Dagur - 30.12.1985, Blaðsíða 7
30. desember 1985 - DAGUR - 7
kennarafélagi sem horfiö höfðu frá
störfum sínum samþykktu að hefja
störf að nýju og var sú ákvörðun tek-
in í ljósi loforða ráðherra um að
launamál þeírra yrðu tekin til endur-
skoðunar.
25. „Raðsmíðabátarnir eru í sjálf-
heldu“ sagði Gunnar Ragnars for-
stjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri.
Gunnar sagði að margir hefðu sýnt
því áhuga að kaupa bátana. Hinsveg-
ar væri ekki hægt að selja þá fyrr en
fyrir lægi hvernig stjórnvöld hygðust
ganga frá þeim lánum sem á þeim
hvíldu.
27. Átta manns sóttu um for-
stjórastólinn í Kísiliðjunni sem senn
yrði auður. Fóru leikar svo að Ró-
bert Agnarsson hreppti stólinn.
27. Margir vildu hefja framleiðslu
á dömubindum en ekki er markaður
hér á landi það stór að margir geti
sinnt þessu hugðarefni sínu. Síðla árs
hóf svo Sjöfn framleiðslu á „Sjafnar-
bindum" sem margir vildu að kölluð
yrðu „Sjafnaryndi“
Aprfl
1. „Pað var mjög óhuggulegt að detta
þarna niður því mér fannst ég vera
mjög lengi að hrapa,“ sagði Kristján
Hálfdánarson, Akureyringur sem féll
í jökulsprungu ofan Kverkfjalla í
Vatnajökli. Kristján var þar á ferð
ásamt tveimur félaga sinna og mátti
hann dúsa í jökulsprungunni í 32
tíma áður en tókst að ná honum upp.
*3. „Bætum við 30 manns strax ef
bjórinn verður leyfður," sagði Ragn-
ar Tryggvason hjá Sana, en bjórmál-
ið fræga var þá statt í sölum Alþingis.
Þar náði lagafrumvarp um heimild til
bruggunar og sölu á áfengu öli ekki
fram að ganga og Saria fjölgaði ekki
hjá sér um 30 manns.
10. Atvinnumálanefnd Akureyrar
lét kanna grundvöll fyrir rekstri rað-
smíðabátanna svokölluðu og var
niðurstaðan sú að hægt væri að gera
bátana út frá Akureyri á hagkvæman
hátt ef þeir fengjust á viðunandi
kjörum. „Ég er ekki bjartsýnn á að
Útgerðarfélag Akureyringa hf. kaupi
og hefji útgerð á þessum bátum,“
sagði Gísli Konráðsson annar for-
stjóra ÚA en rætt hafði verið um að
ÚA yrði aðili að útgerð bátanna.
10. Uppsetning var hafin á nýjum
hitaveitumælum enda fyrirhugað að
Hitaveita Akureyrar breytti inn-
heimtuaðgerðum sínum. Illa gekk að
fá akureyrska pípulagningamenn til
starfa við þetta verkefni þótt góð
laun væru í boði en reykvískir
starfsbræður þeirra vildu ólmir fá
vinnu.
12. „Ef við gefum okkur það að
þorskurinn sem skipið aflaði yrði
unninn um borð, þá yrðu áhrifin sem
það hefði á atvinnuástandið í landi
skelfilegt að ýmsu leyti,“ sagði Val-
týr Sigurbjarnarson bæjarstjóri á
Olafsfirði en breytingar stóðu þá yfir
á Ólafsfjarðartogaranum Sigur-
björgu hjá Slippstöðinni á Akureyri
og var skipinu breytt í frystiskip.
15. Hrafnhildur Hafberg var kjör-
in „Ungfrú Akureyri" á mikilli hátíð
í Sjallanum. Blómunum rigndi, fólk-
ið fagnaði og Hrafnhildur var að
sjálfsögðu í sæluvímu þótt ekki sé
okkur kunnugt um að tár hafi fallið
eins og svo oft fylgir titlaveitingu sem
þessari.
19. Stórsöngvarinn Kristján Jó-
hannsson frá Akureyri sló í gegn í
Bandaríkjunum. Blaðið „Daily Okla-
homa“ sagði um hann: „Fyrsta flokks
tenór“, en það vissu reyndar margir
fyrir.
22. Bændur á Norðurlandi spör-
uðu miklar upphæðir vegna minni
áburðarnotkunar í kjölfar undan-
gengis góðæris. Voru mörg góð
„mánaðarlaun opinberra starfs-
manna“ spöruð eins og það var orð-
að í Degi.
