Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 9
29. október 1985 - DAGUR - 9
-JþróttÍL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
KA
Fra haustmoti KA um
Haustmót KA í blaki:
Þróttur og
sigrnðu
Á laugardaginn fór fram í
íþróttahöllinni haustmót KA í
blaki. Var keppt bæöi í karla-
og kvennaflokki og mættu 8 liö
í karlaflokki og 6 lið í kvenna-
flokki til leiks. Einnig mætti
Þróttur Neskaupstað með lið í
3. flokki karla og spiluðu þeir í
kvennariðlinum sem gestir.
Liðin sem tóku þátt í þessu
móti voru, í karlaflokki: Skautar
a og b, Óðinn a og b, KA a og b,
Austri frá Raufarhöfn og lið
Þróttar frá Neskaupstað. Röð
efstu liða varð þessi, í 1. sæti
Þróttur, í 2. sæti KA a, í 3. sæti
Skautar a og í 4. sæti Óðinn a.
í kvennaflokki tóku þátt: Eikin
a og b, KA a og b, Austri frá
Raufarhöfn og Þróttur Neskaup-
stað og eins og áður sagði spilaði
3. flokkur karla frá Þrótti einnig í
kvennariðlinum. Úrslit í kvenna-
flokki urðu þessi: í 1. sæti KA a,
í 2. sæti Eikin a, í 3. sæti Eikin b
og í 4. sæti KA b.
Um helgina fór fram upp-
skeruhátíð yngri flokka KÁ í
knattspyrnu. Þar voru veitt
verðlaun þeim leikmönnum er
þóttu hafa skarað fram úr í
sumar. Einnig var þeim leik-
manni er flest mörk skoraði í
leikjum KA í sumar veitt
viðurkenning.
Þau sem verðlaun hlutu í
hverjum flokki voru: í kvenna-
flokki Elín Jónsdóttir, í 7. flokki
Sverrir Björnsson, í 6. flokki
Þórleifur Karlsson og var hann
jafnframt markakóngur KA,
hann skoraði 53 mörk í 29 leikj-
um og geri aðrir betur. f 5. flokki
fékk viðurkenningu Sigurður
Ólason, í 4. flokki Jóhannes
Baldursson og í 3. flokki Helgi Jó
hannsson.
Þá var fyrirliða 6. flokks KA
Helga Arasyni afhent verðlaun
frá KSÍ, en eins og flestum er
kunnugt varð 6. flokkur KA ís-
landsmeistari í knattspyrnu nú í
sumar.
Samfara hátíðinni var Foreldra-
félag KA með kaffisölu og voru
glæsilegar veitingar í boði sem
undirritaður borðaði vel af. Nán-
ar á morgun.
Það var mikill fjöldi knattspyrnuinanna á hátíðinni. Myndir: KGA.
Refsigleði íþróttayfirvalda
- Opið bréf frá Ólafi Sigurgeirssyni formanni KRAFT
Vegna þeirrar umfjöllunar á
máli Víkings Traustasonar
kraftlyftingamanns sem verið
hefur í fjölmiðlum að undan-
förnu, hefur blaðinu borist
opið bréf frá Ólafi Sigurgeirs-
syni formanni Kraftlyftingas-
ambands Islands.
„Á liðnu ári hefur borið venju
fremur mikið á deilum alls konar
innan íþróttahreyfingarinnar ís-
lensku og í framhaldi af þeim ým-
iss konar viðurlög fyrir íþrótta-
menn og -félög. Maður sem hafði
fylgst gjörla með þessum málum,
þó einkanlega Jónsmálinu svo-
kallaða orðaði það við mig að sér
fyndist gæta mikillar refsigleði í
íþróttahreyfingunni, miðað við
það sem væri annars í þjóðfélag-
inu. í hópíþróttum væru spjöld
með ýmsum litum á lofti og leik-
bönn sett á menn við minnsta til-
efni. Og um tírna leit svo út sem
Islandsmótið í knattspyrnu yröi
útkljáð í réttarsölum en ekki á
knattspyrnuvellinum.
Einstaklingsíþróttir fóru ekki
varhluta af þessu og af minnsta
tilefni var íþróttamönnum bann-
að að keppa í tilteknum íþrótt-
um, án þess það hafi jafnvel
hvarflað að þeim að keppa í þeim.
