Dagur - 05.11.1985, Blaðsíða 12
Akureyri, þriðjudagur 5. nóvember 1985
-------------Fjölskyldutilboð--------------------
sunnudaginn 10. nóv. á Bauta í hádeginu og um kvöldið
og í hádeginu í Smiðju:
Spergilkremsúpa og grillsteikt lambalæri með bakaðri kartöflu og
bearnisesósu
Verð á Bauta kr. 350 pr. mann Verð í Smiðju kr. 400 pr. mann
Fyrír börn 12 ára og yngrí í fylgd með foreldrum:
Frír hamborgarí eða samloka
Verkmenntaskólinn:
Iðnaðardeild Sambandsins:
Skinn fyrir
52 milljónir
- til stærsta mokkafataframleiðanda í Danmörku
í gær var undirritaður samn-
ingur um sölu á skinnum fyrir
52 milljónir íslenskra króna frá
Iðnaðardeild Sambandsins til
Latif, dansks aðila sem undan-
farin ár hefur keypt mikið af
skinnum af Iðnaðardeildinni.
Þessi sölusamningur jafngildir
15% af ársframleiðslu Skinna-
deildarinnar.
Að sögn Arnar Gústafssonar,
forstöðmanns Skinnadeildar
Sambandsins, byrjaði Latif með
því sem næst tvær hendur tómar
fyrir fimm árum síðan og er nú
orðinn stærsti mokkafatafram-
leiðandinn í Danmörku og fær
hann 90% hráefnisins frá Sam-
bandinu.
Latif sagði í stuttu spjalli við
Dag að hráefnið sem hann kaupir
af Sambandinu væri létt, hlýtt og
sterkt og flíkur úr því entust sér-
lega vel, án þess að á þeim sæi.
-yk.
Bærínn borgar
hæm laun
Þrír sérmenntaðir kennarar
hafa hætt störfum við Verk-
menntaskólann á Akureyri á
s.l. 11 mánuðum vegna lágra
launa í kennslunni og snúið til
bctur borgaðra starfa.
Þetta kemur fram í fundargerð
skólanefndar Verkmenntaskól-
ans frá 29. október. Á þeim fundi
var einmitt lögð fram beiðni frá
einum kennara skólans, sem er
tæknifræðingur að mennt, þar
sem hann óskaði eftir því að
verða leystur frá kennslustörfum
frá og með lokum haustannar
þann 15. janúar n.k. en þá mun
hann hefja störf hjá Hitaveitu
Akureyrar.
Á fundinum var gerður saman-
burður á mánaðarlaunum nokk-
urra starfsstétta, þ.e. fóstra,
sjúkraliða, tæknifræðinga og
framhaldsskólakennara. Saman-
burðurinn er framhaldsskóla-
kennurum mjög í óhag. Þar kem-
ur fram að tæknifræðingur með
Bubbi
ekki
í mál
I Degi í gær var sagt frá því að
umboðsmaður Bubba Morth-
ens hygði á málaferli við for-
stöðumann Dynheima á Akur-
eyri vegna þess að upptaka
með söngvaranum sem var
tekin upp í Dynheimum hefði
verið misnotuð.
Viðar Arnarson umboðsmaður
Bubba Morthens hafði samband
við Dag í gær og vildi koma því á
framfæri að ekkert yrði úr mála-
ferlum vegna þessa. „Það er búið
að jafna þessa deilu, allir hlutir
eru komnir á hreint, við höfum
fengið okkar höfundarlaun og
þetta er allt komið í góðan
„fíling“ sagði umboðsmaðurinn.,
BA-próf og kennsluréttindi, sem
starfar við kennslu, er með svip-
uð laun og fóstra. Ef sami tækni-
fræðingur hættir í framhalds-
skólakennslunni og fer að starfa
sem tæknifræðingur, hækka laun
hans um hvorki meira né minna
en tæp 30%!
Skólarnir eiga því greinilega í
vonlausri samkeppni um starfs-
krafta sérmenntaðs fólks og þessi
mikli launamunur sem þarna
kemur fram er vissulega umhugs-
unarefni. BB.
Hér handsala Latif og Örn Gústafsson, forstöðumaður Skinnadeildar, 52ja milljón króna samning. Frú Latif og Karl
Friðriksson, markaðsstjóri Skinnadeildar fylgjast með. Mynd: KGA.
Raufarhöfn:
Jökull tapaði 15.3
milljónum króna
Frá áramótum hefur verið tek-
ið á móti tæpum 3000 tonnum
:
Eitthvað hafa flugsamgöngur verið brösóttar undanfarna daga, sökum
dimmviðris hér norðan heiða. En tafir munu þó ekki hafa verið stórkostleg-
ar. Þessi mynd var tekin af farþegum sem komu með Fokker til Akureyrar.
Mynd: KGA.
af fiski hjá frystihúsi Jökuls á
Raufarhöfn og er það um 400
tonnum meira en árið 1984. Af
þessum 3000 tonnum hefur
Rauðinúpur borið 2300 tonn á
land og eru nú aðeins um 65
tonn eftir af þorskveiðikvóta
togarans. Líklega mun hann
því ekki landa nema einu sinni
í viðbót í heimahöfn á árinu.
Stakfellið sem hefur lagt hluta
afla síns upp á Raufarhöfn á hins
vegar meira eftir af sínum kvóta
þar sem það hefur að undanförnu
fiskað upp í kvóta Sjóla frá Hafn-
arfirði og lagt upp þar. Það mun
væntanlegt norður síðar í mánuð-
inum og ættu starfsmenn Jökuls
að hafa eitthvað að gera það sem
eftir er af árinu þó að hugsanlegt
sé þó að til einhverra stöðvana
kunni að koma í vinnslunni.
Á aðalfundi Jökuls sem hald-
inn var 15. september síðastlið-
inn kom fram að fyrirtækið tap-
aði 15,3 milljónir á síðasta ári
og segir í Raufarhafnartíðindum
að erfitt sé að ímynda sér að
fyrirtækið þoli áframhaldandi
taprekstur mikið lengur. Vonast
er til að reksturinn á þessu ári
gangi töluvert betur. -yk.
Olíufélagið Skeljungur:
Ný bensínstöö
- á mótum Hörgárbrautar og Hlíðarbrautar
I vetur verður hafist handa við
jarðvinnu vegna væntanlegrar
byggingar bensínstöðvar OIíu-
félagsins Skeljungs, við gatna-
mót Horgárbrautar og Hlíð-
arbrautar, með það fyrir aug-
um að byggingarframkvæmdit
geti hafist í vor.
Sigurður J. Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Skeljungs á Akur-
eyri, segir að þessari bensínstöð
sé ætlað að ná þeim viðskiptum
sem bensínstöð Skeljungs í
Ferðanesti missi með tilkomu
hins nýja Leiruvegar. Skeljungi
fékk umræddri lóð úthlutað fyi
einu og hálfu ári síðan og þá h:
verið áætlað að byggja stöðina
fleiri en einum áfanga en nú h:
verið horfið að því ráði að bygg
hana í einum áfanga og verður:
öllum líkindum byrjað í vor, (
óvíst er hvenær verkinu lýkur.
Sigurður sagði að ekkert hef
verið ákveðið um framtíð Ferð
nestis, hvort það verður lagt ni
ur eða hvort það verður starfræ
áfram með óbreyttum hætti. -y