24. Ungur aðkomumaður var
„flottur á því“ í heimsókn á Akur-
eyri. Hann var með stolið ávísana-
hefti og falsaði grimmt ávísanir úr
heftinu. Þegar nóg var komið á Ak-
ureyri hélt hann austur á Firði í lúx-
usreisu sinni en þá var lögreglan
komin á sporið og handtók kauða.
framleiða og selja fóður fyrir lax-
eldisstöðvar og loðdýrabú. Fram-
leiðsla hefst á næsta ári eða í ársbyrj-
un 1987.
Juní
10. Læknisleysi á Þórshöfn.
Þórshafnarbúar hafa mátt búa
við það iengi að hafa ekki fast-
ráðinn lækni á staðnum. og höfðu
10 læknar þjónað þar á undan-
gengnu ári. Síðar á árinu varð
svo læknislaust á Vopnafirði er
læknirinn þar hélt í levfi til Sví-
þjóðar.
12...íbúarnir hafa sýnt okkur
mikla biðlund. en því miður hef-
ur dregist að Ijúka þessu" sagði
Gísli Eyland stöðvarstjóri Pósts
og síma á Akureyri. en þá höfðu
bæir í Hörgárdal og Öxnadal
fengið sjálfvirkan síma. Síðar í
sumar var svo lokið við að koma
upp sjálfvirkum símum á bæjum í
Fnjóskadal sem einnig tilheyrir
Akureyrarstöðinni.
14. ..Ég er mjög ánægður með
ferðina og finn ekki fyrir þreytu"
sagði göngugarpurinn Reynir
Pétur er hann kom við í Hótel
Reynihlíð á leið sinni eftir hring-
veginum.
19. Konur á Akureyri voru
einnig kátar á lokaári kvennaára-
tugar. Þær tóku sig til og gróður-
settu 7 þúsund plöntur í bæjar-
landinu. eða eina plöntu fyrir
hverja konu í bænum eða því
sem næst.
24. Hnífar á lofti í miðbæ
Akureyrar. Til átaka kom eftir
dansleiki helgarinnar og „voru
menn að" fram á morgun. Þrír
veittust að einum við BSO og var
sá fluttur á sjúkrahús enda bar
hann að þremenningarnir hefðu
beitt hnífum. Fjölmennt var á
„hóteli" lögreglunnar.
26. Endanleg ákvörðun var
tekin um jarðgöng í Ólafsfjarðar-
múlann. og verður ráðist í þá
miklu framkvæmd innan þriggja
ára. síðan á að gera jarðgöng á
Aust- og Vestfjörðum.
28. Bæjarstjórn Akureyrar tók
ákvörðun um nýtt sölufyrirkomu-
lag Hitaveitu Akurevrar. „Það
voru allir sammála um að það
væri rétt ákvörðun að brevta úr
hemlum yfir í mæla. Tfminn
verður svo að leiða í ljós hvernig
þetta kemur út og hvort ein-
hverju þarf að breyta" sagði Úlf-
hildur Rögnvaldsdóttir bæjarfull-
trúi.
Jnlí
1. „Þetta verður eflaust erfitt fyrsta
árið en ánægjan hlýtur alltaf að verða
erfiðinu yfirsterkari svo ég kvíði ekki
framtíðinni." sagði Jóhanna Birgis-
Frá aðalfundi KEA sem haldinn var í maí.
24. Fjölmargir voru á atvinnu-
leysisskrá á Akureyri. Þrátt fyrir það
vantaði víða fólk til vinnu. M.a.
sagði Gunnar Aspar hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa hf. að félagið gæti
bætt við 40-50 konum til fiskvinnslu.
Á sama tíma var mikill skortur á iðn-
aðarmönnum og sagði Gunnar
Skarphéðinsson starfsmannastjóri
Slippstöðvarinnar að engir járniðn-
aðarmenn væru til á Akureyri.
29. „Við vonum að þetta verði
sannkallaður gullkrani," sagði Þórar-
inn Sveinsson mjólkursamlagsstjóri
á Akureyri en vatnspökkunarfyrir-
tækið AKVA sf. hafði verið stofnað.
Vatnið sem pakka átti í neytenda-
umbúðir skyldi selt erlendis og yrði
það tekið úr krana í Mjólkursamlag-
inu. Af þessu máli er það svo að
frétta að þessa dagana er vatns-
pökkunin að hefjast og hafa náðst
góðir samningar um vatnssölu til
Danmerkur.
Maí
6. Aðalfundur KEA var haldinn á
Akureyri. í Ijós kom að árið 1984
hafði verið hagstætt ár í rekstri fé-
lagsins. Heildarveltan var 2.723 millj-
ónir króna og hafði aukist urn 27% í
krónutölu frá árinu á undan.
Rekstrarreikningur félagsins sýndi
hagnað að upphæð 20,9 milljónir
króna.