Sumir voru jafnvel komnir í eitt-
hvert keppnisbann án þess að
vita gegn hverjum þeir hefðu
brotið. Svo var um Víking
Traustason frá Akureyri sem
varð ekki tiltakanlega þekktur í
landinu fyrr en hann ákvað í
samráði við sitt aðildarsamband,
að virða alþjóðlegar reglur sem
gilda um hans íþrótt að vettugi,
er hann var keppandi á Norður-
landameistaramótinu í kraftlyft-
ingum í Noregi. Fyrr en varöi
komst Víkingur að því, að þvag-
sýni úr honum átti að vera öllum
falt er vildu og löghlýðni hans við
alþjóðlegar reglur var brot á regl-
um samtaka nokkura íþrótta-
greina uppi á íslandi, sem Vík-
ingur átti engin samskipti viö og
ætlaði ekki að hafa nein sam-
skipti við. Málið var talsvert flók-
ið fyrir Víking, sem ekki hafði
áður kynnst áðurnefndri refsi-
glcði og var ekki löglærður
maður. Hann var á þessu móti
keppandi fyrir Kraftlyftingasam-
band íslands sem hann hafði ekki
brotið gegn, hann keppti á móti
sem Norðurlandasamband kraft-
lyftingamanna stóð fyrir og gegn
þeim samtökum hafði hann ekki
brotið, hann keppti eftir reglum
sem Alþjóðasamband kraftlyfí-
ingamanna hafði samið og þær
hafði hann ekki brotið. Hvernig
gat hann skilið að hann hefði
brotið gegn samtökum nokkurra
íþróttagreina sem hann kunni
sjálfur lítil skil á og hafði aldrei
stundað.
Hann var skráður í íþróttafé-
lagið Þór Akureyri á sama hátt
og Albert Guðmundsson er ef-
laust skráður í Val. Víkingur hef-
ur ekki heyrt að hann hafi brotið
gegn því félagi. Blaðamanna-
fundir voru haldnir um Víking og
hans mál og skeyti send til sam-
taka miklu fleiri íþróttagreina á
hinum Norðurlöndunum og þeim
tilkynnt að Víkingur mætti ekki
keppa á mótum þessara samtaka,
vegna milliríkjasamnings sem
geröur hafi verið milli sams kon-
ar heildarsamtaka á öllum
Norðurlöndunum. Þessi tilkynn-
ing var að sjálfsögðu staðfest þar
sem ekkert fylgdi tilkynningunni
sem gaf til kynna, að þessi ís-
lensku samtök hefðu kannski
ekkert með mál Víkings að gera.
Þau eru ekki vön að kássast upp á
annara jússur og hafa ekki enn
kynnst þessari víðtæku íslensku
refsigleði félaga sinna á klakan-
um.
Það skrýtna í þessu máli öllu er
kannski það, að þessi heildar-
samtök íslensku sem heita ÍSÍ
verða samkvæmt íþróttalögum
nr. 49, 1956, 20.gr. að hafa allar
eigin reglur um íþróttamót í fullu
samræmi við alþjóðareglur.
Hvernig getur þá maður sem
meira að segja er ekki í sam-
tökunum brotið reglur þeirra
ineð því að fylgja alþjóðaregl-
um? Hvernig stendur á þvi' að
einungis íþróttamenn en ekki
stjórnendur í þessum samtökum
verða að virða þær reglur sem
samtökin hafa sett um sína innri
starfsemi í 5. tölulið 7. gr. dóms
og refsiákvæða ÍSÍ sem er í sam-
ræmi við hina íslensku og raunar
alþjóðlegu andmælareglu segir.
að birta skuli kærða kæru og hon-
unt gefinn kostur á að tjá sig um
kæruatriði. Þetta heitir á venju-
legu íslensku máli mannréttindi.
þeirra mannréttinda hafa hvorki
Jón Páll Sigmarsson né Víkingur
Traustason notið af þessum sam-
tökum.
Undirritaður vill í niðurlagi
þessarar hugleiðingar geta þess,
að reglur ÍSI um mót og lyfjapróf
samfara þeim gilda fyrir þær
íþróttir sem í samtökunum eru.
aðrar ekki meðan þær fylgja al-
þjóðareglum.
Ég hef bráöum verið í KR í 20
ár og vinur minn Sigtryggur Sig-
urðsson enn lengui. Vera okkar í
því félagi gefur ekki ÍSÍ aðgang
til að lyfjaprófa mig á kraftlyft-
ingamóti né Sigtrygg á bridds-
móti. Briddssamband íslands er
utan ÍSÍ og einnig KRAFT. Við
Sigtryggur verðum því áfram í
KR svo lengi sem félagið vill hafa
okkur, aðrir eru kannski í Lions.
Rotary eða KFUM."