóknarkvenna
Annað landsþing Landssambands framsóknar-
kvenna verður haldið að Laugarvatni dagana 31.
ágúst og 1. september næstkomandi.
Dagskrá þingsins er eftirfarandi:
Laugardagur 31:
Kl. 10.00 Þingsetning: Sigrún Sturludóttir formaður.
Kjör embættismanna þingsins.
Skýrsla stjórnar:
a) Skýrsla formanns, Sigrúnar Sturludóttur.
b) Skýrsla gjaldkera, Drífu Sigfúsdóttur.
Umræður um skýrslu stjórnar.
Kl. 11.00 Ávörp gesta.
Kl. 12.00 Hádegiserindi.
Kl. 13.00 Framsöguerindi:
Framboðsmál - Sigrún Magnúsdóttir.
Kl. 13.50 Launamál kvenna
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir,
Gerður Steinþórsdóttir.
Kl. 13.50 Fjölskyldupólitík
Þórdís Bergsdóttir.
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Kl. 14.30 Umræður um framsöguerindi.
Kl. 15.15 Kaffihlé (vörukynning verður i kaffihléi).
Kl. 16.20 Hópstarf.
Kl. 20.00 Kvöldverður.
Kl. 22.00 Kvöldvaka í umsjá Félags framsóknarkvenna
í Árnessýslu.
Nætursnarl.
Sunnudagur 1. september:
Kl. 8.00 Gufubað.
Kl. 9.00 Morgunverður.
Kl. 10.00 Erindi:
a) Stjórnmálaástandið - Valgerður Sverrisd.
b) Stjórnmálaþátttaka kvenna - Drífa Sigfúsd.
c) Hvernig efla má starf L.F.K. -
Unnur Stefánsdóttir.
Kl. 10.45 Umræður um erindi.
Kl. 12.30 Hádegisverður.
Kl. 14.00 Niðurstöður umræðuhópa kynntar.
Kl. 15.00 Umræður og afgreiðsla mála.
Kl. 16.00 Kaffihlé.
Kl. 17.00 Kosningar.
Kl. 18.00 Þingslit.
Ráðstefnan fer eins og áður sagði fram í Húsmæðraskólan-
um að Laugarvatni og þar er hægt að fá gistingu í tveggja
manna herbergjum á kr. 1.485. Einnig er hægt að fá svefn-
pokapláss á kr. 200. Matur báða dagana kostar kr. 2.085.
Rútuferð verður frá Hótel Hofi, Rauðarárstíg 18 kl. 7.45 að
morgni laugardagsins 31. ágúst.
Þátttöku skal tilkynna í síma (91)24480 og þarfást allar nán-
ari upplýsingar um ráðstefnuna.
kemur út þrisvar í viku,
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
Dansstudio Alice
Tryggvabraut 22
óskar eftir íþrótta-, leikfimi- eða danskennara í
vetur til að kenna t.d. Aerobic o.fl. nokkra tíma í
viku.
Uppl. í síma 25590.
Ðílarafmagn
Leitum að laghentum og snyrtilegum bifvélavirkja
eða rafvirkja, til viðgerða á rafkerfum bifreiða.
Norðurljós
Furuvöllum 13
sími 25400.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
óskar að ráða
sjúkraliða
í 1/2 starf í Sel I.
Vinnutími er frá 17.00 til 21.00 alla virka daga.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22100.
Súkkulaðiversmiðjan Linda auglýsir:
Óskum að ráða
nokkrar stúlkur
til verksmiðjuvinnu nú þegar.
Reglusemi áskilin.
Upplýsingar veittar á skrifstofu Lindu hf. (ekki í
síma)
Súkkulaðiverksmiðjan Linda.
^ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
Iðnaðardeild - Akureyri
Óskum eftir að ráða
flokkstjóra í skinnaiðnað
Góð enskukunnátta æskileg.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra fyrir 1. sept-
ember og gefur hann nánari upplýsingar í síma
21900 (220-222).
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Simi (96)21900
Sérkennslu-
Skólanefnd Akureyrar óskar eftir að ráða starfs
mann að tilraunaverkefni, ólíku hefðbundnu skóla-
starfi. Sérkennara- eða kennaramenntun æski-
legust.
Nánari upplýsingar veitir Fræðsluskrifstofa
Norðurlandsumdæmis eystra Furuvöllum 13,
sími 96-24655.