Dagur - 30.12.1985, Blaðsíða 15
30. desember 1985 - DAGUR - 15
Sæsniglasúpa „Lady Curzon"
Villibráöapaté
með radísum og rislingssósu
Kiwi sorbet
Rósapiparkrydduö aliönd með
hunangskaramellusoðnum
vínberjum, rjómabökuðum
kartöflustrimlum,
smjörbættum blaðlauk og
valhnetusalati
Konlaksísterta með marsipan
Konfektsmákökur
Kaffi
Konfekt - smákökur-^
Minning:
ju Þórhallur Jónasson
u fynverandi bifreiðastjóri
Laugardaginn 28. desember sl.
var jarðsettur frá Akureyrar-
kirkju Þórhallur Jónasson fyrr-
verandi bifreiðarstjóri. Hann lést
eftir langa sjúkdómslegu á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri.
Hann var mér ekki aðeins góður
afi heldur einnig félagi og vil ég
hér minnast hans í nokkrum
orðum.
Afi fæddist 3. mars 1909 á
Syðri-Villingadal í Saurbæjar-
hreppi í Eyjafirði. Foreldrar hans
voru Jónas Tómasson frá Goð-
dölum í Skagafirði og Margrét
Valdimarsdóttir frá Brekku í
Eyjafirði. Afi var fjórði af níu
alsystkinum en einnig átti hann
tvær eldri hálfsystur. Átta ára
gamall fer hann að Hleiðargarði í
sömu sveit þar sem hann dvelur
fram yfir fermingu. Síðan er
hann heima og í vinnumennsku,
eins og títt var á þessum árum.
Um 1935 flyst hann ásamt for-
eldrum að Leyning þar sem hann
bjó í um þrjú ár. Byrjaði þá
starfsferill hans sem bifreiðar-
stjóri og keyrði hann vörubíl allt
fram til ársins 1977 og þar af hjá
vörubílastöðinni Stefni um 30 ár.
Eftir 1977 starfaði hann í rúm
þrjú ár hjá Iðnaðardeild Sam-
bandsins á Akureyri.
Árið 1941 flyst afi í Hafnar-
stræti 33 á Akureyri, þar sem
hann síðan bjó til æviloka. Hann
gekk að eiga Lilju Guðrúnu Þ.
Guðlaugsdóttur frá Ánabrekku,
Mýrarsýslu árið 1944. Þau eign-
uðust fimm börn: Margréti, Þór-
höllu, Valdimar, Gylfa og Eyþór.
Afi þótti hörkumaður, dugleg-
ur, ósérhlífinn og lét sér ekkert
vaxa í augum.
Fyrstu kynni mín af afa eru al-
veg frá því fyrst er ég man eftir
mér. Áður en ég náði skólaaldri
kom afi oft heim í Birkilundinn
og tók mig með sér í vörubílnum
í vinnuna. Þá fékk ég að fylgjast
með stórum vinnuvélum eins og
allir forvitnir drengir hafa gaman
af. En ég hafði meira gaman af
afa í þessum ferðum okkar. Við
spjölluðum þá um heima og
geima og sungum ýmis gömul
barnakvæði. í kaffitímunum tók
afi upp nestistöskuna og það
brást aldrei að þar var sérútbúinn
pakki og mjólkurflaska fyrir mig.
Er leið á daginn skilaði afi mér
heim og borgaði mér hundrað
Leiðrétting
Skömmu fyrir jól sagði Dagur
frá því í frétt að Akureyri hefði
fallið úr sambandi við byggða-
línu með þeim afleiðingum að
spennufall varð í bænum og raf-
magn fór af í nokkrum hverfum.
Orsakir þessa atburðar voru
sagðar vera mistök starfsmanna
Landsvirkjunar sem voru að
störfum í spennistöðinni að
Rangárvöllum. Þetta var ekki alls
kostar rétt þar sem bilunina mátt
rekja til éldri mistaka sem gerð
höfðu verið við tengingu rofa í
stjórnstöðinni.
Hringdu og
kynntu þér
auglysingakjörin
(96)24222
m
i llhicitlilíixui ihighladid fyi'ir iiordan
krónur í laun fyrir daginn. Síðan
bað ég hann að koma aftur dag-
inn eftir.
Frá því að ég varð nógu gamall
til, þá þótti mér fátt skemmti-
legra en að hlaupa niður í Hafn-
arstræti 33 að heimsækja afa og
ömmu. Ég kom þá ávallt niður
brekkuna fyrir ofan húsið þeirra.
Þar á brekkubrúninni staldraði
ég oftast við og athugaði hvort
vörubíllinn hans afa stæði ekki á
bílastæðinu við hliðina á húsinu
og hvort amma sæist ekki á
sveimi fyrir innan eldhúsglugg-
ann. í þessum heimsóknum var
spilað á spil, teflt eða bara rætt
saman. Afi var þá ávallt hress og
kom mér ótal oft til að hlægja
með kímnigáfu sinni og léttri
stríðni. Þegar leið á daginn og
komið var fram yfir háttatímann
hjá litlum drengjum keyrði afi
mig heim á vörubílnum.
Um 1980 hófst tímabil að-
skilnaðar er ég fluttist með for-
eldrum mínum til útlanda. En afi
og amma komu í heimsókn til
okkar fyrsta sumarið við mikil
fagnaðarlæti okkar systkinanna.
Rúmu ári seinna er ég kom einn
heim til íslands dvaldi ég hjá afa
og ömmu um jólin. Þá var afi
hættur að vinna og var hann ekki
eins hraustur og áður en þó var
hann jafn kátur og glaðvær eins
og ég mundi eftir honum. Síðan
sá ég ekki afa fyrr en tæpum
þremur árum seinna, sumarið
1984, þegar við fluttum aftur til
íslands. Þá var mjög dregið af
honum en samt varð ég var við
gömlu kímnigáfu hans og baráttu-
þrek.
Hann afi minn lést svo snemma
á sunnudagsmorgun þann 15.
desember síðastliðinn. Ég þakka
honum allar ánægjustundirnar er
við áttum saman. Megi guð og
gæfan styrkja elsku ömmu.
Þórhallur Hjartarson.
Við sendum viðskiptavínum og
öðrum landsmönnum
^ bestu óskir um;
Arangursríkt
l*nýár
REIKNINGSSKIL REKSTRARRÁÐGJÖF RÁÐNINGAR
] Fell hf.
KAUPVANGSSTRÆTI 4
602 - AKUREYRI
Það Kemst
tilshilaíDegi
Áskrift og auglýsingar ® (96) 24222^^
.:í^P?r.-:.«FSöngvararnir
Michael Clarke
Þuríður Baldursdóttir
Antonía Ogonovsky
syngja dúetta, léttar óperettur,
við undirleik strengjasveitar.
— ★ —
Leikarar úr Leikféiagi Akureyrar
syngja Paper Doll söngva úr Piaf.
Strengjasveit úr Tóniistarskóla
Akureyrar leikur fyrir hátíðargesti
við borðhald.
— ★ —
Stiginn dans við undirleik
hljómsveitarinnar
Áningu
Samkvæmisklæðnaður.
Lokað öðrum en matargestum.
Takmarkaður fjöldi.
# A á -
Miðasala mánud. 30.12 kl. 18—20
Borðapantanir í síma 22970 alla daga.
Verð aðeins kr. 2.700.00