6. Fálkaeggjaþjófar voru komnir á
kreik í Aðaldal. Lögreglan á Húsa-
vík komst fljótlega á slóð eins þjófs-
ins sem reyndist vera „gamall kunningi"
sem ferðaðist utn á fölskum skilríkj-
um. Var manninum þó sleppt úr
landi enda fannst ekkert í farangri
hans, og þótti Ijóst að hann hefði haft
hjálparmann hérlendis og komið
eggjunum úr landi á annan hátt.
8. Þunnhærðir gengu um með
breitt bros enda var nú hafin skalla-
uppgræðsla á Akureyri. Vonandi er
að betur hafi gengið við að græða
upp skalla Norðlendinga en hálend-
ið.
10. Samvinnuferði-Landsýn tóku
við rekstri Hótels Húsavíkur. Helgi
Jóharinsson forstjóri SL sagði að það
væri sorglegt að horfa upp á jafn gott
hótel og það á Húsavík í jafn erfiðri
stöðu og því ætti að reyna aö bjarga
málunum viö.
10. „Ég sæki það af hörku að álver
verði sett upp í Arnarneshreppi í
Eyjafirði," sagði Sverrir Hermanns-
son iðnaðarráðherra. Síðar á árinu
hafði Sverrir svo stólaskipti eins og
aðrir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
og nú einbeitir hann sér að háskóla-
kennslu á Akureyri og varðveislu (z)
tungunnar.
13. „Ég hef það á tilfinningunni
að við séum a.m.k. hættir að rnissa
fólk úr bænum og það byggi ég á því
að við séum búnir að finna fyrir botn-
inum hvað varðar atvinnuástandið
hér í bænum" sagði Úlfar Hauksson
hagsýslustjóri Akureyrarbæjar.
15. Þau orð hitaveitustjóra á Ak-
ureyri að niðurgreiðslur eða einhvers
konar inngrip ríkisvaldsins í veituna
kæmi ekki til greina vöktu mikla at-
hygli. Iðnaðarráðherra hafði þá
skömmu áður sagt að nokkrar hita-
veitur landsins væru það illa staddar
fjárhagslega að þær þyrftu aðstoð
frá hinu opinbera.
15. Öflug sprenging varð á Akureyri.
Engin meiðsli urðu á fólki enda sagði
í fyrirsögn Dags að hér hefði um
„gróðursprengingu" að ræða. Hitinn
var kominn uppundir 20 stig og
lauftré í bænum sem stóðu eyðileg að
morgni voru orðin fagurgræn að
kvöldi.
20. „Dagur verður dagblað" sagði
í forsíðufyrirsögn. Skýrt var frá því
að með haustinu yrðu útgáfudagar
blaðsins fimm í hverri viku og kom
þetta til framkvæmda í október.
20. Mikið var að gerast í hótelmál-
um á Akureyri, og fannst víst mörg-
um tími til kominn. Nýtt hótel var
tekið í notkun. Hótel Stefanía, og
Hótel KEA tók í notkun 12 ný her-
bergi og áfram var unnið að stækkun
hótelsins og öðrum endurbótum á
hótelinu.
22. Þróunarnefnd Háskóla íslands
sýndi því skilning að háskólakennsla
hæfist á Akureyri. er nefnd á vegum
bæjarráðs kynnti nefndinni tillögur
sínar. Enn er málið „í kerfinu" og
ekki séð fyrir endann á því hvernig
það verður afgreitt.
29. Hret að vorlagi á Akureyri
hafa oft verið nefnd KEA-hretin,
enda hafa veðurguðirnir oft minnt á
sig er aðalfundur KEA hefur farið
fram. Eitt slíkt hret í maí fékk þó
nafnið „Dags-hretið" enda hafði
veðurspámaður Dags sagt fyrir um
þetta hret og Dagsmenn glottu út í
annað.
29. „Tímamótasamningur" sagði í
flenni fyrirsögn á forsíðu Dags. Sagt
var frá samningi Slippstöðvarinnar á
Akureyri við kanadískt fyrirtæki um
að breyta og kassavæða tvo af togur-
um fyrirtækisins og skýrt frá því að
væntanlega fylgdi meira á eftir eins
og raunin varð á.
31. Verkmenntaskólinn útskrifaði
fyrstu stúdenta sína við hátíðlega
athöfn.
31. Lengningaraðgerð á ungum
manni var framkvæmd á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri. Það var
Halldór Baldursson læknir sem frarn-
kvæmdi aðgerðina.
31. Stofnað var hlutafélagið ÍS-
TESS hf. en tilgangur þess er að
Halldór Baldursson læknir á FSA framkvæmdi „lengingaraðgerð" á ungum
manni, hina fyrstu sem franikvæmd er hér á landi.