Dagur - 30.12.1985, Blaðsíða 9
30. desember 1985 - DAGUR - 9
23. „Kraftaverk" sögðu menn í
Grímsey er 5 ára gömul stúlka slapp
nær ómeidd eftir fall fram af 15
metra háum klettum þar. Stúlkan var
flutt á sjúkrahús á Akureyri til rann-
sóknar en reyndist óbrotin, aðeins
lítillega marin.
26. Blað brotið. - „í dag er brotið
blað í sögu dreifbýlis, þetta blað er
brotið með því að Dagur verður að
dagblaði, hinu fyrsta í dreifbýlinu
sem eitthvað kveður að,“ sagði Valur
Arnþórsson stjórnarformaður í Út-
gáfustjórn Dags í ávarpi til lesenda
er Dagur varð dagblað hinn 26. sept-
cmber.
Menn voru þó sammála um að fiski-
fræðingar mættu alveg sýna meiri
bjartsýni í tillögum sínum en þeir
hafa gert ráð fyrir 300 þúsund tonna
þorskveiði á næsta ári.
4. „Pað er líklega ekki fjarri lagi
að ríkið skuldi Akureyrarbæ allt að
25 milljónum króna vegna skóla-
framkvæmda" sagði Valgarður Bald-
vinsson bæjarritari í samtali við Dag.
8. „Ég vil ekki taka þátt í því leng-
ur að hafa fólk í þessum þrælabúð-
um, því annað er í rauninni ekki
hægt að kalla þetta. Fólk vinnur 10
tíma á dag 6 daga vikunnar og auk
þess undir álagi launahvetjandi
kerfis. Þetta er hreinn og klár þræl-
dómur og ég tel það fyrir neðan allar
hellur að verkalýðsfélögin skuli láta
bjóða sér þetta“ sagði .Hákon
Hákonarson formaður Félags málm-
iðnaðarmanna á Akureyri í samtali
við Dag eftir að tillaga hans um af-
nám launahvetjandi kerfis og yfir-
vinnu hafði verið samþykkt á þingi
Alþýðusambands Norðurlands.
9. Upplýst var að skuldir hitaveitu
Akureyrar næmu 40 milljónum
bandaríkjadala eða um 1,7 milljarði
króna. Nær allar þessar skuldir eru
vegna lántöku erlendis.
9. „Ég trúi ekki öðru en að lausn
finnist á þessu máli sem er stórmál
fyrir okkur“ sagði Pórður Skúlason
sveitarstjóri á Hvammstanga í haust.
Þá voru skelfiskveiðar að hefjast og í
ljós kom að Hvammstangabúar áttu
eftir að veiða 3 tonn af kvóta sínum.
Ráðuneytið hafði ákveðið þessa
kvótaskiptingu í vor en gleymt að til-
kynna viðkomandi aðilum.
10. Loðnusjómenn settu löndun-
arbann á verksmiðjurnar í Krossa-
nesi og á Siglufirði. Var þessi
ákvörðun tekin í kjölfar þess að
loðnuverksmiðjur landsins ákváðu
að sýnataka úr förmum skipanna færi
fram eftir löndun en ekki um borð í
skipunum eins og venjan hafði verið.
Barst engin loðna á þessa tvo lönd-
unarstaði í nokkurn tíma eða þar til
samkomulag náðist milli deiluaðila
um hvernig standa skyldi að sýnatök-
unni.
10. Plasteinangrun hf. á Akureyri
samdi um sölu á 10 þúsund fiskiköss-
um til Kanada og sagði Sigurður
Arnórsson framkvæmdastjóri Plast-
einangrunar hf. að vonir stæðu til að
samningar næðust um frekari sölu til
Kanadamanna.
10. Þýskir þjófar voru á ferð á
Raufarhöfn og stálu borvélum og
fleiri tækjum úr Fiskvinnslu Björns
Hólmsteinssonar. Þjófarnir voru
skipverjar á þýska skipinu Arjah sem
var að lesta mjöl á Raufarhöfn.
Gcysileg loðnuveiði hefur verið í haust. Myndin er frá loðnuiöndun á Sigiu-
firði.
10. Svokölluð „tínusbjalla“ gerði
usla í skreiðargeymslum á Húsavík og
Ólafsfirði og varð að loka húsum þar
um tíma vegna þessa.
11. Ólafsfirðingar fengu fyrstu
loðnuna til bræðslu er Skarðsvík
kom þangað með um 650 tonn,
Bræðslan á Ólafsfirði afkastar 130-
140 tonnum á sólarhring.
14. „Vírinn hefur verið of
grannur, helvítis helvíti" sagði Heið-
ar Baldvinsson eigandi Þórunnar
ÞH, 12 tonna báts sem reynt var að
ná af hafsbotni út af Hvannadals-
björgum. Báturinn hafði farist þar
síðla árs 1984, síðar hafði tekist að
koma vírum um bátinn þar sem hann
lá á 130 metra dýpi en þegar hífa átti
hann upp frá hafbotni slitnaði vírinn.
15. Talsvert hafði verið rætt um
það að Byggðastofnun myndi flytja
til Akureyrar og virtist meirihluti
stjórnar stofnunarinnar samþykkur
því. Stjórnin ákvað þó síðar að leita
til hlutlausra aðila um að vinna að út-
tekt á hagkvæmni þess að staðsetja
stofnunina fyrir norðan.
15. Flugvél af gerðinni ATR-42
lenti á Akureyri. Voru framleiðend-
ur vélarinnar að kynna hana hér á
landi. enda eru Flugleiðatnenn farnir
að hyggja að því að endurnýja flug-
vélakost sinn í innanlandsflugi.
