Dagur - 10.12.1985, Síða 3

Dagur - 10.12.1985, Síða 3
10. desember 1985 - DAGUR - 3 Virðið bifreiða- stæði fatlaðra Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, hefur látið prenta spjöld, sem vekja athygli á merktum bílastæðum fatlaðra. Fyrir hreyfihamlaða, sem nauð- synlega þurfa á bíl að halda til þess að komast leiðar sinnar, er áríðandi að geta lagt bílnum ná- lægt stöðum, þar sem þjónusta er veitt. Á síðustu árum hefur stæðum, sérstaklega merktum fötluðum, fjölgað töluvert. Hins vegar er mikill misbrestur á því að almenningur taki tillit til þeirra. Menn hugsa oft sem svo, að 2-3 mínútur skipti engu máli og leggja bílum sínum í merktu stæðin. Fatlaðir verða fyrir tölu- verðum óþægindum af þessum sökum. Spjöldin eru myndskreytt og með ofangreindri áletrun. Þau eru úr stífum pappír í stærðinni A5, og til þess ætluð að þeim sé stungið undir rúðuþurrkur rang- stæðra bíla. Spjöldin fást á skrif- stofu Sjálfsbjargar, Hátúni 12, s. 91-29133, og eru afhent ókeypis, meðan birgðir endast. Viljum við hvetja fólk til þess að hjálpa okk- ur að verja þennan rétt fatlaðra, með því að dreifa spjöldunum eftir þörfum. Bóma: „Koss í eyra“ - Kynning á Café Torg í kvöld í dag kemur út Koss í eyra, Ijóð menntskælinga á Akur- eyri. Kverið hefur að geyma fjörutíu ljóð eftir tólf ijóðskáld. Útgáfufélag Bók- menntafélagsins í Mennta- skólanum á Akureyri hefur all- an veg og vanda af útgáfu kversins og er það prentað í prentsmiðjunni Petit. Upplag- ið er takmarkað, aðeins 300 eintök og er verð kversins 250 kr. Höfundarnir kynna verk sín í kvöld klukkan níu á Cafe Torg- inu og lesa í þessari röð: Árni Gunnarsson frá Flata- tungu, Grímur Kristjánsson, Grímur Sæmundsson, Halldís Hörn Höskuldsdóttir, Kris, Óla Sigga, Pétur Örn, Sigurður Ing- ólfsson, Skafti Ingi Helgason, Norðlingur, Uggi Jónsson, Pór- arinn Torfason, Þorsteinn Sig- laugsson. Kverið verður fáanlegt á kynningunni og eru allir vel- komnir. Hótel KEA: Unnið af krafti við breyt- ingar Tugir iðnaðarmanna leggja nú nótt við dag á Hótel KEA á Akureyri, en þar er unnið að gagngerum endurbótum og breytingum á hótelinu. Þegar hafa nokkur ný herbergi verið tekin í notkun og fleiri eru um það bil að komast í gagnið. Þá verða fleiri ný herbergi tekin í notkun á næsta ári. Á 1. hæð er unnið af kappi við nýjan samkomusal hótelsins, en að sögn Kristjáns Eli's Jónassonar hótelstjóra er áformað að taka þann sal í notkun um jól eða ára- mót. Þessi salur sem mun rúma um 250 manns í sæti verður afar glæsilegur og hægt að skipta hon- um niður í minni sali þegar þurfa þykir. Þá er unnið þessa dagana að endurbyggingu gestamóttöku hótelsins og er óhætt að segja að þar sé öllu umbylt og reyndar verður hótelið allt óþekkjanlegt eftir að breytingum á því lýkur. Iðnaðarmenn að störfum á Hótel KEA í gær. Aðventukvöld í Stórutjarnaskóla Prestaköll þau sem sr. Sigurð- ur Árni Þórðarson og kona hans sr. Hanna María Péturs- dóttir þjóna, munu gangast fyrir sameiginlegu aðventu- k\öldi í Stórutjarnaskóla n.k. m ðvikudagskvöld kl. 20.30. Allir kirkjukórar í presta- köllunum munu sameinast um kórsönginn en stjórnendur kór- anna verða Inga Hauksdóttir og Friðrik Jónsson. Barnakór syng- ur einnig undir stjórn Ingu. Á samkomunni flytja ferming- arbörn helgileik, Line Werner syngur norskar vísur og jóla- söngva, sr. Bolli Gústavsson lytur ljóð, sr. Sigurður Árni Þórðarson flytur hugvekju og kveikt verður á kertum. IM Söngvakeppni Evrópu Ríkisútvarpið - Sjónvarp auglýsir hér með eftir sönglagi sem yrði framlag íslands í Söngvakeppni Evrópu (Eurovision Song Contest) sem haldin verður vorið 1986. Lagið má hvorki vera komið út áður né hafa verið flutt í útvarpi eða sjónvarpi Þaö má ekki taka nema 3 mínútur í flutningi. Frumsaminn texti á íslensku skal fylgja. Laginu skal skila til Sjónvarpsins bæði á hljóðsnældu og nótum fyrir eitt hljóðfæri. Sjónvarpið áskilur sér allan rétt til að ráða útsetningu lagsins, ef til kemur. Nánari upplýsingar um reglur þessarar söngvakeppni liggja frammi hjá símaverði Sjónvarpsins, Laugavegi 176, Reykjavík. Skilafrestur er til 15. janúar 1986. RÍKISÚTVAIJPIÐ úrvAPP ALLRA LANDS- MANNA

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.