Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 2

Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 29. október 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 35 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GÍSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFÍ KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDIS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Ueiðari.______________________________________ Að höggva á hnútinn Lög þau sem Alþingi samþykkti til að stöðva verkfall flugfreyja olli töluverðum deilum og menn voru ekki á eitt sáttir um nauðsyn þeirra eða ágæti. Tvennt ber að hafa í huga þegar þessi laga- setning er skoðuð. Annars vegar hvernig staðan var í kjaradeilunni þegar lögin voru sett og hins vegar hvað lögin fela í sér. Aður en lögin voru sett hafði ríkissáttasemjari haft samband við báða deiluaðila og þeir verið sammála um að þýðingarlaust væri að koma með sáttatillögu því svo mikið bæri á milli. Frumvarpið snerist því um að stöðva verkfallið fram að áramótum, en þá renna allir samningar úr gildi og eðlilegt að taka afstöðu til kjarasamn- inganna í heild. Alþingi var ekki að gerast dóm- ari í málinu um kaup og kjör flugfreyja heldur þvert á móti að tryggja að flugfreyjur fengju sambærilega hækkun fram að áramótum og aðrir hafa fengið. í 2. grein frumvarpsins segir: „Kjaradómur skal við ákvörðun kaups og kjara flugfreyja hafa til viðmiðunar við úrskurð sinn síðastgildandi kjarasamning aðila, almennar kaup- og kjarabreytingar sem orðið hafa síðan hann tók gildi svo og breytingar á launum ann- arra starfsmanna Flugleiða hf.“ Enginn getur sagt til um hversu lengi verkfall- ið hefði staðið ef Alþingi hefði ekki gripið inn í. En ljóst er að flugfreyjur hefðu þurft þeim mun meiri hækkun því lengur sem verkfallið hefði varað. Ávinningur af verkfalli er nefnilega oft á tíðum lítill ef verkfallið er langt. Það vita félagar í BSRB. Með lagasetningunni var ekki verið að sam- þykkja sáttatillögu heldur einungis að vísa deil- unni til kjaradóms. Það var því út í hött að tefja málið eins og einstaka stjórnarandstöðuþing- menn gerðu, á þeim forsendum að meiri upplýs- ingar þyrfti og að þarna væri verið að auka enn á launamismun kynjanna! Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Alþýðu- flokks, færði engin rök fyrir máli sínu en hélt uppi málþófi fram eftir nóttu. Af fyrirspurnum hennar mátti ráða að hún hafði alls ekki lesið frumvarpið yfir. Hún las upp úr bók um launa- mismun kynjanna og einn kaflann las hún þrisvar. Sumir sjá skrattann í hverju horni og gera ekki greinarmun á jafnréttisbaráttu og al- mennri kjarabaráttu. Alþingi taldi sig knúið til að grípa í taumana og stöðva verkfall flugfreyja. Það var gert til að höggva á þann hnút sem deilan var komin í. En það var einnig gert til þess að gífurlegum hags- munum yrði ekki stefnt í voða. Samgöngur til og frá landinu verða að vera traustar og áreiðanleg- ar. Annars er allt það mikla uppbyggingarstarf sem unnið hefur verið í ferðamannaiðnaði fyrir bí. Lagasetning var nauðsynleg eins og málin stóðu og það er ábyrgðarleysi að halda öðru fram. BB. _viðtal dagsins. „Það var sólmyrkvi þegar ég fæddist" - Oliver Kentish sellóleikari og tónskáld í viðtali dagsins „Ég og mín fjölskylda erum hér enn vegna þess að við feng- um ekki húsnæði í Reykjavík sem okkur hentaði. Það var farið fram á svo miklar fyrir- framgreiðslur að við réðum ekki við það,“ sagði maðurinn í viðtali dagsins í dag, Oliver Kentish sellóleikari og tónlist- arkennari. Eins og nafnið gefur til kynna er maðurinn ekki ís- lenskur. Oliver er Englending- ur eða Breti eins og margir kalla Englendinga. „Ég er fæddur í London og bjó þar allan tímann sem ég var í Englandi. Ég er