Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 8

Dagur - 29.10.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 29. október 1985 Hljóðstöðumyndir Jóns Júl. Þorsteinssonar I sjónvarpinu eru nú hafnar sýn- ingar á þáttunum „Móðurmálið", sem Arni Böðvarsson cand. mag. annast. í þáttunum er m.a. notast við Hljóðstöðumyndir, íslensk málhljóð eftir Jón Júl. Porsteins- son kennara, en hann notaði þær árum saman við tal- og lestrar- kennslu nreð ágætum árangri. Myndirnar hafa verið gefnar út af minningarsjóði Jóns, og eru þær samtals 83, þar af 18 eftir Árna Böðvarsson. Árni samdi jafn- framt skýringar við allar mynd- irnar, og fylgja tvær töflur um einkenni íslenskra hljóða til glöggvunar. Eru myndirnar iit- prentaðar í stærðinni A4 og frá þeim gengið í þremur plastmöpp- um. í fjórðu möppunni er Lestr- arkennsla - hljóðlestraraðferð Jóns Júlíusar Þorsteinssonar, en þar gerir hann grein fyrir kennsluaðferðinni og prentaðir eru og gefnir út á þremur hljóð- snældum kennslukaflar hans um einstök hljóð. Myndirnar eru ætlaðar lestrar- kennurum, framsagnar- og söng- kennurum og öðrum, sem kenna rétta hljóðmyndun í íslensku. Lét Jón draga þær eftir sérstök- um röntgenmyndum, en Einar E. Helgason annaðist frágang þeirra. Hljóðstöðumyndirnar, ásamt lestrarkennslunni, eru seldar skólum og almenningi og er hægt að snúa sér til afgreiðslu Bókmenntafélagsins, Kennslu- gagnamiðstöðvarinnar og fræðsluskrifstofa. Þær eru einnig fáanlegar hjá útgefanda, Minn- ingarsjóði Jóns Júl. Þorsteinsson- ar, Hjallalandi 22, 108 Reykja- vík. Frá Heimaey Kaupmenn - Kaupfélög Birgið ykkur upp af hinum frábæru Heimaeyjarkertum. Látið hinn hreina loga Heimaeyjarkertanna veita birtu og yl. HEIMAEY, kertaverksmiðja, Faxastíg 46, 900 Vestmannaeyjum. Sími 98-2905. Björn Sigurðsson • Baldursbrekku 7 • Símar41534 • Sérleyfisferðir • Hópferðir • Sætaferðir • Vöruflutningar Húsavík - Reynihlíð - Laugar - Akureyri VETRARÁÆTLUN 1985-86 S M Þ M Fl FÖ Frá Reynihlíð kl. ★ 08.00 Frá Laugum kl. 09.00 Frá Húsavík kl. 18.00 09.00 09.00 09.00 Frá Akureyri kl. 21.00 16.00 16.00 17.00 Frá Akureyri í Laugar og Mývatnssveit kl. 17.00 * Vöruflutningab. á þriöjud. Brottför um kl. 15.00 frá Ríkisskip Akureyri. Farþegar frá Mývatnssveit og Reykjadal eru sérstaklega hvattir til aö panta daginn fyrir brottför á Hótel Reynihlíð sími 44170 eða hjá Flugleiðum Húsavík sími 41140. Afgreiðsla Húsavíkur: Flugleiðir, Stóragarði 7, s. 41140. Farþegaafgr. Akureyrar: Öndvegi hf., Hafnarstr. 82, s. 24442. Öll vörumóttaka Akureyri: Ríkisskip v/Sjávargötu s. 23936. ATH. Vörur sem flytja á frá Akureyri þurfa að berast tímanlega. Sérleyfishafi. Húsvíkingar - Þingeyingar Dagur hefur fastráðið starfsmann á Húsavík. Það er Ingibjörg Magnúsdóttir, sem auk blaðamannsstarfa mun sjá um dreif- ingu og auglýsingamóttöku fyrir blaðið. Við hvetjum lesendur blaðsins til að hafa samband við Ingi- björgu varðandi ábendingar um fréttir og efnisval. Einnig bendum við lesendum á, að Ingibjörg tekur á móti smá auglýsingum og tilkynningum í dagbók, t.d. varðandi stór- afmæli og dánarfregnir (mynd má fylgja) svo eitthvað sé nefnt. Sú þjónusta er lesendum að kostnaðarlausu. Ingibjörg hefur aðsetur í Garðarsbraut 5, II hæð, sími 41225. Fastur skrifstofutími kl. 9-11, en er auk þess við á skrifstof- unni á öðrum tímum. Heima: Sólbrekka 5, sími 41529. ^Jokdreifari Jensí slaginn á ísafirði Jens Ólafsson sem er mörg- um Akureyringum að góðu kunnur sem verslunarstjóri Kjörmarkaðar KEA við Hrísalund lét af því starfi í sumar og réðist sem kaup- félagsstjóri á ísafjörð. „GIugginn“, blað verslunar- deildar Sambands