Dagur - 30.12.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 30. desember 1985
17. „Petta er áhættubúskapur og
því reiknað með áföllum," sagði
Sveinbjörn Magnússon stöðvarstjóri
hjá Fiskeldi hf. á Húsavík en mikið
tjón varð í stöðinni af völdum óveð-
urs. Sjókví eyðilagðist og úr henni
sluppu 22 þúsund seiði, en seiðin
voru metin á 1,6 milljónir króna.
22. Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti að selja Landsvirkjun hlut
sinn í Kröfluvirkjun með öllum
gögnum og gæðum og var kaupverð-
ið 1.170 milljónir króna.
24. „Ég er búinn að starfa við
byggingariðnaðinn síðan 1962 og
man ekki eftir svona ástandi,“ sagði
Aðalgeir Finnsson byggingameistari
á Akureyri, en fyrirtæki hans hafði
sagt upp 12 smiðum. Önnur fyrirtæki
þurftu einnig að segja upp mannskap
og er víst ekki bjart framundan í
byggingariðnaði í bænum.
26. Veðurfarið á Norðurlandi
sagði til sín á margvíslegan hátt.
10. Togararnir veiddu einnig vel
og má reyndar segja að um mokveiði
hafi verið að ræða hjá þeim. Þannig
kom Sauðárkrókstogarinn Hegranes
með 190 tonn af þorski eftir 5 daga
veiðiferð, og í þeirri ferð fengu skip-
verjar m.a. tvívegis 40 tonn í einu
hali.
Þessi myndarlegi hópur blaðburðarbarna Dags prýddi forsíðu kynningarbæklings sem blaðið gaf út fyrir tveimur
árum. Flest hafa þau nú vaxið upp úr blaðburðarstarfinu og ný tekið við. Verkefni þeirra uxu til muna á árinu með
tilkomu dagblaðsins. I baksýn er hús það sem Dagur og Dagsprent hafa starfsemi sína í.
Hrafnhildur Hafberg var kjörin Ungfrú Akurcyri. Hér sést hún (3. f.v.) ásamt hinum stúlkunum sem tóku þátt í
keppninni.
dóttir á Akureyri, en hún og maður
hennar Haildór Halldórsson eignuð-
ust þríbura 29. júní. Þríburarnir voru
tvær eineggja stúlkur og einn dreng-
ur og voru þau öll 8-9 merkur að
þyngd.
1. Norðurlandsleikar æskunnar
voru haldnir á Sauðárkróki um mán-
aðamótin. Þangað mættu um 1000
börn og unglingar og kepptu í fjölda
íþróttagreina.
1. Frystitogarinn Akureyrin setti
hvert metið af öðru hvað snerti afla-
verðmæti. Nú kom skipið að landi
eftir 24 daga veiðiferð, og nam afl-
averðmæti 22,5 milljónum króna.
5. „Hundadagahátíð“ var haldin
á Akureyri með pomp og prakt. Var
mikið um dýrðir en veðurguðirnir
voru ekki sem samvinnuþýðastir. 1
tengslum við hátíðina var rekið út-
varpið Siríus og voru þar margir
skondnir þættir eins og „Nektarný-
lendan“ og „Mannbætandi“ á dag-
skrá.
Heyskapur gekk ákaflega erfiðlega
eins og áður hefur verið minnst á og
á Mývatni voru íslenskir ferðamenn
sjaldséðir gestir. „Útlendingar hafa
hins vegar skilað sér,“ sagði Arnald-
ur Bjarnason sveitarstjóri þar í sam-
tali við Dag.
29. Akureyrin setti enn met. Nú
kom togarinn að landi með 230 tonn
af frystum þorskflökum. „Þetta var
þrælavinna og það lögðu allir mikið
á sig,“ sagði Þorsteinn Vilhelmsson
skipstjóri, en aflaverðmætið úr þess-
ari veiðiferð var um 27 milljónir
króna.
31. Bílaþjófar voru á ferð á Akur-
eyri. Stálu þeir bíl sem þeir skildu
eftir við Þelamörk, en þar stálu þeir
öðrum og héldu til Akraness. Þar
tóku þeir Akraborgina til Reykjavík-
ur en sofnuðu um borð og fóru víst
margar ferðir með skipinu. Vegna
þess að enginn tók bílinn úr skipinu
fóru menn að athuga málið og voru
þjófarnir sem voru 14 og 16 ára þá
handteknir í „koju“.
Agust
7. Með nýju skipulagi á innheimtu-
aðgerðum Hitaveitu Akureyrar hafði
dregið verulega úr vatnsnotkun. Wil-
helm Steindórsson hitaveitustjóri
sagði að enn mætti gera betur í stýr-
ingu á ofnakerfum og þar með nýt-
ingu vatnsins.
9. Á Ólafsfirði lagðist niður nær
öll fiskvinnsla þar sem kvótar togar-
anna voru svo til búnir. Á sama tíma
var verið að flytja út fisk í gámum
frá stöðum þar sem vinnuaflsskortur
var og sagði Ágúst Sigurlaugsson for-
maður Olafsfjarðardeildar Einingar
að það ætti að vera hægt að stjórna
þessum málum mun betur.
19. í Hrísey var unnið að varan-
legri gatnagerð. Þar var unnið fyrir 4
milljónir króna og var það mikil
framkvæmd í ekki stærra byggðar-
lagi. Áætlað er að ljúka verkinu
næsta sumar.
30. Mikill einhugur var á Fjórð-
ungsþingi Norðlendinga sem haldið
var að Laugum í Þingeyjarsýslu um
háskólakennslu á Akureyri. Þingið
skoraði á menntamálaráðherra,
alþingismenn og stjórnendur Há-
skóla íslands að hrinda nú þegar í
framkvæmd áformum um háskóla-
kennslu á Akureyri þannig að ekki
síðar en haustið 1986 verði hægt að
hefja þar háskólanám.
Á „Hundadagahátíð“ gerðu menn sér ýmislegt til skemmtunar.
Frystitogarinn Akureyrin aflaði mjög vel á árinu og setti fjöida meta í veiðiferðum sínum. Hér sést Þorstcinn Vil-
helmsson skipstjóri við skip sitt.