16. Byssuvargar voru á ferð á Ak-
urevri. Skutu þeir tveimur skotum að
vistheimilinu Sólborg. Annað skotið
hafnaði í gluggakarmi en hitt fór í
gegn um ytra gler og sprengdi innra
gler.
16. Skinnadeild Iðnaðardeildar
Sambandsins á Akureyri og finnska
fyrirtækið Friitala undirrituðu samn-
ing um kaup finnska fyrirtækisins á
skinnum fvrir um eina milljón doll-
ara.
16. Starfsmenn útivistarsvæðisins
í Kjarna settu upp 500 metra langa
girðingu í landi Hamra II en ábúandi
jarðarinnar fór í skjóli myrkurs
næstu nótt á eftir og reif girðinguna
niður. Málið var kært til lögreglu en
Jón Matthíasson sem tók niður girð-
inguna sagðist harma það eitt að hafa
ekki haft með sér blaðamenn er hann
tók girðinguna niður.
17. „Ef framlag ríkisins hækkar
ekki verulega miðað við það sem gert
er ráð fyrir í fjárlögum. þá tekst okk-
ur ekki að taka í notkun 3. áfanga
Verkmenntaskólans næsta haust"
sagði Magnús Garðarsson fulltrúi
byggingarnefndar skólans. Magnús
sagði að vonast hefði verið eftir 20
milljóna króna framlagi til verksins
frá ríkinu en bætti við: „Það er
skuggalegt ef við fáum ekki nema 10
milljónir króna."
18. Sviftivindur tók þakið af hlöð-
unni á bænum Hæringsstöðum í
Svarfaðardal og svifti því af í heilu
lagi. Hlaðan var næstum full af heyi
en skemmdir á því urðu litlar.
24. Flugfrevjur fóru í verkfall sem
lauk fljótt með setningu bráða-
birgðalaga. A meðan verkfallið stóð
yfir var nóg að gera hjá Flugfélagi
Norðurlands og sagði starfsmaður
þar að það væri eins og jólin væru að
koma. svo mikið var annríkið.
26. „Það er talsvert um riðu hér á
svæðinu. í Kelduhverfi er riða mjög
víða, í Aðaldal og Reykjadal er um 6
bæi að ræða og nú í sumar kom upp
eitt tilfelli á Húsavík." sagði Bárður
Guðmundsson dýralæknir á Húsa-
vík. Rætt var um hvort samkomulag
milli bænda á svæðinu gæti tekist um
niðurskurð. Um yrði að ræða 7000
fjár sem slátrað yrði. Ákvörðunar í
Dagur varð dagblað í september. Hér sést fulitrúi DV á Akureyri afhenda Hermanni Sveinbjömssyni rítstjóra Dags blómvönd í tilefni þess.
„Sumarmynd“ frá Norðurlandi. Það var eins gott að hafa regnhlífarnar uppi
við.
September
'6. Allir hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar við Kristnesspítala höfðu
sagt upp störfum sínum. Voru upp-
sagnirnar tilkomnar vegna óánægju
með launakjör, í kjölfar yfirborgun-
ar Fjórðungssjúkrahússins. Síðar
kom svo í ljós að uppsagnirnar voru
ekki löglegar þar sem þær voru
skilyrtar þannig að enn hefur ekki
komið til þess að uppsagnirnar hafi
tekið gildi.
11. Á Hvammstanga var fyrirhug-
að að taka í notkun nýjan grunnskóla
í haust en ekki gat orðið af því vegna
þess að smiðir fengust ekki til starfa.
Kristján Björnsson oddviti sagði að
smiðir á staðnum hefðu tekið sig
saman og stofnað verktakafyrirtæki
og væru uppteknir við að byggja fjöl-
býlishús. Reynt var að fá smiði ann-
ars staðar frá en það tókst ekki.
16. „40% eignahlutur ríkisins í
Steinullarverksmiðjunni á Sauðár-
króki er falur," sagði iðnaðarráð-
herra er hann vígði verksmiðjuna
formlega hinn 15. september. Til-
raunaframleiðsla í verksmiðjunni
hafði staðið yfir frá 9. ágúst og geng-
ið vel.
16. Loðnubræösla hófst í nýrri og
endurbættri verksmiðju Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði, en skipt
hafði verið um stóran hluta alls
tækjabúnaðar.
18. Menn héldu að jólasveinninn
Kjötkrókur væri kominn til byggða
því brotist var inn í barnaheimilið
Páhnholt á Akureyri og stolið þar 10
kg af kjöti.
því máli gæti verið að vænta áður en
langt um líöur.
26. Unnið var af fullum krafti við
sökkla nýja íþróttahússins á Siglu-
firði en Berg hf. hafði fengið það
verk eftir að hafa boðið í verkið 47%
meira en kostnaðaráætlun gerði ráð
fyrir. Síðar var farið að yfirfara út-
boðsgögnin og kom þá í ljós að tveir
liðir þeirra höfðu verið vanreiknaðir.
Október
•2. Svæðisútvarp hófst að nýju á Ak-
ureyri en tilraunaútsendingar höfðu
farið fram fyrr á árinu. Fyrst um sinn
var útvarpað í klukkustund á dag en
útsendingartíminn síðan lengdur um
hálftíma. Útvarpað er fimm daga
vikunnar.
3. Frystitogarinn Akurevrin fékk
60 tonn af fiski í trollið hjá sér í einu
kasti. 27 klukkustundir tók að vinna
aflann um borð, en fátítt er að togar-
ar fái svona stór „höl".
3. Útvegsmenn á Norðurlandi
funduðu á Akureyri og var niður-
staða fundar þeirra sú að menn voru
sammála um að halda yrði áfram að
stjórna veiðum með kvótakerfinu.