íslenskra samvinnufélaga birti nýlega stutt viðtal við Jens og sagði þar m.a.: Jcns Ólafsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Isfirðinga frá og með 1. ágúst. Tekur hann við af Sverri Bergmann. Jens hefur víðtæka reynslu sem verslunar- stjóri hjá kaupfélögunum, starf- aði á Eskifirði og Hornafirði, og síðast sem verslunarstjóri í hinni glæsilegu verslun KEA við Hrísalund á Akureyri. Fréttamaður Gluggans hitti Jens að máli í skrifstofu hans á ísafirði, en þá var hann rétt að koma sér fyrir. Sagði hann að honum litist vel á að starfa á ísafirði og að honum hefði verið vel tekið af bæjarbúum. Jens sagði að eitt af því fyrsta sem hann hefði hug á að gera væru breytingar á matvörubúð- um kaupfélagsins og lyfta þann- ig kaupfélaginu á verslunarsvið- iðnu. í aðalversluninni væri plássleysi áberandi og þar þyrfti að gera stórfelldar endurbætur. Þá sagði Jens að fríflutningur Matvörudeildar til kaupfélag- Jens Ólafsson tekur við starfi kaup- félagsstjóra í Kaupfélagi ísfirðinga. anna væri mikill stuðningur við kaupfélögin og gerði þau mun samkeppnishæfari en ella. Þá sagði Jens að hann hefði í huga að nýta betur Samvinnusölu- boðin, sem án efa væru til að ýta undir enn aukna verslun við kaupfélagið. Er markaður fyrir íslensk hross í Bandaríkjunum? Fyrirtækið íslandssport reyn- ir nú fyrir sér með útflutningi á íslenskum hrossum til Bandaríkjanna og Evrópu. íslendingar eiga 60% í þessu fyrirtæki, en Bandaríkja- menn afganginn. í nýút- komnu tölublaði Bóndans er eftirfarandi grein um þetta mál. Ingvar Karlsson, einn íslend- inganna sem að fyrirtækinu standa, sagði í samtali við Bóndann, að fyrirtækið hefði verið stofnað tii reynslu, en síð- ar á þessu ári myndi verða ljóst hvort starfsemin gengi það vel að áhugi á framhaldi yrði fyrir hendi. Hann kvað íslandssport þegar hafa keypt nokkra reið- hesta, og væri hluti þeirra farinn út til Bandaríkjanna, en Banda- ríkjamenn þeir sem hér um ræðir búa í New York-ríki á austurströnd Bandaríkjanna. Hluta hrossanna sagði Ingvar svo enn vera hér á landi, og væri unnið að þjálfun þeirra og mikil áhersla væri lögð á að aðeins væru seldir utan gallalausir gripir. „Hér getur verið um mikilvægan markað að ræða, og við viljum kappkosta að þangað fari aðeins góð hross,“ sagði Ingvar, „en Bandaríkja- mennirnir sem við erum í sam- vinnu við hafa bæði mikinn áhuga og getu til að fylgja þessu máli eftir, lofi byrjunin góðu.“ Svo sem kunnugt er hafa áður verið flutt út íslensk hross til Bandaríkjanna, og fræg er reið Gunnars Bjarnasonar og fleiri á íslenskum hestum yfir þvera Norður-Ameríku fyrir nokkr- um árum. Svo virðist þó sem því átaki hafi ekki verið fylgt nægilega vel eftir, og á síðari árum hafa nær engin hross farið vestur um haf til Bandaríkj- anna. Verður því fróðlegt að sjá hvernig íslandssporti reiðir af á þessum vettvangi. J rusli. Það er ekki óeðlilegt að fólk sem búið er að gera snyrtilegt í kringum híbýli sín verði lang- þreytt á seinagangi manna sem eiga að ganga frá á eftir á byggingarsvæðum. íbúar við Stapasíðu 11 eru búnir að gera ítrekaðar tilraunir í þá átt að fá fyrirtækið sem byggði Stapasíðu 11 til að ganga frá svæðinu, en án árangurs. í sumum tilfellum segja verktakar og þeir sem húsbyggingar stunda að fólk sé að kvarta út af litlu sem engu, en myndin segir allt sem segja þarf. Þarna er steypustyrktarstál, naglar og annað sem skaðlegt getur verið börnum. Viðkomandi aðilum er hér með bent á að bæta úr þessu og þess má geta að Dagur mun af og til gera grein fyrir málum af þessu tagi og fylgjast með framvindu þeirra.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.