fæddur á Hamm- ersmith hospital 25/6 1954. Mér er sagt að það hafi verið sól- myrkvi þann dag. Ekki held ég að það hafi haft nein áhrif á mig,“ segir Oliver og hlær við. Eins og ég sagði átti ég heima í London og alltaf á sama stað, eða nánar tiltekið í Notting-Hill Gate hverfinu, sem sumir segja að sé í Kensington, en það eru bara þeir sem vilja búa í fínu hverfi." - Æskan í London? „Góð og skemmtileg. Ég man alltaf eftir karnivali sem íbúar frá Vestur-Indíum og fleiri stöð- um í suðurhöfum héldu og halda enn. Það var í fyrsta skipti sem svertingjar héldu verulega saman og unnu að einhverju í samein- ingu. Því miður voru einhverjir sem reyndu að notfæra sér þessa skemmtun til að ota saman hóp- um af mismunandi kynstofnum. Það endaði allt með óeirðum og blóðsúthellingum. Það voru utanaðkomandi menn sem stóðu fyrir óeirðunum. Eins og margir aðrir strákar á mínum aldri fór ég í gegnum venjulegan barnaskóla til 11 ára aldurs. Þá fór ég í drengjaskóla þar sem ég byrjaði í tónlist. Fyrst ætlaði ég að læra á óbó, en hætti því fljótlega vegna þess að kenn- arinn mætti illa og ég var oft með tyggjó í tímum og gat illa blásið og tuggið í einu.“ Nú hlær Oliver við tilhugsunina. Það varð til þess að ég skipti um hljóðfæri og byrj- aði á sellóinu með píanó sem aukahljóðfæri." - Varstu neyddur til að læra á hljóðfæri? „Alls ekki. Að vísu vildi mamma mín að við systkinin lærðum eitthvað meira en venju- legt nám. Ég var sá eini sem valdi hljóðfæraleik. Bróðir minn er leikstjóri fyrir auglýsingamyndir og býr í París, en systir mín er húsmóðir í London. Mamma er „producer“ eða stjórnandi kvik- mynda hjá BBC, breska sjón- varpinu. Faðir minn er rithöfund- ur, auk þess sem amma mín var leikkona." Oliver Kentish sellóleikari. - Þú hefur ætlað þér að losna úr meðalmennskunni eins og flestir úr fjölskyldunni og verða listamaður? „Þegar ég var í tónlistarnám- inu ætlaði ég að verða heimsfræg- ur eins og allt ungt fólk sem er í listaskóla. Ég þótti efnilegur framan af. En ég gerði mér grein fyrir því að ég yrði aldrei einleik- ari. Ég viðurkenndi því fyrir sjálfum mér og öðrum að ég yrði ekki heimsfrægur og þekkti mín takmörk. Auk þess langaði mig til að semja tónlist, frekar en verða einleikari.“ Þess má geta að Sinfóníuhljómsveit íslands tekur verk eftir Oliver til flutn- ings í vetur. „Ég hef samið töluvert af tónlist. Hent mörgu líka.“ - ísland? „Sá auglýsingu og réði mig til Sinfóníuhljómsveitarinnar og var í Reykjavík í eitt ár. Svo var önn- ur auglýsing um kennslu hér á Akureyri og hér er ég og líður mjög vel.“ Oliver er kvæntur Hildi Péturs- dóttur og eiga þau eina dóttur. „Dóttir okkar er ekki farin að spila ennþá. En ég spila fyrir hana á píanóið heima. Það þykir henni gaman.“ - Hvar er draumurinn um að verða snillingur? „Hann er löngu horfinn. Hins vegar hefði ég ekki sætt mig við meðalmennskuna í London. Hefði reynt að semja tónlist. Ég vil nefnilega kalla mig tónskáld frekar en sellóleikara. Mér líður líka vel hér eins og ég sagði, nema það vantar almennilegan bjór hér á landi. En útlendingar mega víst ekki tala um bjór og stjórnmál." - Þú ætlaðir suður en ert hér enn. Ætlar þú að flytja seinna? „Við ætluðum suður vegna þess að konan mín vildi fara í nám. Við verðum kyrr ef háskóli kemur til Akureyrar." - Langar þig ekki til Englands aftur? „Ég fer á hverju ári. En mig langar ekki að flytja til London. Einhver minni staður kæmi frek- ar til greina. Það eru til ótal stað- ir sem eru með sína eigin sinfón- íuhljómsveit og óperu. Þess vegna væri betra að vera á ein- hverjum öðrum stað en London.“ - gej V M O ■ M A N U O A G U R JU- ÞETTd MUrtDI. H/)NN ER /)£> F/9RA / SUNNUD/GS N/HJTA - STE/KlNA / HRÍSEV.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.