Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 12
Akureyri, þriðjudagur 29. október 1985 .Sunnudaginn 3. nóvember bjóðum við. eftirfarandi á Bauta í hádeginu og um kvöldið og í Smiðju í hádeginu: Blómkálssúpa og grillsteiktur kjúklingur með súrsætri sósu og hrísgrjónum. Verð á Bauta kr. 350.- Verð í Smiðju kr. 400.- Fyrír börn 12 ára og yngri í fylgd foreldra: Frír hamborgarí eða samloka. Kristnesspítali: Uppsagnir taka gildi í næsta mánuði Ef ekkert verður að gert iamast öil starfsemi spítalans Seinnipart sumars sögðu sjúkraliðar og hjúkrunarfræð- ingar á Kristnesspítala upp störfum sínum vegna óánægju með laun. Uppsagnir sjúkra- liða taka gildi 4. desember nk. og uppsagnir hjúkrunarfræð- inga 15. desember. Ef ekkert verður til að breyta ákvörðun- um þeirra kvenna sem þarna hafa sagt upp störfum lamast starfsemi spítalans algjörlega. Stjórn Ríkisspítalanna hefur farið fram á það við heilbrigðis- ráðherra, Ragnhildi Helgadótt- ur, að hún framlengi uppsagnar- frest sjúkraliða og hjúkrunar- fræðinga í Kristnesi um 3 mánuði en ráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um það enn. Bjarni Arthursson, fram- kvæmdastjóri Kristnesspítala, Vinnuslys á Tjörnesi: „Talstööin borgaði sig þúsundfalt“ - sagði Jóhannes Einarsson sem bjargaði félaga sínum úr bráðum háska Á föstudaginn voru tveir menn að vinna við höfnina á Tjör- nesi. Þeir voru að grafa með- fram vegg fiskverkunarhússins er hann hrundi skyndilega og grófst annar maðurinn, Her- mann Aðalsteinsson, undir veggnum. Félagi Hermanns, Jóhannes Einarsson, var þá að vinna á gröfu sem einnig varð fyrir hlut- um úr veggnum. Hann gróf frá Hermanni og hlúði að honum því hann átti í fyrstu erfitt um andar- drátt. Talstöð var í gröfunni og með henni náði Jóhannes sambandi við lögregluna og bað um hjálp. Aðstoð barst fljótt og var Her- manni komið undir læknishend- ur, fyrst til Húsavíkur en síðan á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri. Hann mun vera mjaðma- grindarbrotinn og rifbeinsbrot- inn. Jóhannes Einarsson sagði að biðin eftir aðstoð hefði verið erf- ið en þarna hefði talstöðin svo sannarlega komið í góðar þarfir og borgað sig þúsundfalt. IM/BB. sagði í samtali við Dag að sér væri ekki kunnugt um að nein til- raun hefði verið gerð til að reyna að leysa mál sjúkraliðanna sem vilja fá laun hækkuð til samræmis við það sem gerist hjá sjúkralið- um á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Á Akureyri fá sjúkra- liðar laun samkvæmt samningi við Akureyrarbæ og eru þau nokkru hærri en þau laun sem ríkið greiðir sjúkraliðum á Ríkis- spítulunum. Bjarni sagði að einhverjar máttlausar viðræður hefðu farið fram við Hjúkrunarfélag íslands vegna hjúkrunarfræðinganna en hvorki hefði verið haft samband við sig né trúnaðarmenn starfs- fólksins í Kristnesi vegna krafna þess um hærri laun. í Kristnesi eru að langmestu leyti aldraðir langlegusjúklingar og verður erfitt að finna þeim pláss á öðrum sjúkrastofnunum þar sem mikill hörgull er á legu- plássum fyrir aldraða. Þó er í undirbúningi neyðaráætlun sem miðar að því að útskrifa sjúklinga á Kristnesspítala inn á aðrar sjúkrastofnanir ef til stöðvunar kcmur. - yk. Kristnesspítali: Lamast starfsemin í næsta mánuði? Mynd: KGA Blönduós: Otryggt atvinnuástand og fólksflótti frá staðnum „Það hafa verið milli tuttugu og þrjátíu manns héðan við vinnu í Blönduvirkjun. En það er útlit fyrir að vinnu þar Ijúki fyrir áramót. Að því leyti er ekki gott útlit hvað varðar at- Hrossarækt. Mynd: KGA. vinnu hér á Blönduósi,“ sagði Jón Pétur skrifstofustjóri hjá Blönduóshreppi. Samþykkt hefur verið bygging verkamannabústaða svo ein- hverjir komast þar í störf, auk þess sem hafin er bygging tveggja einbýlishúsa sem flokkast einnig undir verkamannabústaði. Mikið af íbúðarhúsnæði er til sölu á Blönduósi. Vitað er til þess að 4 hús eru til sölu við sömu götuna. Þetta þykir benda til þess að fólk er að hugsa sér til hreyf- ings og ætlar að fara eitthvað annað þar sem það telur meira atvinnuöryggi. Margir ætla suður til Reykjavíkur og aðrir til ann- arra staða á landinu. Taldi Jón Pétur að fólksfækkun hefði orðið á Blönduósi á síðasta ári. Væri það ekki bundið við þennan árs- tíma því hreyfing á fólki hefur verið nokkuð lengi og ekkert bendir til að þessum fólksflótta linni. Það kom fram í sláturtíðinni að vatnsmál Blönduósbúa eru ekki nógu trygg. Það bar nokkuð á vatnsskorti þegar sláturhúsið starfaði. Enginn vatnsgeymir er á Blönduósi og þarf nauðsynlega að byggja vatnsgeymi sem getur tekið á sig aukið álag. - gej Kanada: Oánægjuraddir veikalýðsfélaganna Verkalýösfélög og stjórnmála- menn í Kanada hafa gagnrýnt þá ákvörðun kanadísks útgerð- arfélags að fela Slippstöðinni á Akureyri að breyta nokkrum togurum fyrirtækisins. Einn togari þessa kanadíska fyrirtækis er þegar kominn til Ákureyrar, og þessa dagana er unnið við að lengja hann og út- búa hann fyrir „kassavæðingu". Von er á öðrum togara áður en langt um líður og samningavið- ræður um að fleiri togarar komi hingað í sama tilgangi á döfinni. Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar var í viðtali í beinni útsendingu hjá útvarps- stöð í Kanada. Var hann spurður hvort Slippstöðin væri að undir- bjóða kanadísk fyrirtæki og kvað hann svo ekki vera. Er ljóst að margir líta það hornauga að Slippstöðin skuli hafa fengið þessi verkefni. gk-.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.